Morgunblaðið - 09.03.2012, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012
BAKSVIÐ
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Það var margt um manninn á At-
vinnumessu sem haldin var í Laug-
ardalshöll í gær en þar stóð atvinnu-
leitendum til boða að kynna sér
tæplega þúsund ný starfstækifæri
og hlýða á framsögur stjórnmála-
manna, sérfræðinga og framámanna
í íslensku atvinnulífi um ný tækifæri
á atvinnumarkaði.
Efnt var til atvinnumessunnar til
að kynna átakið „Vinnandi vegur“ en
það er samstarfsverkefni ríkis,
sveitarfélaga, stéttarfélaga og at-
vinnurekenda, sem miðar að því að
gera fyrirtækjum og stofnunum
kleift að ráða nýtt starfsfólk, með
því að endurgreiða þeim hluta stofn-
kostnaðarins við störfin með styrk
frá Atvinnuleysistryggingasjóði,
upp í kjarasamningsbundin laun.
„Við hófum þetta átak fyrir viku
og þá voru þau störf sem stóðu til
boða um hundrað talsins. Nú eru
þau orðin tífalt fleiri eða um eitt þús-
und og við getum ekki annað en ver-
ið ánægð með það,“ segir Runólfur
Ágústsson, stjórnarformaður At-
vinnuleysistryggingasjóðs.
Runólfur segir að enn sem komið
er hafi 200 fyrirtæki sóst eftir starfs-
fólki í 450 störf og sveitarfélögin eft-
ir sama fjölda en að auki standi á
milli 70 og 80 starfsþjálfunarpláss til
boða. Fyrirtæki geti tekið þátt í
átakinu til 31. maí og fyrirsjáanlegt
sé að störfunum eigi enn eftir að
fjölga en markmiðið er að skapa alls
1.500 störf fyrir maílok.
70% áfram á vinnumarkaði
„Okkur sýnist þetta vera þver-
skurður af atvinnulífinu,“ segir Run-
ólfur um fyrirtækin sem hyggjast
bæta við sig starfsfólki. „Fyrst voru
þetta aðallega smáfyrirtæki en svo
hafa stærri fyrirtækin verið að koma
inn núna. Það eru þarna mörg
sprotafyrirtæki, ný fyrirtæki og fólk
með hugmyndir sem sér þarna tæki-
færi til að stækka og fara af stað
með eitthvað spennandi. En svo eru
líka þarna stærri fyrirtæki í t.d.
ferðaþjónustu, upplýsingatækni og
útflutningi,“ segir hann.
Fyrirtækin munu geta fengið
styrk í allt að 12 mánuði, ráði þau
einstaklinga sem hafa verið án vinnu
í 12 mánuði eða lengur. Runólfur
segir rannsóknir hafa sýnt að ein-
staklingar sem hafa nýtt sér önnur
úrræði sem hafa byggst á svipaðri
hugmyndafræði, s.s. starfsþjálfun og
reynsluráðningar, og þannig farið út
af atvinnuleysiskrá, hafi í 70% til-
fella ekki komið aftur inn.
„Þetta er náttúrulega gríðarlega
gott en það er auðvitað markmiðið
með þessu; að koma fólki í varanlega
vinnu og út úr kerfinu,“ segir hann.
Steingrímur J. Sigfússon, efna-
hags- og viðskiptaráðherra, var
meðal þeirra sem tóku til máls á At-
vinnumessunni og sagði m.a. að eftir
3 ára erfiðleikatímabil blöstu loks
við bjartari tímar. Benti hann á
hversu mikilvægt það hefði reynst
að innviðir væru traustir; skóla- og
heilbrigðisstofnanir hefðu t.d. staðið
traustum fótum þrátt fyrir að hafa
mátt mæta talsverðum niðurskurði.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Al-
þýðusambands Íslands, sagði hag-
vöxtinn hins vegar að of miklu leyti
drifinn af einkaneyslu og að fjárfesta
þyrfti í atvinnusköpun til framtíðar.
Þá fagnaði Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, átakinu og sagði at-
vinnurekendur miklu frekar vilja
greiða fólki laun en hafa það á at-
vinnuleysisbótum. Stuðla þyrfti að
fjárfestingum til að skapa aðstæður
fyrir betri vinnumarkað og betri lífs-
kjör.
Þúsund starfa atvinnumessa
Aðstandendur átaksins Vinnandi vegur efndu til atvinnumessu í Laugardalshöll í gær Sveit-
arfélög og fyrirtæki hyggjast ráða í 1000 störf Um 70% áfram í vinnu eftir sambærileg úrræði
Morgunblaðið/Golli
Atvinnumessa Upp úr hádegi höfðu hátt í 2000 manns kynnt sér störf sem voru í boði, Vinnumálastofnun og fjórar vinnumiðlanir munu sjá um ráðningar.
