Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012
VIÐTAL
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Hrognavertíð á Akranesi eykur annir hjá
Ingveldi Guðmundsdóttur, sauðfjárbónda í
Stórholti í Saurbæ og oddvita í sveitarstjórn
Dalabyggðar. Hvernig þá? mætti spyrja. Jú,
ástæðan er sú að Arnar Eysteinsson, bóndi
hennar, heldur þá ásamt flokki Dalamanna til
vinnu á Skaganum þar sem unnið er meðan
þarf að vinna í 3-4 vikur.
Á meðan sinnir Ingveldur ein börnunum og
búinu, auk þess að vera í starfi á heilsugæsl-
unni í Búðardal og leiða störfin í sveitarstjórn.
„Það er sannarlega nóg að gera þessar vik-
ur, en mér finnst gaman að hafa nóg að gera,“
segir Ingveldur. Suma dagana er hún komin í
húsin, þar sem eru um 600 fjár, fyrir klukkan
sex á morgnana og það kemur fyrir að hún líti
til kindanna um eða eftir miðnætti. „Ég viður-
kenni að saumaklúbbar og sjónvarpsgláp kom-
ast ekki að þessa dagana, prjónaskapurinn bíð-
ur betri tíma og venjuleg félagsstörf eru í lág-
marki.“
Grípa vinnuna á
Akranesi feginshendi
Fastur kjarni Dalamanna hefur í rúman
áratug farið til vinnu við frystingu loðnu-
hrogna hjá HB Granda á Akranesi á hverjum
vetri. Arnar heldur utan um þennan hóp og
Ingveldur segist aðstoða hann við að skipu-
leggja vaktir og halda utan um tímafjölda. Þá
sé gott að geta haft samskipti á netinu og unn-
ið á tölvunni.
Unglingar úr Dölum, Borgarfirði og Snæ-
fellsnesi sem sóttu nám í Fjölbrautaskólanum
á Akranesi hafa gjarnan fengið nokkrar vaktir
í törninni. Nú eru mörg þessara ungmenna
komin á þrítugsaldur og sum hafa lokið há-
skólanámi, en grípa vinnuna á Akranesi feg-
inshendi og taka þátt í törninni á Akranesi.
Þeirra á meðal eru eldri börn Ingveldar og
Arnars, þau Kristján Ingi og Ásdís Helga.
„Þarna er unnið allan sólarhringinn ef því er
að skipta, en svo koma brælur og þá getur
fólkið stundum slakað á,“ segir Ingveldur.
„Þetta er ekki ósvipað og var í gamla daga
þegar fólk fór á vertíðir fjórðunga á milli. Það
geta allir notað peningana sem svona vinna
gefur af sér.“
Í humátt á eftir skólabílnum
Dagurinn hjá Ingveldi í Stórholti byrjar oft
á því að hún kemur við í fjárhúsunum, en síðan
er að gera synina tvo klára í skólabílinn. Þeir
Steinþór Logi og Albert Hugi eru átta og
þrettán ára gamlir og eru sóttir upp úr klukk-
an hálfátta. Grunnskólinn er núna í Búðardal
og þangað eru um 40 kílómetrar frá Stórholti.
Ingveldur keyrir nokkru síðar í humátt á eftir
þeim og er komin til vinnu á heilsugæslunni
klukkan 9 og vinnur þar til klukkan 16.
„Oddvitastörfunum sinni ég á milli, stundum
hleyp ég yfir á skrifstofu sveitarfélagsins og
hádegin geta verið drjúg,“ segir Ingveldur. „Í
þessu eins og öðru er mismikið að gera og þeg-
ar um ákveðna fundi er að ræða er hægt að
skipuleggja sig. Stundum kem ég þó ekki heim
fyrr en um kvöldmat og þá hef ég verið í síma-
sambandi við strákana og svo er ekki langt á
milli bæja. Þá er eftir að sinna heimilinu og líta
í fjárhúsin, en gjafagrindur sem við erum með
auðvelda störfin þar.“
Reikna má með að loðnuvertíð ljúki eftir
viku til tíu daga og þá bíða Arnars ýmis verk-
efni heima í Stórholti. Auk þess að gera upp
loðnutörnina þarf að rýja féð og svo styttist í
sauðburð þannig að hvert verkefnið rekur ann-
að hjá þeim hjónum.
Átta nýir Dalamenn
Hún segir að mannfjöldi hafi nokkurn veg-
inn staðið í stað í Dalabyggð síðustu ár, en þar
búa um 700 manns.
