Morgunblaðið - 09.03.2012, Qupperneq 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012
✝ GunnlaugurBriem Pálsson
vélaverkfræðingur
fæddist í Reykjavík
19. júní 1932. Hann
andaðist á heimili
sínu 2. mars 2012.
Hann var sonur
hjónanna Gyðu Sig-
urðardóttur, f. 1910
í Reykjavík, og Páls
Björns Einarssonar
frá Reykholti í
Borgarfirði, f. 1905 í Gaul-
verjabæ í Flóa.
Gunnlaugur kvæntist Ingu
Ingibjörgu Guðmundsdóttur
landfræðingi 1. ágúst 1953 í Eng-
landi. Þau hófu búskap sinn í
Gautaborg þar sem Gunnlaugur
var í námi og þar fæddust tvö
fyrstu börnin. Eftir nám og störf
í Svíþjóð fluttu þau heim og
bjuggu í Goðheimum í Reykjavík
og fluttu árið 1968 í Bröttu-
brekku í Kópavogi og bjuggu þar
æ síðan. Börn þeirra eru Páll
verkfræðingur, f. 1954, Anna
Gyða hjúkrunarfræðingur, f.
1956, og Jóhanna mannfræð-
ingur, f. 1964 í Reykjavík. Börn
vík og lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1950 og járnsmíðaprófi frá Iðn-
skólanum vorið 1951. Um haustið
hóf hann nám í vélaverkfræði við
Chalmers TH í Gautaborg og lauk
þaðan burtfararprófi 1956. Réðst
hann þá til starfa hjá Svenska
Turbin Aktiebolaget í Norrköp-
ing þar til fjölskyldan flutti heim
til Íslands 1958. Gunnlaugur
starfaði eftir heimkomuna við föl-
breytt verkfræðistörf og stofnaði
með nokkrum verkfræðingum
fyrirtækið Varma hf. sem sér-
hæfði sig í lausnum með tækni-
búnaði í loftræsingum, hita- og
kælikerfum. Hann varð einkaeig-
andi Varma árið 1970 og starfaði
þar sem framkvæmdastjóri til
æviloka. Einnig rak hann með
föður sínum fyrirtækið Stilli hf.
sem Páll faðir hans stofnaði árið
1943. Sonur Gunnlaugs, Páll véla-
verkfræðingur, réðst til starfa
með föður sínum í Varma árið
1989 og störfuðu þeir óslitið sam-
an þar til Gunnlaugur lést.
Útför Gunnlaugs fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag,
9. mars 2012, kl. 13.
Páls með fv. eigin-
konu, Björgu Evu Er-
lendsdóttur, eru Logi
sálfræðinemi, Edda
nemi í læknisfræði og
Iðunn ferming-
arstúlka. Inga Hlíf
nemi í læknisfræði er
dóttir Önnu Gyðu og
fv. eiginmanns henn-
ar, Melvins McInnis
læknis í Bandaríkj-
unum. Marín Ingi-
björg nemi í Menntaskólanum við
Hamrahlíð er dóttir Jóhönnu og
Colms McGinley frá Írlandi. Fóst-
urdóttir Gunnlaugs og Ingu frá
sex ára aldri, hálfsystir Ingu, er
Edda Þórðardóttir Karlson, f.
1948. Börn hennar og Rolands
Karlson eru Anders, Annelie og
Agne, eru þau öll búsett í Svíþjóð.
Systir Gunnlaugs er Margrét
Sigríður Pálsdóttir, f. 3. júní 1941
á Laugarbökkum í Ölfushreppi,
Árnessýslu. Eiginmaður hennar
fv. er Magnús Gústafsson forstjóri
í Bandaríkjunum. Börn þeirra
urðu fjögur, Björn, Sigfús, Einar
og Jórunn.
Gunnlaugur ólst upp í Reykja-
„Þarftu ekki að fara að gera
eitthvað?“ sagði pabbi minn við
mig þegar ég settist niður hjá hon-
um daginn áður en hann lést en þá
var að verða nokkuð ljóst í hvað
stefndi. Það grátbroslega var að
ég hafði af skyldurækni fengið
mér að borða svo ég héldi dampi.
