Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Forystumenn Kaupþings töldu sig hafa fundið leið til að koma bankanum í var snemma árs 2008 en þegar stjórnvöld settu neyðarlögin varð það bankanum um megn og hann fór í þrot þrátt fyrir um margt góða eiginfjárstöðu. Á þennan veg má draga saman sýn Hreiðars Más Sigurðssonar, fv. forstjóra Kaupþings, á stöðu bankans á árinu 2008 er hann svaraði spurningum við skýrslugjöf í málinu á hendur Geir H. Haarde fyrir Landsdómi í gær. Meðal ákæruatriða á hendur Geir er meint vanræksla við að grípa til aðgerða til að minnka bankakerfið og snerist fyrsti hluti spurninga Helga Magnúsar Gunnarssonar varasaksóknara um aðdragandann að falli Kaupþings og hvort Hreiðar Már mæti það svo að svigrúm hefði verið til að minnka umsvifin og flytja hluta starfseminnar úr landi. Undirbjuggu flutning bankans Hreiðar Már rifjaði þá upp hraðan vöxt bankans og hvernig hann hefði tvöfaldað efna- hagsreikninginn á árunum þegar hann tók yfir FIH í Danmörku og Singer & Friedlander í Bretlandi. „Sjónarmið okkar var að við mynd- um eflast og styrkjast með því að vaxa, að vera ekki háð litla Íslandi. Ég held að þessu hafi al- mennt verið vel tekið af stjórnvöldum,“ sagði Hreiðar Már og lýsti því hvernig ástandið á mörkuðum hefði svo tekið að versna 2007. Bankinn hefði brugðist við því með því að draga úr útlánum á 3. og 4. fjórðungi sama árs og með því að hefja söfnun innlána á Kaupthing Edge reikninga erlendis. Kaupþing hefði jafnframt smíðað að- gerðaáætlun sem hann vísaði til sem „Project Hans“, eða „Aðgerð Hans“, um flutning starfseminnar úr landi; annars vegar starfsemi bankans á Norðurlöndum undir dótturbankann FIH í Danmörku og hins vegar aðra alþjóðlega starfsemi undir dótturbankann Singer & Friedlander. Samhliða þessu hefði Kaupþing smíðað aðra aðgerðaáætlun, „Project Einar“, eða „Aðgerð Einar“, um flutn- ing höfuðstöðva bankans til erlendrar borgar. Sex borgir komu til greina og kom London best út. Helgi Magnús spurði Hreiðar Má þá hvaða áhrif „Project Hans“ hefði haft á getu ís- lenskra stjórnvalda til að styðja við íslenska bankakerfið í heild sinni. „Það hefði þýtt að við hefðum fært eignir úr móðurfélaginu. Og með þeim hætti hefði móðurfélagið staðið í skilum við sínar skuldabréfaeigendur og móðurfélagið minnkað,“ sagði Hreiðar Már. Hefðu átt að flytja fyrr Helgi Magnús setti áformin í samhengi við slæmar horfur á mörkuðum og spurði hvers vegna undirbúningur að þessum flutningi hefði ekki hafist fyrr. „Við hefðum átt að byrja fyrr. Það er alveg ljóst,“ sagði Hreiðar Már. Spurði Helgi Magnús þá hvort Hreiðar Már liti svo á að erlend fjármálaeftirlit hefðu sam- þykkt flutninginn og bætti því svo við hvort ekkert í eignasafninu hefði komið í veg fyrir slíka tilfærslu, þ.e. hvort í eignasafninu hefðu verið lakar eignir sem hefðu stöðvað áformin. Vísaði Hreiðar Már síðari hluta spurningar- innar afdráttarlaust á bug og lýsti því yfir að hann teldi fullvíst að fjármálaeftirlitin í Dan- mörku og Bretlandi hefðu fallist á áformin. Hreiðar Már hækkaði svo róminn og sagði sér „blöskra“ vitnisburðir þeirra Davíðs Odds- sonar, fv. seðlabankastjóra og ritstjóra Morgunblaðsins, og Arnórs Sighvatssonar, fv. aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands. Sú greining þeirra að bankakerfið hefði rambað á barmi þrots talsvert fyrir hrun ætti ekki við þegar Kaupþing væri annars vegar. Til marks um sterka eiginfjárstöðu bankans væri að tek- ist hefði að greiða 80% af kröfum til kröfuhafa. „[Þ]að eru ekki margir alþjóðlegir bankar sem hefðu gert það... að vitna til Kaupþings sem vonds banka er rangt,“ sagði Hreiðar Már ákveðinn og kom bankanum til varnar. Hann rökstuddi svo mál sitt frekar með því