„Hér eins og annars staðar í sveitum lands-
ins mætti vera meira af ungu fólki, en það er
einstakt gleðiefni að útlit er fyrir fjölgun og að
fyrir mitt þetta ár hafi átta Dalabörn fæðst hér
á árinu,“ segir Ingveldur.
Oddvitinn á hlaupum
Morgunblaðið/RAX
Á Akranesi Arnar í Stórholti leiðir vaskan hóp fólks úr Dölum, Borgarfirði og af Snæfellsnesi.
Sem oddviti þarf
Ingveldur að fjalla um
ýmis mál sveitarfé-
lagsins og oddvita-
starfið kallar auk
þess á margvíslegar
nefndarsetur. Þar er
uppbygging búnaðar-
skólans í Ólafsdal ofar-
lega í huga hennar.
Ingveldur segir verkefnin í Dalabyggð
sjálfsagt svipuð og hjá öðrum sveitar-
félögum, en nefnir samgöngumál sér-
staklega. „Við höfum lengi barist fyrir
betri vegum um Laxárdalsheiði og betri
tengingu við Snæfellsnes um Skógar-
strönd og eins þyrfti að lagfæra vegi
innan sveitarfélagsins. Hér er gífurlegur
skólaakstur og ekki færri en átta skóla-
bílar sem koma að því verkefni.“
Átta skólabílar
á ferðinni
MARGVÍSLEG VERKEFNI
Bóndinn í Stórholti sinnir mörgum verkefnum meðan eiginmaðurinn er á vertíð á Akranesi
Saumaklúbbar og sjónvarpsgláp komast ekki að þessa dagana og prjónaskapur bíður betri tíma
Bóndinn Ingveldur Guðmundsdóttir bregður sér í mörg hlutverk og segist hafa gaman af því að hafa nóg að gera.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Flest loðnuskipin eiga eftir tvo eða
þrjá túra til að ná kvótanum á vertíð-
inni. Nokkur þeirra eru reyndar bú-
in, en sum eru að veiða fyrir aðra.
Loðnan sem var í fremsta flekknum í
Breiðafirði er komin að hrygningu
og eitthvað af henni hefur þegar
hrygnt. Önnur dæmi eru um að loðn-
an eigi nokkra daga eftir í hrygningu
og bendir það til að loðna sé enn að
ganga fyrir Reykjanes og norður
fyrir Snæfellsnes.
Vegna veðurs hafa ekki verið að-
stæður til að kanna göngur inn í
Faxaflóa síðustu daga. Í fyrrinótt
hélt Faxi af miðunum í Breiðafirði
með loðnufarm til Akraness og var
skipið um ellefu tíma á leiðinni í
haugasjó. Ekkert útlit er fyrir að
veður sé að breytast og hafði einn
viðmælandi á orði í gær að veðurspá-
in þessa dagana gerði ekki annað en
kalla fram þunglyndi.
Grétar Rögnvarsson, skipstjóri á
Jóni Kjartanssyni SU, sagði í gær að
skip Eskju ættu eftir að landa tvisv-
ar á Eskifirði til að ná kvótanum.
Hann segir að veður hafi verið
þokkalegt í janúar þegar loðnan var
fyrir norðaustan og austan land og
skipin voru á trolli. Eftir því sem
loðnan gekk lengra vestur með Suð-
urlandinu hefði veðrið hins vegar
versnað. Ekki hefur orðið vart vest-
angöngu, en á leið á miðin í Breiða-
firði á þriðjudag lagði Jón Kjartans-
son lykkju á leið sína og var svipast
um eftir loðnu í Ísafjarðardjúpi, en
hún fannst ekki.
Færeyingar aufúsugestir
Hjá HB Granda fengust þær upp-
lýsingar í gær að eftir væri að veiða
um 17 þúsund tonn af um 105 þúsund
tonna heildarkvóta fyrirtækisins.
Hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðs-
firði hefur verið landað um 25 þús-
und tonnum. Færeysk skip hafa
landað um helmingi þessa afla og
hafa Kristján í Grjótinu, Finnur
fríði, Júpíter og Þrándur í Götu verið
aufúsugestir í Fáskrúðsfirði síðustu
vikur, en öll eru skipin öflug upp-
sjávarskip. Í fyrrakvöld var búið að
vinna um eitt þúsund tonn af hrogn-
um hjá Loðnuvinnslunni og hefur
vinnslan gengið vel.
Veðurspáin kallar
fram þunglyndi
Morgunblaðið/Albert Kemp
Fáskrúðsfjörður Júpíter leggur frá bryggju eftir löndun á um tvö þúsund tonnum. Finnur fríði leggur að með um
2.200 tonn og Hoffellið, skip Loðnuvinnslunnar, bíður við bryggju með fullfermi eða um 1.400 tonn.