Þá kom setningin fljúgandi og
hitti mig fyrir ofurviðkvæma yfir
ástandi hans. Hvar er nú stóra
samhengið? – hugsaði ég með mér
og fannst þetta alveg einkennandi
fyrir manninn sem aldrei nokkurn
tímann sló slöku við. Sl. mánuði
hafði pabbi nefnilega útfært með
okkur fjölskyldunni breytingar á
íbúðinni og eins og hans var von
og vísa fannst honum mikið varið í
hvernig allt var að ganga upp.
Sökum veikindanna gat hann ekki
lengur komið á Sjafnargötuna til
okkar barnanna, þaðan af síður
upp á 3. hæð til mín. Því var ég
farin að taka myndir af öllum
verkstigum svo hann gæti fylgst
með. Hann var vel með á nótun-
um, óendanlega ráðagóður við að
finna bestu lausnirnar og að
benda á hvað ætti að gerast næst.
Hamraði stöðugt á að kaupa alltaf
það besta upp á endinguna.
Sem ég velti fyrir mér „stóra
samhenginu“ sá ég að það var
náttúrulega hann sem var með
það á hreinu. Frá fyrsta degi veik-
indanna var viðkvæðið ávallt að
við skyldum sjá til hvað læknarnir
segðu, hvað kæmi út úr rannsókn-
unum eða hvað gerðist í næstu
törn. Endalokin nefndi hann aldr-
ei, heldur snerist allt um að fá sem
mest út úr því sem væri í boði
meðferðarlega séð. Það sem hann
meinti þarna daginn áður var
„þarftu ekki að fara gera eitthvað
fyrir þig?“. Ég átti ekki að vera að
hanga yfir honum þegar ég gæti
verið að koma verkefnunum í
íbúðinni áfram. Pabbi ásamt sinni
dyggu stoð mömmu sýndi tak-
markalaust æðruleysi þetta hálfa
ár sem baráttan stóð yfir. Þótt
henni sé lokið fyrir honum hafa
hann og mamma komið áleiðis
dýrmætum lærdómi til okkar af-
komendanna um hvernig eigi að
takast á við vonlausar aðstæður,
nefnilega að gefa öllu gaum og
tækifæri sem mögulega getur
bætt stöðuna og umfram allt að
lifa í núinu.
Takk fyrir allt pabbi minn.
Jóhanna.
Þegar við barnabörn afa Gulla
ákváðum að skrifa minningar-
grein um hann kom ótal margt í
hugann. Afi var alltaf svo virðu-
legur og flottur hvort sem hann
var á leiðinni niður í Varma á
Cherokeenum sínum með brúnu
skjalatöskuna undir hendinni eða
að greiða brúartoll með vinum og
fjölskyldu á leið inn í Goðdal. Afi
var mikill spekúlant, sérstaklega
þegar kom að tækjum og öllu sem
krefst verkvits sem hann bjó yfir í
ríkum mæli. Ég hef ekki séð þann
síma, myndavél, stjörnusjónauka
eða GPS-tæki sem hann gæti ekki
lært á. Alltaf þegar við heimsótt-
um afa og ömmu var nóg um að
vera í kringum þau, sama hvort
það var í Goðdal, Tortu eða heima
í Bröttubrekku. Þá sá maður afa
oft niðursokkinn í leiðbeiningar
með nýjasta tækinu, eða með nef-
ið ofan í National Geographic
meðan amma rýndi í jarðfræði-
tímarit og galdraði fram dýrind-
ismáltíðir handa allri fjölskyld-
unni. Þau áttu sér mörg
sameiginleg áhugamál sem við
fjölskyldan fengum að njóta með
þeim. Ekkert okkar mun nokkurn
tíma gleyma þegar afi kenndi okk-
ur krökkunum að veiða. Við mun-
um alveg hvernig við létum ef það
beit ekki á helst strax og höfum
örugglega reynt á þolrifin í hon-
um. En hann varð aldrei þreyttur
á okkur nema kannski þegar við
vorum í þykjustuleik þar sem við
rákum veitingahús í kjallaranum í
Bröttubrekku og tókst að hella
vatni yfir National Geographic-
blöðin hans. Okkur mun heldur
ekki líða úr minni skíðaferðirnar
sem við fórum í saman. Þar eins
og annars staðar var afi á heima-
velli og hélt áfram að skíða svo
lengi sem hann lifði enda var hann
ótrúlega vel á sig kominn þrátt
fyrir að vera kominn á fullorðins-
ár.
