SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Qupperneq 40
40 18. desember 2011
Ég hef opinberlega gefist upp fyrir leti og ofáti.
Sófinn góði og smákökur hafa náð yfirhöndinni.
Jólasukkið mikla
Um leið og aðventan fyllir miggleði og spenningi fyrir jólunumfyllist ég alveg óstjórnlegri leti.Ég næ kannski að þrífa eina
gluggakistu og ryksuga hálfa stofuna. Svo
bara get ég ekki meira. Nú veit ég að sem
barnlaus manneskja hef ég ekki „rétt“ á því
að kvarta. Ég get jú bara fleygt mér í sófann
og lagt mig þegar ég vil. Sem ég og geri æ
oftar þessa dagana. Því um
leið og jólaljósin lýsa um
huga og sál virðist lík-
aminn bara vilja lyppast
niður og sofa.
Ræktin líka. Hún er ein-
hvers staðar aftarlega
á forgangslistanum.
Ég veit ég á að hreyfa
mig núna þar sem ég
borða jafnmikið og
verðandi tvíburamóðir
en nei. Ég bara nenni því ekki. Sorry allt
duglega fólk sem rífur sig upp í ræktina í
myrkrinu klukkan sjö. Gæti samt hugs-
anlega komist í heimsmetabækur fyrir að
vera fyrsta konan til að ljúka spinningtíma
sofandi!
Ég veit alveg að það er miklu hollara fyrir
hjartað, æðarnar og allan pakkann að hreyfa
sig. Líka að mataræðið skiptir einna mestu
máli upp á það að ætla sér að passa í einhver
föt eftir jólin. En þetta leiðinda vesen er bara
svo fjarri mér á þessum árstíma. Jú, jú það er
fínt að fara út að ganga og synda. Liðka sig
aðeins og líka njóta þess að fara í heita pott-
inn. En mér finnst bara alveg nóg að vera
dugleg hina 11 mánuðina á árinu. Nú vil ég
bara fá að vera í minni jólafitun í friði. Já og
hana nú. Einhverjir eru nú sjálfsagt farnir að
svitna við þennan lestur. Er konan alveg óð?
Kannski fæ bara ég sent boð í detox og frítt á
átaksnámskeið. Hvað um það. Ég held bara
áfram að boða minn nautnaboðskap.
Maður lifir bara einu sinni. Það er á
hreinu. Nema maður trúi á endurholdgun,
þá fer maður í nokkra hringi. Ég nenni því
ekki að sjá eftir öllum smákökunum, mince
pies, jólaöli og öðru gúmmelaði sem ég hefði
getað borðað hérna í denn. Eða verða amma
sem bakar bara
jólahrökkbrauð
ofan í barna-
börnin. Á meðan
afi borðar smá-
kökur í laumi úti
í bílskúr.
Að lokum
Dagur xxxx í
aðventu:
Sígarettur: 0
Áfengi: Slatti,
aðallega rauðvín og bjór.
Matur: Smákökur, jólaöl, laufabrauð,
jólabrauð, kakó, jólaboð með gröfnum
nautavöðva, reyktri önd, kalkún, hamborg-
arhrygg, kartöflusalati og mörgu öðru góð-
gæti á borðum.
Hreyfing: Sundferð og hlaup með jóla-
gjafapoka.
Ó ég elska aðventu og jól!
Lífið og
tilveran
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
’
Ræktin líka. Hún er
einhvers staðar aft-
arlega á forgangslist-
anum. Ég veit ég á að hreyfa
mig núna þar sem ég borða
jafnmikið og verðandi tví-
buramóðir en nei.
Lífsstíll
Jæja, þá er bara
vika til jóla og
tími til kominn
að fara yfir
tékklistann.
Ertu ekki örugg-
lega búinn að
þessu öllu sam-
an? Ef ekki þá
hefurðu viku í viðbót til þess.
1. Kaupa jólagjafir og jafnvel
pakka þeim inn ef þú ætlar virki-
lega að hafa tímann fyrir þér.
2. Fara á skemmtilega jóla-
tónleika með fallegri jólatónlist.
Sitja og hlusta og leyfa sér að
slappa af í dá-
litla stund.
3. Redda ser-
íu í gluggann og
veiða slatta af
jólaskrauti upp
úr geymslunni.
4. Kaupa hell-
ing af kertum,
mundu eftir ilm-
kertum með góðri jólalykt.
5. Fara í jólaklippinguna og
jafnvel jólanuddið sem þú ákvaðst
að gefa sjálfri/sjálfum þér í jóla-
gjöf.
6. Horfa á
glás af
skemmtilegum
jólamyndum,
drekka jólaöl og
syngja jólalög í
sturtunni.
7. Senda jóla-
kort til fjöl-
skyldu og vina
með fallegum jólakveðjum.
8. Fara í gott jólapartí. Drekka
aðeins of mikið af jólaglöggi.
Spila, hlæja og skemmta sér vel.
9. Ákveða jólamatinn og byrja
að viða að sér hráefni til að ekk-
ert klikki á aðfangadagskvöld.
10. Brosa og hlæja – það eru að
koma jól!
Jólakistan
Rauður er almennt talinn hinn eini, sanni
jólalitur. Það er skemmtilegt að klæða sig í
það minnsta í eitthvað rautt á að-
fangadagskvöld og yfir jólin. Strákarnir
geta smellt á sig rauðu bindi og stelp-
urnar farið í rauðar sokkabuxur. Rauðar
skyrtur eru líka hugmynd fyrir karl-
kynið og fallega rautt skart eða klút-
ur getur verið fallegt við svarta
sparikjólinn. Enda er sá litur jú
einna vinsælastur í sparifötum hér
á Fróni og því um að gera að lífga
dálítið upp á hann með rauðu yfir
hátíðarnar. Rautt naglalakk er
líka tilvalið.
Leikkonan Gillian Anderson glæsi-
leg í kjól sem væri flottur um jólin.
Reuters
Rautt, rautt, rautt
Tónleikar, út að borða, jólaglögg,
jólaglögg og aðeins meira jóla-
glögg. Ég trúi eiginlega ekki að
ég sé ekki búin að drekka neitt
jólaglögg á aðventunni. Ég
nefnilega elska jólaglögg.
Það er eitthvað svo kósí og
ja segjum bara menning-
arlegt við að fá sér glögg í fal-
lega krús. Nema maður
drekki yfir sig af því eins
og Íslendingar áttu til á
fyrstu glöggárunum.
Það er ekkert menning-
arlegt við það að gubba
jólaglöggi í leigubílinn
og yfir sig allan. Nei
jólaglöggsdrykkja skal
stunduð í hófi í góðra
vina hópi. Best er að hafa
með piparkökur og eftir að
hafa búið í Englandi finnst mér
heldur ekki mega vanta mince pies. Þau
fást í „bresku nýlenduvöruversluninni“ Salt
og pipar. Það þykir mér afar gott því annars er
ég ekki viss um að jólin kæmu barasta.
Það er ekkert flókið að búa til jólaglögg en
mikilvægt er að gleyma ekki möndluflög-
unum. Þessa helgina ætla ég að búa til mitt
heimatilbúna jólaglögg og bjóða góðum
hópi fólks heim. Það verður spilað og
kjaftað og dreypt á jólaglöggi. Er það jú
ekki einmitt menningarlega orðið yfir
slíka iðju?
Lögg af glögg