SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Blaðsíða 41
18. desember 2011 41
LÁRÉTT
1. Hólinn með skaða kaldlyndar. (9)
7. Sú slá fær 50 frá hráefni. (5)
8. Dulin nær að fá tilfelllin (9)
9. Gast egypskt tákn og ryk fundið í ílátum. (9)
10. Stoðvefur í bjálka hjá réttri. (9)
11. Hverfi sorg með hafurtaski. (8)
14. Samning sá þanin án odds út af beiðninni.
(12)
17. Mannréttindafrömuður tekur lyf aftur úr hers-
ingu. (7)
18. Sært innra með sér fann í brotum trúað. (8)
20. Ómi latneskur hlutur aftur við nýja í ritúali eða
svo er sagt. (9)
22. Ógæfan! Taska purpuralituð inniheldur ill-
mennsku. (11)
23. Máttugustu missa smá fyrir tvö X. (7)
24. Slyngur fær ennþá yl í einfeldni sinni frá gáfu-
manni. (10)
25. Skíta heimspeking út með tónlist. (7)
26. Gef menntamanni einum að borða hjá þeirri
sem er ekki yngst. (5)
27. Við vatn má flækjast um taðvellina (10)
28. Heilagt seyði gert úr tré fyrir einn óþekktan
fleininn. (12)
LÓÐRÉTT
1. Setja stafi á ílát með tungu. (9)
2. Ekki vel hreyft og torsótt. (7)
3. Óbrotin stundi kennslu um sjúkdóm. (9)
4. Giftan finn ruglaðan í skírninni. (10)
5. Rak þetta með flugeldi að sögn (7)
6. Úr þremur áttum kemur lína. (5)
7. Sá sem er einhvern veginn mausaður sér er
líka sérsniðinn. (11)
12. Sú með kjaft úr gulli er að sögn að skapa pen-
inga. (8)
13. Hvetur tóma með mat. (10)
15. Í kringum hástétt drukkin trúi embættismanni.
(12)
16. Bara ungi lendir í eins. (8)
17. Firmað fyrir sjónvarpið. (10)
19. Geirvarta hunds í hári. (10)
21. Pítsa og guð án rólegast snúa við. (8)
24. Það er sens í því að fá krónu með því að renna
til. (6)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn í umslagi merktu:
Krossgáta Morgunblaðsins, Hádeg-
ismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur
til að skila úrlausn krossgátu 18.
desember rennur út á hádegi 23.
desember. Nafn vinningshafans
birtist í blaðinu 25. desember. Heppinn þátttakandi
hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 11.
desember er Sigrún Sighvatsdóttur, Fífuseli 15,
Reykjavík. Hún hlýtur að launum bókina Af heilum hug,
þar sem Björg Árnadóttir ræðir við hjónin Jónu Hrönn
Bolladóttur og Bjarna Karlsson. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Tigran Petrosjan hafði þessi orð
um stöðu heimsmeistarans í
skák á hverjum tíma. Þessi skil-
greining hentaði honum ágæt-
lega; þegar hann hélt titlinum
frá 1963-’69 vann hann sjaldan
þau mót sem hann tók þátt í
enda lagði hann alltaf aðal-
áherslu á að tapa ekki og gaf því
frá sér alltof marga hálfa vinn-
inga, eins og Bent Larsen orðaði
það.
Staða heimsmeistarans,
Anands, hefur verið til athug-
unar eftir tvö stórmót, minn-
ingarmótið um Tal á dögunum
og London chess classic sem
lauk á mánudaginn. Í þessum
tveimur mótum vann Anand
eina skák, gerði 15 jafntefli og
tapaði einni. Hann gat enga
skýringu gefið á dauflegri
frammistöðu sinni en stutt er í
einvígi hans við Boris Gelfand
og hefðu ýmsir talið að hægt
væri að finna verðugri mót-
stöðumenn.
