SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Page 10
10 18. desember 2011
Nokkrir knattspyrnumenn vekja alltaf sérstaka athygliþegar þeir sýna trú sína í verki á vellinum. Þetta eru að-allega eða kannski eingöngu leikmenn frá suðlægumlöndum; við, köldu karlarnir hér í norðrinu, förum frek-
ar með bænirnar okkar í laumi.
Hver hefur ekki tekið eftir því
þegar Lionel Messi, besti knatt-
sprnumaður heims, myndar
kross á brjósti sínu og horfir til
himins eftir að hafa skorað?
Messi signir sig þegar hann geng-
ur inn á völlinn og aftur þegar
hann fer út af. Stundum signir
hann sig nokkrum sinnum í
hverjum leik; það fer eftir því
hve oft hann skorar!
Þessi siður er algengur á Spáni
en Suður-Ameríkumenn þó lík-
lega iðnari við kolann í þessu
sambandi en aðrir. Skýrasta
dæmið þaðan er ungstirnið Javier
Hernandez, framherjinn frábæri
hjá Manchester United. Hann er
heittrúaður kaþólikki.
Fyrir hvern einasta leik krýpur
Chicharito, eins og hann er kall-
aður, á miðlínunni, spennir
greipar, lygnir aftur augum og fer
með bæn. Samherjum hans
fannst þetta undarlegt í byrjun,
en segja það hafa vanist fljótt.
Sums staðar hafa stuðningsmenn
andstæðinganna gert grín að
þessu en honum er vitaskuld
nokk sama. Hernandez tók upp
þennan sið sem ungur drengur
heima í Mexíkó, fór með bæn
fyrir hvern einasta leik og hefur trú á að það hjálpi sér.
Ég hafði fyrir löngu heyrt af því að kapella væri fyrir hendi á Camp
Nou, heimavelli Barcelona, áður en ég kom þangað í heimsókn í
sumar. Samt var upplifun að sjá hana með eigin augum. Kapellan er
á ganginum þar sem leikmenn fara út á völlinn og því auðvelt að
biðjast þar fyrir áður en flautað er til leiks. Mér er sagt að margir nýti
sér það, bæði heimamenn og gestir. Þeim síðarnefndu veitir yfirleitt
ekki af því að biðja guð að hjálpa sér.
„Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með þeim mönnum,
sem hann hefir velþóknun á,“ segir í Lúkasarguðspjalli. Ég tek ofan
fyrir mönnum sem eru ekki feimnir við að sýna trú sína í verki, og
þá er alveg sama hver guð hvers og eins er. Ég hygg of margir trúi
eingöngu á Mammon um þessar mundir. Þeir sömu hugsa örugglega
mikið um upphæðir, en líklega ekki þær sömu og Lúkas nefndi.
Dýrð sé guði
í upphæðum
Meira en
bara leikur
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
’
Kapellan á
Camp Nou
kemur í góðar
þarfir. Gestirnir
þurfa t.d. yfirleitt að
biðja guð að hjálpa
sér
Javier Hernandez er strangtúaður
og fer alltaf með bænir fyrir leik.
Kapellan á Camp Nou, heimavelli Barcelona. Hún er á ganginum þar sem
leikmenn halda frá búningsherbergjunum og út á völlinn.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
09.00 Vakna. Löng æfing
með kirkjukórnum í gærkvöldi
svo ég ákvað að lúra aðeins
lengur en vanalega.
09.20 Morgunverður með
mínum ástkæra. Fæ mér AB-
mjólkina mína, appelsínu og
lýsið góða. Tónleikadaga reynir
maður alltaf að hafa rólega og
þeir hafa yfir sér sérstakan blæ,
þessi þó öðrum fremur því í
kvöld eru Ljósberatónleikar í
Akureyrarkirkju. Ljósberasjóð-
urinn, minningarsjóður um
föður minn [séra Þórhall Hösk-
uldsson], er til styrktar bág-
stöddum á Akureyri með
áherslu á stuðning fyrir jólin.
10.00 Förum í bestu sund-
laug á landinu, Akureyrarlaug;
ég sit lengi í gufunni til að slaka
vel á, opna vel lungun og mýkja
raddböndin.
