Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012 ✝ Guðjón Sig-urjón Ólason fæddist í Teiga- gerði við Reyðar- fjörð hinn 27. júní 1923. Hann lést á Uppsölum, Fá- skrúðsfirði, 28. febrúar 2012. Son- ur hjónanna Óla Sigurðar Bjarna- sonar, f. 9.12. 1896, d. 15.7. 1929, og Hólmfríðar Kristínar Nikulás- dóttur, f. 3.10. 1896, d. 27.10. 1981. Systkini hans voru Ingvar Ísfeld Ólason, f. 13.11. 1918, d. 22.6. 1983, Bjarni Nikulásson Ólason, f. 29.8. 1924, d. 3.6. 1957, Þuríður Óladóttir, f. 23.4. 1926, d. 26.4. 1943, Sigmar Ólason, f. 12.10. 1927, og Sjöfn Krist- ínardóttir, f. 17.5. 1937. Á annan dag jóla 1948 kvænt- ist Sigurjón Sigríði Eyjólfsdóttur frá Bárðarstöðum í Loðmund- Sigurjón starfaði lengst af sem verkstjóri hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði. Þar hóf hann störf 1953 og starfaði með hléum þar til hann fór á eftirlaun árið 1996. Þar áður vann hann ýmis verka- mannastörf á sjó og landi. Árið 1946 fór hann til Reykjavíkur og tók meirapróf. Í kjölfarið starfaði hann sem leigubílstjóri í Reykja- vík allt þar til hann fór aftur á Reyðarfjörð árið 1948 og starfaði þá við bílaviðgerðir hjá Kaup- félagi Héraðsbúa. Á árunum 1966- 1969 starfaði hann sem sveit- arstjóri Reyðarfjarðarhrepps og verkstjóri hjá Síldarverksmiðjum ríkisins 1970-1976. Í aldarfjórð- ung var Sigurjón meðhjálpari við Reyðarfjarðarkirkju. Síðustu misseri ævi sinnar dvaldi hann á hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði. Útför Sigurjóns fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju í dag, 9. mars 2012, og hefst athöfnin kl. 14. arfirði, f. 28. desember 1924. Foreldrar henn- ar voru Eyjólfur Bene- dikt Jónsson, f. 9.1. 1896, d. 20.3. 1963, og Þórstína Snjólfsdóttir, f. 4.9. 1984, d. 13.6. 1964. Sigurjón og Sig- ríður eignuðust fjögur börn. Þau eru: Rúnar Viðar, f. 19.6. 1949. Hann er kvæntur Jór- unni Sigurbjörns- dóttur, f. 26.8. 1952. Þau eiga þrjú börn og átta barnabörn. Hilmar Smári, f. 9.10. 1951. Hann er kvæntur Halldóru Baldursdóttur, f. 22.12. 1952. Þau eiga þrjú börn og fjögur barnabörn. Eygló Krist- ín, f. 1.9. 1953. Hún á eina dóttur og tvö barnabörn. Þórstína Hlín, f. 27.6. 1964. Sambýlismaður hennar er Ingvi Rafn Guðmunds- son, f. 22.11. 1963. Hún var áður gift Jóni Gunnarssyni, f. 28.2. 1966, og eiga þau fjóra syni. Elskulegur tengdafaðir og faðir er látinn eftir nokkuð erfiða sjúkralegu. Eftir sitja minningar um léttlyndan, lífsglaðan mann. Í öllum samskiptum okkar var glettnin í fyrirrúmi og tilsvörin á hraðbergi, snögg og létt og svip- urinn sposkur, sem náði allt til augnanna. Síðustu misserin fjarlægðist hann okkur en alltaf þegar við heimsóttum hann var hann glaður að sjá okkur og þakkaði kærlega fyrir komuna að heimsókn lokinni. Það rifjast upp einstakar sam- verustundir eins og við uppvaskið í jólaboðunum á Heiðarvegi 2, en það var á hans ábyrgð í áraraðir og ekki var slegið slöku við. Við minnumst heimsókna hans þar sem kaffibolli var þeginn og lögð á ráðin um sjóferð með lín- ustubb eða færi. Þegar við hjónin fylgdum hon- um til London í hjartaaðgerð var undravert að fylgjast með batan- um. Strax á fyrsta degi skellti hann sér í stigann fræga á spít- alanum og vakti það sérstaka undrun starfsfólks hve fljótt hann fjölgaði ferðunum. Líklega var það einmitt sú ákefð hans sem stjórnaði því hve vel gekk í end- urhæfingunni. Í mörg ár á eftir var hann sígangandi, inn í land og út á Haga svo lengi sem heilsan leyfði. Á langri ævi hefur ýmislegt drifið á dagana. Sumt þekkjum við en annað ekki. Við vitum að hann þurfti stöðugt að hafa verk að vinna. Þegar vinnunni á Vega- gerðinni lauk var nóg að dunda við í bílskúrnum. Þar þurfti að dytta að bílnum og bátnum eða verka þann fisk sem svo kappsamlega var aflað á litlu skektunni. En vænst þótti honum um starf það sem hann vann fyrir kirkjuna sína, þar sem hann var meðhjálp- ari svo lengi. En að langri vegferð lokinni trúum við að hann sé hvíldinni feg- inn. Á sama hátt og sólin baðaði fjörðinn, sem honum þótti svo endalaust vænt um, hans síðasta dag, trúum við að slík birta um- vefji hann þar sem hann er núna. Við þökkum fyrir að hafa átt þig að og biðjum góðan guð að styrkja mömmu í sorg hennar. Halldóra og Hilmar. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðm- lagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez) Í dag kveð ég besta mann sem ég hef þekkt um ævina, afa minn. Þú varst þúsundþjalasmiður og afastelpu þótti þú vera ofurhetja, geta allt og kunna allt. Aldrei þurfti ég að panta tíma hjá þér. Þú hafðir alltaf lausa stund til að spjalla, þó svo það væri brjálað að gera hjá þér. Þú leyfðir mér að þvælast með þér þegar þú varst að stússa í garðinum, bílskúrnum eða að und- irbúa kirkjuna fyrir messu og lést blaðrið eða sönglið í mér aldrei fara í taugarnar á þér. Þú kenndir mér að reima skóna mína, keyra bíl, að veiða fisk og svo ótal, ótal margt. Þú tókst mig oft með þér þegar þú fórst á sjó að veiða í soðið og mér leið eins og ég væri mikilvæg- asta manneskja í heimi þegar þú tilkynntir mér að ég væri aflakló og þú myndir ekki veiða neitt ef ég væri ekki með. Þú varst snillingur að stappa í mig stálinu og róaðir mig alltaf þegar ég var að fara yfir um af prófkvíða í skóla og var viss um að ég myndi falla. „Þú gerir bara eins vel og þú getur elskan mín, þetta verður allt í lagi, þú getur þetta al- veg,“ sagðir þú alltaf. Og auðvitað hafði afi rétt fyrir sér. Ein notalegasta minningin frá því þegar ég var lítil er þegar allir fóru heim í hádeginu úr vinnunni. Þú, amma, mamma og Stína og svo auðvitað ég af leikskólanum, allir borðuðu matinn saman og síð- an lögðum við afi okkur í sófanum og hlustuðum á fréttirnar og veðr- ið. Þá var aldrei neinn að flýta sér og hádegið var heil eilífð. Þú spjallaðir stundum við mig um dauðann og sagðir við mig: „Það eina sem við vitum að gerist í þessu lífi er að við deyjum. Það er bara gangur lífsins, elskan mín.“ Ég fór þá alltaf að væla og þú sagðir að það væri til lítils að skæla, lífið væri bara svona. Nú er kominn tími til að kveðja þig, elsku afi. Þú varst einstakur maður og pabbalaust stelpuskott var lánsamt að hafa átt þig að þeg- ar það var að alast upp. Ég vildi óska að öll börn gætu upplifað það að eiga svona afa eins og þú varst. Þúsund þakkir fyrir allt. Hvíldu í friði. Hlín afastelpa. Elsku afi minn. Á erfiðum tímum koma upp í hugann ótal minningar. Ég hef ekki verið þekktur fyrir að muna margt frá því ég var lítill en samt man ég ótrúlegustu hluti sem tengjast þér. Þú kallaðir mig aldr- ei annað en „nafni minn“, fyrir þér var ég aldrei Sigurjón eða Sjonni, ég var alltaf „nafni þinn“. Eitt af því sem er mér mjög minnisstætt varðandi jólin í æsku eru jólagjaf- irnar sem við gáfum hvor öðrum. Það var alltaf ein undir trénu okk- ar „til nafna frá afa“ og önnur und- ir ykkar tré sem ég hafði pakkað inn og merkt „til afa frá nafna“. Ein af fyrstu minningunum er frá því ég var átta ára og kom heim með gullpening af Austurlands- móti í fótbolta. Ég man hvað ég var spenntur að sýna afa pening- inn. Þegar þú komst og ég sýndi þér hann stoltur, þá sagðir þú að þetta yrði sko alveg örugglega ekki sá síðasti. Í hvert skipti sem bættist í safnið þá hugsaði ég um þessi orð þín. Annað atvik frá því ég var um átta ára var þegar þú hringdir og sagðir að ég þyrfti að kíkja til ykkar ömmu niður á Heið- arveg. Þegar ég mætti þá beið mín standandi á stéttinni rautt og glansandi þriggja gíra hjól, ég var ekki lítið ánægður með fyrsta gírahjólið mitt og það var sko frá afa. Þér leið sennilega hvergi betur afi minn en úti