Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 21
Af mannskemm- andi hvötum að ákæra Geir H. Haarde Frá því að ég var ungur maður hef ég fylgst með pólitík og hef margoft farið á fundi hér í kjör- dæminu hjá hin- um ýmsu flokk- um. Af því hef ég myndað mér skoðun sem ég er alltaf að endur- skoða en kemst alltaf að sömu niðurstöðu og er þekktur af henni og finnst hún því réttari sem ég reyni að vera réttsýnn og meta hina stjórnmálaflokk- ana líka. Þetta hefur varað ára- tugum saman og vitanlega hef- ur á þeim tíma oft verið skipt um ríkisstjórn. Alltaf hefur vinstrimönnum gengið verr að stjórna en aldrei eins og nú þegar þeir eru einir, alltaf hef- ur þeirra höfuðandstæðingur verið Sjálfstæðisflokkurinn, flokkurinn sem ég hef aðhyllst. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur allra stétta og Ólafur Thors sagði að atvinnurek- endur græddu mest á að borga verkafólkinu vel, Sjálfstæðis- flokkurinn veit að atvinnurek- endur þurfa að geta rekið fyr- irtæki sín ekki síst til að geta búið fólkinu vinnu. Þannig fer saman hagur fólksins, vinstri- menn virðast ekki átta sig á því, þess vegna hefur þeim ekki gengið vel í stjórn. Vinstrimenn finnst mér harð- ari í öllum sínum dómum um andstæðingana en sjálfstæð- ismenn, og nú er tíska að tala um að öllu stjórnkerfinu verði að breyta. Þegar Kristján Eld- járn forseti var settur í emb- ætti þá talaði hann einmitt um þetta að stjórnkerfið væri um- deilt. En hann sagði sem ég man ekki orðrétt að ekkert stjórnkerfi hefði verið fundið upp sem væri betra en það sem hér væri. Mikið finnst gömlum manni að langskóla- gengið fólk þyk- ist vita og geta, mennirnir eru í raun alltaf eins, vilja svo mikið hafa að segja og langar svo mik- ið til að geta haft réttara fyrir sér en við- mælandinn. Hitt finnst mér þó verra að það eru svo margir samviskulitlir og meta of lítið góðan vilja og réttsýni til sam- ferðamannanna. Ég get ekki orða bundist hvernig komið er fram við góðan kunningja minn, Geir H. Haarde, ég veit svo vel að hann vill öllum vel og hefur gert allt eins og best hann gat. Mér finnst beinlínis vera af mannskemmandi hvöt- um tilburðirnir til að ákæra hann. Við munum öll umræð- urnar fyrir bankahrunið, ef ráðamenn hefðu þá gripið inn í þá hefði þeim verið kennt um hrunið og ætti þá öllum að vera ljóst að um það snerust umræðurnar nú. Því miður lif- um við ekki dóm sögunnar. Já efalaust það vitum vér þó vilji ei allir þekkja, að sannur Geir og saklaus er og síst vill nokkurn blekkja. Eftir Grétar Haraldsson » Alltaf hefur vinstrimönnum gengið verr að stjórna en aldrei eins og nú þegar þeir eru einir … Höfundur var bóndi í Miðey í Austur-Landeyjum. Grétar Haraldsson 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012 Hlátrasköll Þeir voru kampakátir þessir þrír þar sem þeir hittust í gær í Laugardalshöll á Atvinnumessu þar sem atvinnuleitendur kynntu sér ný starfstækifæri. Golli Í hruninu urðu heimili landsins og rík- issjóður fyrir miklum skakka- föllum. Eigið fé heimilanna rýrnaði mikið, þurrkaðist upp hjá sumum og varð neikvætt hjá öðrum eins og við þekkjum. Við þessar aðstæður urðu góð ráð dýr enda ríkissjóður alls ekki af- lögufær með mikla fjármuni. Þá takmörkuðu getu til að koma til móts við skuldug heimili varð að nota vel, af- skaplega vel. Tekin var sú stefna að beina sjónum að þeim hópi sem verst varð úti, heimilum með háan vaxta- kostnað, lítið eigið fé og lágar til meðaltekjur. Í Morgunblaðinu s.l. mánu- dag var fjallað um skerðingu vaxtabóta hjá ákveðnum hóp- um vegna þessara breytinga. Þar er heildarmynd málsins ekki skýrð en hér verður gerð tilraun til þess. Í byrjun desember 2010 gerði ríkisstjórnin víðtækt samkomulag við lánastofnanir og lífeyrissjóði sem var upp- hafið að því mikla átaki sem hefur staðið yfir síðan og hafði það markmið að takast á við skulda- og greiðsluvanda heimilanna. Meðal úrræða sem ríkisstjórnin boðaði þá til var að almennar vaxtabætur yrðu áfram 11,7 milljarðar á árinu 2011 í stað 9,8 milljarða í fjárlagafrumvarpi. Þar með var viðhaldið tveggja millj- arða viðbótarframlagi sem veitt var tvö árin þar á undan. Þar til viðbótar var samið um sérstaka niðurgreiðslu vaxta, að upphæð 6 milljarðar á ári í tvö ár. Sú upphæð yrði fjár- mögnuð af