12.00 Þarf að huga að ýms-
um praktískum atriðum fyrir
kvöldið með organistanum og
aðstoðarfólki. Þetta er fjórða ár-
ið sem ég hef yfirumsjón með
Ljósberatónleikunum í sam-
vinnu við organista og kóra
kirkjunnar. Svo kíki ég í nót-
urnar mínar og fer vel yfir texta.
14.15 Ek frá flugvellinum.
Fór þangað að sækja Egil Ólafs-
son, Elísabetu Waage hörpu-
leikara, Þóri Jóhannsson
kontrabassaleikara og Höskuld
bróður minn, kynni kvöldsins.
Akureyri tók á móti þeim í sínu
fegursta jólaskarti.
14.30 Alltaf yndislegt að
koma í kirkjuna; það er eins og
að koma heim. Mér finnst
hvergi betri hljómur, ég þekki
hann út og inn. Við Egill æfum
það sem við þurfum með Eyþóri
organista, Hilmari Erni stjórn-
anda og Elísabetu. Því fylgir sér-
stök tilhlökkun að æfa Ljós-
beralagið 2011, sem Daníel
Þorsteinsson samdi sérstaklega
fyrir okkur Egil, eldri barnakór
Akureyrarkirkju, stúlknakór
kirkjunnar og kammersveit. Það
er unaðslegt að syngja með Agli,
hann er fagmaður fram í fing-
urgóma, hlýr og notalegur í
samstarfi og glaður að leggja
þessu góða málefni lið. Það er
mikill heiður að fá hann norður
sem sérstakan gest.
16.30 Setjumst inn á Baut-
ann til að fá okkur að borða.
Sunnlendingarnir fengu sér
hvalkjöt og létu vel af því! Söng-
konan lét sér hins vegar nægja
súpu og salat.
17.00 Þá er að skvera sér í að
láta koma upp hárinu og skella á
sig andlitinu! Það er margt sem
fylgir því að vera söngkona...
18.30 Kem í Akureyrar-
kirkju og við æfum með hljóm-
sveitinni og kórunum. Rennum
yfir samsöngslögin.
19.50 Þá er að drífa sig í
kjólinn, stilla hugann, lifa sig
inn í tónlistina og þann boðskap
og anda sem maður vill færa
kirkjugestum.
20.30 Tónleikarnir hefjast.
Stemningin yndisleg. Ég er af-
skaplega ánægð með þessa
stund og þakklát að hafa góða
áheyrendur sem fylltu kirkjuna.
22.15 Ég finn fyrir miklu
þakklæti í lok tónleikanna. Allt
gekk upp, kórarnir dásamlegir,
Egill fór á kostum, Óskar vinur
minn Pétursson alltaf jafn
skemmtilegur og ég var stolt af
Eyrúnu Unnarsdóttur mezzó-
sópran, dóttur bestu vinkonu
minnar, sem var frábær og ég
hef fylgst með frá blautu barns-
beini. Sólrún Svava 11 ára var
yndisleg, kórarnir frábærir og
organistar og hljómsveitin skip-
uð fagmanni í hverju rúmi. Það
eru forréttindi að fá að miðla
svona fallegri tónlist og starfa
með svona frábæru fólki. Það er
mikil vinna á bak við svona tón-
leika, allir gefa vinnu sína og
mikinn tíma og gera það af mik-
illi gleði. Yndislegt að finna það.
22.40 Allir koma saman í
safnaðarheimilinu og njóta veit-
inga í boði fyrirtækja á Ak-
ureyri.
23.20 Höldum nokkur
áfram, eigum notalega stund á
hótelinu og tökum púlsinn á líf-
inu.
02.00 Leggst loks til hvílu og
sofna eftir yndislegan dag. Það
tekur tíma að ná sér niður eftir
tónleika; ég fór nokkrum sinn-
um upp á háa c-ið í kvöld og er
lengi að ná mér niður í samræmi
við það! skapti@mbl.is
Dagur í lífi Bjargar Þórhallsdóttur sópransöngkonu
Björg Þórhallsdóttir og Egill Ólafsson á Ljósberatónleikunum á Akureyri.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hvergi betri hljómur
1198kr.kg
Krónu hamborgarhryggur
Norðlen
sk
gæði
– fyrst og fre
mst
ódýr!