Annað sem þau hjón áttu sam-
eiginlegt var að sýna öllu sem við-
kom okkur barnabörnunum
áhuga, hvort sem það var námið,
vinnan, tónlistin eða áhugamál.
Það er til dæmis aðdáunarvert
hvernig afi fylgdist með tónlistar-
náminu hjá okkur öllum þó tónlist
væri kannski ekki hans helsta
áhugamál. Þau mættu alltaf þegar
þau gátu og var ekki óvanalegt að
sjá afa standa fremstan í salnum
með upptökuvélina á lofti. Ef mað-
ur sagði afa frá einhverju sem
manni lá á hjarta gat maður verið
viss um að hann myndi velta því
fyrir sér og oft finna einhvern flöt
á málinu. Afi var ekki maður að-
gerðaleysis og orðaflaums, þaðan
af síður að hann vorkenndi sér
nokkurn tímann. Hann trúði á
mátt okkar sjálfra til að breyta og
bæta líf okkar og tók hverju því
sem lífið rétti að honum sem verk-
efni til að leysa. Þannig tók hann á
veikindum sínum og hélt sinni
virðingu og reisn allt fram á síð-
ustu mínútu. Hann var Kletturinn
í fjölskyldunni og fyrirmynd allra
sem hlutu þann heiður að kynnast
honum. Rétt eins og þrotlaust
starf hans við að hugsa um jarð-
irnar í Tortu og Goðdal mun
minna á hann, munum við heiðra
minningu afa okkar með því að
reyna að hlúa að fræjum þeirra
mannkosta sem hann innrætti í
okkur.
Edda Pálsdóttir, Iðunn Páls-
dóttir, Inga Hlíf Melvinsdóttir,
Logi Pálsson, og Marín Ingi-
björg Colmsdóttir.
Virðing kemur fyrst í hugann
þegar Gunnlaugs Pálssonar er
minnst. Hann markaði spor og vel
rudda braut í tilverunni fyrir af-
komendur sína. Systkinin Logi,
Edda og Iðunn og hin afabörnin
Inga Hlíf og Marín eiga eftir að
búa að því alla ævi að eiga þennan
afa og þessa ömmu, sem eru eng-
um lík. Margt gott lærði ég af
Gunnlaugi og Ingu á árunum sem
við vorum samferða.
Gunnlaugur gekk á undan í
flestu eins og hinn sjálfsagði leið-
togi, tilbúinn að takast á við hvert
verkefni og vanda af krafti og mik-
illi nákvæmni. Reyndar var aldrei
talað um vanda í þessari fjöl-
skyldu, heldur aðeins um verkefni
og leiðir. Bjartsýni og dugnaður
ríkti og einlægur áhugi á öllu sem
fyrir lá. Inga brosandi, léttlynd og
hugmyndarík við hliðina á Gulla
sem var ævinlega með fjölbreyti-
legustu áform uppi fyrir þau og
stórfjölskylduna alla.
Setið var við að skipuleggja
tómstundir og frí út í ystu æsar
með hjálp nýjustu tækni sem
Gunnlaugur lá yfir þar til ekkert
fór á milli mála. Barnabörnunum
var fylgt eftir á tónlistaræfingar
og tómstundaverkefni og full virð-
ing borin fyrir öllum þeirra gjörð-
um og áhugamálum. Fjölskyldan
var mikið saman á skíðum, í ferð-
um, í veislum, í Goðdal og seinna í
Tortu. Alltaf var afinn mættur
með stuðninginn, myndavélarnar
og stórbrotnar áætlanir fyrir
næstu afrek og ævintýri.
