SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Síða 39
18. desember 2011 39
Eins og allir þeir sem sótt hafa háskólanám við Ríkishá-skólann í Pennsylvaníu, eða Penn State, er ég gjör-samlega miður mín yfir ásökunum á hendur Jerry Sand-usky, fyrrum varnarþjálfara í amerískum fótbolta við
skólann, um kynferðislegt ofbeldi á börnum. Ég finn til hryllings
og viðbjóðs yfir því hversu margar fréttir er hægt að skrifa um
kynferðisofbeldi á börnum. Í hvert sinn sem ég les fréttir af þessu
tagi hugsa ég, eins og margir aðrir, hvað er hægt að gera til þess að
koma í veg fyrir kynferðisofbeldi gagnvart börnum í framtíðinni?
Hvort sem samfélagið vill koma í veg fyrir kynferðislegt ofbeldi
á börnum, eða er að kljást við það að vinna úr slíkum glæpum sem
þegar hafa verið framdir, er fjölmargt sem við getum öll gert til
þess að taka jákvæð skref fram á við.
1. Gefðu fjárframlag til samtaka sem vinna að því að binda enda
á kynferðislegt ofbeldi á börnum með vitundarvakningu og
fræðslu.
2. Talaðu við börnin þín. Ef þú ert foreldri, taktu þér tíma til þess
að fræða börnin þín um muninn á snertingu sem er í lagi og snert-
ingu sem er ekki í lagi, um fólk sem vekur með þeim óþægilegar
tilfinningar, fólk sem gefur þeim
„sérstakar“ gjafir og um það hvernig
það er stundum ekki í lagi að halda
leyndarmál, jafnvel þótt maður hafi
lofað því.
3. Notaðu tækifærið þegar fjallað
er um kynferðisbrotamál í fjöl-
miðlum. Foreldrar gera sér ekki allt-
af grein fyrir því að börnin þeirra eru
ekki ónæm fyrir því sem þau heyra
og sjá í fjölmiðlum. Þau þurfa leið-
sögn frá foreldrum sínum og þurfa
að læra hvernig þau geta tjáð sig um
kynlíf og óviðeigandi kynferðislega
tilburði frá öðrum.
4. Styddu kynfræðslu í skólunum.
Meðal þess sem börnum er kennt á slíkum námskeiðum er að eng-
inn annar megi sjá eða snerta kynfæri þeirra og þar er þeim einnig
kennt að segja fullorðnum einstakling sem þau treysta frá ef þau
verða fyrir misnotkun.
5. Gerstu talsmaður. Fræddu þig um hvað þú getur gert til að
hjálpa þeim sem hafa verið beittir kynferðislegu ofbeldi. Settu þig í
samband við samtök sem berjast fyrir því að vernda börn gegn
kynferðislegu ofbeldi.
6. Sýndu fórnarlömbum stuðning. Einstaklingar sem hafa deilt
því með mér að þeir hafi verið beittir kynferðislegu ofbeldi segja
viðbrögð annarra oft jafnslæm og ofbeldið sjálft. Þegar fólk bregst
við með undrun, hneykslan eða viðbjóði getur það valdið sekt-
arkennd hjá fórnarlambinu, því gæti liðið eins og það væri
„óhreint“ á einhvern hátt og ekki öðrum samboðið. Reyndu að
sýna ekki hversu hræðilegar þér finnast fréttirnar og gerðu allt
sem þú getur til þess að styðja og hjálpa þeim sem hefur verið
brotið á.
7. Kynntu þér hvað þú átt að gera. Leitaðu þér upplýsinga um
hvern þú átt að setja þig í samband við ef þú verður einhvern tím-
ann var við kynferðisofbeldi. Þegar fólk grípur ekki til aðgerða og/
eða lætur vita, er það oft vegna þess að það veit ekki hvað skal gera
eða hvern á að hafa samband við.
8. Hugsaðu vel um sjálfan þig. Kynferðislegt ofbeldi er tilfinn-
ingalega hlaðinn og hörmulegur hlutur að fást við og vinna úr.
Hvort sem þú ert fórnarlamb eða partur af samfélagi þar sem kyn-
ferðislegt ofbeldi hefur átt sér stað, þá er engin skömm í því að
leita sér aðstoðar og tala við einhvern, hvort sem það er trúar-
leiðtogi, ráðgjafi eða stuðningshópur.
Vonandi finna flestir leið til þess að vinna úr slíkum málum á
uppbyggilegan hátt. Að gera eitthvað jákvætt við hræðilegar að-
stæður, getur á endanum orðið til þess að við leggjum okkar af
mörkum til þess að vernda börnin okkar.
