Morgunblaðið - 22.02.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
Það sér hver maður að enginsanngirni er í því að hnjóða í
menn fyrir að gera ekki það sem
vitað er að þeir eru ófærir um.
Nú er ennþá einusinni verið að
vega ómaklega að
Steingrími J. Sig-
fússyni. Hann hafði
verið spurður í fjöl-
miðlum um aðkomu
sína að fárinu í
kringum forstjóra
FME. Steingrímur svaraði að hann
hefði aðeins heyrt um uppsagn-
armálið í fjölmiðlum.
En í gær var upplýst: „Stein-grímur J. Sigfússon, efna-
hags- og viðskiptaráðherra, við-
urkenndi á Alþingi í dag að hafa
fundað með stjórnarformanni Fjár-
málaeftirlitsins, Aðalsteini Leifs-
syni, í síðustu viku þar sem Að-
alsteinn hafi gert honum grein
fyrir því að mál Gunnars Þ. And-
ersen, forstjóra stofnunarinnar,
væru í ákveðnu ferli.“
Þetta virðist í fljótu bragði ekkilíta vel út fyrir Steingrím.
Enda fór hann í mikla mælsku-
keppni við sjálfan sig til að sýna
fram á að það að hafa ekki heyrt
um málið og að hafa rætt það fá-
einum dögum fyrir afneitunina
stangaðist ekki á.
En þetta var algjörlega óþarftaf Steingrími. Allir sann-
gjarnir menn hafa fyrir löngu átt-
að sig á að Steingrímur J. getur
ekki sagt satt orð eigi hann kost á
öðru.
Skafanka, eins og sannleiksheftiá hástigi, má ekki brúka gegn
þeim einstaklingum sem við slíka
hömlun búa. Miklu fremur á að
sýna þeim alúð og umhyggju og
reyna að gera gott úr.
Steingrímur J.
Sigfússon
Ósannindin eru
ósjálfráð
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 21.2., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 0 snjóél
Akureyri -4 skýjað
Kirkjubæjarkl. 4 súld
Vestmannaeyjar 6 þoka
Nuuk -5 snjókoma
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Stokkhólmur 3 heiðskírt
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 7 skýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 10 skúrir
London 11 skýjað
París 8 heiðskírt
Amsterdam 8 léttskýjað
Hamborg 5 súld
Berlín 2 skúrir
Vín 5 léttskýjað
Moskva -3 skýjað
Algarve 15 heiðskírt
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 11 skýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 12 skýjað
Winnipeg -7 snjókoma
Montreal 0 alskýjað
New York 3 heiðskírt
Chicago 2 alskýjað
Orlando 20 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:01 18:22
ÍSAFJÖRÐUR 9:14 18:19
SIGLUFJÖRÐUR 8:57 18:02
DJÚPIVOGUR 8:33 17:50
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hjúkrunarheimilið Sóltún er eitt
þeirra hjúkrunarheimila sem eru
með þjónustusamning við ríkið.
Samningurinn kveður m.a. á um að
fari lyfjakostnaður fram yfir ákveð-
in viðmiðunarmörk taki ríkið þátt í
þeim aukna kostnaði.
Anna Birna Jensdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sóltúns, sagði að
samningurinn hefði verið gerður að
undangengnu útboði ríkisins. Hún
taldi það hafa verið mjög skyn-
samlegt hjá ríkinu að setja í útboðs-
gögn slíka magnleiðréttingu á dag-
gjaldi vegna lyfjakostnaðar.
Leiðréttingin á bæði við ef lyfja-
kostnaður fer yfir ákveðna heildar-
upphæð á ári og eins ef einstök
lyfjameðferð fer yfir tiltekna upp-
hæð.
„Við þurfum ekki að hafa jafn-
miklar áhyggjur af því og margir
aðrir ef fólk er á dýrum lyfjum eins
og kom fram í grein Gísla Páls
Pálssonar í Morgunblaðinu [sl.
laugardag]. Eldri hjúkrunarheimili
sem eru ekki með þjónustusamn-
inga hafa ekkert svona ákvæði,“
sagði Anna Birna. Hún sagði að
mikil breyting hefði orðið því hverj-
ir flyttu á hjúkrunarheimilin í kjöl-
far breytingar á reglugerð um vist-
unarmat.
„Hjúkrunarheimilin eru nú al-
mennt með veikara fólk sem áður
fékk jafnvel eingöngu þjónustu á
sjúkrahúsum. Sóltún var sérstak-
lega opnað til þess að taka við fólki
beint af sjúkrahúsum og hefur
sinnt þessum hópi frá upphafi,“
sagði Anna Birna. Í þessum hópi
eru bæði sjúklingar á mjög dýrum
lyfjum og fólk sem þarf reglulegar
blóðgjafir til þess að halda lífi.
