Morgunblaðið - 07.12.2011, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2011
✝ Jón Jósefssonfæddist á Ak-
ureyri 16. apríl
1942. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
24. nóvember 2011.
Foreldrar hans
voru Jósef Hart-
mann Sigurðsson
frá Akureyri, f. 15.
apríl 1910, d. 28.
febrúar 2007 og
Sveinbjörg Ágústa Jónsdóttir frá
Norðfirði, f. 28. ágúst 1920, d. 12.
febrúar 2009. Systur Jóns eru 1)
Anna Guðrún Jósefsdóttir, f. 11.
mars 1948. 2) Sesselja Ingibjörg
Jósefsdóttir, f. 28. september 1959.
Eiginmaður hennar er Guðjón
Hilmarsson og börn þeirra eru
Anna Björg, f. 1989 og Bjarni Geir,
f. 1993.
Jón kvæntist eftirlifandi eig-
inkonu sinni, Kristínu Gísladóttur,
f. 22. júlí 1939, þann 31. október
1970. Foreldrar Kristínar voru
Gísli Eiríksson, f. 30. júlí 1906, d.
26. september 1982 og Emilía Þor-
geirsdóttir, f. 18. maí 1904, d. 24.
desember 1965. Jón og Kristín
eignuðust fjögur
börn. Þau eru 1)
Brynja Hrönn, f. 15.
júní 1973. 2) Hildur
Edda, f. 20. janúar
1975. 3) Sverrir Már,
f. 14. september
1980. 4) Gunnar
Hrafn, f. 9. júní 1986.
Maki Hildar er Bragi
H. Smith, f. 14. sept-
ember 1972. Synir
þeirra eru a) Helgi
Hrannar, f. 20. febrúar 2003. b)
Brynjar Orri, f. 2. október 2006.
Jón ólst upp fyrstu 5 árin á Ak-
ureyri þar til foreldrar hans fluttu
til Reykjavíkur. Jón hóf ungur
störf í Landsbankanum en árið
1962 hélt hann til Tulsa, Okla-
homa, til að læra flugvirkjun.
Hann starfaði fyrstu árin sem
flugvirki hjá Loftleiðum en fór
síðan yfir til Flugfélags Íslands og
Flugleiða. Hann starfaði víða um
heim sem flugvirki á vegum Flug-
leiða. Hann lét af störfum sökum
aldurs 2009.
Útför Jóns fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, 7. desember
2011, og hefst athöfnin kl. 13.
Að leiðarlokum vil ég þakka
tengdaföður mínum samfylgdina
og ljúf og góð kynni. Hann var
hæglátur og fór ekki mikinn en ég
fann að hann vildi allt fyrir okkur
gera. Traustur og handlaginn,
ávallt hægt að leita til hans og ég
verð að viðurkenna að ég notfærði
mér óspart hæfileika hans til bíla-
viðgerða. Hann hafði yndi af að
ferðast, ferðaðist mikið starfa
sinna vegna og hafði enda heim-
sótt flestar heimsálfur og margar
þeirra oftar en einu sinni. Hér inn-
anlands fórum við í skemmtileg
ferðalög og sumarbústaðaferðir
saman. Mig tók sárt að hann
skyldi veikjast svo skömmu eftir
starfslok þegar sá tími kom að
njóta ávaxta starfa sinna. Það var
aðdáunarvert hvað hann tók veik-
indunum af miklu æðruleysi, hafði
óbilandi trú á að hann gæti náð
sér og sterkan vilja til að komast
aftur á fætur. Verðug áminning til
okkar hinna um að njóta þeirra
stunda sem okkur eru gefnar.
Missirinn er sár en minningarnar
góðar. Hafðu kæra þökk fyrir allt
og allt.
Bragi Smith.
Kær bróðir er látinn.
Við systkinin áttum mörg sam-
töl síðustu vikurnar. Í upphafi var
mikið rætt um líðandi stund og
framtíðina. En smátt og smátt
breyttust samtölin og fortíðin átti
hug okkar allan.
