SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Blaðsíða 38
38 18. desember 2011
Jólastemmningin er að færast yfir Austurstræti, sagði í bak-síðufrétt Morgunblaðsins í desember 1974. Þá var til tíðindafært að jólabjallan í Austurstræti væri komin á sinn stað, enbjallan var jafnan kennd við verslunina Raforku – sem þegar
þarna var komið sögu hét Raflux. Þetta var í 31. sinn, sem bjallan var
sett upp og þannig var hún nánast orðin sjálfsagður og ómissandi
hluti af þeirri mynd sem almenningur vildi hafa af götunni í aðdrag-
anda heilagrar hátíðar. Síðan þetta var eru liðin mörg ár og andlit
tímans hefur fengið nýjan svip. Nú eru jólabjöllur um alla borg sem
margar hverjar eiga sjálfsagt fyrirmynd í þeirri sem var í Austur-
stræti forðum.
Austurstræti nær frá Veltusundi og liggur til austurs. Í tímans rás
hafa margar þekktar verslanir og viðkomustaðir verið við götuna. Má
þar til dæmis nefna Landsbankann, Búnaðarbankann, Eymundsson,
Ísafold, Hressingarskálann, verslun Silla og Valda og loks marg-
víslega starfsemi í húsunum að Austurstræti 22 og Lækjargötu 2 –
sem brunnu á síðasta degi vetrar 2007. Þar er nú allt með öðrum svipAusturstræti var komið í hátíðarbúning og jólabjallan gaf götunni hátíðlegan svip og sígildan.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Myndasafnið 3. desember 1974
Austurstræti á
ýmsum tímum
Alexa Chung er sjónvarpsþáttastjórnandi og fyrirsæta, semhefur notið mikillar velgengni. Hún er bresk, fædd 5. nóv-ember 1983 og er því 28 ára. Hún fékk stílverðlaunin áBresku tískuverðlaunahatíðinni í ár og einnig í fyrra, sem
segir margt um vinsældir hennar en það er almenningur sem sér um
valið á verðlaunahöfum. Hún þykir enda sérstaklega smekkleg og hefur
rækilega mótað sér sinn eigin stíl. Það er því ekki skrýtið að bandaríska
fatamerkið Madewell hafi fengið hana til að hanna línu fyrir sig.
Chung ætlaði sér að fara í enskunám en fyr-
irsætuferillinn breytti því. Storm-skrifstofan sá
hana á Reading-tónlistarhátíðinni þegar hún var
sextán ára gömul og gerði við hana samning. Hún
var fyrirsæta fyrir táningablöð á borð við Elle Girl
og CosmoGIRL! og vann fyrir fyrirtæki á borð við
Fanta, Sony Ericsson, Sunsilk, Urban Outfitters
og Tampax. Hún kom líka fram í fjölmörgum
tónlistarmyndböndum, m.a. fyrir The Streets og
Westlife.
Hún hætti fyrirsætustörfum eftir fjögur ár og
segir að hún hafi þjáðst af brenglaðri líkams-
ímynd og litlu sjálfstrausti. Hún hefur síðan þá
ekki haft þetta að aðalstarfi heldur tekið að sér
einstaka auglýsingaherferðir og er m.a. andlit
fatakeðjunnar Vero Moda um þessar mundir.
Nýr hönnunarþáttur
Hún hefur getið sér gott orð sem þáttastjórnandi í
Bretlandi og starfaði líka um tíma sem kynnir hjá MTV í
Bandaríkjunum.
Hún hefur ekki aðeins komið mikið fram í sjónvarpi
heldur líka skrifað í dagblöð. Hún var með fastan dálk í
tímaritinu Company 2007-8 og síðan vikulegan dálk fyrir
The Independant 2008 þar til í júní 2009 en þá fékk hún
stöðu hjá breska Vogue og hefur m.a. tekið viðtöl við
hönnuði á borð við Karl Lagerfeld og Christopher Kane
fyrir blaðið.
Nýjasta verkefnið hennar er að stjórna þættinum 24 Ho-
ur Catwalk á sjónvarpsstöðinni Lifetime en þátturinn hefur
göngu sína í janúar. Í þættinum keppa fjórir hönnuðir sín á
milli að því að búa til heila línu og skipuleggja tískusýningu
á aðeins sólarhring. Það verður gaman að sjá hvernig hann
kemur út.
Alexa Chung er sjónvarpsþáttastjórn-
andi, fyrirsæta, hönnuður og fastapenni
hjá tískutímaritinu Vogue, sem hefur
vakið mikla athygli fyrir fatastíl sinn.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Alexa Chung er
jafnan smekk-
lega klædd á
rauða dregl-
inum eins og
hér á frum-
sýningu í
Cannes.
Stælleg sjón-
varpskona
Frægð og furður
Alexa Chung er andlit Vero Moda.
Hún hefur prýtt margar tímaritaforsíður.