Varla getur verið algengt að
fólk haldi fullum afköstum jafnt í
vinnu sem frístundum svo langa
ævi. En Gunnlaugur hélt æsku-
þreki og ótrúlegum viljastyrk til
að lifa lífinu til góðs og gleði með
sínum nánustu alla tíð. Nýrri í
hópnum gat fundist nóg um að
farið væri á fætur klukkan átta í
fríi til þess svo að fylgja Gunnlaugi
eftir allan daginn í rauðum og
svörtum skíðabrekkum, án þess
að kunna á skíði. En skipulagið
var gott og námskeið í að nýta
stundirnar og njóta samt lífsins,
eins og Gulli var sérfræðingur í,
skyldi enginn afþakka.
Inga sagði oft að það ætti að
setja skemmtanaskatt á mann
sem væri alltaf í vinnunni löngu
kominn á eftirlaunaaldur. En þótt
Gunnlaugur hafi mætt af miklum
áhuga í vinnunna, nánast til hinsta
dags, voru skemmtanirnar ekki
bara þar. Mestar voru þær með
Ingu og fjölskyldunni, eins og sást
á því hve samrýnd þau voru, á um-
hverfinu sem þau bjuggu sér og á
óeigingjörnum stuðningi þeirra
við vini sína og stórfjölskyldu. Það
er sem ungur maður hafi fallið frá,
en gott er að hugsa til þess að
Gunnlaugur lifði síungur og í
blóma lífsins í nærri áttatíu ár.
Björg Eva Erlendsdóttir.
Í dag kveð ég mikla hetju með
söknuð í hjarta.
Ég kynntist Gulla árið 2006
þegar við Logi byrjuðum að vera
saman. Þegar ég hugsa til baka
streyma í huga minn margar góð-
ar minningar. Öll ferðalögin í Goð-
dal, Tortu-ferðirnar, laufa-
brauðsgerð, skötuveislur og margt
fleira.
Ég tel mig vera mjög lánsama
að fá að koma inn í þessa dásam-
legu fjölskyldu þar sem mér hefur
verið tekið svo vel. Þegar ég fór
fyrst í fjölskylduferð í Goðdal var
mér tekið strax eins og einni af
fjölskyldunni, ekki síst af Ingu og
Gulla, sem hafa alltaf verið mér
svo hlý og góð og tóku mér eins og
sjötta barnabarninu, eða þannig
líður mér allavega.
Gulli var dásamlegur maður
sem hugsaði vel um fólkið sitt og
gerði allt fyrir okkur. Minningarn-
ar lifa í hjarta mínu.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Ég sakna þín.
Erna Þórey Jónasdóttir.
Upp á fjall, yfir skarð, niður
kamba, yfir stórfljót og vegleysur.
Akandi, gangandi eða skíðandi.
Grafa skurði, leggja rör, saga
timbur, steypa og byggja hús eða
brú. Veiða, slægja og leggja brauð
í hver. Framkvæmdagleði og um-
hyggja. Myndavél í hendi sem festi
allt listilega á filmu. Hlátur eins og
enginn hlær og raddblær. Minn-
ingar mínar um Gulla hennar Ingu
frænku hópast saman; hann há-
vaxinn, sterkbyggður og athugull
maður sem virtist aldrei falla verk
úr hendi.
Inga og Gulli og mamma og
pabbi hafa alltaf verið eins og eitt
sett og óaðskiljanlegir vinir. Við
krakkarnir þeirra ólumst saman
upp og því engin furða að stundum
komu skrítnar spurningar hver
væri mamman og hver væri pabb-
inn. Fyrir okkur var þetta ríki-
dæmi. Að alast upp við samveru í
Hveró, Goðdal, í ótal tjaldferðalög-
um og skíðaferðum er ómetanlegt.
