Morgunblaðið - 07.02.2012, Síða 17

Morgunblaðið - 07.02.2012, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2012 Enn jókst þrýstingurinn á Grikki í gær um að samþykkja með hraði aðhaldsaðgerðir til þess að greiða fyrir aukinni fjárhagsaðstoð. Loukas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, frestaði hins vegar í gær neyðarfundi stjórn- arflokkanna til dagsins í dag. Stéttarfélög í Grikklandi hafa boðað til allsherjarverkfalls í dag og leiðtogar Þýskalands og Frakklands sögðu að Grikkir ættu skilyrðislaust að hrinda samþykktum umbótum í framkvæmd. Þegar kom fram á kvöld höfðu fimm þúsund manns safnast saman til að mótmæla í þrumu- veðri, úrhelli og roki. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, settu í gær fram nýja hugmynd um sérstakan reikn- ing, sem grískum stjórnvöldum yrði skylt að leggja inn á nægjanlegt hlutfall af tekjum sín- um til að borga erlendum lánardrottnum sín- um vexti. Reikningur þessi yrði grískum stjórnvöldum lokaður. Skuldir Grikkja eru nú 350 milljarðar evra (56.721 milljarður króna). Krafa um gagngeran niðurskurð Samningaviðræður Grikkja við Evrópusam- bandið, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og evrópska seðlabankann snúast um að Grikkir fái öðru sinni aðstoð og er rætt um 130 til 145 milljarða evra. Peningarnir þurfa að byrja að berast fyr- ir miðjan mars eigi Grikkir ekki að fara í þrot. Grísk stjórnvöld gáfu í gær til kynna að þau væru tilbúin að miðla málum. Dimitris Reppas umbótaráðherra sagði í gærkvöldi að 15 þús- und ríkisstarfsmönnum yrði sagt upp á þessu ári. Krafan er að fækkað verði um 150 þúsund manns hjá hinu opinbera fyrir 2015, auk þess sem lækka eigi laun og eftirlaun. Merkel hafði áður lagt til að Grikkjum yrði skipaður eins konar fjárhaldsmaður. Sú hug- mynd var gagnrýnd, meðal annars af því að með henni væri vegið að fullveldi Grikkja. Hinn sérstaki reikningur hefði einnig tak- mörkun fullveldis í för með sér, en þingið í Aþenu þyrfti að samþykkja hana. Tekið hefur verið til þess að á Spáni sé nú bundið í stjórn- arskrá ákvæði um forgang lánardrottna. Merkel þykir hafa sýnt stjórnkænsku að kynna þessa hugmynd ásamt Sarkozy. Fyrir vikið væri að þessu sinni ekki hægt að saka Þjóðverja um einleik í Evrópumálum. Sarkozy sagði á fundinum með Merkel í gær að Grikkir yrðu að virða skuldbindingar sínar í hvívetna, „það er enginn annar kostur“. kbl@mbl.is Enn eykst þrýstingurinn á Grikki  Merkel og Sarkozy leggja til að hluti tekna Grikkja fari á lokaðan sérreikning  Papademos frestaði neyðarfundi stjórnarflokkanna  Liggur á vegna gjalddaga í mars  Allsherjarverkfall boðað í dag „Það verður ekki af samkomulagi ef tillögur þríeykisins verða ekki framkvæmdar.“ Angela Merkel Héraðsdómur í Ósló féllst í gær á kröfu lögregl- unnar um að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til réttarhöld hefjast yfir honum 21. apríl. Breivik krafðist þess að verða tafarlaust látinn laus úr haldi og sagðist eiga skilið að fá heiðursmerki hersins. Breivik var færður handjárnaður í réttarsal í Ósló um hádegisbil í gær. Hann var klæddur í dökk jakkaföt og ljósa skyrtu og stillti sér upp fyrir fréttaljósmyndara með handjárnin á lofti. Að sögn Geirs Lippestad, verjanda Breivik, átti handa- hreyfingin að vera nokkurs konar „öfgahægri- kveðja“. Breivik sagði ekkert við fjölmiðla en brosti á meðan teknar voru af honum myndir en þetta var í fyrsta skipti sem myndatökur af Breivik voru leyfðar í réttarsalnum. „Ég játa að hafa gert þetta, en ég viðurkenni ekkert refsivert og í því samhengi óska ég eftir því að fá að útskýra hvers vegna ég viðurkenni ekkert refsivert. Svo ef ég mætti fá eina mínútu mæti ég það mikils. Er það í lagi?“ spurði Breivik í rétt- arsalnum. Dómarinn, Elisabeth Gjelsten, sam- þykkti það að því gefnu að það kæmi málinu við. Breivik las síðan yfirlýsingu þar sem hann sagði að árásirnar, sem hann gerði á stjórnarráðsbygg- ingar í Ósló og ungmenni í sumarbúðum Verka- mannaflokksins á Útey 22. júlí í fyrra, hefðu verið árás á „svikara“ sem stuðluðu að íslamskri ný- lenduvæðingu í Noregi. 