Morgunblaðið - 09.03.2012, Side 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Forystumenn Kaupþings töldu sig hafa fundið
leið til að koma bankanum í var snemma árs
2008 en þegar stjórnvöld settu neyðarlögin
varð það bankanum um megn og hann fór í
þrot þrátt fyrir um margt góða eiginfjárstöðu.
Á þennan veg má draga saman sýn Hreiðars
Más Sigurðssonar, fv. forstjóra Kaupþings, á
stöðu bankans á árinu 2008 er hann svaraði
spurningum við skýrslugjöf í málinu á hendur
Geir H. Haarde fyrir Landsdómi í gær.
Meðal ákæruatriða á hendur Geir er meint
vanræksla við að grípa til aðgerða til að
minnka bankakerfið og snerist fyrsti hluti
spurninga Helga Magnúsar Gunnarssonar
varasaksóknara um aðdragandann að falli
Kaupþings og hvort Hreiðar Már mæti það svo
að svigrúm hefði verið til að minnka umsvifin
og flytja hluta starfseminnar úr landi.
Undirbjuggu flutning bankans
Hreiðar Már rifjaði þá upp hraðan vöxt
bankans og hvernig hann hefði tvöfaldað efna-
hagsreikninginn á árunum þegar hann tók yfir
FIH í Danmörku og Singer & Friedlander í
Bretlandi. „Sjónarmið okkar var að við mynd-
um eflast og styrkjast með því að vaxa, að vera
ekki háð litla Íslandi. Ég held að þessu hafi al-
mennt verið vel tekið af stjórnvöldum,“ sagði
Hreiðar Már og lýsti því hvernig ástandið á
mörkuðum hefði svo tekið að versna 2007.
Bankinn hefði brugðist við því með því að
draga úr útlánum á 3. og 4. fjórðungi sama
árs og með því að hefja söfnun innlána á
Kaupthing Edge reikninga erlendis.
Kaupþing hefði jafnframt smíðað að-
gerðaáætlun sem hann vísaði til sem „Project
Hans“, eða „Aðgerð Hans“, um flutning
starfseminnar úr landi; annars vegar
starfsemi bankans á Norðurlöndum undir
dótturbankann FIH í Danmörku og hins
vegar aðra alþjóðlega starfsemi undir
dótturbankann Singer & Friedlander.
Samhliða þessu hefði Kaupþing
smíðað aðra aðgerðaáætlun, „Project
Einar“, eða „Aðgerð Einar“, um flutn-
ing höfuðstöðva bankans til erlendrar borgar.
Sex borgir komu til greina og kom London
best út. Helgi Magnús spurði Hreiðar Má þá
hvaða áhrif „Project Hans“ hefði haft á getu ís-
lenskra stjórnvalda til að styðja við íslenska
bankakerfið í heild sinni. „Það hefði þýtt að við
hefðum fært eignir úr móðurfélaginu. Og með
þeim hætti hefði móðurfélagið staðið í skilum
við sínar skuldabréfaeigendur og móðurfélagið
minnkað,“ sagði Hreiðar Már.
Hefðu átt að flytja fyrr
Helgi Magnús setti áformin í samhengi við
slæmar horfur á mörkuðum og spurði hvers
vegna undirbúningur að þessum flutningi hefði
ekki hafist fyrr. „Við hefðum átt að byrja fyrr.
Það er alveg ljóst,“ sagði Hreiðar Már.
Spurði Helgi Magnús þá hvort Hreiðar Már
liti svo á að erlend fjármálaeftirlit hefðu sam-
þykkt flutninginn og bætti því svo við hvort
ekkert í eignasafninu hefði komið í veg fyrir
slíka tilfærslu, þ.e. hvort í eignasafninu hefðu
verið lakar eignir sem hefðu stöðvað áformin.
Vísaði Hreiðar Már síðari hluta spurningar-
innar afdráttarlaust á bug og lýsti því yfir að
hann teldi fullvíst að fjármálaeftirlitin í Dan-
mörku og Bretlandi hefðu fallist á áformin.
Hreiðar Már hækkaði svo róminn og sagði
sér „blöskra“ vitnisburðir þeirra Davíðs Odds-
sonar, fv. seðlabankastjóra og ritstjóra
Morgunblaðsins, og Arnórs Sighvatssonar, fv.
aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands. Sú
greining þeirra að bankakerfið hefði rambað á
barmi þrots talsvert fyrir hrun ætti ekki við
þegar Kaupþing væri annars vegar. Til marks
um sterka eiginfjárstöðu bankans væri að tek-
ist hefði að greiða 80% af kröfum til kröfuhafa.
„[Þ]að eru ekki margir alþjóðlegir bankar
sem hefðu gert það... að vitna til Kaupþings
sem vonds banka er rangt,“ sagði Hreiðar Már
ákveðinn og kom bankanum til varnar.