Einhvern veginn komumst við öll
fyrir í bílnum með allt hafurtaskið
sem fylgdi og ferðagleði réð ríkj-
um. Ég þakka Gulla fyrir að hafa
átt svo ríkan þátt í að gefa mér
svona margar góðar og skemmti-
legar minningar.
Elsku Inga, Páll, Anna Gyða,
Jóhanna og fjölskyldur, ég og fjöl-
skyldan mín biðjum góðan Guð að
styrkja ykkur og blessa.
Edda Gunnars.
Margt leitar á hugann þegar
góður vinur og félagi kveður eftir
rúmlega hálfrar aldar vinskap.
Minningar streyma fram, allar
skemmtilegar. Ánægjustundirnar
í Goðdal með þeim hjónum eru of-
arlega, hvort sem voru vinnuferðir
á vorin þar sem hver stund var
skipulögð af Gulla eða glaðst yfir
góðu dagsverki að kvöldi og notið
hvíldar.
Sumar- og haustferðirnar eftir-
minnilegar, veiddur silungur og
stundum lax, fullt af berjum á
haustin, já, margt var engu líkt í
Goðdal. Það liggja margar vinnu-
og ánægjustundir hjá Gulla í þess-
um friðsæla dal. Það er örugglega
hljótt í dalnum núna þegar svo
tryggur „bóndi“ kveður.
Minningabrot líða fram í ótal
myndum: Dyngjufjalladalur, ótrú-
lega seinfarinn en stórkostlegur,
komum í undraheim fegurðar í
Suðurárbotnum, tjaldað á Rifs-
hafnartanga í miðnætursól. Svona
var ferðast og Ísland í uppáhaldi
hjá okkur öllum. Sátum einu sinni
föst í Syðri-Ófæru í september-
mánuði, umferð lítil, við einbíla.
Bronkóinn að fyllast af vatni, 30
km til byggða og útlitið ekki gott,
en úr rættist. Svona gátu sum
ferðalögin orðið með ævintýrablæ.
Sofið var í tjöldum eða í gömlum
og nýjum fjallakofum. Það var
sannarlega ánægjulegt að ferðast
með Ingu og Gulla, við vorum svo
innilega samhent í öllu þessu
brölti. Alltaf stóísk ró yfir Gulla,
yfirvegaður og skipulagður í öllu
sem hann tók sér fyrir hendur,
hefði líklegast getað tekið vélina í
bílnum í sundur og sett hana sam-
an aftur á staðnum. Hann var góð-
ur skíðamaður og margar góðar
skíðaferðirnar voru farnar innan-
lands og utan. Svona gætum við
haldið áfram, en minningarnar
lifa.
Gunnlaugur Pálsson var góður
maður og vandaður. Það er sárt að
missa slíkan vin en ljúft að minn-
ast hans með hlýhug og þakklæti.
Hulda og Jónas Hallgrímsson.
Torta í Biskupstungum heitir
ein hjáleiga Haukadalstorfunnar.
Fyrir um tuttugu árum stofnuðu
landeigendur með sér félagsskap,
Landeigendafélag Tortu. Gunn-
laugur Briem Pálsson hefur verið
einn stjórnarmanna frá upphafi.
Landeigendur hafa notið ná-
kvæmra vinnubragða, alúðar og
útsjónarsemi hans í þessum störf-
um. Gróðurfar í Tortulandi er til
vitnis um það.
Við meðstjórnarmenn þökkum
Gunnlaugi samstarf og samveru
um leið og við vottum Ingu og fjöl-
skyldu þeirra okkar dýpstu sam-
úð.
Pétur Guðfinnsson og
Garðar Eiríksson.
Mig langar að kveðja Gulla með
örfáum orðum. Hann hefur verið
hluti af lífi mínu frá því ég man eft-
ir mér, ekki frændi en samt eins og
frændi. Pabbi Palla frænda míns,
besta vinar og æskufélaga. Heimili
Ingu og Gulla nánast mitt annað á
löngum stundum, ávallt velkom-
inn. Gulli var eins og kletturinn,
alltaf til staðar, traustur og yfir-
vegaður en um leið hlýr og um-
hyggjusamur. Gat verið strangur
en aldrei ósanngjarn. Allt til enda
var Gulli svona, sterkur og tókst á
við veikindi sín af sama krafti og
ásetningi og um alla aðra hluti.