að fullyrða að neyðarlögin hefðu stefnt Kaup- þingi í þrot þrátt fyrir góða eiginfjárstöðu, enda hefði starfseminni verið sjálfhætt með mismunum kröfuhafa í lögunum. „Við töldum okkur vera búnir að finna leiðina fyrir Kaup- þing út úr þessari krísu,“ sagði hann. Fullyrðir að Kaupþing hefði staðist kröfur fjármálaeftirlits annarra ríkja  Fv. forstjóri Kaupþings vísar því á bug að eignasafnið hafi verið of veikt fyrir flutning bankans Morgunblaðið/Kristinn Fyrir Landsdómi Hreiðar Már Sigurðsson hafnaði því að Kaupþing hefði staðið á brauðfótum. „Eftir að ég kom í bankann var það mín skoðun að draga þyrfti úr kostnaði við rekstur bankans,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, fv. stjórnarformaður Glitn- is, í vitnaleiðslu fyrir Landsdómi í gær og tiltók hvernig gripið hefði verið til uppsagna og unnið að undir- búningi að sölu eigna. Helgi Magnús Gunnarsson varasaksóknari spurði Þor- stein Má hvort hann hefði orðið var við utanaðkom- andi þrýsting um að minnka bankann. Sagði Þorsteinn Már þá að það hefði ekki verið „þrýstingur frá einum eða neinum um þau mál“ og fullyrti svo að „unnið hafi verið að því af heilindum af stjórn bankans“ að rifa seglin og minnka umsvifin á árinu 2008. Helgi Magnús spurði því næst um fund Þorsteins Más með Tryggva Þór Herberts- syni, þáverandi efnahagsráðgjafa Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Kvaðst Þorsteinn Már þá muna eftir fundinum sem Björgólfur Guðmundsson hefði einnig setið. Rætt hefði verið um að kostnaður við íslenska banka- kerfið hefði verið of hár en Landsbankamenn tekið fálega í hugmyndir um sameiningu. Unnu að því að minnka bankann SKÝRSLA FYRRVERANDI STJÓRNARFORMANNS GLITNIS Þorsteinn Már Baldvinsson Hjörtur J. Guðmundsson hjorturj@mbl.is Fram kom í máli Jónínu S. Lárus- dóttur, fyrrverandi ráðuneytis- stjóra viðskiptaráðuneytisins, fyrir Landsdómi í gær að hún hefði orðið fyrir áfalli vegna stöðu fjármála- kerfisins þegar hún kom aftur til starfa í ágúst 2008 að loknu fæðing- arorlofi. Hún hafði þá verið frá störfum frá því í desember árið á undan. Staðan hefði þá verið orðin mun verri en hún hefði gert sér í hugarlund. Jónína átti sæti í samráðshópnum sem myndaður hafði verið vegna stöðunnar í fjármálalífinu en hún sat hins vegar aðeins einn fund í hópnum áður en hún fór í leyfi. Hún sagðist ekki alltaf hafa verið sátt við það hvernig vinnunni í hópnum var stjórnað en það hefði þó ekki verið vegna skorts á pólitískri stefnumót- un. Allir í hópnum hefðu engu að síður verið að vinna af heilindum að hennar mati. Ráðherrann upplýstur Jónína sagði að engin viðbúnaðar- áætlun hefði verið til á pappír en undirbúningsvinnan í samráðs- hópnum hefði þýtt að nægar upplýs- ingar lágu fyrir þegar bankahrunið varð til þess að leggja mat á stöð- una. Hún sagði neyðarlögin hafa verið endanlega tilbúin helgina fyr- ir hrun en þau hafi byggst á vinnu nokkurra hópa. Þá sagðist hún hafa haldið Björgvini G. Sigurðssyni, þá- verandi viðskiptaráðherra og yfir- manni sínum, upplýstum um stöð- una innan samráðshópsins. Ennfremur sagðist hún ekki hafa talið valdheimildir til annars en að beita bankana þrýstingi. Guðjón Rúnarsson, framkvæmda- stjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, sagðist aðspurður fyrir Landsdómi ekki kannast við að þrýstingur hefði verið frá stjórnvöldum um að minnka umfang bankanna en á hinn bóginn hefðu slíkar hugmyndir ekki komið inn á borð samtakanna. Hefðu stjórnvöld viljað minnka um- fang bankanna hefðu þau væntan- lega talað beint við forsvarsmenn þeirra. Guðjón sagði umfjöllun um bank- ana hafa verið mjög neikvæða. Þá ekki síst af hálfu keppinauta þeirra erlendis. Norræn samvinna kom sér vel Samkvæmt framburði Rúnars