Flóknar lyfjameðferðir og regluleg-
ar blóðgjafir krefjast fleiri rann-
sókna. Hún sagði að með jafnmarg-
breytilegri sjúkdómsmynd og
hjúkrunarþörf og nú er orðin á
hjúkrunarheimilunum þyrfti fleiri
fagmenntaða og dýrari starfskrafta.
Þessi kostnaður hefði færst frá
sjúkrahúsunum til hjúkrunarheim-
ilanna með þeim sem nytu þjónust-
unnar.
Tímabær umræða
„Það er alveg réttmæt gagnrýni
að það hafi ekki verið tekið tillit til
þessara breytinga í daggjalda-
útreikningum vegna hjúkrunar-
heimila,“ sagði Anna Birna. Hún
sagði tímabært að taka þessa um-
ræðu upp. Ætla mætti að menn
hefðu ekki séð þessa þróun
fyrir og einnig mætti
gagnrýna að ekki hefði
verið reiknað út hvað
væri eðlilegt daggjald til
að standa undir auknum
þörfum íbúa heimilanna.
Anna Birna taldi
líklegt að Sóltún
fengi fleiri ein-
staklinga sem
krefðust mikillar meðferðar en önn-
ur hjúkrunarheimili á grundvelli
þess að Sóltún ætti að geta tekið
við þessum hópi. Hún sagði að þeim
sem þörfnuðust mikillar og dýrrar
umönnunar væri einnig að fjölga
hjá öðrum heimilum.
„Hjúkrunarheimilin hafa ekki
sama val og áður þegar þau gátu
valið hverja þau tóku inn. Nú fara
nánast allir sem koma frá spítöl-
unum á hjúkrunarheimili. Vistunar-
matsnefnd setur þá fremst í röðina
sem eru í mestri þörf. Það er
skylda hjúkrunarheimilanna að
velja einn af þremur sem stillt er
upp hverju sinni. Áður var hægt að
hafna þeim öllum og velja bara ein-
hvern af heildarvistunarmats-
skránni,“ sagði Anna Birna.
Áður en Anna Birna fór að reka
Sóltún rak hún öldrunarsvið Land-
spítalans. Hún sagði að hópurinn
sem nú væri kominn á hjúkrunar-
heimili væri fyllilega sambærilegur
við þann sem áður var hjá öldr-
unarsviði spítalans og jafnvel einnig
á nýrnadeild, blóðsjúkdómadeild og
líknardeild. Hún benti á að hjúkr-
unarheimilin væru að taka yfir mik-
ið af líknarþjónustu aldraðra sem
áður var á spítalanum.
„Þegar eina háskólasjúkrahúsið
okkar verður fyrir miklum niður-
skurði fer það að velta því fyrir sér
hver séu verkefni þess og hvað aðr-
ir séu færir um að annast. Það ýtir
öllu nema því allra sérhæfðasta út
af sjúkrahúsinu,“ sagði Anna Birna.
Hún sagði það vera eðlilegt varð-
andi sjúklinga sem þyrftu ekki
nauðsynlega að vera á sérhæfðu
sjúkrahúsi. Umönnun þar væri
miklu dýrari en á hjúkrunarheimili.
„Það er hins vegar einkennilegt
að eini kaupandi þjónustunnar, sem
er ríkið, reyni ekki að finna kostn-
aðarverð sem dugar til að standa
straum af þjónustunni. Um það er
og verður alltaf togstreita,“ sagði
Anna Birna.
Hjúkrunarheimilin taka við
sjúklingum af sjúkrahúsum
Nú er almennt veikara fólk á heimilunum en áður Því fylgir meiri kostnaður
Morgunblaðið/Golli
Sóltún Hjúkrunarheimilið er eitt fárra sem eru með gildan þjónustusamn-
ing við ríkið. Samningurinn kveður m.a. á um aukinn lyfjakostnað.
Samkvæmt upplýsingum vel-
ferðarráðuneytisins eru eft-
irtaldir samningar vegna rekstr-
ar hjúkrunarheimila í gildi:
Samningur við Öldung ehf.
um byggingu og rekstur hjúkr-
unarheimilisins Sóltúns í
Reykjavík.
Samningur við Grund um
rekstur hjúkrunarheimilisins
Markar í Reykjavík.
Samningur við Sjó-
mannadagsráð um rekstur
Boðaþings í Kópavogi.
Þá hafa sveitarfélögin Ak-
ureyri og Höfn í Hornafirði rek-
ið heilbrigðis- og öldrunarþjón-
ustu til margra ára
samkvæmt þjónustu-
samningum við ríkið.
Ólíkt inntak
FIMM SAMNINGAR UM
HJÚKRUNARHEIMILI
Anna Birna
Jensdóttir