SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Page 6
6 18. desember 2011
Franska þjóðin er ýmsu vön en
það vakti mikla hneykslan þegar
virt kona úr yfirstétt, lögfræðing-
urinn Isabelle Coutant-Peyre, gift-
ist sjálfum Sjakalanum, eftir að
hún hóf störf sem verjandi hans.
Þetta var í ágúst árið 2001.
„Margir vina minna héldu að ég
væri orðin galin. En þeir vita að
ég er það ekki, svo ástæðan hlýt-
ur að vera einhver önnur,“ sagði
hún.
Coutant-Peyre er 58 ára, fjór-
um árum yngri en Sjakalinn.
„Hjónabandið er táknrænt,“
sagði hún þá. „Við vildum lýsa því
yfir að við elskum hvort annað
það sem við eigum eftir ólifað.
Við urðum ástfangin, eins og
milljónir annarra í heiminum. Svo
einfalt er það.“ Margir klóra sér
þó enn í höfðinu yfir ráðahagnum.
Coutant-Peyre var alin upp hjá
vellauðugum föður, viðskiptajöfri,
eftir að foreldrar hennar skildu
þegar stúlkan var níu ára. Hún
nam í kaþólskum heimavist-
arskóla áður en leiðin lá í laga-
nám í París. Hjónin hafa vitanlega
aldrei búið saman, og gera aldrei.
„Hann er fullkominn eiginmaður.
Hann lætur mig alltaf vera á nótt-
unni!“ sagði Coutant-Peyre í létt-
um dúr, spurð um hjónalífið.
Lögfræðingur Sjakalans féll fyrir honum
Isabelle Coutant-Peyre, lögfræðingur og eiginkona Sjakalans, mætir í
réttarsalinn í vikunni áður en dómur yfir honum var kveðinn upp.
Reuters
I lich Ramírez Sánchez frá Venesúela var lengisá hryðjuverkamaður heims sem var hvaðákafast eftirlýstur en hefur setið á bak við lásog slá í París síðan 1997. Þá var hann dæmdur
í lífstíðarfangelsi og í vikunni var höggvið í sama
knérunn og öðrum fangelsisdómi til lífstíðar bætt
við þann fyrri. Því er ljóst að hann strýkur ekki um
frjálst höfuð framar.
Ramírez þessi, jafnan kallaður Carlos og oft Sjak-
alinn, kom fyrst fram á sjónarsviðið laust fyrir jólin
1975 þegar hann fór fyrir flokki hryðjuverkamanna
sem tóku olíumálaráðherra OPEC, hagsmuna-
samtaka olíuframleiðsluríkja, í gíslingu þar sem
þeir voru á fundi í Vínarborg. Þrír lágu í valnum
eftir þá árás.
Næstu ár á eftir skildi Sjakalinn eftir sig blóðuga
slóð víða vegna sprengjuárása, og því hefur verið
haldið fram að hann beri ábyrgð á dauða allt að
2.000 manna. Í viðtali fyrir nokkrum árum sagði
hann að „aðeins“ um 200 manns, innan við 10%,
hefðu verið saklausir vegfarendur.
Ákafur marxisti
Ramírez fæddist í Venesúela 1949. Hann varð mikill
marxisti eins og faðir hans, gekk snemma í æsku-
lýðshreyfingu kommúnista í heimalandinu og var
sendur til náms í Moskvu seint á áttunda áratugn-
um.
Árið 1970 fór hann til Beirút í Líbanon og gerðist
sjálfboðaliði í palestínsku frelsissamtökunum PFLP.
Hann hefur haldið því fram að alla tíð hafi hann
verið að berjast fyrir frjálsri Palestínu. Sumir draga
það í efa og telja hann einfaldlega kaldrifjaðan
morðingja sem hafi gert hvað er fyrir peninga.
Fyrri lífstíðardóminn hlaut Carlos fyrir morð á
tveimur frönskum lögregluþjónum og einum
óbreyttum borgara árið 1975 en nú vegna sprengju-
árása þar í landi nokkrum árum síðar, sem urðu
fleirum að bana. Margir hafa beðið þess lengi að
hann yrði dæmdur.
Réttarhöldin nú stóðu í sex vikur. Carlos talaði í
fimm klukkustundir áður en dómur var kveðinn
upp, las þá sundurlaust úr skjölum sínum, sagði
réttarhöldin klúður og líkti þeim við lélega grín-
mynd. Hann fullyrti að ekkert tengdi hann við þær
árásir sem hann var sakaður um. „Ég skammast
mín ekki fyrir neitt,“ sagði Ramírez. „Lengi lifi
byltingin! Guð er mestur.“
Fyrsta eiginkona Carlosar, hin þýska Magdalena
Kopp, sendi frá sér bók árið 2007 þar sem hún lýsti
árum þeirra saman.
Kopp kynntist Carlosi 1976 þegar hún fór til Suð-
ur-Jemen, í hópi vinstrisinnaðra ungmenna, sem
vildu berjast fyrir frelsi Palestínu. Þau Carlos urðu
ástfangin en Kopp sagði síðar að hún hefði í raun
lotið algjörri stjórn hans.
Parið bjó víða í arabaheiminum og í Austur-
Evrópu. Carlos átti marga vini sem þurftu á starfs-
kröftum hans að halda. Hann var t.d. bæði í Líb-
anon og Sýrlandi um tíma og þá er hann sagður
hafa búið í Austur-Berlín þar sem leynilögreglan
Stasi á að hafa útvegað honum húsnæði og fjölda
starfsmanna. Sögur um tengsl hans við önnur
kommúnistaríki virðast hafa átt við rök að styðjast.
Carlos skyldi síðar við Kopp. Hún sneri heim til
bæjarins Ulm í Þýskalandi 1995. Hann var handtek-
inn tveimur árum síðar og hefur verið á bak við lás
og slá síðan.
Sjakalinn enn í
lífstíðarfangelsi
Ljóst að Ramírez Sánchez mun
aldrei um frjálst höfuð strjúka
Þekktasta myndin af Sjakalanum og sú eina sem birtist af honum árum
saman. Hún prýddi forsíðu bókar um hann á íslensku sem kom út 1977.
Mynd fransks teiknara af Sjakalanum í réttarsalnum.
Hún birtist í Parísarblaðinu Le Figaro í vikunni.
Vikuspegill
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Ilich Ramíres Sánches fædd-
ist 12. október 1949 í Vene-
súela. Foringi í palestínsku
frelsissamtökunum PFLP hóf
að nefna hann Carlos þegar
hann gekk til liðs við sam-
tökin árið 1970. Fjölmiðlar
tóku síðar upp á því að kalla
hann Sjakalann í höfuðið á
persónu í skáldsögu Freder-
ick Forsyth, Dagur Sjakalans.
Carlos eða
Sjakalinn
Matarsendingar
til útlanda
Láttu okkur sjá um
alla fyrirhöfnina –
útvega vottorð,
pakka og senda.
Evrópa: 19. desember
USA og Kanada: 19. desember
Önnur lönd: 19. desember
Síðustu dagar til að senda
jólamat til útlanda fyrir jól
KL
AS
SÍS
KT Á JÓLUNUM
B
R
E
G
ST
A L D R E I M E Ð
N Ó
AT
Ú
N
I
www.noatun.is