SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Page 45
18. desember 2011 45
Verið velkomin
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
ÞÁ OG NÚ
22.9.-31.12. 2011
SAFNBÚÐ
JÓLAGJÖF LISTUNNANDANS.
Verið velkomin!
SÚPUBARINN
2. hæð. Góðar súpur, brauð og salat á boðstólum.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600,
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
Allir velkomnir! www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands
frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar
um þróun íslenskrar myndlistar.
„Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“
Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar,
undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýn-
ingin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri.
Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna.
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Jólin koma!
12.-24. desember, daglega kl. 11: Heimsókn jólasveinanna
Laugardaginn 17. desember kl. 13:
The Icelandic Yule - an illustrated presentation in English
Terry Gunnell þjóðfræðingur kynnir íslenska jólasiði á ensku
Jólasýningin Sérkenni sveinanna. Gömul jólatré og jólakort
Jólaratleikurinn Hvar er jólakötturinn?
Jólavörur í safnbúð.
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið þriðjudaga-sunnudaga kl. 11-17. Lokað á mánudögum
29. október–30. desember 2011
Samræmi
Hildur Bjarnadóttir og Guðjón
Ketilsson
Hamskipti
Hildur Yeoman og Saga
Sigurðardóttir
Opið 12-17, fim. 12-21,
lokað þri.
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
- Aðgangur ókeypis
Slorpungar og
strýpuþörungar
Lifandi slorpungar og
steingervingar eru til sýnis.
Opið mán.-fim. kl. 10-19,
fös. 11-17 og lau. 13-17.
Ókeypis aðgangur.
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Hamraborg 6a
www.natkop.is
Af fingrum fram
11. nóv. - 12. jan. 2012
Veggteppi og landslagsmyndir
þæfðar í ull eftir Snjólaugu
Guðmundsdóttur vefnaðarkennara.
Opið: mán. - fös. kl 13 - 18
lau. kl. 11 - 14
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.gallerigersemi.is
Sími 552 6060
HLUTIRNIR OKKAR
(9.6.2011 – 4.3.2012)
HVÍT JÓL
(28.10.2011 – 15.1.2012)
KÆRLEIKSKÚLUR
OG JÓLAÓRÓAR
(6.12.2011-6.1.2012)
Opið alla daga nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í anddyri.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Borgarnesi
Eitt af því sem læristsnemma í bókmennta-blaðamennsku er aðopna helst ekki bók
sem höfundur kemur með fyrr
en hann er farinn. Hættan er
nefnilega sú að maður rekist á
villu á fyrstu síðunni sem maður
lítur og þá fer spjallið út um
þúfur, ekki síst ef maður kjánast
til að segja viðkomandi frá vill-
unni. Þetta er vissulega sagt í
hálfkæringi, en hefur þó komið
fyrir oftar en einu sinni og einu
sinni er of oft.
Nú þegar sér fyrir endann á
jólabókaflóðinu gefst lokst tími
til að lesa þær bækur sem ég hef
látið bíða á meðan ég gæddi mér
á íslensk-
um kræs-
ingum.
Ein af
þeim
bókum er
ný bók
japanska
rithöf-
undarins
Harukis
Mura-
kamis,
1Q84. Þegar ég opnaði bókina til
að lesa hana rakst ég nefnilega á
villu á fyrstu síðu, og ekki einu
sinni heldur tvisvar.
Bókin hefst þar sem söguhetj-
an, Aomame, er stödd í leigubíl
og Sinfóníetta Leoš Janáceks
hljómar í útvarpi bifreiðarinnar.
Fyrst þegar nafn tónskáldsins
birtist er það rétt stafsett upp á
tékknesku og einnig þegar það
birtist öðru sinni, en síðan birt-
ist það tvisvar á síðunni með
rangri stafsetningu. Málið er að
c-ið í nafni tónskáldsins er með
því sem lýsa má sem öfugu v of-
an á sér að tékkneskum rithætti.
Í prentun á bókinni hafði þetta
hinsvegar misfarist og „hatt-
urinn“ var á undan c-inu, en
ekki ofan á því.
