Morgunblaðið - 07.12.2011, Page 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
3
1 4 8
2 5 4 9
3 4 1
7 8 4 2 5
5 1 7
8
7 3
9 2 5 3 4
4 5 9 2
3 7 1 5 6
3
9 3
4 2 3 6 1
1 4
3 9 5 2
7
6 5
9 7 8
7 3 2
1 2 9
8 6 3
8 9 7
2 6
6 1 9 5 7
8 9 6 1
8 6 5 1 9 3 4 2 7
2 4 1 5 7 6 9 3 8
9 7 3 2 8 4 5 1 6
4 3 2 6 1 5 8 7 9
5 9 7 4 2 8 1 6 3
1 8 6 7 3 9 2 4 5
3 5 4 8 6 1 7 9 2
6 2 8 9 4 7 3 5 1
7 1 9 3 5 2 6 8 4
6 2 4 8 1 7 9 5 3
1 7 3 9 5 2 8 6 4
8 9 5 6 3 4 7 1 2
9 8 1 3 2 6 5 4 7
5 6 7 1 4 8 2 3 9
3 4 2 5 7 9 6 8 1
2 3 9 4 6 5 1 7 8
4 5 8 7 9 1 3 2 6
7 1 6 2 8 3 4 9 5
3 2 5 9 1 6 4 8 7
1 6 8 5 4 7 2 9 3
9 4 7 2 8 3 1 5 6
8 3 4 1 2 5 7 6 9
7 5 1 3 6 9 8 4 2
6 9 2 4 7 8 5 3 1
5 1 6 8 3 2 9 7 4
4 8 3 7 9 1 6 2 5
2 7 9 6 5 4 3 1 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 7. desember,
341. dagur ársins 2011
Orð dagsins: En ég mun sakir réttlæt-
isins skoða auglit þitt, þá er ég vakna,
mun ég mettast af mynd þinni. (Sálm.
17, 15.)
Brasilíski læknirinn Socrates áttisinn þátt í því að gera heims-
meistarakeppnina 1982 ógleyman-
lega. Socrates fór fyrir einhverju
besta landsliði, sem Brasilía hefur
átt. Liðið náði að heilla áhorfendur
með tækni sinni og yfirburðum, sem
þó dugðu ekki til að vinna heims-
meistaratitil. Í einum skemmtileg-
asta úrslitaleik sögunnar reyndust
Ítalir með Paolo Rossi innanborðs
ofjarlar þeirra. Talað er um að þetta
lið Brasilíu sé besta landslið, sem
aldrei varð heimsmeistari.
x x x
Socrates lést um helgina, aðeins57 ára gamall. Socrates Brasi-
leiro Sampaio de Sousa Vieira de
Oliveira hét hann fullu nafni. Ferill
hans var með óvenjulegasta móti.
Hann ákvað að hella sér ekki út í al-
þjóðlega knattspyrnu fyrr en 25 ára
að aldri þegar hann hafði lokið prófi í
læknisfræði. Hann hafði yfirburða-
skilning á leiknum og bjó yfir meiri
tækni en flestir. Hann var ekki mik-
ill á velli, en með óvæntum og út-
smognum sendingum gat hann séð
við leikmönnum, sem voru meiri að
burðum og sterkari en hann. Herfor-
ingjastjórn var við völd í Brasilíu
þegar hann lék með liðinu Cor-
inthians í upphafi níunda áratug-
arins. Lýðræði átti ekki upp á pall-
borðið hjá stjórnvöldum, en í
knattspyrnufélaginu varð til hreyf-
ing, sem kenndi sig við lýðræði og
lék til sigurs á þeim forsendum.
x x x
Þegar knattspyrnuferli Socrates-ar lauk settist hann aftur á
skólabekk og lauk doktorsprófi í
heimspeki. Hann var læknir í bæn-
um Ribeirao Preto. „Að vinna er
ekki það mikilvægasta, fótbolti er
list og í honum á sköpunarkraftur að
koma fram,“ sagði Socrates. „Ef
Vincent van Gogh og Edgar Degas
hefðu vitað þegar þeir gerðu sín
verk hvílíka viðurkenningu þeir
myndu öðlast hefðu þeir ekki gert
þau með sama hætti. Þú verður að
hafa gaman af því að búa til listina
og ekki hugsa „mun ég vinna“?“
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 mögur, 8 veikin,
9 skjálfa, 10 þræta, 11 erf-
ingjar, 13 veisla, 15 refsa,
18 lægja, 21 hlemmur, 22
háski, 23 fugls, 24 pretta.
