Morgunblaðið - 09.03.2012, Síða 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012
Það vita flestir að
Sjálfstæðisflokkurinn
er og hefur verið leið-
andi afl í íslenskum
stjórnmálum frá stofn-
un sinni 1929. Undir
forystu sjálfstæð-
ismanna hefur íslensk
þjóð brotist út úr höft-
um, einangrun og fá-
tækt til atvinnufrelsis,
alþjóðlegrar samvinnu
og aukins kaupmáttar fyrir launafólk.
Sjálfstæðismenn skilja að forsendur
hagvaxtar og farsældar verða aðeins
leystar úr læðingi undir öflugri for-
ystu sjálfstæðismanna.
Það þarf ekki nema að horfa á
sundurlyndi og innbyrðis átök núver-
andi meirihluta til að sjá að þjóðinni
er nú steypt þverhnípt niður á botn-
inn. Það er orðið aðkallandi fyrir
landsmenn að Sjálfstæðisflokkurinn
komist í rikisstjórn til að snúa þessari
öfugþróun við heildinni
til heilla.
Í Sjálfstæð-
isflokknum eru um 50
þúsund flokksmenn úr
öllum landshlutum og
geirum samfélagsins
sem hafa sameiginlega
sýn á öfluga framtíð og
úrlausn á ótal álögum
sem núverandi meiri-
hluti hefur lagt á allan
almenning. Á lands-
fundi flokksins koma
trúnaðarmenn flokksins
saman og móta stefnuna sem for-
ystan og þingflokkurinn vinna eftir á
milli landsfunda.
Mikil undirbúningsvinna var lögð í
skýrslu framtíðarnefndar flokksins
sem fjölmargir flokksfélagar víðs-
vegar að af landinu komu að og lögðu
til ákveðnar hugmyndir og breyt-
ingar á skipulagsreglum flokksins
m.a. með kosningu 2. varaformanns.
Eitt meginhlutverk hins nýja vara-
formanns er að halda utan um innra
starf flokksins, en þar er mikið verk
að vinna. Það þarf að ná til grasrótar
flokksins um land allt, styrkja allt fé-
lagsstarf sjálfstæðisfélaga og full-
trúaráða vítt og breitt um landið. Ég
hef ákveðið að gefa kost á mér sem 2.
varaformaður Sjálfstæðisflokksins til
þess að sinna hinum almenna flokks-
manni og vinna með öllum þeim mikla
fjölda hæfileikafólks sem leiðir
flokksstarfið vítt og breitt um Ísland.
Mikil orka hefur farið í skýrslu-
gerðir og aðra pappírsvinnu en nú er
komið að því að bretta upp ermar og
láta verkin tala og ná til almennra
flokksmanna, virkja og hvetja nýtt
stuðningsfólk úr öllum stéttum til að
ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.
Framundan eru tvennar mik-
ilvægar kosningar til Alþingis og
sveitarstjórna. Prófkjör og val á
fulltrúum til að leiða lista flokksins
eru framundan og búast má við því að
einhverjir lúti í lægra haldi í kosn-
ingum og enn aðrir komi nýir og
þróttmiklir inn í kosningum. Við
verðum núna að finna fjöldann allan
af efnilegu og lífsreyndu fólki á öllum
aldri sem er tilbúið til að vinna að
endurreisn þjóðfélagsins eftir þriggja
ára rústastörf vinstri stjórnarinnar
sem þykist bjóða upp „gegnsæ vinnu-
brögð og norræna velferð“. Það er
öllum ljóst að þetta er dýrasti brand-
ari Íslandsögunnar.
Það verður aðalverkefni 2. varafor-
manns að fara út á meðal flokksmanna
um land allt, þétta raðir þeirra, miðla
málum þar sem vík hefur skapast á
milli vina og byggja upp jákvætt,
þróttmikið og gefandi flokksstarf.
