SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Side 4
4 18. desember 2011
Ryiad al-Maliki, utanríkisráðherra
Palestínu, er þeirrar hyggju að
það sé réttur leikur af hálfu Pal-
estínumanna að sækjast nú eftir
viðurkenningu sjálfstæðis hjá ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Hann sagði að Palestínumenn
gerðu sér grein fyrir því að fara
með gát í gæslu hagsmuna sinna,
en þetta væri niðurstaðan.
Arabíska vorið hefur dregið at-
hygli fjölmiðla frá málefnum Ísr-
aels og Palestínu. „Ísraelar
treysta á að þetta beini athygli al-
þjóðasamfélagsins burt frá þeim
svo að þeir geti gert eins og þeim
sýnist,“ sagði hann. Undanfarna
daga hafa ísraelskir harð-
línumenn brennt tvær moskur.
Landtökumenn gangi berserks-
gang, brenni bíla og felli tré. Þeir
reyni að refsa Palestínumönnum
fyrir þær breytingar, sem þeirra
stjórn kunni að gera. Ísraelsríki
hafi á þessum tíma sexfaldað
hraða uppbyggingar land-
tökubyggða.
Al-Maliki sagði að það yrði erf-
iðara og erfiðara að ná fram
tveggja ríkja lausn. Ef það yrði
ógerningur yrði tveggja þjóða ríki
eini kosturinn. „Við viljum verja
tveggja ríkja kostinn,“ sagði
hann. „Þess vegna höfum við sótt
um viðurkenningu sem ríki. „Ég
held að Ísraelar átti sig ekki á því,
að með því að loka á tveggja ríkja
lausnina verði þetta niðurstaðan,
annað hvort aðskilnaðarstefna,
sem Palestínumenn munu berjast
gegn, eða einn maður eitt at-
kvæði og þá mun að lokum lýð-
fræðilegur meirihluti Palest-
ínumanna ná völdum.“
Al-Maliki sagði að tveggja ríkja
leiðin þar sem Austur-Jerúsalem
yrði höfuðborg Palestínu væri
besti kosturinn fyrir báða aðila.
„Þessu höfum við reynt að koma
til skila,“ sagði hann. „En núver-
andi stjórn Ísraels vill ekki hlusta
í raun. Hún heldur að hún sé hafin
yfir lögin og geti haldið sínu striki,
en horfið í kringum ykkur í heim-
inum. Þeir eru að einangra sig og
jafnvel nánustu vinir þeirra vilja
ekki láta sjá sig með þeim leng-
ur.“
Al-Maliki sagði að arabíska vor-
ið mundi auka þrýsting á Ísrael og
bætti við án þess að útskýra það
nánar: „Ísraelar ættu að átta sig
á að ef þeir tefja munu þeir missa
tækifærið til þess að semja.“
Ef þeir tefja missa þeir tækifærið til að semja
Palestínumenn bera til grafar Mustafa Tamimi, sem lést af sárum sínum
fyrr í þessum mánuði eftir mótmæli vegna tálma, sem Ísraelar hafa reist
á Vesturbakkanum. Kista hans er sveipuð palestínska fánanum.
Reuters
Friðarviðræður Ísraela og Palest-ínumanna eru ójafn leikur. Þærhafa staðið í tuttugu ár, enguskilað og munu engu skila nema
breyting verði gerð á fyrirkomulaginu.
Þetta sagði Ryiad al-Maliki, utanrík-
isráðherra í Palestínu, á opnum fundi í
Norræna húsinu, sem haldinn var á
fimmtudag eftir að hann og Össur Skarp-
héðinsson utanríkisráðherra höfðu form-
lega staðfest upptöku stjórnmálasambands
milli Íslands og Palestínu.
„Ég er 55 ára og ég man þegar hernám
Ísraela hófst 1967,“ sagði hann. „Ég var
ellefu ára. Ég man ísraelsku skriðdrekana
og hermennina. Þeir lögðu meira að segja
skólann minn undir sig. Frá því að ég var
enn barn fram á þessa stund hefur ekkert
breyst í þeim skilningi að hernámið held-
ur áfram.“
Al-Maliki sagði að heilu kynslóðirnar,
sem ekkert þekktu annað en hernámið,
hefðu vaxið úr grasi. Sonur hans, sem nú
er við nám á Írlandi, hefði viljað heim-
sækja Jerúsalem áður en hann hélt til
Dyflinnar. Jerúsalem er aðeins tíu kíló-
metra frá Ramallah, en borgin, sem hon-
um væri svo kær, hefði verið honum lok-
uð.
