Morgunblaðið - 07.02.2012, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.02.2012, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2012 ✝ Sjöfn Erlings-dóttir fæddist í Sandgerði 15. sept- ember 1949. Hún lést á heimleið austur á Vopna- fjörð 25. janúar sl. Foreldrar henn- ar voru hjónin Er- lingur Jónsson, vélstjóri, f. 3.4. 1908, d. 24.8. 1957, og Helga Eyþórs- dóttir húsmóðir, f. 28.1. 1912, d. 3.12. 1993. Sjöfn var yngsta barn foreldra sinna. Hin eru í aldursröð: Jóna Margrét f. 1930, Ólafía Þórey f. 1932, Jón Grétar f. 1933, d. 1996, Einar Haukur, f. 1934, d. 1935, Stef- anía Lórý, f. 1935, d. 2007, Ingibjörg, f. 1938, og fóst- ursystir Oddný S. Gestsdóttir, f. 1940. Sjöfn giftist Birni H. Jakobssyni rafvirkja, f. 28.7. 1946. Foreldrar hans voru Jak- ob A. Sigurðsson kaupmaður Keflavík og Margrét Kristjáns- dóttir húsmóðir. Sjöfn og Björn bjuggu í Keflavík. Þau skildu árið 1988. Börn þeirra eru: 1) Erlingur, f. 29.3. 1966, d. 30.5. 1988. 2) Helgi, f. 29.3. 1996, bú- settur í Keflavík. Helgi kvænt- ist Írisi Harðardóttur. Börn þeirra eru: a) Er- lingur Björn b) Þorsteinn c) Tómas Númi. Þau skildu. Dóttir Helga með Hrund Þorvalds- dóttur er Anný Dögg. Sambýlis- maður hennar er Þröstur J. Sveins- son. Barn þeirra er Alexander Breki. Helgi er i sambúð með Lindu Jóhannsdóttur. 3) Grétar Jakob, f. 11.9. 1969. Sambýliskona Ellen S. Erlings- dóttir, búsett á Akureyri. 4) Birna Margrét, f. 4.9. 1978. Eiginmaður Agnar Karl Árna- son. Börn a) Daníel Freyr b) Helga María c) Árni Rúnar, bú- sett á Vopnafirði. 5) Einar Haukur f. 2.1. 1985. Sambýlis- kona Ruth Kjærnested Jó- hannsdóttir, búsett í Garði. Sjöfn ólst upp í Sandgerði og gekk þar í barna- og unglinga- skóla. Eftir nám við Hús- mæðraskólann að Hallormsstað vann Sjöfn margvísleg störf ásamt heimilisstörfum. Útför Sjafnar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, þriðju- daginn 7. febrúar 2012, og hefst athöfnin kl. 13. Þá er hún fallin frá, Sjöbba systir, þessi elska eins og ég kall- aði hana alltaf. Við lát fóstursyst- ur minnar Sjafnar vil ég minnast hennar með nokkrum orðum. Vorið 1952, þá ellefu ára, kom ég inn á heimili foreldra hennar í vist eins og það var kallað, til að vera barnfóstra Sjafnar það sum- ar. Örlög og aðstæður réðu því að ég ílentist á heimilinu og varð ein af fjölskyldunni og er það enn og alltaf kölluð Odda systir af þeim öllum. Sjöbba var afar fjörmikil og þurfti alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Fljótt lærðist mér það sem barnfóstru að best væri að búa okkur út með nesti og fara í gönguferðir, jafnvel upp fyrir bæinn þar sem hægt var hoppa og skoppa úti í náttúrunni og fá útrás fyrir alla orkuna. Sjöbba mín var bæði glaðlynd og hlát- urmild og full af orku, en hún átti líka sínar erfiðu stundir. Hún var tæplega átta ára gömul þegar faðir hennar lést og var missir hennar mikill, ekki síst vegna þess að hún var yngst og þá þurfti móðir hennar að fara út að vinna sem ekki var algengt í þá daga. Sjöbba var dugnaðarforkur. Hún var mjög ung þegar hún eignaðist sín fyrstu börn sem voru tvíburar. Hún stundaði ýmis störf og oft erfiðisvinnu með heimilisstörfunum. Það var mikil sorg í fjölskyldunni þegar