Morgunblaðið - 07.02.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2012
Ráðherrar ríkisstjórnarinnarhafa varið hátt bensínverð
með oddi og egg allt frá fyrstu
bensínskattahækkunum stjórn-
arinnar.
Ýmsum ráðum erbeitt í þessum
efnum og það sem
oftast hefur verið
notað er að benda á
að bensínskattar
sem hlutfall af bens-
ínverði séu ekki
eins háir nú og þeir
hafi verið þegar verðið var lægra.
Þetta er út af fyrir sig rétt, enskiptir bara engu máli.
Það sem máli skiptir fyrir neyt-endur er hversu margar krón-
ur þeir greiða fyrir lítrann og þar
með hversu margar krónur af
hverjum lítra fara í ríkissjóð.
Þær hafa aldrei verið fleiri en núog eru að sliga almenning.
Þegar innkaupaverð á bensínisnarhækkar og kaupmáttur al-
mennings rýrnar ætti ríkið að
mæta því með lægri álagningu. Rík-
ið þarf ekki að taka 120 krónur af
lítranum nú þegar það þurfti aðeins
60 krónur áður.
Til að styðja við þann áróður rík-isstjórnarinnar að í raun séu
bensínskattar ekki hærri en áður
hefur Sigmundur Ernir nú verið
fenginn í það að leggja fram fyrir-
spurn til fjármálaráðherra um hlut-
fall skatta af útsöluverði eldsneytis.
Ráðherrar seilast langt til aðverja skattastefnu ríkisstjórn-
arinnar, en hvers vegna lætur
Sigmundur Ernir hafa sig út í
þennan blekkingarleik?
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
Bensínblekkingin
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 6.2., kl. 18.00
Reykjavík 6 léttskýjað
Bolungarvík 8 rigning
Akureyri 10 skýjað
Kirkjubæjarkl. 6 alskýjað
Vestmannaeyjar 6 skýjað
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló -3 snjókoma
Kaupmannahöfn -7 léttskýjað
Stokkhólmur -7 heiðskírt
Helsinki -6 léttskýjað
Lúxemborg -7 heiðskírt
Brussel -2 heiðskírt
Dublin 7 skýjað
Glasgow 2 þoka
London 2 skýjað
París -1 skýjað
Amsterdam -3 heiðskírt
Hamborg -10 heiðskírt
Berlín -11 heiðskírt
Vín -7 alskýjað
Moskva -13 heiðskírt
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 13 léttskýjað
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 2 léttskýjað
Aþena 13 skúrir
Winnipeg -3 alskýjað
Montreal 2 alskýjað
New York 5 heiðskírt
Chicago -1 alskýjað
Orlando 22 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:51 17:34
ÍSAFJÖRÐUR 10:10 17:25
SIGLUFJÖRÐUR 9:53 17:07
DJÚPIVOGUR 9:24 16:59
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Eins og hún orðaði það sjálf þá
elskar hún Ísland. Hún var að
skoða náttúruna og hefur komið
hingað nokkrum sinnum áður svo
hún kannaðist við aðstæður,“ segir
Þór Bínó Friðriksson hjá Björg-
unarfélagi Akraness.
Hann er einn af tíu björg-
unarsveitarmönnum sem sóttu er-
lenda konu við fossinn Glym í
Hvalfirði í fyrrinótt. Þar var konan
á ferðalagi og hafði slegið upp
tjaldi sem hún hugðist sofa í um
nóttina.
