Morgunblaðið - 07.12.2011, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2011
Teiknimyndin Artúr bjargarjólunum er sú nýjasta fráteiknimyndadeild Sony,fantavel teiknuð og hröð.
Augljóslega er um jólamynd að ræða
og ákveðið að fara ekki krúttleg-
heitaleiðina heldur leggja áherslu á
skemmtun og nýbreytni, þ.e. eins
langt og hægt er að fara í frumleg-
heitum þegar sögur af bandaríska,
spikfeita og síkáta jólasveininum eru
annars vegar.
Útgangspunktur myndarinnar er
hin sígilda spurning um hvernig jóla-
sveininum takist að koma gjöfum til
allra barna heimsins á einni nóttu. Í
myndinni segir af Artúri sem er yngri
sonur jólasveinsins en sá eldri, Stef-
án, sér um tæknimálin á Norður-
pólnum, heimkynnum jólasveinafjöl-
skyldunnar og álfanna sem eru henni
til aðstoðar. Jólasveinninn er sá 20. í
röðinni, starfið hefur gengið frá föður
til sonar allt aftur til hins upphaflega
jólasveins, Nikulásar hins heilaga og
næstur í röðinni er Stefán. Stefán
þessi er hins vegar ekki mjög jóla-
sveinslegur í háttum, harður foringi
sem stýrir afhendingu jólagjafa á að-
faranótt jóladags eins og um innrás
hers sé að ræða. Álfarnir eru mý-
margir og þeir sem færa gjafirnar
þrautþjálfaðir líkt og sérsveitarmenn
og kunna ýmis ráð til að fara um
óséðir. Þeir eru fluttir um í risavöxnu
loftfari sem er þeirri náttúru gætt að
geta horfið sjónum manna þegar þörf
er á. Babb kemur í bátinn þegar ein
jólagjöf gleymist og stefnir í að barn
á Englandi fái enga gjöf frá jólasvein-
inum með tilheyrandi áfalli. Þá kem-
ur Artúr til bjargar en hann sér um
að lesa öll bréf barna til jólasveinsins
og sjá til þess að leikfangaverksmiðja
álfanna sinni jólagjafabeiðnum. Stef-
án og jólasveinninn segja of seint að
bjarga því, búið sé að senda út allar
gjafir en Artúr vill ekki gefast upp.
Afi hans, jólaafinn, kemur til bjargar
og saman halda þeir á gamla, góða
sleðanum með hreindýr í taumi í mik-
ið næturævintýri. Afinn reynist hins
vegar orðinn býsna kalkaður og þeir
lenda í Afríku í stað þess að lenda á
Englandi. Það reynist þrautin þyngri
að komast á áfangastað og Artúr, afi
hans og innpökkunarálfur sem er
með þeim í för lenda í miklum háska.
Allt er þetta mjög hressandi og
myndin er vissulega hin besta af-
þreying. Hún á sín skondnu augna-
blik og margir brandaranna eru stíl-
aðir á foreldra, brandarar sem
yngstu áhorfendur átta sig engan
veginn á, eins og gengur og gerist
með svo margar fjölskylduteikni-
myndir nú til dags. Hamagangurinn
er mikill á köflum, líklega of mikill
fyrir allra yngstu bíógestina og kem-
ur nokkuð niður á fallegum jólaboð-
skap. Hinn sanni andi jólanna verður
þó að aðalatriði undir lokin. Aðal-
persónan Artúr er ekki mjög litrík,
heldur lítilfjörlegur og væminn
náungi (enda sonur jólasveinsins) en
jólaafinn er hins vegar kostuleg týpa
og sprenghlægileg. Þá ættu fullorðnir
bíógestir að hafa gaman af sam-
skiptum jólasveinsins og eiginkonu
hans, þau eru skemmtilega kunn-
ugleg, sá gamli úti að aka á meðan
konan heldur öllu í röð og reglu. Jóla-
fjölskyldan öll er skemmtilega hvers-
dagsleg og eitt besta atriði mynd-
arinnar sýnir hana dauðþreytta yfir
jólamatnum, enginn nennir að spila
borðspil nema hinn síkáti jólastrákur
Artúr.