Er- lingur, annar tvíburinn hennar, lét lífið í bílslysi árið 1988. Miss- irinn var mikill og held ég að hún hafi aldrei komist yfir þá sorg. Sjöfn fluttist til Vopnafjarðar ár- ið 1993 og bjó þar í þrjú ár. Þá fluttist hún aftur til Keflavíkur, en árið 2003 fluttist hún aftur austur og bjó þar til dauðadags. Það var öllum mikið áfall þeg- ar hún tilkynnti okkur nú í sumar að hún hefði greinst með krabba- mein. Fljótlega kom í ljós að meinið var mjög alvarlegt og bar- áttan yrði erfið. Hún var ákveðin í að gefast ekki upp, það var ekki hennar stíll. Þegar hún kom suð- ur til meðferðar kom það aftur í minn hlut að fá að fylgja henni eftir í læknaviðtölin og meðferð- irnar, ásamt Hannesi mági okkar einkabílstjóranum sínum eins og hún kallaði hann, en hann hljóp undir bagga með okkur þegar á þurfti að halda. Mér hefur verið bæði ljúft og skylt að létta undir með henni nú síðustu mánuði, sem verið hefur erfiður tími fyrir alla. Sjöbba bjó á Sjúkrahótelinu þann tíma sem hún var til með- ferðar hér fyrir sunnan. Margar ljúfar og góðar stundir höfum við átt saman, hist nánast á hverjum degi, hlegið, grátið og gert að gamni okkar ásamt því að rifja upp liðna tíma. Dýrmæt er minn- ingin um stundirnar sem við átt- um hér heima með börnunum hennar og barnabörnum fyrir jól- in. Þá var glatt á hjalla. Það var henni líka mikilvægt að komast austur fyrir jól og fá þar að njóta hátíðanna með Birnu og barna- börnunum sínum þar. Ég minnist Sjöbbu minnar með miklum söknuði, hún sofnaði svefninum langa á leið sinni fljúgandi til Vopnafjarðar miðvikudaginn 25. janúar sl. Elsku Helgi, Grétar Jakob, Birna Margrét, Einar Haukur og allir aðstandendur, innilegar samúðarkveðjur. Oddný S. Gestsdóttir. Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki. Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður Ísraels. Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur. Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu. (121. Davíðssálmur) Á þessari kveðjustund þegar við minnumst Sjafnar, þá þökk- um við allar góðar stundir með henni og biðjum að Drottinn huggi og blessi börnin hennar og fjölskyldur þeirra. Jóhanna (Hanna), Ingibjörg (Imba), Ólafía (Lóa) og Margrét (Magga). Elsku Sjöfn, komið er að kveðjustund. Verkefni þínu er lokið hér í heimi og þú heldur inn á nýja braut þar sem eilíf birta skín. Hver hefði trúað því að við værum að hittast í síðasta sinn þegar við Gaui komum að kveðja þig á sjúkrahótelinu á þriðju- dagskvöldinu. Daginn eftir var ferð þinni heitið aftur heim til Vopnafjarðar en þú varst búin að vera hérna í þrjár vikur í geisla- og lyfjameðferð. Þú varst þreytt en ánægð með að vera á leiðinni heim. Þú hlakkaðir mikið til að hitta fjölskyldu þína sem þú saknaðir. Við spjölluðum góða stund og kvöddum þig svo með þeim orðum að þú myndir hringja þegar þú værir komin á leiðarenda. En það símtal kom aldrei. Það eru liðin meira en 40 ár síðan við kynntumst. Minningar- brotin eru mörg frá þessum tíma, bæði í gleði og í sorg. Þegar ég horfi til baka finnst mér samvera okkar hér í heimi hafa verið eins og augnablik. Minningarnar eru dagbókin sem við öll berum með okkur frá vöggu til grafar. Það var ánægjuleg