Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Offita er meiri heilbrigðisváen fólk gerir sér grein fyr-ir. Ég hef eins og aðrirtekið eftir þeirri þróun að íslensk börn og unglingar eru að þyngjast. Þegar ég var í grunnskóla þá löbbuðum við krakkarnir allt sem við fórum, hvort sem það var í skól- ann eða á æfingar, en núna er krökk- um skutlað allt sem þau þurfa að fara,“ segir Fannar Karvel íþrótta- fræðingur en hann hefur verið með námskeið fyrir unglinga í Sporthús- inu þar sem áhersla er lögð á að kenna krökkunum að hreyfing getur verið skemmtileg og þarf ekki að vera tengd keppnum. „Ég haga mér mátulega mikið eins og fífl og fæ þau með mér í það, reyni að brjóta þessa múra sem fólk byggir upp í kringum sig. Þegar foreldrarnir mæta með krökkunum í tíma þá verða þeir að vera með og taka þátt í öllum fíflalát- unum og leikjunum, hvort sem þau eru á pinnahælum eða í jakkafötum. Stressið er þá fljótt að fara af öllum. Þetta er liður í því að gera hreyf- inguna skemmtilega. Við förum í gegnum ákveðnar grunnhreyfingar eins og hnébeygjur og armbeygjur og förum í gamla leiki og gerum alls- konar skemmtilegt.“ Foreldrarnir bera ábyrgð Fannar segir að foreldrar séu í raun aðalvandamálið þegar börn þeirra eru komin í lélegt líkamlegt form eða orðin of þung. „Við foreldr- arnir kaupum inn matinn og ráðum hvað er til í skápunum heima. Við er- um þau sem skutla þeim út um allar trissur. Á námskeiðinu hjá mér verða Lykilatriði að virkja krakkana sjálfa Með aukinni tölvunotkun hefur kyrrseta barna og unglinga aukist undanfarin ár og matarvenjur margra unglinga einkennast af sykruðum drykkjum og sætindum. Íþróttafræðingurinn Fannar Karvel hefur brugðist við þessu með námskeiði fyrir unglinga þar sem hreyfing er skemmtileg og ekki tengd keppni. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Skemmtilegt Fannar Karvel leggur mikið upp úr því að gaman sé á nám- skeiðinu og segist viðhafa fíflagang og sprell til að svo megi verða. Mörg skemmtileg lönd er að finna í heiminum og er Kanada eitt þeirra. Saga og menning, góður matur og skemmtanalíf. Allt með sínum kan- adíska sjarma. Rétt eins og hvert land hefur sinn karakter. Ibackpack- canada er sniðug síða fyrir þá sem vilja ferðast frjálsir um lönd með að- eins bakpokann á bakinu. Eins og nafnið gefur til kynna er þessi síða tileinkuð slíkum ferðalögum um Kan- ada. Síðunni heldur úti ungur Kan- adamaður, Corber Fraser, og setur hann þar ferðalýsingar um landið sitt en skrifar líka ýmiss konar greinar um allt sem kanadískt er. Nýjasta færslan útlistar t.d. sex ástæður fyrir því að Corber sé stoltur af því að vera Kanadamaður. Meðal þeirra er óspillt náttúra landsins, fjöltyngi og al- þjóðleg menning. Ibackpack- canada.com er skemmtileg vefsíða fyrir ferðaglaða og forvitna. Vefsíðan www.ibackpackcanada.com Morgunblaðið/Árni Sæberg Halifax Helsta útstöð bresku nýlenduherranna í N- Ameríku á 18. öld. Fyrir forvitna ferðalanga Næstkomandi miðvikudag, 14. mars, heldur listanefnd Kvennaskólans Við- arstokk, tónleika til styrktar BUGL. Tónleikarnir verða haldnir í Iðnó þar sem fjórar hljómsveitir koma fram: Amiina, Ojba Rasta, 1860 og Sam- aris. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og þeim lýkur kl. 23:00 en miðinn kostar aðeins 1.500 kr. Á BUGL er tekið á móti börnum upp að 18 ára aldri sem eiga við geðheilsuvanda að stríða. Þar er veitt sérhæfð þverfagleg þjónusta sem miðar að þörfum barna og fjöl- skyldna þeirra. Starfsemin skiptist í eina göngudeild og tvær legudeildir, Endilega … … komið á Viðarstokk Starfsemi Tónleikar til styrktar BUGL. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Dalvegi 4 - 201 Kópavogur Hamraborg 14 - 200 Kópavogur Opnunartími: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00 laugardaga frá 6:00 til 17:00 sunnudaga frá 7:00 til 17:00 Repjubrauð Hollustubrauð sem inniheldur m.a. íslenska repjuolíu, repjuhrat sem og íslenskt bygg - enginn sykur Ríkt af Omega 3 Góð brauð – betri heilsa Myndlistarskólinn í Reykjavík stend- ur fyrir námskeiði fyrir ungmenni á aldrinum 16 til 18 ára sem eru án at- vinnu og stunda ekki nám. Kallast námskeiðið Vorlaukar en kennt verð- ur í mislöngum vinnutörnum á nokkr- um vikum. Mikil áhersla verður lögð á sjálfstæð vinnubrögð og munu nem- endur skila af sér verkefnum á netinu og vinna á skapandi hátt með net- miðla. Munu nemendur nýta sér þau tæki sem þeir hafa til umráða svo sem stafrænar myndavélar og síma og vinna með þeim ljósmyndir og víd- eó ásamt því að vinna hópverkefni í spjallformi og texta. Áhersla verður lögð á að skoða þekkt umhverfi út frá mismunandi forsendum og sjá nýja möguleika í hversdagsleikanum. Á námskeiðinu vinna þátttakendur bæði einstaklingsverkefni og hóp- verkefni. Í kennslustundum í Mynd- listaskólanum í Reykjavík gera nem- endur ýmsar verklegar æfingar og farið verður í vettvangsferðir. Í tím- um eiga nemendur kost á einka- viðtölum þar sem verkefni hvers og eins verða þróuð frekar. Nemendur þurfa ekki að hafa neinn bakgrunn í listum, einungis áhuga á skapandi vinnubrögðum. Verkefnið er styrkt af framtakinu Ódýrar frístundir á vegum Reykjavík- urborgar og er námskeiðið því ókeyp- is fyrir þátttakendur. Fyrsta vinnu- törn hefst hinn 19. mars næstkomandi en nánari upplýsingar og skráning fer fram á vefsíðu skól- ans, myndlistaskolinn.is, eða í síma 551-1990. Námskeið fyrir 16-18 ára Listasmíð Frá námskeiði unglinga við Myndlistaskóla Reykjavíkur. Vorlaukar Myndlistarskólans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.