fjármálastofn- unum og lífeyrissjóðum. Í yf- irlýsingu ríkisstjórnarinnar sagði ennfremur að úthlutun almennra vaxta- bóta yrði breytt þannig að þær kæmu í auknum mæli til móts við heimili með þunga skulda- byrði og lágar og miðlungstekjur. Tillögur fjár- málaráðherra um breytingar á úthlut- unarreglum al- mennra vaxta- bóta tóku mið af þessari stefnu. Gerðar voru margháttaðar breytingar á úthlutunarreglunum en til ráðstöfunar var sama upp- hæð, eða 11,7 milljarðar. Það var því ljóst að einhverjir íbúðareigendur fengju hækk- un á vaxtabótum en aðrir lækkun. Breytingunum var ætlað að ná þeim pólitísku markmiðum sem fólust í yf- irlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við samkomulagið. Hámark vaxtagjalda sem úthlutunin byggist á var hækkað. Það er nú 800 þús. kr. hjá einhleypum, 1 m.kr. hjá einstæðum foreldrum og 1,2 m.kr. hjá hjónum og sam- búðarfólki. Hámark vaxtabót- anna sjálfra var einnig hækk- að verulega eða úr rúmlega 400 í 600 þúsund hjá hjónum, um 57% í 500 þúsund hjá ein- stæðum foreldrum og um 62% í 400 þúsund hjá einhleypum. Þessar aðgerðir juku mjög stuðning við heimili með þunga skuldabyrði. Á móti þessum hækkunum þurftu að koma til breytingar í hina áttina. Áður skertust vaxtabætur um 6% af tekjum en nú var því breytt í 8%. Þrátt fyrir það geta hjón með allt að 15 m.kr. tekjur fengið vaxtabætur ef öðrum skil- yrðum er fullnægt vegna þess hvað hámark vaxtagjalda hækkaði mikið. Með þessu móti var fylgt eftir þeirri stefnu að bætur næðu til fólks með lágar og miðlungstekjur. Þá voru eignaskerðing- armörk bótanna lækkuð en það er sú breyting sem hefur orðið tilefni fjölmiðlaumfjöll- unar að undanförnu. Útreikningar sem umfjöll- un Morgunblaðsins byggðist á eru ættaðir frá ASÍ og eru mjög villandi. Þar eru reikn- aðar bætur yfir árabil hjá hjónum sem skulda jafn mikið í krónum og eiga jafn mikla hreina eign frá því fyrir hrun og fram til dagsins í dag. Að gefa sér slíka forsendur gefur afar skakka mynd af þróun- inni sem fæstir fasteignaeig- endur sem skulda vegna íbúð- arkaupa kannast við. Á meðfylgjandi mynd er sýnt hvernig úthlutun vaxta- bóta hefur gengið fyrir sig hjá hjónum sem voru í þeirri stöðu sem útreikningar ASÍ byggðust á árið 2007. Þeim forsendum er síðan fylgt eftir til ársins í ár. Í þessari grein er ekki mögulegt að gera með nákvæmum hætti grein fyrir þeim forsendum sem þessir útreikningar byggjast á í smá- atriðum en nánari lýsingu er að finna á vefsíðu fjár- málaráðuneytisins. Í þeim útreikningum sem ASÍ byggði á eru tilteknar forsendur um meðaltekjur, verðmæti fasteignar og eigin- fjárstöðu. Ætla mætti af þeim ályktunum sem dregnar eru af útreikningunum að um væri að ræða fjölmennan hóp fjölskyldna en svo er alls ekki ef horft er á heildarmyndina. Með vikmörkum í tekjubili, eignabili og eigin fé tókst að finna rúmlega 500 fjölskyldur sem voru í þessari stöðu í álagningarskrám RSK á árinu 2010. Hjón sem skulda í íbúðum sínum eru hins vegar yfir 44.000. Í árslok 2010 voru nær 13.000 hjón í þeirri stöðu að eiga ekkert í íbúðarhúsnæði sem þau voru skrifuð fyrir. Alls voru yfir 25.000 íbúðar- eigendur með neikvætt eigið fé í íbúðarhúsnæði sínu sam- kvæmt skattframtölum. Þetta eru fjórfalt fleiri en voru í sömu stöðu árið 2007. Með takmarkaða fjármuni til ráð- stöfunar er eðlilegt að koma til móts við þann hóp sem er í verstri stöðu. Vaxtakostnaður heimilanna vegna kaupa á íbúðarhúsnæði hefur verið um 60 milljarðar króna á ári að undanförnu. Vaxtabætur á síðasta ári voru tæpur þriðjungur af þeirri upphæð. Þær breytingar sem gerðar voru á úthlutun vaxtabóta voru tvímælalaust til bóta og beindu fjármunum að þeim sem voru í verstri stöðu og í samræmi við vilja og yfirlýs- ingar stjórnvalda. Eftir Oddnýju G. Harðar- dóttur » Þessar aðgerðir juku mjög stuðning við heimili með þunga skuldabyrði. Oddný Harðardóttir Höfundur er fjármálaráðherra. Vaxtabætur – stuðningur við skuldug heimili 1.500.000 2.000.000 2.500.000 Sérstök vaxtaniðurgreiðsla Vaxtabætur 0 500.000 1.000.000 2007 2008 2009 2010 2011 2012 Eignaskerðing Tekjuskerðing Skerðing vegna vaxtahámarks Vaxtakostnaður og vaxtabætur hjóna með meðaltekjur sem áttu 35 m.kr. íbúð 2007 og skulduðu 25 m.kr. í henni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.