Það hefur alltaf verið helsti styrkur
okkar sjálfstæðismanna að í stefnu og
starfi flokksins finna sjómaðurinn,
bóndinn, skrifstofumaðurinn, kenn-
arinn, fiskverkakonan, atvinnurek-
andinn og iðnaðarmaðurinn sameig-
inlegan vettvang til að berjast fyrir
hugsjóninni um frelsi til athafna, orðs
og æðis. Hver og einn á að njóta af-
raksturs svita síns andlits og frum-
kvæðis. Munum að Sjálfstæðisflokk-
urinn er flokkur allra stétta. Til
embættis 2. varaformanns er mik-
ilvægt að velja einstakling sem hefur
reynslu af störfum fyrir flokkinn, hef-
ur sterka tengingu við hinn almenna
flokksmann, þekkir vel undirstöðu-
atvinnuvegina og hefur reynslu, bak-
grunn og þekkingu á atvinnulífinu
umhverfis landið. Þess vegna ákvað
ég að bjóða mig fram til 2. varafor-
manns til að starfa með og fyrir allt
sjálfstæðisfólk á landinu okkar, Ís-
landi.
Brettum upp ermar og látum verkin tala
Eftir Jens G.
Helgason »Nú þarf að vinna
að endurreisn eftir
rústastörf stjórnarinnar
sem þykist bjóða upp
á dýrasta brandara
sögunnar „gegnsæ
vinnubrögð og
norræna velferð“.
Jens G. Helgason
Höfundur er formaður bæjarráðs í
Fjarðabyggð.
Nýlega féll dómur í
Hæstarétti þar sem
m.a. er fjallað um kyn-
ferðislega áreitni. At-
burðurinn átti sér stað í
vinnuferð þar sem karl-
maður sem var yf-
irmaður konu fór alls-
nakinn í heitan pott,
ásamt öðrum manni
sem var í sundfötum.
Yfirmaðurinn óskaði
jafnframt eftir því að konan kæmi í
pottinn og jafnvel nakin. Konan af-
þakkaði að fara í pottinn. Maðurinn
óskaði þá eftir því að konan sæti á
stól við pottinn þeim til samlætis.
Konan gerði það en þegar hún áttaði
sig á því að maðurinn var nakinn stóð
hún upp, fór inn í herbergi sitt og
reyndi að læsa að sér.
Konan telur þetta vera kynferð-
islega áreitni og tilkynnti það á vinnu-
stað sínum. Niðurstaða Hæstaréttar
er önnur, þ.e. að ekki verði fallist á
það með henni að þetta háttalag eitt
og sér teljist kynferðisleg áreitni í
skilningi þeirra laga sem um þetta
fjalla. Hæstiréttur rökstyður nið-
urstöðu sína með því að hér hafi ein-
ungis verið um eitt skipti að ræða og
að konan hafi á engan hátt gefið í
skyn að hegðunin væri óvelkomin.
Samkvæmt lögum nr. 10/2008 er skil-
greining á kynferðislegri áreitni sem
hér segir: Hvers kyns ósanngjörn og/
eða móðgandi kynferð-
isleg hegðun sem er í
óþökk og hefur áhrif á
sjálfsvirðingu þess sem
fyrir henni verður og er
haldið áfram þrátt fyrir
að gefið sé skýrt í skyn
að hegðunin sé óvel-
komin. Áreitnin getur
verið líkamleg, orð-
bundin eða táknræn.
Eitt tilvik getur talist
kynferðisleg áreitni ef
það er alvarlegt.
Vandamálið við þessa
skilgreiningu er að hún er mótsagna-
kennd. Samkvæmt túlkun Hæsta-
réttar á skilgreiningunni telst það
ekki kynferðisleg áreitni ef yfirmaður
konu fer í allsnakinn í heitan pott fyr-
ir framan hana einu sinni. Ef hún hins
vegar gefur í skyn að hegðunin sé
óvelkomin og hann gerir þetta aftur
síðar þá virðist það teljast kynferð-
isleg áreitni. Það sem telst kynferð-
isleg áreitni í annað sinn taldist ekki
kynferðisleg áreitni í fyrsta sinn.
Þegar þau lög voru sett sem inni-
halda framangreinda skilgreiningu á
kynferðislegri áreitni var verið að
uppfylla skyldu Íslands um að inn-
leiða tiltekna tilskipun samkvæmt
EES-samningnum þar sem skilgrein-
ing á kynferðislegri áreitni er svo-
hljóðandi: Hvers kyns óæskilegt
framferði, með orðum, án orða eða af
kynferðislegum toga, sem á sér stað
og hefur þann tilgang eða þau áhrif
að misbjóða virðingu einstaklings,
einkum þegar skapað er ógnandi,
fjandsamlegt, niðurlægjandi, auð-
mýkjandi eða móðgandi andrúmsloft.
