SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Blaðsíða 44
44 18. desember 2011
David Barrett – Miracle at Merion bbbbm
Miracle at Merion fjallar um kraftaverkið á Mer-
ion-golfvellinum, um endurkomu Bens Hogans
eftir lífshættulegt bílslys og sigur hans á US Open
1950. Ben Hogan er jafnan talinn einn fremsti kylf-
ingur sögunnar og var hann á hátindi ferils síns
milli 1940 og 1955. Í febrúar 1949 lenti hann ásamt
konu sinni í alvarlegu bílslysi þar sem hann möl-
brotnaði og lá nærri dauðanum. Aðeins 18 mán-
uðum síðar sneri hann til baka á golfvöllinn og
vann US Open 1950 á Merion-vellinum í Fíladelfíu í sögulegum
bráðabana. Þessu afreki eru gerð góð skil, en bókin rekur sömuleiðis
ævi Bens Hogans og sögu atvinnukylfinga um miðja síðustu öld. Sú
saga er merkileg fyrir margra hluta sakir, sérstaklega er fróðlegt að
bera saman aðstæður afreksmanna á borð við Hogan við aðstæður
nútímaatvinnumanna, svo ekki sé talað um verðlaunafé og styrkt-
arsamninga fyrir 60 árum. Síðustu kaflarnir fjalla af mikilli ná-
kvæmni um æsispennandi mótið á Merion-vellinum þar sem þurfti
bráðabana milli þriggja manna til að útkljá mótið. Þetta er frábær
bók um upphaf atvinnugolfs og keppnismanninn Ben Hogan.
Paul Brown og Boo Weekly – True Boo bbbmn
Bókin er ævisaga atvinnukylfingsins Boos Weeklys,
sem er að vísu aðeins 38 ára gamall. Boo er óvenju-
legur persónuleiki, það má segja að hann sé algjör
andstæða Bens Hogans, sem er þó hans helsta
átrúnaðargoð, því Boo hefur lítinn áhuga á golfi,
leiðist að æfa sig og hefur mestan áhuga á veiðiskap
og útivist. Í bókinni segir Boo sögur af sjálfum sér,
PGA-ferlinum, félögunum og veiðiskap. Hann er
einlægur sveitapiltur, alinn upp í 7.000 manna bæ í
Flórída, hress og skemmtilegur náungi sem nýtur lífsins í botn, enda
vinsæll kylfingur. Fram að þessu hefur Boo verið þekktastur fyrir
þátttöku sína í Ryder-bikarnum 2008 og skrautleg uppátæki sín þar.
Mörgum hefði sjálfsagt orðið hált á því að hlaupa eftir golfbraut með
driver milli fóta og líkja eftir ótemjureið, en það eru einmitt svona
óundirbúin uppátæki sem hafa opnað leið að hjörtum golfáhuga-
manna út um allan heim. Því miður hefur Boo ekki gengið vel á síð-
ustu árum á golfvellinum og bíða aðdáendur hans eftir að hann nái
sér aftur á strik á PGA-mótaröðinni. Óhætt er að mæla með bókinni
fyrir áhugafólk um atvinnugolf, en auðvelt er að njóta hennar þrátt
fyrir enga vitneskju á því sviði.
Örn Þórisson orn@mbl.is
Erlendar bækur
4.–10. desember
1. Brakið –
Yrsa Sigurð-
ardóttir /
Veröld
2. Einvígið –
Arnaldur
Indriðason
/ Vaka-
Helgafell
3. Heilsuréttir Hagkaups – Sól-
veig Eiríksdóttir / Hagkaup
4. Útkall ofviðri í Ljósufjöllum –
Óttar Sveinsson / Útkall ehf.
