SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Blaðsíða 20
20 18. desember 2011
Kunnuglegt andlit birtist innanum öll ungmennin í matsaln-um á æfingasvæði QueensPark Rangers í Lundúnum.
Heiðar Helguson nikkar kumpánlega til
mín og gefur mér merki um að koma af-
síðis, þar sem er meira næði. Það er
gauragangur í salnum, unglingaliðið að
gúffa í sig hádegismatnum með tilheyr-
andi gjálfri. Fyrir utan er varaliðið að
keppa við Tottenham. Nýbúið að bera
aumingja Kieron Dyer af velli. Enn og aft-
ur. Fátt er um aðalliðsmenn á svæðinu,
æfingu er lokið og menn farnir að heim-
sækja skólana í borginni, eins og tíðkast
fyrir jólin. Heiðar varð að vísu eftir hjá
sjúkraþjálfara enda allt kapp lagt á að
gera hann leikfæran fyrir helgina. Smá-
vægileg meiðsli í nára komu í veg fyrir að
Dalvíkingurinn spilaði gegn Liverpool
um síðustu helgi – og það stórsá á sókn-
arleik Rangers.
Heiðar er afslappaður í æfingagallanum
og strigaskóm eftir að sjúkraþjálfarinn
sleppir honum í mínar hendur. Það er
þriðjudagur og beint liggur við að spyrja
hann fyrst um heilsufarið þegar við höf-
um komið okkur fyrir í afdrepi inn af
matsalnum. „Ég verð klár í slaginn um
helgina, þetta var ekkert alvarlegt,“ segir
hann ákveðinn þegar fimm dagar eru til
stefnu.
Góður félagsskapur
Andstæðingurinn í hádeginu dag, sunnu-
dag, er Manchester United, meistararnir
sjálfir, og finni Heiðar netmöskvana slær
hann met hjá félaginu. Enginn leikmaður
QPR hefur skorað í fimm leikjum í röð á
heimavelli í úrvalsdeildinni. Heiðar jafn-
aði met Les Ferdinands í síðasta leiknum
á Loftus Road, gegn West Bromwich Al-
bion. Ferdinand er einn af dáðustu son-
um QPR frá upphafi vega og Heiðar er
stoltur af því að deila metinu með hon-
um. „Það er ekki amalegur félagsskap-
ur,“ segir hann brosandi.
Metið verður honum þó ekki efst í huga
þegar flautað verður til leiks í dag. „Ég
mun reyna að skora í þessum leik, eins og
öllum öðrum leikjum sem ég spila, burt-
séð frá þessu meti. Auðvitað yrði gaman
að slá það en aðalatriðið er að hjálpa lið-
inu að ná í þrjú stig.“
Heiðar átti drjúgan þátt í að tryggja
QPR sæti meðal hinna bestu á síðustu
leiktíð – í fyrsta sinn í fimmtán ár. Gerði
13 mörk í 34 deildarleikjum. Eftir að
knattspyrnustjórinn, Neil Warnock, fór
hamförum á leikmannamarkaði í sumar
gerði hann sér aftur á móti fulla grein
fyrir því að hlutverk hans hjá félaginu
hafði breyst. „Þegar ég skrifaði undir
nýjan samning til eins árs síðasta sumar
vissi ég alveg út í hvað ég var að fara.
Stjórinn keypti einhverja ellefu eða tólf
nýja leikmenn, þeirra á meðal framherj-
ana Jay Bothroyd og DJ Campbell, og
sagði mér beint út að ég yrði ekki fyrsta
val. Ég myndi þó örugglega fá eitthvað að
spila. Ég sætti mig við þessa skilmála
enda hef ég verið í þessum sporum áður
og veit að hlutirnir geta verið fljótir að
breytast.“
Orð að sönnu.
Þess má geta að Campbell fékk gamla
númerið hans Heiðars, 9. Hann hefur að
mestu verið frá vegna meiðsla.
Minni slagsmál
Að því kom að Heiðar fékk sitt tækifæri
um miðjan október. Hann tók því opnum
örmum og hefur ekki litið um öxl síðan.
Er langmarkahæsti leikmaður félagsins,
með sex mörk í níu leikjum. Þar af hefur
hann aðeins byrjað inn á í sjö. „Þetta hef-
ur gengið mjög vel að undanförnu. Það
hljómar kannski undarlega en það hentar
mér á margan hátt betur að spila í úrvals-
deildinni en b-deildinni. Það eru minni
slagsmál og yfirleitt rýmri tími til að jafna
sig milli leikja. Það kemur sér vel þegar
maður er kominn á þennan aldur,“ segir
Heiðar sem hélt upp á 34 ára afmæli sitt í
sumar.
Síðasta úrvalsdeildarfélagið sem Heiðar
lék með var Bolton, frá 2007 til 2009, en
þar fékk hann afar fá tækifæri eftir að
knattspyrnustjórinn sem keypti hann,
Sammy Lee, var látinn taka pokann sinn.
Spurður hvort hann hafi átt von á því að
ferli hans í úrvalsdeildinni væri lokið
þegar hann yfirgaf Bolton hugsar Heiðar
sig stundarkorn um. „Maður heldur alltaf
í vonina en satt best að segja átti ég ekkert
frekar von á því að leika aftur í úrvals-
deildinni.“
Enda þótt Heiðar hafi fest sig í sessi í
liði QPR í augnablikinu er ekkert sjálf-
gefið í hinum harða heimi atvinnu-
mennskunnar. „Ég veit að það er klisja en
ég get ekki leyft mér að hugsa lengra en
um næsta leik. Meðan ég stend mig vel og
held áfram að skora fæ ég væntanlega að
spila en um leið og ég gef eftir eru aðrir
tilbúnir að koma í minn stað. Þeir leik-
Einhverjir héldu að Heiðari Helgusyni hefði ver-
ið skolað með baðvatninu niður um deildir í Eng-
landi. Öðru nær. Dalvíkingurinn virðist eiga
jafnmörg líf og kötturinn og um þessar mundir er
hann einn heitasti miðherjinn í úrvalsdeildinni,
34 ára gamall. Hefur gert 6 mörk í 7 leikjum.
Þökk sé vinnusemi og ódrepandi baráttuanda.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Heiðar Helguson afslapp-
aður í matsalnum á æf-
ingasvæði QPR í vikunni.
Seiglan
holdi
klædd
Heiðar hefur leikið með ógrynni manna í ensku knattspyrnunni. Hann segir þá eins mis-
jafna og þeir eru margir. „Mest eru þetta kunningjasambönd sem slitna þegar menn skipta
um félag. Ég hef samt eignast nokkra góða vini í gegnum boltann sem ég er í góðu sam-
bandi við og verð örugglega áfram.“
Hann á auðveldast með að vingast við Bretana og Írana. „Ég kann best við þá, lífsstíl-
inn, húmorinn og þess háttar. Það er til dæmis erfiðara að nálgast Suður-Evrópumenn.“
Þá halda íslensku leikmennirnir í Englandi vel hópinn. „Ég er í miklu sambandi við bæði
Hemma [Hermann Hreiðarsson] og Ívar [Ingimarsson] en þeir komu hingað út á svipuðum
tíma og ég. Meðan ég bjó uppi í Manchester var ég líka í góðu sambandi við Jóa Kalla [Jó-
hannes Karl Guðjónsson]. Við hittumst oft og spilum golf. Maður verður að vera búinn að
ná góðum tökum á því þegar maður hættir í fótboltanum, í einhverju þarf maður að geta
keppt!“
Kann best við Bretana og Írana