Artúr bjargar jólunum er ágætis-
skemmtun en hefði að mati rýnis
mátt vera ögn sætari (af því þetta er
nú einu sinni jólamynd) og rólegr og
höfða með því frekar til allra yngstu
bíógestanna.
Tæknivætt svar við sígildri spurningu
Hraðsending Artúr þarf að bjarga jólunum, koma pakka á áfangastað á
methraða og afi hans dregur fram gamla, góða jólasleðann.
Smárabíó, Háskólabíó,
Borgarbíó og Laugarásbíó
Artúr bjargar jólunum bbbmn
Leikstjórar: Barry Cook og Sarah Smith.
Leikarar í íslenskri talsetningu: Ævar
Þór Benediktsson, Arnar Jónsson, Har-
ald G. Haraldsson, Hanna María Karls-
dóttir, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir,
Sveinn Þórir Geirsson, Víðir Guðmunds-
son og Agnes Líf Ásmundsdóttir.
Bandaríkin, Bretland 2011. 100 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Lifandi og síkvik skóla- oguppeldisumræða hefuraldrei fest rætur hér álandi á sama hátt og á hin-
um Norðurlöndunum. Það er einna
helst þegar kennarar fara í verkfall,
að allir sjá sig knúna til að tjá sig um
uppeldis- og skólamál og þá oft með
neikvæðum formerkjum. Þetta er
auðvitað alveg stórmerkilegt, því að
uppeldismál hljóta að vera ein af
„stóru“ málunum í lífi okkar allra.
Margrét Pála Ólafsdóttir hefur þó
gert sitt besta til að halda slíkri um-
ræðu á lofti, þó að hún hafi stundum
stundað hálfgert eintal, því að fáir
virðast tilbúnir til að verja tíma sín-
um í að ræða uppeldismál, hvað þá
að skrifa um
þau.
Margrét Pála
er kjarnyrt kona
og hnyttin og nú
hefur hún skrif-
að bók um upp-
eldi. Sumum
ferst vel að tjá
sig í ræðu, aðrir
eru góðir í að tjá
sig skriflega og
enn aðrir eru jafnvígir á hvort
tveggja. Margrét Pála er ein þeirra
síðastnefndu, en hún er ekki síðri
rithöfundur en ræðumaður og per-
sónulegur stíll hennar og orðfæri
kemst vel til skila í bókinni. Bókin
skiptist í 12 kafla þar sem m.a. er
fjallað um uppeldisarfinn, rekst-
urinn á Fjölskyldunni ehf, hegð-
unarkennslu og kynjamun. Síðast-
nefndi kaflinn er sérlega
athyglisverður, en Margrét Pála
hefur látið sig stöðu kynjanna miklu
varða og hefur verið óhrædd við að
gagnrýna ríkjandi hugmyndir um
„eðli“ stelpna og stráka.
„Fjölmargir gera mismunandi
kröfur til stúlkna og drengja. (...)
Drengirnir eru nánast friðhelgir og
fá margfalt meiri þjónustu á heim-
ilinu en hinar ábyrgu „hjálpar-
mömmur“. (76-77)
Bókin er öðrum þræði fagbók og
hjálpartæki fyrir uppalendur, en
framsetningin er slík að hún ætti að
höfða til miklu stærri hóps, enda er
bókin einstaklega skemmtileg af-
lestrar. Uppeldishugleiðingar sínar
og kenningar kryddar Margrét Pála
með bráðfyndnum sögum úr eigin
uppvexti, uppeldi eigin barna og
barnabarna og ekki síst stór-
skemmtilegum atvikum frá áratuga-
langri starfsreynslu sinni sem leik-
skólakennari.