Ég var smástelpa þegar Jón
bróðir fór til Bandaríkjanna að
læra flugvirkjun. Á meðan hann
var í námi sendi hann heim það
dót sem þá var nýtt í verslunum
vestan hafs, Barbie og Ken, ung-
linga og smábörn og ekki bara
dúkkurnar heldur fatnað og fylgi-
hluti, húsgögn og fleira. Eins fékk
ég stóra dúkku og risastóran
bangsa og ég trúði því að hann
hefði setið í flugstjórasætinu á
leiðinni til landsins.
Eitt af áhugamálum Jóns var
módelsmíð. Það var spennandi að
fylgjast með þessum litlu hlutum
verða að flugvélum. Ég vildi fá að
gera eins og hann en þessir litlu
hlutir voru viðkvæmir fyrir litla
barnsfingur sem stundum tóku of
fast á módelum og brutu. En mikið
var hann góður og tillitssamur, tók
fram límtúpuna og lagaði. Ég man
líka hvað mér þóttu MAD blöðin
hans flott og stundum finnst mér
ekki svo langt síðan ég fletti þeim.
Það var fleira sem mér þótti
spennandi, m.a. allar hljómplöt-
urnar hans. Ég stalst stundum í að
spila þær og sum lög eru mér
minnisstæðari en önnur. Aldrei
man ég eftir því að hann hafi orðið
mér reiður eða skammað mig,
hann sagði kannski að ég ætti ekki
að spila plöturnar en í framhaldi af
því leiðbeindi hann mér og sagði
mér hvað nálin á plötuspilaranum
væri viðkvæm og hvernig ég ætti
að meðhöndla plötuspilarann og
plöturnar. Ef til vill vissi hann að
ég myndi ekki láta sautján ára ald-
ursmun stoppa mig frá því að gera
eins og hann.
Ég man þegar hann kynntist
Kristínu konu sinni, sem þá var
flugfreyja, hversu gaman var að
hlusta á þau þegar þau komu í
heimsókn til mömmu og pabba. Þá
voru sagðar sögur af ferðalögum,
ein heimsborg í dag og önnur á
morgun. Mér fannst ótrúlega
ósanngjarnt að þurfa að fara að
sofa þegar þau voru í heimsókn
hjá foreldrum okkar og missti þá
af ferðasögunum. Á þessum tíma
svaf ég í borðstofunni og smá ljós-
týra barst inn til mín. Ég gerði
margar tilraunir til að sannfæra
foreldra mína um að ég gæti bara
ekki sofið út af birtunni en að sjálf-
sögðu var ég bara forvitin.
Þegar Jón lá á líknardeildinni í
Kópavogi fékk hann heimskort og
fór að merkja þá staði sem hann
hafði komið til í starfi og í fríi.
Hann setti litaðan prjón í kortið
fyrir hvern stað. Hann náði ekki
alveg að klára, prjónarnir 50 klár-
uðust fyrr. Ég sat hjá honum og
hann sagði mér sögur, þar sem
húmor og hættur komu við sögu.
Í október kom Jón tvær helgar í
röð í heimsókn til mín í sumarbú-
stað. Hann var mjög veikur en af
þrjósku þá vildi hann koma og fjöl-
skyldan lagðist á eitt til að þessar
heimsóknir gætu orðið að veru-
leika. Þessar stundir eru ómetan-
legar.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Minning þín mun lifa.
Sesselja Ingibjörg
Jósefsdóttir.
Jón bróðir er farinn. Reyndar
töluvert fyrr en hann hafði hugs-
að sér. Hann gerði allt sem hann
megnaði til að fá að vera lengur
hér með okkur en varð að lokum
að láta í minni pokann. En hand-
an þessa heims bíður okkar ann-
ar heimur og þar taka á móti hon-
um ástvinir sem á undan eru
farnir. Þessa síðustu mánuði hafa
minningar hrannast upp og
margs er að minnast.
