SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Qupperneq 2
2 18. desember 2011
Við mælum með
17. & 18. desember
Popup-verzlun stendur fyrir
stórglæsilegum jólamarkaði á
milli klukkan 12 og 18 í Hörpu
um helgina. Þetta er markaður
íslenskra hönnuða og verður í
boði fjölbreytt úrval af vönd-
uðum vörum fyrir jólapakkann.
Síðasti markaður í Hörpu var vel
heppnaður og því var ákveðið
að halda annan í þessu fallega
húsi.
Morgunblaðið/Ómar
Jólamarkaði í Hörpunni
4 Ójafn leikur við Ísrael
Ryiad Al-Maliki segir tuttugu ár engu hafa skilað.
14 Með kveðju frá Íslandi
Það hefur verið ótrúleg gróska í hönnun hérlendis að undanförnu og
ætti enginn að fara í jólaköttinn í ár. Teknar eru fyrir flíkur sem hlýja og
fegra, hlutir sem ilma og gripir sem prýða.
18 Það mynduðust snemma tengsl …
Á dögunum kom út bókin Grímsá og Tunguá og fjallar um tvær perlur
íslenskra laxveiðiáa. Ritstjóri er Guðmundur Guðjónsson.
28 Mikilvægt að kona verði biskup
Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir ræðir í viðtali um nýja bók, prests-
starfið, sálgæslu og tímann þegar hún var prestur Kvennaathvarfsins.
34 Erindrekar erlends
valds
Hannes Hólmsteinn Gissurarson svarar at-
hugasemdum Kjartans Ólafssonar við bók-
ina Íslenskir kommúnistar.
36 Leikhús, söfn og
konungshylli
Kafli úr bókinni Ingibjörg eftir Margréti Gunnarsdóttur.
Lesbók
42 Heillast af hinu sögulega …
Fornar leifar má finna á ólíklegustu stöðum um land allt, enda er talið
að fornleifastaðir á Íslandi séu að minnsta kosti 130.000.
47 Íslenskir fuglar
Fyrir stuttu gaf Crymogea út bók með teikningum Benedikts Gröndals
af íslenskum fuglum með skýringum hans.
32
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók ljósmyndari Reuters af Heiðari Helgusyni.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson,Börkur Gunnarsson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson.
Augnablikið
Ég heiti Elísabet Jökulsdóttir,“ segir höf-undurinn og ávarpar gesti í eldhúsinuheima. Móðir hennar Jóhanna Kristjóns-dóttir stenst ekki mátið: „Það kemur á
óvart!“
„Þetta datt upp úr mér,“ útskýrir Elísabet bros-
andi og heldur áfram tölunni: „Þetta er fjölmennasta
partí sem hefur verið haldið hér.“ Garpur sonur
hennar maldar í móinn: „... sem þú veist um.“
Elísabet hefur boðið fjölskyldu og vinum heim til
sín í bakhúsið við Framnesveg, þar sem skrifað er á
gluggann: „Mundu draumana.“ Tilefnið er 20 ára
höfundarafmæli Elísabetar, sem hefur gefið út 18
bækur á því tímabili, þar á meðal Kattahirðinn í Tré-
kyllisvík nú fyrir jólin, eins og fram kemur í viðtali
Einars Fals Ingólfssonar við hana í Sunnudagsmogg-
anum í dag.
En þennan laugardag í desember veitti hún verð-
laun þeim sem hafa stutt hana dyggilegast í gegnum
tíðina. Snoturlega var gengið frá verðlaununum í
litlar ferðatöskur og þegar hún lýsti tildrögunum, þá
var sem heiminum væri pakkað í ljóð.
En þannig er þessi fjölskylda. Eins og þegar Unnur
systir hennar hvatti hana til að setja punktinn og
senda verkið í prentun. Þá var bankað á Framnes-
veginum og þegar Elísabet opnaði dyrnar var henni
afhent skeyti. Í því stóð ekkert nema punktur.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Fyrst bað Elísabet um orðið í eldhúsinu og þar var þröng á þingi.
Morgunblaðið/ Pétur Blöndal
Punkturinn yfir i-ið
Svo kynnti hún verðlaunin í betri stofunni.
Og Alda Unnardóttir lék undurfallega á fiðlu.
Hér má sjá Rooney Mara á frum-
sýningunni á Karlar sem hata
konur í New York í vikunni.
Hún leikur hinn framtakssama
tölvusnilling Lisbeth Salander
en Daniel Craig er í hlutverki
blaðamannsins Mikaels Blom-
kvist. Myndin verður frumsýnd
hérlendis á miðvikudaginn.
Veröld
Hin nýja
Salander
18. desember
Það verður
ítölsk veisla á
jólatónleikum
Kamm-
ersveitar Reykjavíkur kl. 17 í
Norðurljósasal Hörpu. Gestir
Kammersveitarinnar eru semb-
alleikarinn Claudio Ribeiro og
blokkflautuleikarinn Inês d‘A-
vena, sem hafa vakið athygli í
barokkheiminum á und-
anförnum árum.
19. desember
Jólaperlur í
Iðnó með Ís-
lenska söng-
listahópnum,
Sardas
strengjakvartett og Peter
Tompkins óbóleikara. Uppselt
er á tónleikana á sunnudags-
kvöld en ennþá er laust á mánu-
dagskvöldið kl. 20.
38
Reuters
Ármúla 38 | Sími 588 5011
Verð frá kr. 1990.-
Kimmidoll
á Íslandi
Ai „Femininity“
My spirit is unique
and diverse