Morgunblaðið - 09.03.2012, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012
Risastórar myndir af fólki sem fallið hefur í
fíknaefnastríðinu sem geisað hefur í Mexíkó
hanga nú á veggjum húsa í hverfinu Cerro
Gordo í borginni Ecatepec, nærri Mexíkóborg.
Myndirnar eru alls fimmtán og eru þær hluti
af sýningu sem nefnist „Fórnarlömbunum í
Ecatepec gefið andlit“ en hún er liður í herferð
gegn ofbeldi í borginni.
Nauðganir, mannrán, morð og rán eru daglegt
brauð í því stríði sem hefur kostað þúsundir
mannslífa en Ecatepec er einn þeirra staða þar
sem ofbeldið hefur verið einna verst.
Reuters
Fórnarlömbum ofbeldis gefið andlit á húsveggjum
Ljósmyndasýning um ofbeldi í Mexíkó
Abdo Hussa-
medin, aðstoðar-
olíumálaráð-
herra Sýrlands,
gekk í gær til liðs
við uppreisnar-
menn í landinu.
Þetta tilkynnti
hann á mynd-
bandasíðunni
Youtube.
Hussamedin er fyrsti háttsetti
embættismaðurinn til þess að yfir-
gefa Bashar al-Assad forseta frá
því að uppreisnin gegn stjórn hans
hófst fyrir um ári.
„Þetta vil ég segja við stjórnvöld:
þið hafið kallað heilt ár af sorg yfir
þá sem þið segið að sé þjóð ykkar.
Þið hafið neitað þeim um líf og
mannúð og rekið Sýrland fram af
þverhnípi,“ segir Hussamedin í
myndbandinu.
Sýrlenskur ráðherra
genginn til liðs við
uppreisnarmenn
Abdo Hussamedin
Þrjár ekkjur
Osama bin Lad-
ens hafa verið
ákærðar fyrir að
hafa komið inn í
Pakistan og búið
þar ólöglega.
Innanríkis-
ráðherra Pakist-
ans tilkynnti
þetta í gær.
Konurnar þrjár hafa verið í varð-
haldi síðan í maí í fyrra þegar
bandarísk sérsveit drap bin Laden í
húsi þar sem hann hafðist við með
þeim og börnum þeirra. Þær gætu
átt allt að fimm ára fangelsi yfir
höfði sér. Ein konan er frá Jemen,
önnur frá Sádi-Arabíu en þjóðerni
hinnar þriðju er ekki þekkt.
kjartan@mbl.is
Ekkjur bin Ladens
ákærðar í Pakistan
Osama bin Laden
Anote Tong,
forseti eyríkis-
ins Kíríbatí í
Kyrrahafi, seg-
ist vera í við-
ræðum við her-
stjórn Fídjieyja
um kaup á rúm-
lega tvö þúsund
hekturum af
landi þangað
sem 130 þúsund
íbúar Kíríbatí gætu flutt og sest
að.
Kíríbatí samanstendur af 32
hringrifum en þau eru þegar
byrjuð að sökkva í sæ vegna hlýn-
unar jarðar.
„Þetta er síðasta úrræði okkar.
Þetta verður ekki umflúið. Þjóðin
okkar verður að flytja því að öld-
urnar hafa náð að heimilum okk-
ar og þorpum,“ segir Tong.
Undirbúa þjóðflutn-
inga vegna hlýnunar
Kyrrahafið er að
gleypa Kíríbatí.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, segist
ætla að hætta í stjórnmálum verði hann ekki
endurkjörinn í forsetakosningunum í næsta
mánuði. Skoðanakannanir síðustu mánaða
benda til þess að aðalkeppinautur hans, sósíal-
istinn François Hollande, fari með sigur af
hólmi í kosningunum.
„Já. Ég sé þetta ekki fyrir mér þannig en ég
myndi gera eitthvað annað. Ég veit hins vegar
ekki hvað,“ sagði Sarkozy við sjónvarpsstöðina
BFMTV þegar hann var spurður hvort hann
myndi hætta færi svo að hann tapaði.
Forsetinn lagði þó áherslu á að hann væri
hvergi nærri búinn að gefast upp þó að á móti
blési. Þá kynnti hann fjölda nýrra stefnumála
eins og að hjálpa íbúum í fátækrahverfum
landsins, styrktarsjóð fyrir einstæðar mæður
og hertar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir
að fólki sviki út bætur.
Kröpp hægribeygja
Nú þegar kosningarnar nálgast óðfluga og
Sarkozy hefur orðið lítið ágengt í að vinna á
forskoti Hollandes hefur hann reynt að stela
atkvæðum frá hægri vængnum og Marine Le
Pen, frambjóðanda Þjóðarfylkingarinnar.
Tók kosningabarátta Sarkozys skarpa
beygju til hægri á þriðjudag þegar hann lýsti
því yfir að of mikið af útlendingum væri í
Frakklandi og lofaði að fækka nýjum innflytj-
endum um helming.
Vöktu þau ummæli mikla reiði innflytjenda
og margra á vinstri væng franskra stjórnmála.