Hvað getur
þú gert?
’
Þegar fólk
bregst við
með undr-
un, hneykslan eða
viðbjóði getur það
valdið sekt-
arkennd hjá fórn-
arlambinu.
Kynfræð-
ingurinn
Dr. Yvonne Kristín
Fullbright
en var, í nýjum og glæsilegum húsum þar sem eru m.a. veitingastaðir
og ferðamannabúðir.
Miðborg Reykjavíkur hefur í tímans rás verið torg verslunar fyrir
jólin. Matföngin á hátíðarborðið bíða yðar hjá oss, sagði í auglýsingu
frá Kjörbúð SÍS árið 1962. Skóval í kjallara Eymundsson í Austur-
stræti auglýsti þá líka kventöfflur og inniskó frá Þýskalandi og
Frakklandi. „Látið jólabjöllu okkar vísa yður veginn til hagkvæmra
jólainnkaupa,“ auglýsti svo Rafha 1969 og vísaði þar til bjöllunnar.
Austurstræti er gata skáldanna. Ófáir af andans mönnum hafa sótt
sér yrkisefni þangað, enginn þó með jafn minnisstæðum hætti sem
Tómas Guðmundsson. Ljóðið Austurstræti hefur jafnan verið haft í
dýru gildi. „Hvað varð um yður, Austurstrætisdætur / með æsku-
léttan svip og granna fætur,“ orti skáldið og út af þessum orðum
hefur verið lagt á ýmsa vegu í tímans rás. Sárafáir eiga skráð lög-
heimili við Austurstræti – fjöldinn er í úthverfunum. Einhverjir
muna sjálfsagt enn eftir sjónvarpsfrétt Ómars Ragnarssonar endur
fyrir löngu þar sem hann lagði út af þessu og spurði einfaldlega hvað
hefði orðið um dætur Austurstrætis. Jú, því væri til að svara að þær
væru fluttar upp í Árbæ enda væru þar fjölmennustu götur borg-
arinnar. Og fréttin skapaði viðbrögð. Í Velvakanda í Mogga sagði:
„Síðan hélt fréttamaðurinn áfram, eins og Austurstrætisdæturnar
hefðu búið í Austurstræti, þar byggi nú aðeins einn maður, og sagði
að þær byggju nú uppi í Rofabæ, minnir mig. En Tómas var ekki að
tala um stúlkurnar sem bjuggu i Austurstræti, í kvæði sínu forðum,
heldur ungu stúlkurnar í Reykjavík almennt, sem þar gengu sér til
skemmtunar,“ sagði í lesendabréfinu.
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
’
Látið jólabjöllu
okkar vísa yður
veginn til hag-
kvæmra jólainn-
kaupa.
Tómas
Guðmundsson
Alexa Chung og Alex Turner, forsprakki hljómsveitarinnar Arctic Monkeys voru par í fjögur ár en þau hættu
saman í sumar. Hérna eru þau á tónlistarhátíð en Alexa hefur alltaf haft sterk tengsl við tónlistarheiminn.
Reuters
’
Hún hefur getið sér gott orð
sem þáttastjórnandi í Bret-
landi og starfaði um tíma
sem kynnir hjá MTV í Bandaríkj-
unum.
Rick Nadeau hefur stoppað upp dýr í meira en þrjá ára-
tugi. Fyrir sex árum fór hann hins vegar að finna upp á
nýjungum þegar það varð samdráttur í bransanum.
Hann sérhæfir sig núna í því að stoppa upp íkorna og
stilla þeim upp á óvenjulegan hátt. Flestir eru með ein-
hvers konar fylgihluti, margir með litla riffla, aðrir með
banjó og einstaka jafnvel með sígarettu. Viðskipti hafa
verið blómleg hjá Nadeau, sem sendir íkorna um allan
heim. Nánari upplýsingar og fleiri ótrúlegar myndir er
að finna á www.thesquirrelshole.com.
Óvenjuleg uppstoppun
Simpansinn Booie, sem þekktur
var fyrir að reykja og nota táknmál
til að sníkja nammi, er dauður, 44
ára gamall. Booie drapst á dýra-
verndunarsvæði í Kaliforníu í
Bandaríkjunum, nærri Los Angel-
es, þar sem hann hefur búið frá
árinu 1995. Á undan því var hann á
tilraunastofu. Umsjónarmaður
hans var Martine Colette. Henni tókst að láta hann
hætta að reykja en hann var alltaf jafnsólginn í sæl-
gæti. Dauði hans er mikið áfall fyrir svæðið enda var
Booie helsta aðdráttarafl þess.
Booie er dauður
Hún er nýbúin að klippa á sig topp.