Hann rökstuddi svo mál sitt frekar með því
að fullyrða að neyðarlögin hefðu stefnt Kaup-
þingi í þrot þrátt fyrir góða eiginfjárstöðu,
enda hefði starfseminni verið sjálfhætt með
mismunum kröfuhafa í lögunum. „Við töldum
okkur vera búnir að finna leiðina fyrir Kaup-
þing út úr þessari krísu,“ sagði hann.
Fullyrðir að Kaupþing hefði staðist
kröfur fjármálaeftirlits annarra ríkja
Fv. forstjóri Kaupþings vísar því á bug að eignasafnið hafi verið of veikt fyrir flutning bankans
Morgunblaðið/Kristinn
Fyrir Landsdómi Hreiðar Már Sigurðsson hafnaði því að Kaupþing hefði staðið á brauðfótum.
„Eftir að ég kom í bankann var það mín
skoðun að draga þyrfti úr kostnaði við
rekstur bankans,“ sagði Þorsteinn Már
Baldvinsson, fv. stjórnarformaður Glitn-
is, í vitnaleiðslu fyrir Landsdómi í gær og
tiltók hvernig gripið hefði verið
til uppsagna og unnið að undir-
búningi að sölu eigna.
Helgi Magnús Gunnarsson
varasaksóknari spurði Þor-
stein Má hvort hann hefði
orðið var við utanaðkom-
andi þrýsting um að
minnka bankann.
Sagði Þorsteinn Már þá að það hefði ekki
verið „þrýstingur frá einum eða neinum um
þau mál“ og fullyrti svo að „unnið hafi verið
að því af heilindum af stjórn bankans“ að rifa
seglin og minnka umsvifin á árinu 2008.
Helgi Magnús spurði því næst um fund
Þorsteins Más með Tryggva Þór Herberts-
syni, þáverandi efnahagsráðgjafa Geirs H.
Haarde forsætisráðherra. Kvaðst Þorsteinn
Már þá muna eftir fundinum sem Björgólfur
Guðmundsson hefði einnig setið. Rætt hefði
verið um að kostnaður við íslenska banka-
kerfið hefði verið of hár en Landsbankamenn
tekið fálega í hugmyndir um sameiningu.
Unnu að því að minnka bankann
SKÝRSLA FYRRVERANDI STJÓRNARFORMANNS GLITNIS
Þorsteinn Már
Baldvinsson
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturj@mbl.is
Fram kom í máli Jónínu S. Lárus-
dóttur, fyrrverandi ráðuneytis-
stjóra viðskiptaráðuneytisins, fyrir
Landsdómi í gær að hún hefði orðið
fyrir áfalli vegna stöðu fjármála-
kerfisins þegar hún kom aftur til
starfa í ágúst 2008 að loknu fæðing-
arorlofi. Hún hafði þá verið frá
störfum frá því í desember árið á
undan. Staðan hefði þá verið orðin
mun verri en hún hefði gert sér í
hugarlund.
Jónína átti sæti í samráðshópnum
sem myndaður hafði verið vegna
stöðunnar í fjármálalífinu en hún
sat hins vegar aðeins einn fund í
hópnum áður en hún fór í leyfi. Hún
sagðist ekki alltaf hafa verið sátt við
það hvernig vinnunni í hópnum var
stjórnað en það hefði þó ekki verið
vegna skorts á pólitískri stefnumót-
un. Allir í hópnum hefðu engu að
síður verið að vinna af heilindum að
hennar mati.
Ráðherrann upplýstur
Jónína sagði að engin viðbúnaðar-
áætlun hefði verið til á pappír en
undirbúningsvinnan í samráðs-
hópnum hefði þýtt að nægar upplýs-
ingar lágu fyrir þegar bankahrunið
varð til þess að leggja mat á stöð-
una. Hún sagði neyðarlögin hafa
verið endanlega tilbúin helgina fyr-
ir hrun en þau hafi byggst á vinnu
nokkurra hópa. Þá sagðist hún hafa
haldið Björgvini G. Sigurðssyni, þá-
verandi viðskiptaráðherra og yfir-
manni sínum, upplýstum um stöð-
una innan samráðshópsins.
Ennfremur sagðist hún ekki hafa
talið valdheimildir til annars en að
beita bankana þrýstingi.
Guðjón Rúnarsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka fjármálafyrirtækja,
sagðist aðspurður fyrir Landsdómi
ekki kannast við að þrýstingur hefði
verið frá stjórnvöldum um að
minnka umfang bankanna en á hinn
bóginn hefðu slíkar hugmyndir ekki
komið inn á borð samtakanna.
Hefðu stjórnvöld viljað minnka um-
fang bankanna hefðu þau væntan-
lega talað beint við forsvarsmenn
þeirra.
Guðjón sagði umfjöllun um bank-
ana hafa verið mjög neikvæða. Þá
ekki síst af hálfu keppinauta þeirra
erlendis.
