Morgunblaðið - 07.12.2011, Side 36
Ljósmyndari/Þórarinn Svavarsson
Salka Valka Það er stutt í tilfinningarnar hjá Láru og Loga.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Það má með sanni segja að uppfærsla
Ungmennafélagsins Dagrenningar í
Lundarreykjadal á Sölku Völku Hall-
dórs Laxness sé tilfinningaþrungin.
Áhorfendur bæði hlæja og gráta til
skiptis en á sviðinu logar raunveru-
legt og ófalsað ástarbál. Það vill
nefnilega þannig til að leikararnir
sem túlka kvenhetjuna sjálfa og ást-
ina hennar, Arnald Björnsson, á unga
aldri eru sjálf harðtrúlofuð.
Lára Lárusdóttir og Logi Sig-
urðsson eru 19 ára gömul og búin að
vera vinir frá því í fimmta bekk í
grunnskóla og á föstu í fimm ár. Þau
hafa því þroskast og dafnað saman og
það hefur ekki skemmt fyrir að eiga
sameiginlegt áhugamál.
„Við höfum bæði mikinn áhuga á
leiklist en upphaflega ætlaði Logi
bara að taka þátt í sýningunni,“ segir
Lára, „svo píndi hann mig til þess að
koma með á æfingu og mér fannst
þetta svo skemmtilegt að ég ákvað að
halda áfram“, bætir hún við.
Lára segir að þeir séu ófáir úr
sveitinni sem taka þátt í sýningunni
en leikhópurinn hefur verið við æf-
ingar frá því í haust og segir Lára
verkefnið hafa verið mikið ævintýri.
Hún hafði sjálf ekki lesið Sölku Völku
áður en hún var valin í hlutverk henn-
ar en hefur augljóslega mikið álit á
stúlkunni.
„Salka Valka er alveg einstök.
Hún er mjög ákveðin manneskja og
vill ná sínu fram en þessi kynferð-
islega áreitni sem hún verður fyrir
mótar hana og það er erfitt að setja
sig í hennar spor,“ segir Lára. Það að
hún og Logi hafi getað haldið áfram
að æfa heima hafi komið sér vel.
Bæði stefndu á leiklistarnám en
Logi stundar nú nám í búfræði við
Landbúnaðarháskóla Íslands og hef-
ur hendur sínar fullar við að sinna
þrjátíu rollum sem hann hefur eign-
ast. Lára hins vegar heldur fast í
gamla drauminn. „Já, ég var nú bara í
gær að fylla út umsókn í leiklist-
ardeild Listaháskólans,“ segir hún og
hlær. „Maður verður alla vega að
prófa.“
Ósvikið ástarbál í uppfærslu Ungmennafélagsins Dagrenningar í Lundarrreykjadal
Salka Valka og
Arnaldur ung
og ástfangin
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 341. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Deitar kvennagull en drekkur ekki
2. Reknir eftir fyllirí í flugvél
3. Ætlar að vera ógiftur…
4. Siv skammaði Vigdísi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds
mun í kvöld kl. 20 halda tónleika á
Farfuglaheimilinu, Vesturgötu 17.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð-
inni Live in the lobby og er ókeypis
inn á tónleika hennar.
Ólafur Arnalds leikur
á Farfuglaheimilinu
Leikritið The Heart of Robin Hood
sem leikstýrt er af Gísla Erni Garð-
arssyni og sýnt í Stratford-Upon Avon
í Bretlandi fær fullt hús stiga hjá leik-
húsrýni London Evening Standard.
Verkið hefur einnig
hlotið lofsamlega
dóma í dagblöð-
unum Guardian,
Telegraph, Daily
Mail og Times
og á vefnum
Whatson-
stage.
Hrói Gísla Arnar
fær fullt hús stiga
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Allhvöss norðaustanátt og snjókoma suð-
austantil. Annars talsvert hægari vindur og sums staðar él, einkum
við ströndina. Frost yfirleitt 1 til 15 stig, mildast syðst.
VEÐUR
Eftir þrettán marka ósigur
gegn firnasterku liði Nor-
egs þarf Ísland að ná í
minnst eitt stig og helst
tvö gegn Þjóðverjum á
heimsmeistaramóti
kvenna í handknattleik í
Brasilíu í kvöld. Riðill Ís-
lands er sá mest spenn-
andi í keppninni og Þjóð-
verjar unnu afar nauman
sigur á neðsta liðinu, Kín-
verjum, 23:22 seint í gær-
kvöld. »1-3
Ísland þarf stig
gegn Þýskalandi
Chelsea er komið í 16 liða úrslitin í
Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu
eftir sannfærandi sigur á Valencia í
gærkvöld, 3:0, á Stamford Bridge.
Marseille frá
Frakklandi og
Zenit St. Pét-
ursborg eru líka
komin áfram
en úrslitin um
fjögur síðustu
sætin ráðast
í kvöld. »2
Chelsea komst áfram á
sannfærandi hátt
Aron Kristjánsson úr Haukum var í
gær útnefndur besti þjálfarinn á
fyrsta þriðjungi Íslandsmóts karla í
handbolta og Bjarki Már Elísson úr
HK besti leikmaðurinn. „Mér fannst
ég þurfa að herða agann og metn-
aðinn,“ segir Aron í viðtali í Morg-
unblaðinu í dag en hann kom aftur til
Hauka í sumar eftir að hafa þjálfað í
Þýskalandi. »4
Aron þurfti að herða
agann og metnaðinn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Uppfærsla Ungmennafélagsins Dagrenningar á Sölku Völku byggist á
leikgerð Stefáns Baldurssonar og Þorsteins Gunnarssonar frá 1982 en
leikstjóri er Jakob S. Jónsson. Sýningar fara fram í félagsheimilinu í
Brautartungu en salurinn tekur um hundrað manns í sæti og var sviðið
sérstaklega smíðað fyrir uppsetninguna.
Lára segir sýningarnar hafa verið vel sóttar en alls eru tíu sýningar
áætlaðar, sú síðasta 11. desember næstkomandi. Lára segir þó aldrei að
vita nema sýningum verði bætt við, gefi aðsóknin tilefni til.
Nánari upplýsingar má finna á Facebook-síðu sýningarinnar og á salka-
valka.is.
Sýna á sérsmíðuðu sviði
SÝNINGAR Á SÖLKU VÖLKU VEL SÓTTAR
Mugison og
hljómsveit hans
hafa ákveðið að
halda auka-
tónleika í Hörpu
22. desember kl.
22 vegna mikils
áhuga á tón-
leikum sem hefj-
ast kl. 19.30 sama
dag. Ókeypis verður á hvora tveggju
tónleikanna og hægt verður að
tryggja sér miða á þá frá kl. 12 í dag á
harpa.is.
Mugison með ókeypis
aukatónleika
Á fimmtudag Norðan og norðaustan 5-15 m/s, hvassast við norð-
ur- og austurströndina. Léttskýjað sunnan- og vestanlands, annars
él. Frost 5 til 18 stig, kaldast í innsveitum.