Þessa skilgreiningu tilskipunar-
innar ber íslenskum stjórnvöldum að
innleiða efnislega samkvæmt-EES-
samningnum. Í þessari tilskipun seg-
ir einnig um kynferðislegt áreiti að
ekki megi leggja það til grundvallar
ákvörðun, sem hefur áhrif á ein-
stakling, hvort hann hafi vísað á bug
eða sætt sig við slíkt framferði.
Ekki kemur fram hvers vegna
þessi munur er á skilgreiningu á kyn-
ferðislegri áreitni í lögunum og til-
skipuninni en þetta ættu efnislega að
vera sömu reglur. Félags- og trygg-
ingamálanefnd Alþingis fékk ýmsa á
sinn fund til að fjalla um frumvarpið
sem varð að þeim lögum (lög nr. 10/
2008) sem innihalda framangreinda
skilgreiningu. Þeir sem komu á fund
nefndarinnar voru meðal annarra
fulltrúar frá Kvenréttindafélagi Ís-
land, Rannsóknarstofu í kvenna- og
kynjafræðum, Jafnréttisstofu og
Jafnréttisráði. Enginn þessara aðila
virðist hafa gert athugasemd við skil-
greiningu laganna.
Af framangreindu virðist mér að
skilgreining á kynferðislegri áreitni
hafi ekki verið innleidd í íslensk lög í
samræmi við EES-samninginn:
a) Í fyrsta lagi vegna þess að ís-
lensk lög gera þá kröfu að sá er fyrir
hegðuninni verður gefi skýrt í skyn
að hegðunin sé óvelkomin. Tilskip-
unin segir þvert á móti að ekki megi
leggja það til grundvallar þegar met-
ið er hvort um kynferðislega áreitni
sé að ræða eða ekki hvort hegðuninni
hafi verið vísað á bug eða ekki.
b) Í öðru lagi þarf kynferðisleg
áreitni að vera endurtekin sam-
kvæmt íslensku lögunum til að teljast
slík, nema ef hún er alvarleg. Slíkt
skilyrði er ekki í tilskipuninni.
Ef tilskipun er ekki rétt innleidd í
íslenskan rétt er talið að íslenska rík-
ið geti verið skaðabótaskylt vegna
þeirra sem tapa rétti vegna þess.
Mikið er rætt um eftirlitsstofnanir
og spyrja má hvort Eftirlitsstofnun
EFTA hafi ekki staðið sig sem skyldi
en hlutverk hennar er m.a að sjá til
þess að Ísland, Liechtenstein og Nor-
egur virði skuldbindingar sínar sam-
kvæmt EES-samningnum.
Ósamræmi í löggjöf um
kynferðislega áreitni
Eftir Berg
Hauksson »Konan telur þetta
vera kynferðislega
áreitni og tilkynnti það
á vinnustað sínum. Nið-
urstaða Hæstaréttar er
önnur …
Bergur Hauksson
Höfundur er lögmaður
og viðskiptafræðingur.
ELDRI BORGARA FERÐ
Ævintýraferð til Ilulissat (Jakobshavn)
23. - 26. júní 2012.