Víst er þetta smávægileg villa
og svo smávægileg að það er
eiginlega ekki orð á því hafandi,
eða hvað? Því er öðru nær, þessi
villa fékk svo á mig að ég
strandaði í lestrinum komst
ekki lengra en niður í miðja
fyrstu síðu og eftir það beið
bókin uppi í hillu og ég gaf
henni illt auga öðru hvoru – ef
tvær villur eru á fyrstu síðunni,
hverju gat ég þá búist við á hin-
um 924?
Harvill Secker-útgáfan var
svo með sömu villurnar, en það
varð mér til bjargar að búið var
að leiðrétta villurnar í annarri
prentun bókarinnar.
Vand-
ræða-
villur
’
Ef tvær
villur
eru á
fyrstu síð-
unni, hverju
get ég þá bú-
ist við á hin-
um 924?
Orðanna
hljóðan
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
H
ugsaðu þér tölu
mun vera fyrsta bók
höfundarins, Johns
Verdons. Hér er á
ferð slungin glæpasaga. Lög-
regluforingi, sem sestur er í
helgan stein, heyrir frá göml-
um skólabróður, sem borist
hafa hótunarbréf. Skólabróð-
irinn er fullur skelfingar yfir
því að bréfritari, sem skrifar í
bundnu máli, virðist geta lesið
hugsanir hans. Hann er beð-
inn um að hugsa sér tölu frá
einum upp í þúsund og þegar
hann opnar umslag í umslag-
inu kemur í ljós að þar er tal-
an, sem hann hugsaði sér.
Dave Gurney nefnist lög-
regluforinginn og hefur getið
sér orð fyrir að hafa hendur í
hári hrottalegra raðmorðingja.
Höfundur þreytist ekki á að
láta dásama hæfni Gurneys
með einum eða öðrum hætti,
en þessi nákvæma og hugvit-
sama söguhetja er þó ekki laus
við þráhyggju og vandamál.
Og þykir lofið reyndar óþægi-
legt.
Í þessu máli er hann þó rek-
inn á gat. Maðurinn á bak við
hótanirnar skilur eftir sig
ýmsar vísbendingar í blóði
drifinni slóð og ráðgáturnar
hlaðast upp án þess að botn
fáist í málið og óhugnaðurinn
vex.
Verdon tekst vel til að
byggja upp spennu og sagan er
full af óvæntum vendingum og
uppákomum. Kona Gurneys,
Madeleine, leikur stórt hlut-
verk. Hún hefur fengið sig
fullsadda á lögreglustörfum
eiginmannsins og líst ekki á
blikuna þegar hann dregst inn
í þetta mál, en á engu að síður
með innsæi sínu þátt í að leysa
málið.
Inn í söguna blandast síðan
óhæfir lögregluforingjar og
hrokafullir, metnaðarfullir
saksóknarar og ráðvilltir lög-
regluþjónar. Sagan er út-
hugsuð, en verður þó aldrei
þunglamaleg, og þýðing
Nönnu B. Þórsdóttur er
hnökralaus þótt hún lendi í
vandræðum með orðaleiki á
nokkrum stöðum og verði að
grípa til neðanmálsgreina.
Gurney er áhugaverður per-
sónuleiki og hefur Verdon
þegar skrifað um hann annan
reyfara.
Atburðarásin í bók Verdons
stigmagnast jafnt og þétt.
Bókin höfðar jafnt til þeirra,
sem njóta spennu, sem aðdá-
enda ráðgáta. Sú tilfinning
vaknaði á köflum að höfund-
urinn hefði gaman af að leika
sér að lesandanum og leiða
hann á villigötur. Hugsaðu
þér tölu er tilvalin fyrir þá,
sem eru orðnir langþreyttir á
fyrirsjáanlegum reyfurum.
Lesandinn afvegaleiddur
Bækur
Hugsaðu þér tölu bbbmn
Eftir John Verdon. Útgefandi Vaka
Helgafell, 2011.
John Verdon hefur gaman af að
leika lesandann á villigötur.
Karl Blöndal