„Hann var 18 ára þegar hann fór til
Dyflinnar,“ sagði al-Malliki. „Það fyrsta
sem hann sagði við mig var: „Faðir, í
fyrsta skipti get ég um frjálst höfuð
strokið, ég er ekki beðinn um skilríki, það
eru engar varðstöðvar.“ Mér fannst ég
hafa misst barnið mitt. Hann hafði fengið
að bragða á frelsinu og þýðingu þess og
myndi ekki sleppa af því hendinni. Ég
ferðast um heiminn fyrir hann, svo hann
geti snúið aftur til Palestínu, og í gegnum
hann fyrir alla Palestínumenn.“
20 ár eru liðin frá því að samtök Pal-
estínumanna ákváðu að ganga til samn-
inga við Ísraela í Madríd. „Síðan þá höf-
um við tekið fullan þátt í
samningaviðræðum, sem átti að lykta
með samkomulagi við Ísrael sem myndi
leyfa sjálfstætt ríki,“ sagði al-Maliki.
„Síðan þá höfum við tekið fullan þátt,
dag eftir dag, ár eftir ár. Tuttugu árum
síðar get ég ekki sagt að viðræðurnar
muni leiða til friðar, ferlið hefur tekið
okkur öll í gíslingu og leyfir hvorki fram-
rás né niðurstöðu.“
Utanríkisráðherrann sagði að vandinn
við fyrirkomulagið væri að þar sæti her-
námsríkið gegnt hinum hernumdu án
íhlutunar þriðja aðila og það væri ójafn
leikur. „Hvers vegna ætti hernámsríkið
að samþykkja að gefa nokkurn skapaðan
hlut eftir?“ spurði al-Maliki. „Ísrael eyði-
lagði efnahag Palestínu 1967. Nú eru Pal-
estínumenn næstatkvæðamestu neyt-
endur ísraelskrar framleiðslu og eyða 4,5
milljörðum dollara á ári. Heilu verk-
smiðjurnar í Ísrael framleiða aðeins fyrir
Palestínumenn.“
Hann sagði að Ísraelar nytu einnig góðs
af óbreyttu ástandi hvað snerti land.
Landtökubyggðir héldu áfram að rísa. Ísr-
aelar héldu áfram að leggja undir sig land
á hernumdu svæðunum. Eftir því sem
hernámið héldi lengur áfram yrði meira
land tekið: „Hver ætlar að stöðva þá?“
spurði al-Maliki og benti á að alþjóða-
samfélagið hefði sent frá sér fjölda yf-
irlýsinga, en það stöðvaði ekki Ísraela. Í
tuttugu ár hefði ferlið ekki leitt neitt af
sér nema landtöku og nú væri að auki
verið að neyða Palestínumenn brott frá
Jerúsalem svo enginn verði eftir. Þessi
tími hefði verið notaður til þess að breyta
aðstæðum og útiloka að Palestínumenn
fengju samliggjandi ríki.
Skilyrðin fyrir því að hægt sé að leiða
samningaviðræðurnar til lykta eru að
sögn al-Malikis tvíþætt. „Við þurfum að
fá þriðja aðila að borðinu, sem getur
skorist í leikinn og sagt hver beri ábyrgð
á þráteflinu,“ sagði al-Maliki. „Það geng-
ur ekki fara fram á að þeir, sem eiga að
fara á fundinn með hernámsríkinu, þurfi
að biðja þá um leyfi til að fara á fundinn.
Ég þurfti leyfi Ísraela til að koma hingað.
Besta samningaleiðin er á milli tveggja
ríkja. Þá er jöfnuður. Þá ræður þjóðarétt-
ur, ekki Ósló. Ríki Palestínu mun sitja
andspænis ríki Ísraels. Þess vegna er mjög
mikilvægt að samningum verði haldið
áfram við breyttar aðstæður. Annars
munum við sitja í önnur tuttugu ár og
það verður ekkert land eftir.“
Ójafn
leikur við
Ísrael
Ryiad Al-Maliki
segir 20 ár engu
hafa skilað
Ryiad al-Maliki, utanríkisráðherra Palestínu, sagði í Norræna húsinu að breyta þyrfti forsendum friðarviðræðna við Ísrael.
Morgunblaðið/GolliVikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
„Ríku arabarnir hafa enga
skyldu til að deila auði sínum
með okkur,“ sagði Ryiad al-
Maliki þegar Jón Baldvin
Hannibalsson, fyrrverandi ut-
anríkisráðherra, spurði hann
hvers vegna Palestínumenn
fengju ekki meiri stuðning
auðugra arabaríkja. Al-Maliki
sagði að Palestínumenn lifðu
af vegna ötuls stuðnings ESB
og „Bandaríkjanna, ég er ekki
feiminn við að segja að við
fáum 770 milljónir dollara á
ári frá þeim með ýmsum
hætti“.
Hann sagði erfitt að segja
hvað mikið fé bærist frá aröb-
um, „ef eitthvað … en
kannski munu þeir einhvern
tímann gera sér grein fyrir því
að fyrir þá er fjárfesting í Pal-
estínu fjárfesting í framtíð-
inni.“
Lítil hjálp
arabaríkja
Chiaku „Laughter“
My spirit heals
and heartens
Ármúla 38 | Sími 588 5011
Verð frá kr. 1990.-
Kimmidoll
á Íslandi