SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Blaðsíða 16
16 18. desember 2011
Þessi léttleikandi silkichiffon-kjóll er úr smiðju Shadow Creatures. Hann er
úr þremur lögum af silki, sem eru í þremur ólíkum bleikum litatónum.
Gaman er að segja frá því að Unnur og Emilía sem lentu í topp þrjú í Dans,
dans, dans klæddust einmitt hönnun Shadow Creatures.
Hann kostar 54.900 krónur og er til sölu í Kiosk.
Léttleikandi skuggaverur
Sonja Bent hefur getið sér gott orð sem hönnuður prjónaflíkna á konur
og menn. Hér má sjá stutta slaufupeysu frá henni sem er bæði kvenleg
og klæðileg í sniðinu. Hún er úr 100% merinoull og kostar 33.000
krónur. Fæst í Kirsuberjatrénu við Vesturgötu.
Kvenlegt og klæðilegt
Hár úr hala er samstarfsverkefni Ólafs Þórs Erlendssonar húsgagna- og innanhússarkitekts og Sylvíu Kristjánsdóttur
grafísks hönnuðar. Þau sækja innblástur í sögur, vísur og ævintýri en nú hafa þau hannað snagarekka úr áli sem heita
Hani, krummi, hundur, svín og Hestur, mús, tittlingur. Snagarnir, sem fást í þremur litum, eru myndræn tilvitnun í
hina gömlu, góðu vísu um þessi dýr.
Snagarnir fást í Epal og kostar Hani, krummi, hundur svín 12.900 kr. og Hestur, mús, tittlingur 11.600 kr.
Ævintýralegir snagar
Haustlína Kormáks & Skjaldar 2011 samanstendur af vestum, buxum,
jökkum, prjónavestum og handhnýttum ullarslaufum. Bresk ull og bóm-
ull, íslensk ull og íslenskt lambaleður, sem sútað er af sútunarverksmiðj-
unni á Sauðárkróki, eru efnin sem notast er við en línan er framleidd á Ís-
landi af Lillý Alettu klæðskera. Í rannsóknarvinnunni var
skotveiðifatnaður skoðaður og ákveðin gróf veiðistemmning er yfir lín-
unni, þó svo að hún sé færð úr veiðifatnaði yfir í fínni fatnað. Fötin eru
aðsniðin, línurnar skarpar. Yfirhönnuður Kormáks & Skjaldar er Guð-
mundur Jörundsson.
Vestin eru á 25.500 kr., buxurnar á 25.500 kr., jakkarnir á 98.000 kr.
og slaufurnar á 6.900 kr.
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Viðrar vel til veiði
DEMO-loftljósið er hönnun Dagnýjar Elsu Einarsdóttur
og Magnúsar Ólafssonar og sækir innblástur til sjötta og
sjöunda áratugar síðustu aldar. Það er fáanlegt í ýmsum
litum en einnig ólitað. Efniviðurinn er furugrind, furus-
pónn og messinghringir en perufesting er úr málmi.
Perustæðið er hefðbundið og því úr harðplasti og fyrir
hámark 60 vatta peru. Snúran er tauklædd og fáanleg í
mörgum litum, bæði einföld eða vafin.
DEMO-loftljósið er handgert ef frá er talin hefðbundin
vélavinna og fæst í Epal.
Ljós með fortíðarþrá