Nánari upplýsingar á www.flugfelag.is og hjá Emil Guðmunds-
syni í síma 898 9776 eða emil@flugfelag.is, einnig má senda
tölvupóst á hopadeild@flugfelag.is
flugfelag.is
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/F
LU
58
56
7
02
.2
01
2
GRÆNLAND
Nuuk
IIulissat
Narsarsuaq
Reykjavík
Ittoqqortoormiit
Kulusuk
V i n n i n g a s k r á
45. útdráttur 8. mars 2012
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
2 9 1 2 0
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
2 6 2 3 5 5 9 0 6 4 5 9 1 0 6 6 2 9 5 3
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
15090 21678 40707 54140 64585 75709
15141 22442 48722 62127 67627 78996
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
1 0 1 9 9 2 5 9 1 9 2 0 8 2 9 0 1 0 3 8 4 6 4 5 0 4 2 5 6 1 0 6 4 7 3 5 9 0
1 8 5 3 9 8 1 5 2 1 1 0 2 3 0 4 2 7 4 0 1 2 3 5 0 9 6 2 6 4 0 5 0 7 4 6 2 8
2 0 3 5 1 0 1 4 3 2 2 1 5 7 3 0 5 2 0 4 2 8 2 0 5 1 1 3 7 6 4 0 8 9 7 4 8 6 5
4 0 4 9 1 2 3 2 4 2 2 3 6 0 3 0 9 4 8 4 3 2 9 1 5 2 5 6 2 6 8 1 9 9 7 5 4 2 0
4 6 3 9 1 3 5 2 1 2 2 8 7 7 3 3 2 5 6 4 4 9 4 5 5 4 5 1 8 6 9 8 5 0 7 5 7 6 8
4 7 2 8 1 3 5 4 5 2 3 9 3 8 3 3 3 9 7 4 6 4 1 6 5 4 5 5 0 6 9 9 3 5 7 5 8 3 6
5 5 8 7 1 3 7 2 4 2 6 0 9 6 3 5 3 6 4 4 7 2 0 7 5 5 2 2 8 7 1 6 0 5 7 6 3 5 3
6 8 2 2 1 5 8 6 4 2 6 3 0 9 3 5 8 3 4 4 7 3 9 1 5 6 5 5 6 7 2 1 1 0 7 6 8 3 3
7 1 4 4 1 5 8 9 3 2 7 0 3 7 3 7 2 1 2 4 8 2 3 9 5 6 6 3 1 7 2 1 9 8 7 7 7 7 7
7 5 0 6 1 8 7 3 8 2 8 5 4 9 3 7 6 0 8 4 8 2 6 7 5 8 3 1 1 7 3 3 9 7 7 9 4 0 9
V i n n i n g u r
Kr. 9.000 Kr. 18.000 (tvöfaldur)
6 7 9 1 4 0 0 9 2 1 0 5 8 3 2 5 0 1 4 1 9 7 2 5 2 4 4 9 6 2 3 5 1 7 2 2 8 9
1 8 3 3 1 4 2 1 7 2 1 2 3 5 3 3 1 9 2 4 1 9 7 5 5 2 9 0 4 6 2 4 1 0 7 2 4 4 7
1 9 2 9 1 4 3 6 7 2 1 3 1 5 3 3 2 7 6 4 2 1 4 0 5 4 8 1 6 6 2 5 1 9 7 2 8 1 9
2 5 7 5 1 4 6 4 0 2 1 4 1 8 3 3 4 1 2 4 2 3 4 5 5 5 5 4 2 6 2 5 5 8 7 3 0 4 3
2 9 7 3 1 4 8 9 8 2 1 7 8 3 3 4 0 8 5 4 2 4 3 2 5 5 9 5 2 6 2 7 2 7 7 3 2 1 1
4 0 6 4 1 4 9 6 3 2 1 8 1 8 3 4 0 8 9 4 2 5 3 8 5 6 1 5 0 6 3 4 8 2 7 3 6 0 6