Guðmundssonar, sviðsstjóra vá- tryggingasviðs Fjármálaeftirlitsins, skipti þátttaka stofnunarinnar í nor- rænni viðbúnaðaráætlun á árunum 2006-2007 sköpum þegar hrunið varð. Settar voru á svið ýmsar að- stæður sem gætu komið upp og kom ýmislegt í ljós við það sem betur mætti fara. Þessar æfingar voru hins vegar ekki kláraðar en það mundi hafa komið sér vel. Þá sagði hann að skrifleg við- bragðsáætlun hefði ekki legið fyrir þegar hrunið skall á en stjórnvöld hefðu engu að síður verið vel undir- búin. Vikuna fyrir hrun hefði verið farið yfir það hvað stjórnvöld gætu gert ef sú staða kæmi upp að bank- arnir gætu ekki fjármagnað sig. Sagðist hann telja að stofnanirnar sem komu að þeirri vinnu að setja saman neyðarlögin hefðu lyft grett- istaki. Stjórnvöld vel búin und- ir að takast á við hrunið  Neyðarlögin voru endanlega tilbúin helgina fyrir hrun Morgunblaðið/Kristinn Dómsmál Jónína S. Lárusdóttir, fyrrverandi ráðuneytisstjóri. DÓMSORÐ Pétur Blöndal pebl@mbl.is Ekki er örgrannt um, svo notað sé hátíðlegt orðalag Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi stjórnarformanns FME, fyrir Landsdómi í fyrradag, að lít- illátum blaðamanni verði svolítið hverft við þegar gengið er upp stig- ann í Þjóðmenningarhúsinu að morgni og beint í flasið á þvögu ljós- myndara og tökumanna sem bíða með vélarnar á lofti. Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson stenst ekki mátið, smellir af og segir: „Ævilangt!“ Það er annar geimur fyrir utan réttarsalinn, þar heilsa ljósmyndarar vitnum með ljósabaði. Á hverjum morgni gengur Geir H. Haarde í gegnum steypibaðið eins og saksókn- arinn og verjandinn. „Þið myndið og myndið. Er þetta ekki alltaf sama myndin?“ spyr hann brosandi. Þegar dyrnar lokast sitja ljósmyndararnir uppi hver með annan. Það hefur sjálf- sagt ekki verið að tilefnislausu að blaðamaður heyrði dómvörðinn segja: „Þetta kalla ég nú gúrkutíð. Eruð bara að taka myndir hver af öðrum!“ Spennan vex í húsinu þegar von er á þekktum vitnum. Það er eins og andrúmsloftið þéttist. Þannig var það þegar Hreiðar Már Sigurðsson, fyrr- verandi forstjóri Kaupþings, bar vitni í gær. Og þarf engan að undra þegar litið er til vitnisburðar Jónasar Fr. Jónssonar, fyrrverandi forstjóra FME, um morguninn, sem tók undir það með verjandanum að lengi vel hefði verið óvinsælt á Íslandi að gagnrýna bankana og stjórnendur þeirra. „Þeir voru eins og kvikmynda- stjörnur,“ sagði Jónas. Þegar Hreiðar gekk í salinn hafði hann vissulega fylgdarlið, eins og kvikmyndastjörnur í útlandinu, nema í hans tilviki voru það starfsmenn sér- staks saksóknara sem fylgdu í kjöl- farið og hurfu snarlega á braut eftir vitnisburðinn. Hreiðar er öllu vanur, sýndi engin svipbrigði frammi fyrir ljósmyndurunum, og fór síðan út bak- dyramegin. Þar mætti hann raunar tökuliði Stöðvar 2 á harðahlaupum. Allt eftir formúlunni. Smám saman myndast nánari og um leið léttari stemmning meðal þeirra sem fylgjast með réttarhöld- unum á degi hverjum. Kannski af því umræðan er svo fjarri því sem tíðkast í sakamálum. Og nær ómögulegt að ráða í það af vitnaleiðslunum hver hinn alvarlegi glæpur á að hafa verið eða hvenær hann var framinn. En vitnaleiðslurnar eru þrátt fyrir það greinargóðar og skýra atburðarásina árið 2008. „Þetta er allavega góð frétt,“ sagði einn blaðamanna í gær. „Nú eru neyðarlögin sú Lilja sem allir vildu kveðið hafa,“ sagði Jónína S. Lárusdóttir, fyrrverandi ráðuneyt- isstjóri viðskiptaráðuneytisins, í gær, og þakkaði þau vinnu samráðshóps stjórnvalda um fjármálastöðugleika, sem hún átti sæti í. Þannig er vitnað í höfuðrit þjóðarinnar í gamla lestr- arsalnum á Landsbókasafninu. „Þetta er allavega góð frétt“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.