Lóðrétt | 2 leyfi, 3 látnar, 4
órétt, 5 fíngerði, 6 hóta, 7 týni,
12 gott eðli, 14 bókstafur, 15
draga, 16 afréttur, 17 gömul, 18
sundfugl, 19 eldstæði, 20 leðju.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 afnám, 4 hoppa, 7 vagns, 8 lesta, 9 alt, 11 garn, 13 hrín,
14 ýkjur, 15 bjór, 17 æfar, 20 hró, 22 aðall, 23 víkur, 24 titra, 25
remma.
Lóðrétt: 1 alveg, 2 nógur, 3 mása, 4 holt, 5 posar, 6 akarn, 10
lýjur, 12 nýr, 13 hræ, 15 bjart, 16 ólatt, 18 fákum, 19 rorra, 20
hlúa, 21 óvær.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Öðruvísi þvingun.
Norður
♠DG74
♥D98
♦ÁK9
♣964
Vestur Austur
♠109832 ♠ÁK65
♥-- ♥763
♦G753 ♦D108
♣G532 ♣1087
Suður
♠--
♥ÁKG10542
♦642
♣ÁKD
Suður spilar 7♥.
Þrír litir koma venjulega við sögu í
tvöfaldri kastþröng – hvor mótherji um
sig valdar einn lit sérstaklega, en báðir
þann þriðja sameiginlega. Þvingunin
að ofan er af öðrum toga. Útspilið er
♠10.
Sagnhafi setur upp ♠G og trompar
kóng austurs. Spilar síðan öllum
trompunum nema einu og þremur
efstu í laufi. Í lokastöðunni á blindur
eftir ♠D7 og ♦ÁK. Fari vestur niður á
stakt millispil í spaða má fría sjöuna
með því að spila út ♠D. Tveir efstu í
tígli duga sem innkomur í þá aðgerð.
Hendi vestur hins vegar tígli lendir
austur í svipuðum vandræðum með
þrílitinn í tígli og ♠Á6.
Sameiginlegi valdliturinn er tígull,
en spaðinn gegnir hlutverki sjálfstæða
litarins hjá hvorum um sig - ♠7 er hót-
un á vestur, en ♠D á austur.
7. desember 1879
Jón Sigurðsson forseti lést í
Kaupmannahöfn, 68 ára. Hann
var jarðsettur í Reykjavík 4.
maí 1880 ásamt Ingibjörgu
Einarsdóttur konu sinni, sem
lést 16. desember 1879.
7. desember 1881
Minnisvarði um Jón Sigurðs-
son var afhjúpaður á gröf
hans í Hólavallagarði í
Reykjavík, tveimur árum eftir
að hann lést. Varðinn var
reistur fyrir samskotafé og
var afhjúpaður „í viðurvist
mesta fjölmennis af öllum
stéttum,“ eins og sagði í Ár-
bókum Reykjavíkur.
7. desember 1936
Síld féll úr lofti í Bjarneyjum á
Breiðafirði, sennilega af völd-
um skýstróks. „Síldarnar voru
25 að tölu,“ sagði Alþýðublað-
ið.
7. desember 1970
Íslensk kona fékk nýra úr
bróður sínum. Skurðaðgerðin
var gerð í London. „Þetta mun
vera í fyrsta skipti sem nýrna-
flutningur er gerður á Íslend-
ingum,“ sagði Morgunblaðið.
7. desember 1994
Bónus bauð tíu mest seldu
jólabækurnar með 15% af-
slætti. Nokkrum dögum síðar
fór afslátturinn í 30% og rætt
var um bókastríð. „Bókabúðir
eru allar með sama verð, sem
mér þykir ósvinna,“ sagði Jó-
hannes Jónsson í Bónus í sam-
tali við Morgunblaðið. „Bók-
menntir eru ekki eins og
sykur og hveiti,“ sagði bókaút-
gefandi við DV.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Snorri Stefánsson, sviðsstjóri hjá Samkeppnis-
stofnun, er þrítugur í dag. Hann segist ekki ætla
að standa fyrir miklum fagnaðarlátum í tilefni af-
mælisins. „Eftir mikla íhugun þá eiginlega bara
nennti ég því ekki. Það eru að koma jól og maður
er að hugsa um börnin sín og kaupa jólagjafir. Það
hafði einhvern veginn forgang,“ segir Snorri.
Hann hafi ekki verið mikið fyrir það að halda
upp á afmælið. Yfirleitt hafi hann verið í prófum í
skóla á þessum tíma árs. „Ég hef aldrei komist upp
á lag með það að halda mikið upp á þetta.“
Einn liður hefur þó verið fastur á afmælisdag-
inn og það er að fá sér súkkulaðiköku, segir Snorri. Býst hann við að
fjölskyldan kíki í kaffi og köku til að samfagna honum. „Ég aðhyllist
kökuát á afmælisdaginn, það er alveg óhætt að segja það,“ segir hann.
