SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Blaðsíða 12
12 18. desember 2011
Þriðjudagur
Karl Sigurðsson
talaði m.a. um þvag-
lát og menningu í
borgarstjórn og fékk
andsvar frá borg-
arstjóra.
Fimmtudagur
G Sverrir Þór
Stuttlingurinn með
forgangsröðunina á
hreinu: „Var David
Villa í aðalbún-
ingnum þegar hann fótbrotnaði?“
Bryndis
Björgvinsdóttir
: nú erum við að
sigla inn í lakk-
rístoppatímabilið.
Og what the ...?!?! Ég er búin að
þaullesa margar uppskriftir og
gera þrjár bökunartilraunir og
&%/#$ toppadjöflarnir enda alltaf í
einhverju mauki. Ég bilast. Þessi
jól geta bara gleymt’essu.
Föstudagur
Ester Andrésdóttir
Djús úr kampavíns-
glasi með klaka.
Það er málið. Þetta
er allt spurning um upplifun.
Fésbók
vikunnar flett
Sony Ericsson hefur átt á brattann að
sækja á símamarkaði þrátt fyrir fína
síma, trausta og tæknilega vel út-
færða. helst hefur vafist fyrir fyrirtæk-
inu að ná að skera sig úr fjöldanum í
útfærslu eða virkni sem aðrir fá ekki
skákað, en eitt af því sem Sony hefur
lagt mikla áherslu á síðustu árum er
sími sem spilastokkur, sem sjá má
meðal annars á nýjum síma, WT19i,
sem er markaðssettur sem Sony Er-
icsson Live og meðal annars lögð
áhersla á að á símanum er Walkman-
hnappur (á snertiskjánum) til að
demba sér í músíkina.
Tæknilega stenst síminn flestum
snúning, styður öll gagnasnið sem
þarf að styðja og alla samskipta-
staðla. Það er galli á honum hvað
meðfylgjandi minniskort er lítið, ekki
nema 2 GB, enda kemst ekki mikil
músík fyrir þar. Skjárinn er líka lítill,
en síminn nettari fyrir vikið og fer bet-
ur í vasa. Hljómur er þokkalegur.
Á símanum er Android 2.3 sem
Sony hefur sérsniðið og virkar fínt,
valmyndir eru skemmtilega upp sett-
ar og þægilegt að nota símann og
snilld að setja upp flýtivísa.
iPad hefur haft talsverða yfir-
burði á spjaldtölvumarkaði síð-
ustu misseri, en nú tekur að
hitna í kolunum, enda er hér
loks kominn verðugur keppi-
nautur, nettari græja, þynnri og
léttari en þó með stærri skjá,
10,1" á móti 9,7". Upplausnin
á skjánum er líka betri og tölv-
an sprækari. Best af öllu er svo
frelsið – nú geta menn gert
hvað sem er við vélina, breytt
því sem þeir vilja og sett hvaða
forrit sem er inn á hana.
Örgjörvinn er frá Nvidia, tveggja
kjarna 1 GHz Tegra. Vinnslu-
minni í tölvunni er 1 GB og
geymsluminni 16 eða 32 GB. Í
eldri gerð hennar var rauf fyrir
minniskort sem margir sakna,
en að mínu viti er það óþarfi,
gögnin eru hvort eð er komin á
netið að miklu eða öllu leyti.
Alla jafna er ég á móti því að framleiðendur
noti ekki sömu tengi og aðrir. Með
tímanum hafa
framleiðendur
flestir, Sam-
sung þar með-
talið, þó sam-
ræmt tengi, en
nú ber svo við
að Tab 10.1
notar tengi
sem aðeins
passar við
hana. Það skýr-
ist þó af því að
fyrir vikið getur
tölvan verið
þynnri því sama
tengi er notað
fyrir gagna-
tengingu,
straum og
HDMI-útgang
(með milli-
stykki).
Skjárinn er frábær, 10,1" breiðtjaldsskjár WXGA
TFT. Vélin er með einkar góða svörun, snörp og fín.
Hún styður öll helstu gagnasnið fyrir hljóð og mynd.
Myndavélarnar eru ekki ýkja spennandi, en þó er
tveggja milljóna díla vél að framan og 3 milljónir að
aftan og sú með autofocus.
Verðugur keppinautur
Það er viss tilbreyting að Apple sé ekki lengur að glíma við Microsoft en rimm-
an er hörð engu að síður – nú takast á Apple og Samsung og Samsung hefur
sitthvað í erminni eins og sjá má á nýrri spjaldtölvu, Galaxy Tab 10.1.
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Sony Ericsson Live
Sími sem spila-
stokkur