Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012 Getur íslenskur landbúnaður orðið sjálfbær um orku í framtíðinni? Þessari spurningu verður leitast við að svara á opinni ráðstefnu um orku og búskap, sem fram fer í Bændahöllinni, Hótel Sögu, í dag. Rætt verður um orkunotkun í land- búnaðinum og þau tækifæri sem gætu leynst í orkubúskap á bújörð- um. Dagskráin hefst kl. 13. Orka í landbúnaði Umhverfis- ráðherra hefur skipað starfshóp um myrkurgæði, en hópnum er ætlað að taka saman upplýs- ingar um þau lög og reglur sem gilda um ljós- mengun á Íslandi og víðar. Mörður Árnason þing- maður er formaður hópsins, sem á að skila tillögum um hugsanlegar úrbætur næsta haust. Mörður Árnason Stýrir starfshópi um myrkurgæði Menntadagur iðnaðarins er í dag og verða ýmsir viðburðir af því tilefni. Ís- landsmót iðn- og verkgreina, sem stendur í tvo daga, hefst kl. 9 í húsnæði Háskólans í Reykjavík. Búist er við að rúmlega 1.900 grunnskólanemendur muni fylgjast með 170 nemendum úr framhaldsskólum keppa í sinni iðn- eða verkgrein. Samtök iðnaðarins bjóða svo til málþings frá kl. 13 til 16 í Háskólanum í Reykjavík þar sem fjallað verður um stöðu menntamála út frá aukinni þörf fyrir verk- og tæknimenntað starfsfólk. Nemendur keppa í iðn- og verkgreinum Guðmundur Heiðar Helgason „Stóru og leiðinlegu fréttirnar í ár eru þær að við höfum ekki hitt jafn- margt fólk síðan 1994,“ sagði Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta. Samtökin kynntu ársskýrslu sína fyrir árið 2011 á blaðamannafundi í gær. Aukning á milli ára Ný mál árið 2011 voru 313 sem er um 13% aukning frá árinu á undan. Einnig fjölgaði einstaklingum sem komu í viðtöl hjá Stígamótum en þeir voru 593. Er það um 12% aukning. Guðrún sagði að hún hefði engar öruggar skýringar á fjölgun nýrra mála. Karlar sem beita ofbeldinu „Þeir sem beita ofbeldinu eru fyrst og fremst karlar, en konur voru 2,2%. Þetta gerir málið hvorki betra né verra, en mynstrið lítur svona út,“ sagði Guðrún. Heildarfjöldi nauðg- ana sem voru til umfjöllunar hjá Stígamótum var 169. Af þeim voru hópnauðganir 18 talsins. Lyfja- nauðgunum fækkaði á milli ára og fór þær úr 17 niður í 8. Þjást fyrir brot annarra Guðrún sagði að miklir fordómar fylgdu fórnarlömbum kynferðis- brota. Algengustu afleiðingar kyn- ferðisofbeldis eru léleg sjálfsmynd, kvíði, skömm og depurð. „Okkar fólk er að dröslast í gegnum lífið með skömm og sektarkennd yfir mann- réttindabrotum sem einhverjir aðrir frömdu. Það er eitthvað öskrandi rangt við það,“ sagði Guðrún. Fleiri ofbeldismál  313 ný mál hjá Stígamótum í fyrra og þau hafa ekki verið fleiri síðan árið 1994  21% ofbeldismanna yngri en 18 ára. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Blaðamannafundur Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, flytur ársskýrslu samtakanna fyrir árið 2011. Við hlið hennar er Anna Þóra Kristinsdóttir, sálfræðingur, sem setti saman tölfræði árskýrslunnar. Andri Karl andri@mbl.is Rannsóknir lögreglu benda til þess að ríkur vilji sé innan glæpahópa hér á landi til að hafa áhrif á einstaklinga sem gegna lykilhlutverkum fyrir þá. Til dæmis má nefna að safna upplýs- ingum um það hvaða viðbragða má vænta við tiltekinni brotastarfsemi. Þetta kom fram í máli Karls Steinars Valssonar, aðstoðaryfirlögreglu- þjóns hjá lögreglu höfuðborgar- svæðisins, á fjölmennum hádegis- fundi Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál í gær. Karl Steinar segir að lögregla geti ekki útilokað að einstaklingar í op- inberum embættum séu í brotastarf- semi. Ein birtingarmynd skipulagðr- ar glæpastarfsemi er að reyna koma ólöglegum mörkuðum inn á þá lög- legu. Áhugi glæpahópa er ekki síst á lögreglu og tollvörðum en þar starfa einstaklingar með upplýsingar sem hóparnir ásælast. Víst þykir að glæpahópar séu tilbúnir að greiða háar upphæðir fyrir réttar upplýs- ingar. Reyna að hafa áhrif á túlka Þá kemur fram hjá Karli Steinari að vitað sé til þess að glæpahópar hafi sankað að sér upplýsinum um starfsstöðvar lögreglu, einnig um lögreglumenn og fjölskyldur þeirra. Þá sé reynt að hafa áhrif á túlka sem lögregla sé mjög háð, sérstaklega varðandi erlenda glæpahópa. Vitað sé að þetta gerist helst í fíkniefna- málum, en engin ástæða sé til að ætla að það sama gildi ekki um aðra brotaflokka. Glæpahópar sem á Íslandi starfa þykja nokkuð ólíkir, sérstaklega inn- lendir og erlendir hópar. Karl Stein- ar segir að hópar frá Litháen séu mjög skipulagðir og innan þeirra sé skýr verkaskipting. Hún sé þannig að hver hafi sitt tiltekna hlutverk og viti ekki ekki meira en þörf þykir. Þannig geta þeir ekki veitt lögreglu upplýsingar sem leitað er eftir við rannsókn mála. Íslensku hóparnir eru hins vegar einfaldari að gerð, enn sem komið er. Þeir eru ekki eins skipulagðir, og komið geti upp að skipuleggjandi brots gegni fleiri hlutverkum en í sambærilegum málum hjá erlendum hópum. Því séu meiri líkur á að lög- regla komist áfram í málum tengd- um íslensku hópunum. Breyta þarf skipulagi Karl Steinar segir að endurskoða þurfi skipulag lögreglu. Verkefnin séu að breytast með tilkomu fleiri glæpahópa. Málin séu flóknari og aðrar kröfur gerðar til rannsókna. Hann segir að eins og staðan er núna sé reynt að koma skipulagðri glæpastarfsemi í gamalt mót lög- reglunnar í stað þess að aðlagast breyttum tímum. Mikill áhugi á lögreglunni og tollvörðum  Glæpahópar reyna að hafa áhrif víða Morgunblaðið/Golli Fundur Karl Steinar ræddi um skipulagða glæpastarfsemi. Í ársskýrslunni kemur fram að fjölmargir ofbeldismenn eru mjög ungir. 2,2% brotamanna voru undir 10 ára aldri. 6,6% voru á aldursbilinu 11-13 ára og 12,8% á bilinu 14-17 ára. Sam- anlagt er þetta rúmt 21% of- beldismanna. „Ég vil undirstrika að fólk er ekki að koma til okkar vegna saklausra læknisleikja. Almennt kemur fólk vegna of- beldis sem hefur haft skaðleg áhrif,“ sagði Guðrún Jónsdóttir. Skv. rannsóknum byrja kynferð- isbrotamenn oftast mjög ungir að brjóta af sér. Brotamenn byrja ungir 21% YNGRI EN 18 ÁRA Skannaðu kóðann til að lesa nánar um þessa frétt. STUTT Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Íslensk hönnun.Axis framleiðir eldhúsinnréttingar í miklu úrvali. Hönnuðir aðstoða við valið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.