Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Tuttugu fulltrúar Stjórnlagaráðs mættu til fundar ráðsins í gær til að fara yfir þær athugasemdir sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al- þingis fól því að fara yfir. Nefndin mun svo funda með stjórnlagaráði í dag og fara yfir spurningar sem hafa vaknað við vinnuna, að sögn Þor- steins Fr. Sigurðssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra stjórnlagaráðs. Ari Teitsson, sem var varaformaður stjórnlagaráðs, tók við formennsku í gær af Salvöru Nordal sem er í út- löndum. Katrín Fjeldsted var kjörin varaformaður. Tuttugu og tveir fulltrúar höfðu boðað komu sína en Gísli Tryggvason og Örn Bárður Jónsson gátu ekki tekið þátt í gær. Þeir koma á fund ráðsins í dag. Verkefni stjórnlagaráðsins er að fara yfir athugasemdalista stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar. List- anum var skipt efnislega niður á milli umræðuhópa sem eiga að forma svör við því efni sem farið er yfir. Ná samstöðu um svör „Allur hópurinn kemur svo saman til að ræða þau og ná samstöðu um svarið,“ segir Þorsteinn en efnislega sé um að ræða tíu meginatriði. Eitt þeirra snúi t.d. að því hvort kosn- ingakaflinn eigi að vera ítarlegur í stjórnarskránni eða hvort það eigi einfaldlega að kveða á um hann í al- mennum lögum. Einnig sé komið inn á ákvæði um embætti forseta Ís- lands, auðlindaákvæði ofl. Hópurinn hefur fjóra daga til verksins og segir Þorsteinn tímann verða vel nýttan. Spurður hvort það náist einhver efnisleg niðurstaða á þessum tíma, segir hann að það verði að svara þeim spurningum sem komu frá nefndinni. Fundað um stjórnarskrá  20 mættu á fund stjórnlagaráðs í gær  Ráðið fundar með nefndinni í dag Morgunblaðið/Sigurgeir Komin saman Stjórnlagaráð á blaðamannafundi í fyrrasumar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Marcin Tomasz Lech í fimm ára fangelsi fyrir að ræna verslun Mic- helsen úrsmiða í október sl. Lech var einnig gert að greiða Vá- tryggingafélagi Íslands 14 milljónir króna og bíll hans var gerður upp- tækur. „Þetta er mjög þungur dómur en ekki alveg án fordæma,“ segir Jón Þór Ólason, lektor við lagadeild Há- skóla Íslands, spurður um þyngd fangelsisdómsins yfir Lech. Fimm ára fangelsi hafi verið dæmt í svoköll- uðu Landsbankaránsmáli í Hæsta- rétti árið 1985. Jón Þór segir það vekja athygli hversu illa refsiákvörð- unin sé rökstudd. „Það er ekki vísað í eitt einasta ákvæði sem er til álita við ákvörðun refsingar og ber að vísa í samkvæmt 70. gr. hegningarlaga,“ segir Jón Þór. Þetta skipti máli með hliðsjón af þátttöku mannsins í brotinu. Það geti hugsanlega verið ávísun á það að meintir sam- verkamenn mannsins, sem frömdu sjálft ofbeldið, fái þyngri refsingu. Tveir handteknir í Sviss Verjandi Lech fór fram á vægustu refsingu og sagði að tveggja ára fang- elsi ætti að þykja eðlilegur dómur, með hliðsjón af dómaframkvæmd. Lech játaði fyrir dómi að hafa komið að skipulagningu ránsins og komið til Íslands gagngert til að flytja ráns- fenginn úr landi. Saksóknari sagði þátt hans síst minni en félaga hans þó hann hefði ekki sjálfur ruðst inn í verslunina. Lech framdi ránið í félagi við þrjá aðra Pólverja. Svissneska lögreglan hefur handtekið tvo þeirra en mennirnir flúðu land í kjölfar ráns- ins. Ríkissaksóknari hefur farið fram á að mennirnir verði framseldir hing- að til lands. Talið er að fjórði maður- inn sé enn í Póllandi. Morgunblaðið/Júlíus Úr Þýfið úr Michelsen-ráninu. Fimm ára fangelsi fyrir rán  Segir refsiákvörð- unina illa rökstudda Það var líf og fjör við Frístundamiðstöðina Ársel í Árbænum í gær þar sem börnin á frístunda- heimilinu Töfraseli telja sig hafa sett Íslandsmet í snjókarlagerð. Krakkarnir, sem eru öll nem- endur í Árbæjarskóla í 1.