77 létu lífið fyrir hendi Breivik. „Ég brást við í nauðvörn fyrir hönd þjóðar minn- ar, lands og menningar,“ bætti Breivik við áður en dómarinn stöðvaði hann. Sumir á áhorfendabekkj- unum hlógu að yfirlýsingum Breiviks. Margir sem lifðu af árásina á Útey og aðstand- endur þeirra sem létust fylgdust með réttarhaldinu í dag. Þá voru 63 fréttamenn í salnum að sögn fréttavefjar Aftenposten, m.a. frá erlendum miðl- um s.s. BBC, Der Spiegel, Radio France, Bloom- berg, Afp og Reuters. „Það var ekki gott að hann fékk að segja það sem hann vildi segja,“ sagði Amel Baltic, 16 ára piltur sem var á Útey. „Það var þó jákvætt að sjá að lög- reglan gætti hans. Hann gat ekki leikið lögreglu- mann nú,“ sagði Baltic við vefinn Nettavisen. Margir þeirra sem lifðu árásina af hafa lýst áhyggjum af því að Breivik muni nota réttarhöldin til að vekja athygli á öfgaskoðunum sínum. Tveir réttargeðlæknar komust að þeirri niður- stöðu að Breivik væri ekki sakhæfur en rétturinn hefur fyrirskipað að önnur geðrannsókn fari fram. Breivik hefur neitað að eiga samvinnu við þá sem eiga að gera þá rannsókn og lýsti því yfir í rétt- arsalnum í dag að skýrsla geðlæknanna tveggja væri hlægilegt plagg. Lippestad, verjandi Breiviks, sagði að yfirlýsingar skjólstæðings hans í gær gæfu vísbendingar um hver málflutningur Breiviks yrði í réttarhöldunum í vor. „Þetta er undirbúningur undir réttar- höldin. Þetta mál snýst að stórum hluta um hans persónuleika,“ sagði Lippestad. Breivik segist vera herforingi í reglu musteris- riddara, herskáum samtökum sem hafi það að markmiði að koma ríkisstjórnum Evrópuríkja frá og setja í staðinn „föðurlandsvini“ sem reki músl- ima úr landi. Lögregla hefur ekki fundið neinar vísbendingar um að þessi samtök séu til og segir að Breivik hafi skipulagt árásirnar einn. gummi@mbl.is Reuters Í réttarsalnum Anders Behring Breivik krafðist þess að verða látinn laus en var úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Breivik krefst frelsis og heiðursmerkis  Heilsaði með fasistakveðju þegar hann gekk inn í réttarsalinn í Ósló Leiðtogar palest- ínsku hreyfing- anna Fatah og Hamas tilkynntu í gær að náðst hefði sam- komulag um sam- eiginlega stjórn, sem fyrst um sinn yrði undir forustu Mahmouds Ab- bas, forseta pal- estínskra stjórnvalda á Vesturbakk- anum. Þetta er mikilvægt sáttaskref milli þessara tveggja hreyfinga fyrir fyrirhugaðar kosningar Palest- ínumanna. Samkomulagið var tilkynnt í beinni útsendingu á blaðamanna- fundi í Doha í Katar. Samskipti hreyfinganna versnuðu til muna eftir að Hamas sigraði í þingkosningum 2006. Upp úr sauð ári síðar. Lagði Hamas þá Gaza-svæðið undir sig og hrakti liðsmenn Fatah á braut. Síðan hafa yfirráð Fatah verið bundin við Vesturbakkann. Hamas hafnar tilvistarrétti Ísr- aels. Ísraelar hafa skilgreint Hamas sem hryðjuverkasamtök og það sama á við víða á Vesturlöndum. Ísraelar og Vesturlönd segjast ekki munu eiga samskipti við palestínska stjórn, sem Hamas eigi þátt í, nema sam- tökin viðurkenni Ísrael, hafni ofbeldi og gangist undir alla fyrri samninga Ísraela og Palestínumanna. kbl@mbl.is Hamas og Fatah semja  Mahmoud Abbas leiði sameinaða stjórn Mahmoud Abbas á að leiða stjórnina. Körlum sem reykja að stað- aldri hrakar meira andlega en körlum sem aldr- ei hafa reykt. Þetta samband milli reykinga og andlegrar hrörn- unar finnst hins vegar ekki hjá konum. Þetta kemur fram í breskri rannsókn, sem birt var í Bandaríkjunum í gær. Rannsóknin náði til 5.000 karla og 2.100 kvenna í þjónustu hins op- inbera á Bretlandi. Gefa niðurstöð- urnar til kynna að reykingar um langt skeið leiði til minnistaps, dragi úr getu til að tengja reynslu fortíðar við atburði í samtímanum og veiki almenna ályktunarhæfni. kbl@mbl.is Tóbak skaðlegt heila karla Reykingar hafa áhrif á heilann. Málsskjölin í máli lögreglunnar í Ósló gegn Anders Behring Breivik fylla nú þegar 77 gormabækur með 500 síðum í hverri. Sam- tals eru það yfir 40 þúsund síður. Fram kom á blaðamannafundi lögregl- unnar í gær, að Breivik hefði verið yf- irheyrður 27 sinnum, samtals í 170 klukku- stundir. Að auki hefur lögreglan fengið í hendur myndskeið úr eftirlitsmyndavélum og önnur myndskeið sem eru samtals 60 þúsund klukkustunda löng. Yfir 900 vitni hafa verið yfirheyrð í tengslum við sprengjuárásina á norska stjórnarráðið og 495 vitni hafa verið yfirheyrð um skotárásina í Úteyju. Einnig hefur lögreglan lagt hald á þúsundir ýmissa gagna sem tengjast rannsókninni á Breivik og fjöldamorðunum. Nú vinna 75 lögreglumenn að rannsókninni en þeim verður væntanlega fækkað í 10-15 eftir tvo til þrjá mánuði. Málsskjölin yfir 40 þúsund síður 60 ÞÚSUND TÍMAR AF MYNDSKEIÐUM Anders Behring Breivik

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.