Bentu sumir á að sjálfur væri Sarkozy sonur
ungversks innflytjanda. Áður hefur Sarkozy
tekið upp mál Þjóðarfylkingarinnar um kjöt
sem er slátrað að sið múslíma, svokallaðri ha-
lal-slátrun. Le Pen hafði haldið því fram að öll
slátrun í París færi fram að halal-sið. Segir
Sarkozy nú að útbreiðsla kjötsins sé meirihátt-
ar vandamál fyrir Frakka og að merkja ætti
sérstaklega kjöt sem slátrað er með þeim
hætti.
Samkvæmt skoðanakönnun sem birt var á
þriðjudag fengi Hollande 30% atkvæða í fyrri
umferð kosninganna, Sarkozy 28% og Le Pen
15%. Fyrri umferðin fer fram hinn 22. apríl en
seinni umferðin á milli tveggja efstu frambjóð-
endanna fer fram hinn 6. maí.
Sarkozy hættir ef hann tapar
Frambjóðandi sósíalista, François Hollande, enn með forystu fyrir forsetakosningarnar í Frakklandi
Sarkozy sagður reyna að veiða atkvæði frá Marine Le Pen með harðari afstöðu í innflytjendamálum
„Kerfi virkar sífellt
verr, því við erum með
of marga útlendinga í
landinu.“
Nicolas Sarkozy
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Nafn úganska stríðsglæpamannsins
Josephs Konys hefur verið á allra
vörum síðustu daga eftir að mynd-
band um voðaverk hans birtist á net-
inu í vikunni. Þegar hafa tugir millj-
óna manna horft á myndbandið, sem
er hálftíma langt, og fjölmargir lagt
orð í belg á samskiptasíðum eins og
Twitter og Facebook.
Hafa rænt þúsundum barna
Kony er leiðtogi Andspyrnuhers
Drottins sem hóf vopnaða baráttu
fyrir ríki sem byggðist á lögmálum
Biblíunnar og réttindum Acholi-ætt-
bálksins í Norður-Úganda árið 1986.
Hersveitir hans eru alræmdar fyr-
ir að ræna börnum, neyða drengi til
þess að gerast hermenn og nota
stúlkurnar sem kynlífsþræla. Hefur
Kony verið eftirlýstur af Alþjóða-
stríðsglæpadómstólnum frá árinu
2005 vegna glæpa gegn mannkyninu
í Úganda, Kongó, Suður-Súdan og
Mið-Afríkulýðveldinu. Talið er að
hersveitir Konys hafi myrt tugi þús-
unda manna í átökunum.
Í október í fyrra samþykkti Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseti að
senda hundrað sérsveitarmenn til
þess að ráðleggja og aðstoða her Úg-
anda við að koma böndum yfir Kony.
Fyrir utan að vekja athygli heims-
byggðarinnar á voðaverkum Konys
er markmið myndbandsins sem
Ósýnilegu börnin birti að þrýsta á
bandarísk stjórnvöld um að halda
þessari aðstoð áfram til að hægt sé
að binda enda á grimmdarverk hans.
Úrelt baráttumál
Eftir að myndband samtakanna
vakti heimsathygli hófu gagnrýnis-
raddir að heyrast um framsetningu
þess og samtökin sjálf.
Þannig bendir blaðamaðurinn
Michael Wilkerson, sem hefur búið í
Úganda og skrifað um málefni lands-
ins, á það í grein á vef Foreign Policy
að Kony er alls ekki í Úganda og hef-
ur ekki verið í sex ár. Líklegast haf-
ist hann við í Mið-Afríkulýðveldinu.
Þá telji andspyrnuher hans aðeins
nokkur hundruð manns í mesta lagi
en ekki tugi þúsunda barnaher-
manna eins og látið sé í veðri vaka í
myndbandinu, þó að það sé sá heild-
arfjöldi barna sem hann er sagður
hafa rænt í gegnum tíðina. Í því ljósi
er hægt að segja að herferðin gegn
Kony hefði verið tilvalin fyrir tæpum
áratug en í dag sé hún úrelt.
Þá hafa aðrir bent á að stjórnar-
her Úganda, sem Ósýnilegu börnin
vilja styðja, hafi sjálfur gerst sekur
um gróf mannréttindabrot. Mann-
réttindasamtökin Human Rights
Watch segjast hafa skráð tilfelli um
að herinn hafi myrt fjölda óvopnaðra
mótmælenda og saklausra sjónar-
votta á undanförnum þremur árum
og stundað pyntingar.
Ennfremur bendir Wilkerson á að
lýðræði þekkist vart í Úganda þar
sem Yoweri Museveni forseti hafi
verið við völd í á þriðja áratug, spill-
ing sé landlæg og opinber þjónusta
nánast engin. Það sé gott og þarft að
handsama Kony en það breyti ekki
ástandinu í landinu. Verði Museveni
fengið frekara fjármagn og vopn geti
vandamál landsins þvert á móti
versnað.
Stríðsglæpamaður verður
heimsfrægur á netinu
Myndband sem lýsir voðaverkum Josephs Konys í Úganda vekur heimsathygli
Reuters
Eftirlýstur Joseph Kony, stríðs-
glæpamaður frá Úganda.