á firði á litla ára- bátnum þínum að veiða þorsk á handfæri og ekki skemmdi fyrir ef það slæddist ein og ein ýsa með. Ég man ekki hvað ég var gamall þegar ég fór að fara með þér en ég var ekki mjög hár í loftinu og það voru ófá skiptin sem við nafnarnir sátum saman að skaki. Hvorugur okkar er þekktur fyrir að tala of mikið og því voru þessar stundir ekki alltaf stundir margra orða. Það var líka óþarfi því okkur leið báðum vel, í góðu veðri úti á fal- lega firðinum okkar, í góðum fé- lagsskap. Ein sjóferð er mér sér- staklega minnisstæð. Þá vorum við að vitja um grásleppunet þeg- ar skyndilega fór að hvessa. Við drifum okkur af stað í land en á leiðinni drapst á mótornum og þú þurftir að róa undan veðrinu, upp í fjöru sunnan við fjörðinn. Þar var pabbi mættur til að sækja okkur því að frést hafði að við værum í vandræðum. Það var ekki nóg með að þú færir á sjó og veiddir mikið, heldur verkaðir þú allan aflann í bílskúrnum, saltaðir og sólþurrkaðir. Mjög oft þegar ég kom til ykkar ömmu þá varst þú í bílskúrnum í saltfiskverkun eða úti að raða honum á grindur. Ég held að ekki sé hægt að finna þann einstakling sem er meiri Reyðfirðingur en þú afi minn, þér þótti svo vænt um fjörð- inn þinn og byggðina. Sem betur fer náðir þú að verða vitni að upp- byggingunni á svæðinu, áður en heilsan fór að gefa sig. Það leyndi sér ekki hversu erfitt það var fyrir þig þegar þú gast ekki lengur farið á sjóinn, tekið rúntinn þinn út að álveri og ekki lengur tekið fullan þátt í samræðum vegna þess hve heyrnin var orðin slæm. Þú hefur nú fengið hvíldina elsku afi minn og held ég að þú sért henni dálítið feginn. Ég sakna þín meira en orð fá lýst en minn- ingarnar lifa og trúin á að þú sért á góðum stað og þér líði nú betur, léttir söknuðinn. Takk fyrir allt. Meira: mbl.is/minningar Sigurjón „nafni þinn“. Hver endurminning er svo hlý að yljar köldu hjarta, hver saga forn er saga ný um sólskinsdaga bjarta. (Einar E. Sæmundsson.) Núna þegar ég kveð afa minn streyma fram ótal minningar. Minningar um afa sem var og afa sem alltaf verður vegna okkar sem munum hann. Í gegnum minningarnar kynnist maður hon- um upp á nýtt og man manninn sem gerði æsku okkar og líf ríkara vegna þess hvernig hann var. Þol- inmóður, glaðlyndur, vandvirkur, iðinn, glettinn, hlýr. Hinn full- komni maður í augum þeirra sem áttu hann að. Tvö orð koma öðrum fremur í hugann núna þegar afi hefur feng- ið hvíldina sem hann beið svo lengi eftir. Annað þeirra er þakklæti. Þakklæti fyrir allar stundirnar sem við áttum bæði tveir saman og ekki síður þær sem við deildum með ömmu eða allri stórfjölskyld- unni. Þakklæti fyrir allt sem hann gerði fyrir mig. Þakklæti fyrir að fá að eiga fyrirmynd eins og hann. Hitt orðið er stolt. Frá því ég fyrst man eftir mér hef ég verið stoltur af því að eiga hann að afa. Stoltur vegna þess hvernig hann var. Stoltur vegna þess hvernig hann spilaði úr lífi sínu. Og ekki síst. Stoltur vegna þess hvernig talað var um hann af þeim sem þekktu hann og störfuðu með hon- um, hvort sem það var í starfi eða í félagsstörfum. Óafvitandi hef ég á svo margan hátt fetað veginn hans. Ég hef alla tíð verið talsvert mikið í samskipt- um við afa og ömmu. Sótti þangað í ró og frið frá fjörugum yngri bræðrum. Þau gáfu mér trúna og afi hjálpaði mér að rækta hana. Ef ég óskaði eftir því fékk ég að fylgja honum til messu, en hann var meðhjálpari við Reyðarfjarð- arkirkju í aldarfjórðung. Þar sat ég við hliðina á honum við endann á þriðja bekk til hægri. Eftir messuna fékk ég síðan það verk- efni að taka saman sálmabækurn- ar meðan afi slökkti á kertunum og gætti þess að allt væri í röð og reglu. Á eftir fórum við svo heim til ömmu og drukkum þar sunnu- dagskaffið. Með þessu gaf hann litlum dreng tækifæri til að rækta með sér trú. Það