4 4 3 9 1 5 3 2 2 2 1 9 3 0 3 4 1 6 5 4 2 7 6 0 5 6 6 5 5 6 4 1 1 3 7 3 6 9 4
4 7 3 7 1 5 6 4 0 2 2 1 7 7 3 4 3 1 1 4 2 8 0 8 5 6 7 6 1 6 4 8 8 2 7 3 7 4 0
5 0 5 9 1 5 6 6 0 2 2 4 1 0 3 4 3 5 9 4 2 8 3 2 5 6 9 0 2 6 4 9 1 5 7 4 3 9 7
5 9 8 6 1 6 3 4 0 2 3 2 2 9 3 4 5 7 0 4 3 1 7 2 5 7 1 7 8 6 5 3 7 3 7 4 5 2 2
6 0 3 6 1 6 4 0 5 2 3 2 3 1 3 4 9 4 1 4 3 3 6 9 5 7 2 9 4 6 5 6 7 4 7 4 9 0 4
6 3 5 2 1 6 5 1 4 2 5 0 6 2 3 5 0 9 0 4 3 4 7 7 5 7 2 9 8 6 6 2 7 9 7 4 9 1 7
6 4 4 1 1 6 9 1 5 2 5 6 1 3 3 5 7 5 6 4 3 9 6 3 5 7 3 2 6 6 6 4 9 9 7 4 9 9 4
6 9 6 1 1 7 2 4 9 2 5 7 5 2 3 5 8 6 1 4 4 1 8 3 5 7 4 1 5 6 6 5 4 4 7 5 1 3 7
7 3 4 1 1 7 3 9 1 2 5 8 4 3 3 6 0 1 6 4 4 3 3 9 5 7 4 7 3 6 6 5 8 3 7 5 3 2 0
7 6 1 9 1 7 6 6 0 2 5 8 8 4 3 6 2 9 8 4 4 5 6 4 5 7 7 0 0 6 6 6 0 8 7 5 8 7 7
7 6 2 8 1 7 6 6 4 2 6 0 8 3 3 6 5 7 0 4 4 6 2 5 5 8 0 7 7 6 6 6 2 1 7 6 8 9 0
7 7 7 4 1 8 3 8 8 2 6 0 8 7 3 6 6 2 1 4 5 1 0 2 5 8 1 6 6 6 6 6 6 0 7 7 2 9 7
8 1 1 9 1 8 4 7 0 2 6 2 5 8 3 6 9 1 9 4 5 5 9 4 5 8 2 8 4 6 6 9 9 0 7 7 4 7 6
8 3 7 8 1 8 7 2 1 2 6 4 5 6 3 7 1 5 7 4 5 9 3 4 5 8 6 6 2 6 7 2 3 0 7 7 5 3 8
8 8 6 9 1 9 0 7 7 2 6 8 9 6 3 7 2 1 3 4 6 1 4 8 5 8 6 7 5 6 8 0 5 5 7 8 1 9 1
9 1 1 3 1 9 1 8 5 2 7 0 9 1 3 7 4 7 0 4 6 7 5 3 5 8 7 2 9 6 8 0 6 3 7 8 2 3 7
9 1 2 4 1 9 2 3 6 2 7 5 2 1 3 7 5 4 4 4 7 6 7 4 5 9 1 3 0 6 9 0 8 2 7 8 4 1 6
9 5 7 7 1 9 4 9 4 2 7 9 1 5 3 7 7 4 5 4 7 9 1 2 5 9 9 9 9 6 9 3 1 7 7 9 0 8 5
9 8 1 3 1 9 5 1 1 2 8 2 6 1 3 8 2 6 0 4 7 9 8 1 6 0 1 1 7 6 9 7 3 1 7 9 5 5 4
1 0 3 3 6 1 9 6 9 4 2 8 8 2 6 3 8 6 7 4 4 8 5 3 0 6 0 6 8 2 7 0 1 3 1 7 9 5 9 0
1 1 1 4 7 1 9 7 4 4 2 9 7 3 9 3 9 4 6 3 4 8 6 8 1 6 0 7 1 8 7 0 8 1 9
1 1 1 4 9 1 9 9 8 8 3 1 1 8 2 3 9 7 7 3 4 9 5 2 7 6 0 7 3 2 7 1 2 3 7
1 1 7 4 6 2 0 5 2 7 3 1 3 7 8 3 9 8 3 0 4 9 9 5 9 6 0 8 8 9 7 1 5 8 3
1 2 4 7 0 2 0 8 5 2 3 2 1 4 7 4 0 7 9 7 5 0 0 5 5 6 1 3 6 1 7 1 6 6 9
1 3 0 2 3 2 0 8 6 3 3 2 2 1 7 4 0 9 7 2 5 0 7 5 6 6 1 3 9 0 7 1 9 6 1
1 3 5 4 7 2 1 0 5 4 3 2 3 6 4 4 1 6 2 7 5 1 2 0 3 6 1 6 1 2 7 2 0 4 8
Næstu útdrættir fara fram 15. mars, 22. mars & 29. mars 2012
Heimasíða á Interneti: www.das.is