Um miðnætti fór að hvessa mik-
ið og svo fór að tjaldið fauk af
henni og búnaðurinn með út í veð-
ur og vind. Konan óskaði því eftir
aðstoð í gegnum Neyðarlínuna og
fóru björgunarsveitarmenn frá
Akranesi til aðstoðar. Þeir voru
fljótir að finna hana og óku henni í
bíl sem hún var með á bílastæðinu
fyrir neðan Glym. Konan ók þaðan
sjálf til Reykjavíkur. Þór segir að
konan sé búin að vera á Íslandi í
einhvern tíma, hún haldi til í
Reykjavík og fari þaðan í styttri
ferðir um landið. Þá segir hann að
konunni hafi verið brugðið þegar
tjaldið fauk í burtu en hún hafi
orðið rólegri eftir að hún vissi að
þeir væru á leiðinni og hafi bara
verið í góðum gír þegar þeir fundu
hana.
Lítið af tjöldum
yfir háveturinn
Það er ekki mikið um það að
ferðamenn tjaldi á Íslandi yfir
vetrartímann þó stundum berist
fréttir af einum og einum. Markús
Einarsson, framkvæmdastjóri
Bandalags íslenskra farfugla sem
rekur tjaldsvæðið í Laugardalnum,
segir að þar sjáist ekki margir er-
lendir ferðamenn í tjöldum yfir
vetrartímann. „Það er góður reyt-
ingur af tjöldum fram í miðjan
október og jafnvel aðeins lengur
en úr því fer þeim fækkandi. Núna
hef ég ekki séð tjald í Laug-
ardalnum síðan um miðjan nóv-
ember. Það er algjör undantekning
ef fólk er yfir háveturinn. Svo fer
að koma einn og einn í mars og
apríl,“ segir Markús.
Einar Torfi Finnsson hjá Ís-
lenskum fjallaleiðsögumönnum
segir menn þar á bæ ekki verða
mikið vara við ferðamenn sem eru
einir á ferð með tjald yfir vet-
urinn. „Við vitum stundum af leið-
öngrum en að fólk sé eitt á ferð er
afar sjaldgæft.“
Einar segir að 95% þeirra sem
fari í vetrarferðir hjá Íslenskum
fjallaleiðsögumönnum séu útlend-
ingar og þá séu léttar dagsferðir
frá Reykjavík vinsælastar, eft-
irspurn eftir öfgafullum og erfiðum
vetrarferðum sé ekki mikil og hafi
ekki vaxið neitt á undanförnum ár-
um.
Mjög sjaldgæft að ferða-
menn tjaldi yfir háveturinn
Tjald fauk ofan af erlendum ferðamanni í fyrrinótt Var að skoða náttúruna
í Hvalfirðinum Nánast ekkert tjaldað í Laugardalnum frá október fram í mars
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Óvæntur gestur Þessi ferðalangur tjaldaði á Blönduósi 2. desember síðast-
liðinn þrátt fyrir snjó og kulda, en fólk tjaldar annars sjaldan hér á veturna.
Erlendir gestir í janúar hafa aldrei verið fleiri en í ár sam-
kvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu, þeim fjölgaði um
17,5% frá janúar í fyrra. Um 26 þúsund erlendir gestir fóru frá
landinu í nýliðnum janúar og er um að ræða 3.900 fleiri brott-
farir en 2011. Flestir þeirra komu frá Bretlandi, eða 26,6%,
Bandaríkjamenn voru 15%. Dvalarlengd erlendra gesta er að
jafnaði í kringum tíu nætur að sumri og fimm að vetri. Að
sögn Oddnýjar Þóru Óladóttur, rannsóknastjóra Ferða-
málastofu, er stærsti hluti dvalarinnar yfir vetrartímann
bundinn við höfuðborgarsvæðið. Oddný segir ferðamönnum
utan háannatíma hafa fjölgað mikið og átta af hverjum tíu
komi hingað á eigin vegum jafnt sumar sem vetur.
Flestir á eigin vegum
ERLENDIR FERÐAMENN
Gistinætur eftir árstíðum
1.000.000
900.000
800.000
700.000
600.000
500.000
400.000
300.000
200.000
100.000
0
2008 2009 2010 2008 2009 2010
Höfuðborgarsvæðið Landsbyggðin
Vetur Vor/haust Sumar