verður aldrei fullþakkað. En afi var svo margt fleira. Hann var líka afi sem tók mann með í sendiferðir fyrir ömmu, afi sem hændi að sér smáfugla svo garðurinn fylltist þegar hann gaf þeim brauðmola, afi sem kenndi manni að umgangast íslenska fán- ann, afi sem gerði að fiski í bíl- skúrnum, afi sem rökræddi við há- degisfréttirnar í útvarpinu, afi sem gerði matnum sínum svo góð skil að varla þurfti að vaska upp diskinn hans, afi sem bauð litlum strák með sér á sjó svo honum fannst hann allur stærri á meðan. Við höfum fengið að njóta sam- vista við afa í langan tíma. Nú er hins vegar komið að því að sleppa af honum hendinni því ferðalagið á betri stað sem hefur lengi verið í undirbúningi hefst nú fyrir alvöru. Á þeim tímamótum getum við sem eftir stöndum ekki annað en þakk- að allt sem afi hefur verið okkur og ekki síður það fordæmi sem hann skilur eftir sig. Hans veg getur hver sem er verið stoltur að feta. Guð blessi minningu hans og gefi honum frið. Gunnar Ragnar Jónsson. Guðjón Sigurjón Ólason  Fleiri minningargreinar um Guðjón Sigurjón Óla- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Ástkæri maðurinn minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, tengdasonur og bróðir, MAGNÚS INGVAR ÁGÚSTSSON, Hrísrima 31, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 4. mars. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 12. mars kl. 15.00. Hjördís Hafsteinsdóttir, Berglind Magnúsdóttir, Heimir Jónasson, Auður Magnúsdóttir, Ágúst Magnússon, Áslaug María Sigurbjargardóttir, Stella Sveinbjörnsdóttir, barnabörn og systkini. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GRÉTA HALLDÓRS, Bakkahlíð 39, Akureyri, lést á heimili sínu laugardaginn 3. mars. Helga Sigríður Kristjánsdóttir, Jón Þór Guðjónsson, Árni V. Kristjánsson, Ragnheiður Skúladóttir, Sverrir Þór Kristjánsson, Guðrún Hörn Stefánsdóttir, Margrét Jónína Kristjánsdóttir, Páll Pálsson, Kristján Ísak Kristjánsson, Sigríður G. Pálmadóttir, Gunnar Freyr Kristjánsson, Margrét Dögg Bjarnadóttir, Elín Íslaug Kristjánsdóttir, Kristinn Ágúst Ingólfsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EMILÍA BENEDIKTA HELGADÓTTIR frá Felli í Breiðdal, sem lést á heimili sínu að Seljahlíð í Reykja- vík föstudaginn 2. mars, verður jarðsungin frá kirkju Óháða safnaðarins í dag, föstu- daginn 9. mars kl. 13.00. Helgi Guðmundsson, Anný Helgadóttir, Esther Sigurðardóttir, Ásgrímur Guðmundsson, Svava Jakobsdóttir, Guðrún Björg Guðmundsdóttir, Gísli Sváfnisson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG KRISTBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR, andaðist á Landspítala Landakoti þriðju- daginn 6. mars. Guðlaug verður jarðsungin frá Eskifjarðar- kirkju laugardaginn 17. mars kl. 14.00. Við færum sérstakar þakkir til starfsfólks Landakots fyrir einstaka umönnun og hlýju. Björk Aðalsteinsdóttir, Þorsteinn Kristjánsson, Kristinn Aðalsteinsson, Hrafnhildur Hrafnkelsdóttir, Elfar Aðalsteins, Anna María Pitt, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Neðstaleiti 6, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þriðjudaginn 6. mars. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 14. mars kl. 15.00. Sigurður Viggó Grétarsson, Erna Björnsdóttir, Árni Grétarsson, Lene Salling, Bjarni Grétarsson, Gróa Ingibjörg Grétarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sonur minn, bróðir okkar og mágur, THEODÓR ÁRNI EMANÚELSSON, Grundarbraut 18, Ólafsvík, lést af slysförum föstudaginn 2. mars á heimili sínu. Útförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugar- daginn 10. mars kl. 14.00. Jarðsett verður á Búðum. Emanúel Ragnarsson, Magnús Guðni Emanúelsson, Lára Hallveig Lárusdóttir, Unnur Emanúelsdóttir og systkinabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.