5. Gamlinginn sem skreið út um
gluggann – Jonas Jonasson /
JPV útgáfa
6. Hollráð Hugos – Hugo
Þórisson / Salka
7. Stelpur A-Ö – Kristín
Tómasdóttir / Veröld
8. Málverkið – Ólafur Jóhann
Ólafsson / Vaka-Helgafell
9. Hjarta mannsins – Jón Kal-
man Stefánsson / Bjartur
10. Stóra Disney köku- og brauð-
bókin – Walt Disney / Edda
Frá áramótum
1. Gamling-
inn sem
skreið út
um
gluggann –
Jonas
Jonasson
/ JPV út-
gáfa
2. Einvígið – Arnaldur Indr-
iðason / Vaka-Helgafell
3. Stóra Disney köku- og brauð-
bókin – Walt Disney / Edda
4. Brakið – Yrsa Sigurðardóttir /
Veröld
5. Heilsuréttir Hagkaups – Sól-
veig Eiríksdóttir / Hagkaup
6. Ég man þig – Yrsa Sigurð-
ardóttir / Veröld
7. 10 árum yngri á 10 vikum –
Þorbjörg Hafsteinsdóttir /
Salka
8. Bollakökur Rikku – Friðrika
Hjördís Geirsdóttir / Vaka-
Helgafell
9. Einn dagur – David Nicholls /
Bjartur
10. Hollráð Hugos – Hugo
Þórisson / Salka
Bóksölulisti
Lesbókbækur
Skannaðu
kóðann til að
lesa
Listinn er byggður á upplýsingum frá
Bókabúð Máls og menningar, Bóka-
búðinni Eskju, Bókabúðinni Hamra-
borg, Bókabúðinni Iðu, Bókabúðinni
við höfnina Stykkishólmi, Bóksölu-
stúdenta, Bónus, Hagkaupum,
Kaupási, N1, Office 1, Pennanum-
Eymundssyni og Samkaupum. Rann-
sóknasetur verslunarinnar annast
söfnun upplýsinga fyrir hönd Félags
íslenskra bókaútgefenda.
Napóleon Bonaparte heldur áfram aðvekja forvitni heimsins. Enn er veriðað skrifa um hann bækur enda var lífhans óhemju dramatískt og maðurinn
sjálfur er merkileg stúdía. Nýleg metsölubók
sænska rithöfundarins Herman Lindqvist er
komin út í íslenskri þýðingu hjá Hinu íslenska
bókmenntafélagi.
Napóleon hefur löngum verið umvafinn hetju-
ljóma. Lindqvist hefur greinilega mikið dálæti á
aðalpersónu sinni og tekst vel að vekja samúð
með Napóleon í lokaköflum verksins, enda var
fall keisarans mikið. Napóleon var afburða her-
foringi en undir lok ferilsins gerði hann hver af-
drifaríku mistökin á fætur öðrum og endalok
hans urðu raunaleg í útlegðinni á Sankti Helenu.
Lindqvist leiðréttir þann útbreidda misskilning
að Napóleon hafi verið óvenju lágvaxinn maður.
Hann var 169 sentimetrar á hæð sem var með-
ahæð Frakka á þeim tíma. Hann var eldheitur
ástríðumaður og afar hjátrúarfullur. Seinni kona
hans, hin unga prinsessa Austurríkis, trúði því
að hann væri skrímsli í mannsmynd og var full
ótta við að giftast honum, en eftir að hafa hitt
hann fór hún að elska hann. Eins og ansi margar
konur gerðu.
Napóleon gat elskað heitt eins og ástarbréf
hans bera vitni um. Hann skrifaði eiginkonu
sinni Jósefínu: „Ein milljón kossa, en sendu mér
enga, því þá fuðra ég upp“. Hann unni Jósefínu
mjög. Hún var eldri en hann og átti tvö börn
þegar þau kynntust og fjölskylda Napóleons fyr-
irleit hana, en Napóleon dýrkaði hana, jafnvel
þótt hann vissi af því að hún hélt framhjá hon-
um. Önnur kona, María Walewska, hætti aldrei
að elska hann og var tilbúinn að fylgja honum í
útlegð.
Stundum hefur Napóleon verið líkt við Hitler
og Stalín en Lindqvist segir slíkan samanburð fá-
ránlegan, enda kom Napóleon á miklum lýðræð-
isumbótum í Frakklandi. Enn eru þó skiptar
skoðanir um Napóleon og nafn hans má finna í
ýmsum bókum sem hafa verið skrifaðar um
verstu harðstjóra og illmenni heims. Þess má
geta að þegar hinn virti sagnfræðingur Simon
Sebag Montefiore, höfundur rómaðra ævisagna
Stalíns, skrifaði bækur um mestu hetjur og
mestu illmenni sögunnar flokkaði hann Stalín
sem illmenni en Napóleon lenti í flokki með
mestu hetjum mannkynssögunnar.
Bók Lindqvist um Napóleon er nánast eins og
reyfari svo dramtískt og spennandi er hún.
Napóleon sjálfur, konurnar í lífi hans, hin sjálfs-
elsku systkini hans og hinn fjörugi og geðþekki
sonur hans sem lést 21 árs, lifna öll á síðunum í
læsilegri og fallega myndskreyttri bók.
Napóleon Bonaparte var frábær herforingi og mikill tilfinningamaður.
Ris og fall Napóleons
Bráðskemmtileg og dramatísk ævisaga Herman Lindqvist
um Napóleon varð metsölubók í Svíþjóð og er nú komin út í
íslenskri þýðingu.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is