Mig langar að kveðja þig með
þessu ljóði. Við hittumst síðar.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Kæri bróðir, minning þín lifir.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Anna Guðrún
Jósefsdóttir
Við hittumst fyrst í Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar fyrir
nærri 60 árum. Þá var ég nýflutt-
ur í Austurbæinn og þekkti þar
engan. Ég var svo heppinn að
sitja hjá Jóni strax frá fyrsta degi
og urðum við vinir og hélst sú vin-
átta alla tíð. Á unglingsárunum
var margt gert, við nutum þess að
hjóla og var þá oft farið niður á
flugvöll og vélarnar skoðaðar
þar.
Ekki grunaði okkur þá hvað
það mundi þýða fyrir okkur
seinna meir. Og þó – þegar Vic-
ker Viscount flugvélarnar komu
hingað í maí 1957 hlupum við frá
Gaggó Aust og út á flugvöll. Það
var í fyrsta skipti sem við tölum
um að gaman væri að vinna við
flugvélar. Við völdum það starf
seinna og urðum báðir flugvirkj-
ar.
Þetta sama ár var líka Sputnik
skotið á loft og má segja að það ár
hafi grunnurinn verið lagður að
þeirri tækniþróun sem nú er alls-
ráðandi. Var þetta uppspretta
mikilla umræðu um framtíð flug-
tækninnar. Jón Jósefsson var alla
tíð vel inni í þeirri þróun og var
alltaf gaman að tala við hann um
flugvélar, sérstaklega nýjar upp-
finningar í þeim geira. Ég kveð
góðan vin og félaga með söknuði
og bið guð að styrkja Kristínu og
fjölskyldu.
Minningar um góðar stundir í
leik og starfi með Jóni verða mér
alltaf mikils virði.
Hartvig Ingólfsson.
Jón Jósefsson
✝ ÞórhildurJónsdóttir var
fædd í Reykjavík
þann 7. des. 1944.
Hún lést á Land-
spítalanum þann
26. nóv. 2011.
Eftirlifandi eig-
inmaður hennar er
Victor Jacobsen, f.
22.5. 1942. Börn
þeirra eru: Að-
alheiður Jacobsen
, f. 2. júní 1965. Hún er gift
tvo syni, Victor Ingva, f. 1995
og Geir Örn, f. 2006. Foreldrar
Þórhildar voru Agnes Péturs-
dóttir, fædd á Akureyri, f.
24.6. 1923, dáin 17.7. 1984 og
Jón Guðjónsson, rafvirkja-
meistari fæddur í Reykjavík,
20.2.1922. Systikini Þorhildar
eru Guðjón Jónsson, f. 6.4.
1947 kvæntur Þuríði Erlends-
dóttur, f. 11.11. 1947 þau eiga
einn son; Sigríður Jónsdóttir,
f. 27.12. 1955, hún á tvo syni,
og Anna María Jónsdóttir, f.
3.11. 1959, gift Ísleifi Karls-
syni, f. 14.9. 1958, þau eiga tvö
börn.
Útför Þórhildar fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
miðvikudaginn 7. desember
2011, og hefst athöfnin kl. 15.
Sigurði Erni Sig-
urðssyni, f. 24. júlí
1961. Þau eiga
fjögur börn,
Huldu, f. 1987,
Þórhildi f. 1993,
Agnesi, f. 2001 og
Sigurð Örn f.
2006. Jón Kristján
Jacobsen, f. 26.
des. 1966. Hann er
í sambúð með
Katrínu Ingvadótt-
ur, f. 27. okt. 1972. Þau eiga
Elsku fallega frænka mín, þá
er víst komið að kveðjustund að
sinni, sem þó er svo ótímabært og
svo sárt. Þegar ég hugsa til baka
þá á ég svo endalaust margar fal-
legar og skemmtilegar minning-
ar um þig sem ég get ornað mér
við. Þú varst einhvern veginn
alltaf glöð, alltaf jákvæð og og
alltaf svo skemmtilegt að vera í
kringum þig. Það fylgdi þér
ávallt einhver ferskleiki og æv-
intýri og þegar ég var lítil stelpa í
sveitinni þá beið ég alltaf spennt
eftir að þú kæmir í heimsókn því
ég var alveg dolfallin yfir þér,
þessari glæsilegu frænku minni,
og gleðinni sem fylgdi þér. Ég er
þakklát fyrir stundirnar okkar
saman sem samt voru svo allt of
fáar. Ég minnist þín með ást og
hlýju og söknuði. Tíminn þinn
hér hjá okkur var svo alltof, alltof
stuttur.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði, vinur minn kær,
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær,
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Nú ertu komin á betri stað þar
sem þú þarft ekki lengur að þjást.