Það var einhvern veginn aldrei
neitt ómögulegt, hvort sem var
framkvæmdir, ferðalög eða skíða-
ferðir. Þetta var bara gert, síðan
var tími til að njóta þess. Fram á
síðustu stundu hélt Gulli sínu
striki í veikindunum, ætlaði en var
ekki bænheyrður því miður. Gulli
kvaddi jarðvistina með reisn eins
og hans var vani. Hann var góður
maður og við Dóra nutum ávallt
gestrisni og umhyggju Ingu og
Gulla, aldrei komið að tómum kof-
anum þar. Við Dóra vottum ykkur
kæra fjölskylda innilega samúð á
þessari stundu og kveðjum Gulla
sorgmædd í hjarta en með þökk
fyrir samfylgdina með sálmi eftir
Gísla á Uppsölum:
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
Gylfi Gunnarsson.
Gunnlaugur B. Pálsson, mágur
okkar og svili, er látinn eftir
skammvinn veikindi. Við eigum
erfitt með að gera okkur grein fyr-
ir þeirri staðreynd.
Kynni okkar hófust á skólaár-
um í MR 1950 og bundumst við
strax mjög sterkum vináttubönd-
um ekki síst vegna samveru Gunn-
laugs og Ingu Ingibjargar. Kirkju-
brúðkaup þeirra var síðan haldið
nokkru seinna í Plymouth, Eng-
landi, 1953. Þar vorum við gestir
og sáum til þess að brúðurin var
leidd í faðm Gunnlaugs. Eftir
heimkomu frá námi var okkur öll-
um sameiginlegt að hugsa um
börnin og húsnæði. Svo vantaði bíl.
Saman keyptum við sjö manna
„limousine“ sem skipt var á milli
vikulega. Á þennan hátt tókst okk-
ur að fara saman um helgar í
ferðalög, veiði, á skíði og þess hátt-
ar. Síðar komu frábærar skíða-
ferðir bæði í Evrópu og Bandaríkj-
unum. Aldrei munum við gleyma
yndislegum stundum á ári hverju
með Gunnlaugi og Ingu í bústað
þeirra í Goðdal.
Þegar litið er yfir farinn veg er-
um við svo þakklát Gunnlaugi og
Ingu fyrir alla þá ástúð, velvild og
gleði sem við og börnin okkar höf-
um fengið að njóta í 60 ár.
Við biðjum almættið að blessa
Gunnlaug og vernda Ingu Ingi-
björgu, börn þeirra, tengdabörn
og barnabörn.
Sigríður og Gunnar
Bernhard.
Gunnlaugur Briem Pálsson
Fleiri minningargreinar
um Gunnlaug Briem Páls-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
EIRÍKUR EGILL JÓNSSON
stýrimaður,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn
26. febrúar, verður jarðsunginn frá Kópavogs-
kirkju föstudaginn 9. mars kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysa-
varnaskóla sjómanna.
Guðlaug S. Eiríksdóttir, Elo Gartmann,
Jón Ágúst Eiríksson, Elísabet Magnúsdóttir,
Sigurbjörn Eiríksson, Elva Kristjánsdóttir,
Helga Eiríksdóttir, Einar Bjarnason,
afabörn og langafabörn.
✝
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, langafi
og vinur,
BÁRÐUR HALLDÓRSSON
bólstrari og fyrrv. húsvörður,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 7. mars í faðmi fjölskyldunnar.
Útför hans fer fram frá Digraneskirkju föstu-
daginn 16. mars kl. 13.00.
Kristján Viðar Bárðarson, Kristín Kristjánsdóttir,
Halldór Bárðarson, Sigríður Kristinsdóttir,
Stefán Þór Bárðarson, Elín Björg Ásbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn,
Hulda Finnlaugsdóttir.