samverustundin sem þú áttir með fjölskyldu okk- ar í desember sl. þegar þú komst í mat. Þú ljómaðir öll er þú sýnd- ir okkur myndir af börnum og barnabörnum þínum. Við biðjum góðan Guð að blessa minningu Sjafnar og styrkja Helga, Grétar, Birnu Margréti, Einar Hauk og fjöl- skyldur þeirra á þessum erfiðu tímum. Hervör og Guðjón. Sjöfn Erlingsdóttir Í dag kveðjum við föðurbróð- ur okkar, Þórð Gíslason. Þórður ólst upp í Litla- Lambhaga, í stórum og sam- heldnum systkinahópi. Snemma fór hann að vinna fyrir sér eins og algengt var á þeim tíma. Fyrstu starfsárin fór hann á vertíð á Skaganum sem land- maður hjá fyrirtæki Haraldar Böðvarssonar og Co. á Akra- nesi, en hjá því fyrirtæki vann Þórður alla sína starfsævi. Árið 1948 flutti Þórður ásamt þrem- ur systkinum sínum og móður í Þórður Gíslason ✝ Þórður Gísla-son fæddist að Litla-Lambhaga í Skilmannahreppi 12. ágúst 1914. Hann lést á Höfða, hjúkrunar- og dval- arheimili Akra- ness, 30. janúar 2012. Foreldrar Þórð- ar voru Þóra Sig- urðardóttir, f. 1880, d. 1956 og Gísli Gíslason, bóndi í Litla-Lambhaga, f. 1874, d. 1946. Þórður ólst upp í hópi átta systkina en þau voru: Sigurður, f. 1907, d. 1993, Margrét, f. 1909, d. 1969, Gísli, f. 1910, d. 1969, Jórunn, f. 1911, d. 1926. Þrjú systkinanna lifa bróður sinn, þau Elísa, f. 1917, Snæ- björn, f. 1918 og Kristín, f. 1921. Útför Þórðar fer fram frá Akraneskirkju í dag, 7. febrúar 2012, og hefst athöfnin kl. 14. Akurgerði 12 á Akranesi og bjó þar allt þar til hann flutti á Höfða sum- arið 2011. Þórður kvæntist aldrei en hélt heimili ásamt Snæbirni bróður sínum í Akurgerð- inu til margra ára- tuga. Þar bjuggum við líka okkar fyrstu uppvaxtarár og eru því fyrstu minningar okkar um Þórð samofnar bernsku okkar. Drjúgum hluta frítíma síns varði Þórður ásamt bræðrum sínum við uppbyggingu á Litla- Lambhaga. Tengslin við jörðina voru sterk og mikið kapp lagt á að hafa þar allt vel frá gengið og snyrtilegt. Voru þeir bræður mjög samstíga í þeim verkum öllum. Þegar jörðin var síðar seld var Lambhaganesinu hald- ið eftir. Í mörg ár hélt hann, ásamt Snæbirni bróður sínum, hross í Lambhaganesinu. Mörg- um hjálpuðu þeir með hagabeit og aðra aðstöðu fyrir hross. Mátti yfirleitt ganga að þeim bræðrum vísum þar ef komið var að tómu húsi í Akurgerðinu. Þórður ferðaðist töluvert um landið á sumrin ásamt Snæbirni bróður sínum. Oftar en ekki tóku þeir einhvern bróðurson- inn með og var þá ferðinni hag- að þannig að viðkomandi nyti sín sem best. Hugur þeirra bræðra var einatt á þá lund að fræða og gefa fylgdarmanninum kost á að sjá með eigin augum merkisstaði landið um kring. Þórður las mikið, hann var fróður og fylgdist vel með. Það var gaman að spjalla við hann og fræðast um liðna tíma og með glettni í augum sagði hann stundum frá sinni stuttu skóla- göngu sem var einn vetur í Barnaskóla Akraness og nokkr- ir mánuðir í farskóla. En í því samhengi gat hann þess alltaf hversu mikils virði það væri fyr- ir unga fólkið að mennta sig. Hann var með afbrigðum greiðvikinn og hjálpsamur. Sem dæmi um það má nefna að þeg- ar við mynduðumst við í nokkur ár að rækta kartöflur í smá- skika í Lambhaganesinu voru þeir bræður, Þórður og Snæ- björn, oftar en ekki óbeðnir, búnir að stinga upp skikann áð- ur en við komum á vorin og stundum langt komnir með að bjarga uppskerunni í hús að hausti ef spáð var næturfrosti. Þórður var hæglátur í fasi, hafði ljúfa og létta lund. Hann lét sér afar annt um sína nán- ustu og sýndi okkur bræðra- börnum sínum einstaka rækt- arsemi og umhyggju. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Við kveðjum Þórð frænda okkar með virðingu og innilegu þakklæti fyrir allt og allt. Rúnar, Þóra, Gísli og Ómar Gíslabörn. Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ✝ Okkar ástkæri BJARNI ÞÓRÐARSON tryggingastærðfræðingur, Miðvangi 7, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 2. febrúar. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 9. febrúar kl. 15.00. Kristín Guðmundsdóttir, Þórdís Bjarnadóttir, Dagur Jónsson, Hildur Bjarnadóttir, Hjörtur Hjartarson, Valgerður Bjarnadóttir, Þórhallur Ágústsson, Vera, Vaka og Vala, Úlla, Bjarni Orvar og Breki, Kristín Ísold og Ágúst Atli. ✝ Okkar ástkæri BORGAR SÍMONARSON bóndi, Goðdölum, Skagafirði, lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki þriðjudaginn 31. janúar. Útförin fer fram frá Goðdalakirkju föstudaginn 10. febrúar kl. 14.00. Rósa Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Sigþór Smári Borgarsson, Sigríður Sveinsdóttir, Monika Sóley Borgarsdóttir, Magnús Gunnar Gunnarsson, Guðmundur Símon Borgarsson, Ragnheiður Þórólfsdóttir, Borgþór Bragi Borgarsson, Guðrún Björk Baldursdóttir, Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir, Atli Brekason, Trausti Símonarson, Grétar Símonarson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, VILBORG HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR, Bogga, Hjaltabakka 12, lést á Grund dvalar- og hjúkrunarheimili miðvikudaginn 1. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 9. febrúar kl. 13.00. Einar Gunnlaugsson, Geir Gunnlaugsson, Sigríður Anna Ellerup, Már Gunnlaugsson, Dögg Árnadóttir, Andri Geirsson, Gauti Þeyr Másson, Sigrún Helga Geirsdóttir og Gísli Gunnlaugur Geirsson. ✝ Föðursystir okkar, SIGURBJÖRG JÓHANNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Sigga Hanna, frá Þingeyri, lést í Vancouver, Kanada, föstudaginn 27. janúar. Jónas Matthíasson, Gerður Matthíasdóttir, Guðmundur Jón Matthíasson. ✝ Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, INGVAR MAGNÚSSON, Nýbýlavegi 60, lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 4. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jenný Bjarnadóttir, Bjarni Ingvarsson, Fríða Björk Ingvarsdóttir, Hans Jóhannsson, Ingvar Örn Ingvarsson, Hildur Fjóla Svansdóttir, Baldur Bjarnason, Brynhildur Jenný Bjarnadóttir, Elín Hansdóttir, Úlfur Hansson, Björk Ingvarsdóttir og Ingvar Andri Ingvarsson. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BIRGIR NURMANN JÓNSSON, síðast til heimilis að Austurbrún 6, lést á Landspítala Landakoti miðvikudaginn 1. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstu- daginn 10. febrúar kl. 13.00. Ellen Birgisdóttir, Linda Björk Birgisdóttir, Íris Ösp Birgisdóttir, Kristján Rafnsson, Axel Jón Fjeldsted Birgisson, Sólveig Anna Eyjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.