Það hefur örugglega verið tekið
vel á móti þér þegar þú birtist
hinum megin þar sem Agnes
amma, pabbi og brósi minn hafa
tekið þér fagnandi.
Takk fyrir allt, elsku Þórhildur
mín, heimurinn er fátækari án
þín.
Elsku Vikki, Aðalheiður,
Nonni og aðrir aðstandendur,
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur til ykkar allra, megi Guð
vernda ykkur og styrkja í ykkar
miklu sorg.
Steinunn Ásg. Frímanns-
dóttir (Steina frænka).
Þórhildur
Jónsdóttir
• Mikið úrval
• Yfir 40 ára reynsla
• Sendum myndalista
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk
sími 587 1960 www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
✝
Kær bróðir minn og móðurbróðir okkar,
ERLINGUR GUNNARSSON,
áður Snæfelli,
Borgarvegi 19,
Njarðvík,
lést á dvalarheimilinu Felli, Reykjavík
aðfaranótt föstudagsins 2. desember.
Bryndís Gunnarsdóttir Rondeau,
Dóróthea Herdís Jóhannsdóttir,
Oddný Halldórsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐJÓNA JÓNSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
Sturlu-Reykjum,
lést á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi
fimmtudaginn 1. desember.
Útför verður frá Reykholtskirkju laugardaginn 10. desember
kl. 11.00.
Jóhannes Kristleifsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
Aldís Eiríksdóttir,
Snorri Kristleifsson, Vilborg Pétursdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT LÁRUSDÓTTIR,
Skútustöðum,
lést laugardaginn 3. desember.
Höskuldur Þráinsson, Sigríður Magnúsdóttir,
Baldvin Kristinn Baldvinsson,
Sólveig Þráinsdóttir,
Steinþór Þráinsson,
Hjörtur Þráinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæri faðir, bróðir og mágur,
SÆVAR LÍNDAL JÓNSSON
stýrimaður,
Asparfelli 4,
Reykjavík,
er látinn.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstu-
daginn 9. desember kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Eva Sævarsdóttir,
Unnur Huld Sævarsdóttir,
Hafdís Líndal Jónsdóttir, Marinó Sigurpálsson,
Jón Líndal Bóasson, Sigrún Karlsdóttir,
Sæþór Líndal Jónsson, Halla Hallgrímsdóttir,
Sædís Líndal Jónsdóttir, Magnús Guðmundsson,
Ingibjörg Ólafsdóttir, Höskuldur Bjarnason,
afabörnin og langafabarn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HARALDUR RAGNARSSON,
Stóragerði 26,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð á
Vífilsstöðum miðvikudaginn 30. nóvember,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 9. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á líknarfélög.
Hulda Haraldsdóttir, Pétur Hans Baldursson,
Ragnar Haraldsson, Birna Garðarsdóttir,
Ingibjörg Haraldsdóttir, Hallgrímur Sigurðsson,
afa- og langafabörn.
✝
Elskuleg móðir, amma, langamma og langa-
langamma,
HALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR,
andaðist á dvalarheimilinu Lundi sunnu-
daginn 4. desember.
Hún verður jarðsungin frá Oddakirkju laugar-
daginn 10. desember kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á dvalarheimilið Lund á Hellu, reiknings-
númer 0308-13-300709.
Fyrir hönd aðstandenda,
Lúðvík Vignir Ingvarsson.