Snorri segir að erfitt sé að gefa honum gjafir í tilefni dagsins þar
sem hann sé svo nægjusamur að hann langi yfirleitt aldrei í neitt.
Hann þykist þó hafa rökstuddan grun um að hann fái frábærar gjafir
á stórafmælinu í dag. „Mínir nánustu hafa verið mjög dularfullir upp
á síðkastið. Ég geri ráð fyrir að þeir hafi verið að skipuleggja ein-
hverjar frábærar gjafir fyrir mig!“ kjartan@mbl.is
Snorri Stefánsson er þrítugur í dag
Býst við frábærum gjöfum
Flóðogfjara
7. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.23 3,4 10.39 1,2 16.41 3,3 22.48 1,0 11.01 15.38
Ísafjörður 0.11 0,6 6.29 1,8 12.49 0,6 18.42 1,7 11.41 15.08
Siglufjörður 2.04 0,3 8.22 1,1 14.38 0,3 20.55 1,0 11.25 14.50
Djúpivogur 1.33 1,8 7.55 0,7 13.48 1,5 19.48 0,5 10.38 14.59
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Farðu varlega í öllum samskiptum
við aðra og mundu að ekkert er sem sýnist.
Notaðu kvöldið til að endurnýja orku þína.
Farðu gætilega í fjármálum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Litlu kraftaverkin halda áfram að ger-
ast. Gleymdirðu afmælisdegi eða varstu ótil-
litssamur? Þú getur bætt það upp seinna.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Einhver er tilbúinn að rétta þér
hjálparhönd í dag. Sýndu því tillitssemi og
umburðarlyndi. Biðin er vel þess virði.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Aðdáun þín á einhverjum er gagn-
kvæm. Láttu ekki undan freistingunni að láta
kæruleysisleg orð falla því þau gætu reitt
einhvern til reiði.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Eftirtektarsemi þín er með mesta móti
núna, ekki síst þegar þú ert innan um fólk
sem býr yfir leyndarmáli.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Athygli þín beinist að heimili, fjöl-
skyldu og fasteignum á næstu vikum. Gáfu-
legt væri af öðrum að bjóða þér í sitt lið.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Á næstu vikum muntu hafa mikla þörf
fyrir að ferðast og víkka sjóndeilarahring
þinn. Leggðu þig fram og sjáðu til þess að
skoðanir þínar séu öllum ljósar.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ef þú lendir í deilum við for-
eldra þína eða aðra ástvini reyndu þá að
hugsa áður en þú talar. Með réttu hugarfari
er allt mögulegt.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Fólk gerir miklar kröfur til þín og
þú þarft að gæta þess að fá tíma fyrir sjálf-
an þig. Gakktu samt ekki fram af sjálfri/um
þér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er alltaf auðveldara að sjá
hvað fór úrskeiðis eftir að allt er um garð
gengið. Einhver gæti hagnast á því að þér
yfirsæist eitthvað.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ættir að gera þér glaðan dag
með einhverju móti svona bara til þess að
vera góður við sjálfan þig. Haltu sambandi
við fólkið sem skiptir þig máli.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Notaðu daginn til þess að dytta að á
heimilinu og lagfæra það sem er bilað.
Reyndu að velja þá úr sem þurfa raunveru-
lega á hjálp þinni að halda.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rb3 Be6 8. Dd2
Rbd7 9. O-O-O Hc8 10. f4 Be7 11. Kb1
b5 12. f5 Bc4 13. h3 d5 14. Rxd5 Rxe4
15. De1 Bxd5 16. Hxd5 Dc7 17. c3 Rdf6
18. Hd1 h5 19. Bd3 h4 20. Hg1 Hh5 21.
Be2 Hh8 22. Bd3 Hh5 23. Be2 Hh8 24.
Rd2 Rg3 25. Bd3 Rd5 26. Bf2 Rf4 27.
Rf3 Rxd3 28. Hxd3 Rxf5 29. Rxe5 Hh6
30. Hd7 Db8 31. Ba7 Da8 32. Hf1 He6
33. Hxf5 f6 34. Dxh4 fxe5
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga í Rogaska Slatina í Slóveníu.
Stórmeistarinn Sergei Zhigalko
(2696) frá Hvíta-Rússlandi hafði hvítt
gegn ungverska alþjóðlega meist-
aranum Michal Meszaros (2377). 35.
Hxe7+! Hxe7 36. Bc5! He6 37. Hf8+
Kd7 38. Hf7+ Kc6 39. b4 e4 40. Ha7
Db8 41. Hxa6+ Kd5 42. Dh5+ De5 43.
Dd1+ og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is