Hún er óhrædd við að gagnrýna
ýmis tískufyrirbæri sem hafa skotið
upp kollinum í uppeldi undanfarinna
ára og þó að í bókinni sé fjallað um
uppeldi, þá er hún um svo margt
annað. Til dæmis samskipti í sínum
víðasta skilningi og hvað okkur þyk-
ir skipta máli í lífinu. Margrét Pála
minnir okkur líka á að gleyma ekki
gleðinni í uppeldinu, sem okkur
hættir líklega stundum til í amstri
dagsins. Þetta er góð bók fyrir alla
sem eru að ala upp börn, líka þá sem
hafa einhverntímann verið börn eða
langar bara til að vera ögn betri
manneskjur. Uppeldi lýkur nefni-
lega aldrei og við erum að ala okkur
upp sjálf ævina á enda, eins og
Margrét Pála bendir á.
Skemmtileg bók um stórt mál
Morgunblaðið/Ómar
Skemmtileg Bók Margrétar Pálu, Uppeldi er ævintýri, er einstaklega
skemmtileg aflestrar og fagbók og hjálpartæki fyrir uppalendur.
Handbók um uppeldi
Uppeldi er ævintýri bbbbn
Eftir Margréti Pálu Ólafsdóttur. Bóka-
félagið. 2011. 240 síður.
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
BÆKUR
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
BLITZ Sýnd kl. 8 -10:15
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D Sýnd kl. 6
JACK AND JILL Sýnd kl. 8
IMMORTALS 3D Sýnd kl. 8 - 10
BORGRÍKI Sýnd kl. 10:15
HAPPY FEET 2 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 6
91/100
ENTERTAINMENT
WEEKLY
HHHH
„HIN FULLKOMNA HELGIDAGASKEMMTUN“
- MARA REINSTEIN/ US WEEKLY
NÝ ÍSLENSK SPENNUMYND
Í ANDA STIEG LARSSON MYNDANNA
HHHH
ÞÞ. FRÉTTATÍMINN
HHHH
KHK. MBL
HHH
T.V., KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ OG HEYRT
ÞAR SEM LÖGIN TAKA ENDA
HEFST RÉTTLÆTIÐ
‚“FERSKASTA OG SKEM-
MTILEGASTA JÓLAMYND
SÍÐARI ÁRA.“
- MICHAEL RECHTSHAFFEN,
HOLLYWOOD REPORTER
„SNIÐUG, FYNDIN OG SÆT!“
- KEITH STASKIEWICZ,
ENTERTAINMENT WEEKLY
HÖRKU SPENNUMYND
ÍSLENSKT
TAL
Sjáðu n
ýja Just
in Biebe
r
myndba
ndið í þ
rívidd á
undan m
yndinni!
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ GILDA
EKKI Í BORGARBÍÓI
5%
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 6 L
BLITZ KL. 8 16
TROPA DE ELITE KL. 5.50 16
JACK AND JILL KL. 8 - 10 L / IMMORTALS 3D KL. 10 16
-A.E.T., MBL
-V.J.V., SVARTHOFDI.IS
92% ROTTENTOMATOES
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 3.40 - 5.50 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 2D KL. 3.40 - 5.50 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D LÚXUS KL. 3.40 - 5.50 L
BLITZ KL. 8 - 10.10 16
BLITZ LÚXUS KL. 8 - 10.10 16
IMMORTALS 3D KL. 8 - 10.30 16
TROPA DE ELITE KL. 10.20 16
JACK AND JILL KL. 8 - 10.10 L
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 3.20 - 5.40 - 8 7
ÞÓR 3D KL. 3.40 - 5.50 L
T.V., KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ & HEYRT
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 5.50 L
ARTHUR CHRISTMAS 3D ÁN TEXTA KL. 5.50 L
TROPA DE ELITE KL. 8 - 10.30 16
IMMORTALS 3D KL. 8 - 10.30 16
JACK AND JILL KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
IN TIME KL. 8 - 10.30 12
ELDFJALL KL. 5.45 L
HEFURÐU VELT ÞVÍ FYRIR ÞÉR HVERNIG MAÐUR FER AÐ ÞVÍ
AÐ AFHENDA TVO MILLJARÐA GJAFA Á EINNI NÓTTU?
Sjáðu nýja
myndbandið með
JUSTIN BIEBER
í þrívídd á undan
myndinni!