Morgunblaðið/Golli
Gott framtak Fjöldi framámanna hélt framsögu í gær og höfðu margir orð
á því að átakið Vinnandi vegur væri góðra gjalda vert.
Haraldur Dean Nelson missti vinn-
una í fyrra eftir 12 ára starf hjá
Samtökum iðnaðarins. Síðan þá
hefur hann sinnt umboðsstörfum
fyrir son sinn, bardagaíþrótta-
manninn Gunnar Nelson, og starf-
að í sjálfboðavinnu, meðfram at-
vinnuleitinni. Hann mætti á
atvinnumessuna „til að halda sér
heitum“, eins og hann komst að
orði.
„Ég var forstöðumaður Samtaka
upplýsingatæknifyrirtækja og rit-
stjóri hjá SI, sá um bæði vefinn og
fréttablaðið þeirra. Og ég hef
verið að skoða þess háttar
vinnu, stjórnunarstörf og rit-
stjórastörf en hef í raun sótt
um mjög fjölbreytileg störf,“
segir Haraldur. Ekkert hafi
þó gengið.
„Það hafa oft
100 og hátt í
300 ein-
staklingar
sótt um sömu störf og ég og þeir
hljóta einfaldlega að hafa verið
hæfari. Ég hef aldrei verið í þess-
um sporum, þurft að leita mér að
vinnu, en það er fullt af hæfi-
leikaríku fólki atvinnulaust og
svona er þetta bara, maður heldur
bara áfram.“
Haraldur segir eðlilega leiðin-
legt að vera án vinnu í lengri tíma
en sá tími hafi engu að síður verið
lærdómsríkur.
„Ég held mér nokkuð ferskum
og hef ekki fundið fyrir höfnun
eða þunglyndi eins og
margir lýsa. Ég hef unnið
mikið í bardagaklúbbnum
Mjölni og verið í sjálfboða-
vinnu hér og þar og þann-
ig heldur maður sér gang-
andi. Ég er ekkert að
liggja í bælinu fram-
eftir,“ segir Har-
aldur.
Í ATVINNULEIT
„Það er fullt af hæfileikaríku
fólki atvinnulaust“
Viggó Þórir Þórisson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Verðbréfaþjón-
ustu sparisjóðanna (VSP), var
dæmdur í tveggja ára óskilorðs-
bundið fangelsi í Héraðsdómi
Reykjaness í gær. Viggó var sak-
felldur fyrir tilraun til fjársvika.
Hann var hins vegar sýknaður af
ákæru um umboðssvik.
Saksóknari hafði farið fram á fjög-
urra ára fangelsisdóm yfir Viggó og
sagði við aðalmeðferð málsins í jan-
úar að um alþjóðlega svikamyllu
hefði verið að ræða án hliðstæðu hér
á landi, sem hefði orðið til þess að
starfsemi VSP var sjálfhætt.
Lengsta farbannið hér á landi
Málið upp kom 11. apríl 2007, eftir
að forsvarsmenn VSP létu lögreglu
vita um hugsanlega refsiverða hátt-
semi framkvæmdastjóra félagsins.
Viggó var gert að sæta farbanni eftir
að málið kom upp og var því ekki af-
létt fyrr en Hæstiréttur felldi far-
bannið úr gildi 23 mánuðum síðar.
Er um að ræða lengsta farbann sem
nokkur maður hefur sætt hér á landi.
Í niðurstöðu héraðsdóms kemur
fram að við ákvörðun refsingar sé
litið til einbeitts brotavilja hans og
að um afar háar fjárhæðir var að
tefla. Þá er litið til þess að verknaður
Viggós Þóris leiddi til þess að starf-
semi VSP var lögð niður og bú fé-
lagsins gefið upp til gjaldþrota-
skipta.
Á hinn bóginn sé til þess að líta að
tilraunir hans til blekkinga hafi verið
mjög veikburða og ósannfærandi í
ljósi þess að þær beindust að fag-
fjárfestum og bankastofnunum.
Viggó er gert að greiða skipuðum
verjanda á rannsóknarstigi 1,5 millj-
ónir í málsvarnarlaun og skipuðum
verjanda við meðferð málsins fyrir
dómi 2.510 þúsund krónur.
Um fjölskipaðan dóm var að ræða
í málinu gegn Viggó.
Sæti tveggja ára fangelsi
Viggó Þórir Þórisson sakfelldur fyrir tilraun til fjársvika
- á föstudögum