Norræn samvinna kom sér vel
Samkvæmt framburði Rúnars
Guðmundssonar, sviðsstjóra vá-
tryggingasviðs Fjármálaeftirlitsins,
skipti þátttaka stofnunarinnar í nor-
rænni viðbúnaðaráætlun á árunum
2006-2007 sköpum þegar hrunið
varð. Settar voru á svið ýmsar að-
stæður sem gætu komið upp og kom
ýmislegt í ljós við það sem betur
mætti fara. Þessar æfingar voru
hins vegar ekki kláraðar en það
mundi hafa komið sér vel.
Þá sagði hann að skrifleg við-
bragðsáætlun hefði ekki legið fyrir
þegar hrunið skall á en stjórnvöld
hefðu engu að síður verið vel undir-
búin. Vikuna fyrir hrun hefði verið
farið yfir það hvað stjórnvöld gætu
gert ef sú staða kæmi upp að bank-
arnir gætu ekki fjármagnað sig.
Sagðist hann telja að stofnanirnar
sem komu að þeirri vinnu að setja
saman neyðarlögin hefðu lyft grett-
istaki.
Stjórnvöld vel búin und-
ir að takast á við hrunið
Neyðarlögin voru endanlega tilbúin helgina fyrir hrun
Morgunblaðið/Kristinn
Dómsmál Jónína S. Lárusdóttir,
fyrrverandi ráðuneytisstjóri.
DÓMSORÐ
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Ekki er örgrannt um, svo notað sé
hátíðlegt orðalag Jóns Sigurðssonar,
fyrrverandi stjórnarformanns FME,
fyrir Landsdómi í fyrradag, að lít-
illátum blaðamanni verði svolítið
hverft við þegar gengið er upp stig-
ann í Þjóðmenningarhúsinu að
morgni og beint í flasið á þvögu ljós-
myndara og tökumanna sem bíða
með vélarnar á lofti. Ljósmyndarinn
Ragnar Axelsson stenst ekki mátið,
smellir af og segir: „Ævilangt!“
Það er annar geimur fyrir utan
réttarsalinn, þar heilsa ljósmyndarar
vitnum með ljósabaði. Á hverjum
morgni gengur Geir H. Haarde í
gegnum steypibaðið eins og saksókn-
arinn og verjandinn. „Þið myndið og
myndið. Er þetta ekki alltaf sama
myndin?“ spyr hann brosandi. Þegar
dyrnar lokast sitja ljósmyndararnir
uppi hver með annan. Það hefur sjálf-
sagt ekki verið að tilefnislausu að
blaðamaður heyrði dómvörðinn
segja: „Þetta kalla ég nú gúrkutíð.
Eruð bara að taka myndir hver af
öðrum!“
Spennan vex í húsinu þegar von er
á þekktum vitnum. Það er eins og
andrúmsloftið þéttist. Þannig var það
þegar Hreiðar Már Sigurðsson, fyrr-
verandi forstjóri Kaupþings, bar vitni
í gær. Og þarf engan að undra þegar
litið er til vitnisburðar Jónasar Fr.
Jónssonar, fyrrverandi forstjóra
FME, um morguninn, sem tók undir
það með verjandanum að lengi vel
hefði verið óvinsælt á Íslandi að
gagnrýna bankana og stjórnendur
þeirra. „Þeir voru eins og kvikmynda-
stjörnur,“ sagði Jónas.
Þegar Hreiðar gekk í salinn hafði
hann vissulega fylgdarlið, eins og
kvikmyndastjörnur í útlandinu, nema
í hans tilviki voru það starfsmenn sér-
staks saksóknara sem fylgdu í kjöl-
farið og hurfu snarlega á braut eftir
vitnisburðinn. Hreiðar er öllu vanur,
sýndi engin svipbrigði frammi fyrir
ljósmyndurunum, og fór síðan út bak-
dyramegin. Þar mætti hann raunar
tökuliði Stöðvar 2 á harðahlaupum.
Allt eftir formúlunni.
Smám saman myndast nánari og
um leið léttari stemmning meðal
þeirra sem fylgjast með réttarhöld-
unum á degi hverjum. Kannski af því
umræðan er svo fjarri því sem tíðkast
í sakamálum. Og nær ómögulegt að
ráða í það af vitnaleiðslunum hver
hinn alvarlegi glæpur á að hafa verið
eða hvenær hann var framinn. En
vitnaleiðslurnar eru þrátt fyrir það
greinargóðar og skýra atburðarásina
árið 2008. „Þetta er allavega góð
frétt,“ sagði einn blaðamanna í gær.
„Nú eru neyðarlögin sú Lilja sem
allir vildu kveðið hafa,“ sagði Jónína
S. Lárusdóttir, fyrrverandi ráðuneyt-
isstjóri viðskiptaráðuneytisins, í gær,
og þakkaði þau vinnu samráðshóps
stjórnvalda um fjármálastöðugleika,
sem hún átti sæti í. Þannig er vitnað í
höfuðrit þjóðarinnar í gamla lestr-
arsalnum á Landsbókasafninu.
„Þetta er allavega
góð frétt“