-4. bekk, leyfðu sköp- unargáfunni að njóta sín og gerðu samtals 50 snjókarla af ýmsum stærðum og gerðum. Ekki finnast í fljótu bragði heimildir um fleiri snjó- karla gerða af hóp á sama degi. Fyrirtæki hverf- isins voru boðin og búin til að leggja sitt af mörk- um til að gleðja ungviðið og fengu börnin efnivið í nef og augu frá Krónunni á Bíldshöfða. Krakk- arnir skora nú á önnur frístundaheimili að slá metið. Verði það gert er næsta víst að þau reyni að ná því aftur, því allir skemmtu sér hið besta. Morgunblaðið/Ómar Börnin fögnuðu snjónum og gerðu fimmtíu snjókarla Innri endurskoðandi Reykja- víkurborgar og borgarlögmað- ur munu fara yfir söluferli vegna eignarhluta Orkuveitu Reykjavíkur í Enex Kína og Envent Holding. Borgarfulltrú- ar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna óskuðu formlega eftir úttektinni á fundi borgarráðs í gær. Í svari við fyrirspurn fulltrúa minnihlutans lagði Jón Gnarr borgarstjóri til að forsvarsmenn fyrirtækisins yrðu kallaðir á fund borgarráðs til að kynna sölu eign- anna. Í kjölfar þess yrði ákveðið hvort ástæða væri til að skoða málið betur. Minnihlutinn lagði eigi að síður fram ósk sína um úttekt, eins og hann á rétt á, og fer hún fram. S. Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra, telur eigi að síður að forsvarsmenn fyrirtækisins muni kynna sjónarmið sín í borgar- ráði á næstunni. Verja eigin gjörðir Minnihlutinn gagnrýnir það að eignir Orkuveit- unnar hafi verið seldar án auglýsingar og eðlilegra upplýsinga til stjórnarmanna í OR. Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna, segir að viðbrögð meirihlutans og stjórnenda Orkuveitunn- ar komi á óvart. Þeir reyni að réttlæta gjörðir sínar í stað þess að viðurkenna mistök. „Við teljum að meirihlutinn sé ekki að standa vörð um hagsmuni al- mennings heldur verja gjörðir stjórnenda fyrirtæk- isins,“ segir Hanna Birna. Hún vekur athygli á því að sömu starfsmenn Orkuveitunnar fari fyrir því að réttlæta og rökstyðja ákvörðunina og tóku hana og framkvæmdu sem stjórnarmenn í dótturfélagi OR. „Við teljum mikilvægt að fá álit þriðja aðila en fólkið sé ekki að gefa eigin störfum einkunn,“ segir hún. S. Björn segir að greinargóð svör hafi fengist frá Orkuveitunni um þetta mál. Þeir telji að sala eign- anna hafi verið farsæl lausn og meirihlutinn hafi enga ástæðu til að rengja það. Í yfirlýsingu frá Har- aldi Flosa Tryggvasyni, stjórnarformanni OR, kom fram að salan hafi verið samþykkt af fyrri stjórn- endum, fyrir tveimur árum. helgi@mbl.is Gerð verður úttekt á sölu eign- arhluta í dótturfélögum OR  Forsvarsmenn koma í borgarráð  Eftirlitsaðilar fara yfir málið Orka Deilt er um sölu eigna REI. Líklegt er talið að lögreglan óski eftir framlengingu gæsluvarðhalds yfir manni sem játað hefur fólsku- lega líkamsárás á starfsmann lög- mannsstofu í Reykjavík sl. mánu- dag. Gæsluvarðhaldið átti að renna út í dag. Maðurinn sem fyrir árás- inni varð liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans. Hann er í lífshættu og honum hald- ið sofandi í öndunarvél. Líklega krafist lengri gæslu Sara Ástþórsdóttir, Ganghestum / Málningu, og Díva frá Álfhólum sigruðu í slaktaumatölti í Meistara- deild í Ölfushöllinni í gærkvöldi. Sara náði með því efsta sætinu í stigakeppni mótaraðarinnar. Valdi- mar Bergstað úr liði Ganghesta / Málningar og Prins frá Efri- Rauðalæk sigruðu í flugskeiði eftir harða keppni við Ragnar Tómasson og Isabel frá Forsæti. Sara og Díva sigr- uðu í slaktaumatölti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.