„Við erum allir í ræsinu, en
sumir okkar eru að horfa á
stjörnurnar,“ sagði Oscar
Wilde. Anand kom skemmtilega
á óvart með þátttöku sinni í
„stjörnuþokuspjalli“, hliðar-
atburði á London chess class-
ic-mótinu sem enski stórmeist-
arinn og stærfræðingurinn John
Nunn stóð fyrir. Þar sýndu þeir
magnaðar myndir sem þeir hafa
tekið í gegnum stjörnukíki.
Kannski hefur undirbúningur
þess verkefnis komið niður á
frammistöðu hans við skák-
borðið en lokaniðurstaða móts-
ins, þar sem þriggja stiga reglan
var í gildi, varð þessi:
1. Kramnik 16 stig. 2. Nakam-
ura 15 stig. 3. Carlsen 14 stig.
4. Luke McShane 13 stig. 5.-6.
Anand og Aronjan 9 stig. 7.
Short 6 stig. 8. Howell 4 stig. 9.
Adams 3 stig.
Slök frammistaða ensku stór-
meistaranna vakti mikla athygli
en þrír neðstu menn fengu jafn-
marga vinninga samanlagt og
sigurvegarinn Kramnik sem
vann alla Englendinga. Þótt
Magnús Carlsen hafi mátt gera
sér 3. sætið að góðu treysti hann
stöðu sína á toppnum og lagði
Nakamura að velli. Í skákinni
sem hér fer á eftir neitaði Na-
kamura að leggjast í vörn þegar
þess þurfti:
Magnús Carlsen – Hikaru Na-
kamura
Ítalskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6
4. d3 Bc5 5. c3 d6 6. Bb3 a6 7.
Rbd2 Ba7 8. Rf1 h6 9. Rg3 0-0
10. 0-0 Be6 11. h3 Dd7 12. Be3
Re7 13. Rh4 Rg6
Eftir 13. … Bxe3 14. fxe3 hefur
hvítur sóknarfæri eftir f-línunni
og trausta stöðu á f5-reitnum.
Það breytist þó ekki þótt svartur
stofni nú til uppskipta.
14. Rhf5 Re7 15. Rxe7 Dxe7 16.
Bxa7 Hxa7 17. f4 c5 18. Bc2 b5 19.
Dd2 Hb7 20. a3 a5 21. Hf2 b4 22.
axb4 axb4 23. Haf1
Sjaldan er slæmt að tvöfalda
hrókana eftir opnum eða hálf-
opnum línum. Hvítur hótar nú
24. fxe5 dxe5 25. Hxf6! gxf6 26.
Rh5 o.s.frv.
23. … bxc3 24. bxc3 exf4 25.
Hxf4 Rh7 26. d4 cxd4 27. cxd4
Dg5 28. Kh2 Rf6 29. Bd1 Hfb8?
Svartur mátti ekki leyfa fórn-
ina á f6. Eftir 29. … Rh7 er stað-
an í jafnvægi.
30. h4 Dg6
- Sjá stöðumynd -
31. Hxf6!
Þessi skiptamunarfórn blasir
við. Eftirfylgnin er lærdómsrík,
Magnús ræðst hvergi beint að
andstæðingnum heldur bætir
stöðu hægt og bítandi.
31. … gxf6 32. Df4!
Betra en 31. Rh5 sem má svara
með 31. … f5.
32. … Hb2?
Svartur varð að verja d6-
peðið með 32. … Hd8.
33. Bh5! Dg7 34. Bf3 Ha8?
Enn var betra að verjast með
34. … Hd8.
35. d5 Bc8 36. Rh5 Df8 37.
Rxf6+ Kh8 38. Hc1! Kg7 39. e5
dxe5 40. Rh5 Kh7 41. Be4+
Eftir 41. … Kh8 kemur 42.
Dxe5+ og hrókurinn á b2 fellur.
Svartur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Fremstur meðal jafningja
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta