Morgunblaðið - 09.03.2012, Síða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði
- Ártúnshöfði
Til leigu 76 fm verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði á götuhæð við um-
ferðargötu á Ártúnshöfða. Stórir
gluggar, snyrtilegt húsnæði, flísalagt
gólf. Upplýsingar í síma 892 2030.
Hárfínt tækifæri -
Hárgreiðslustofa til sölu
Rótgróin og hlýleg hárgreiðslustofa
í Austurborginni. Frábær stað-
setning, góð aðkoma. Vel búin,
í góðum rekstri, mikið að gera.
Hægt að fjölga stólum og þjónustu-
þáttum. Leiga eða kaup húsnæðis.
Kjöreign, s. 533 4040,
kjoreign@kjoreign.is
Sumarhús
Til sölu
Sumarbústaður við Akureyri, stað-
settur í Vaðlaheiði. Er í byggingu.
4ra herb. 78,5 fm. Flott útsýni yfir
Akureyri.
Upplýsingar í síma 897 5300, Leó,
eða á netfangið leo@orlofshus.is
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Vantar þig iðnaðarmenn?
Nýsmíði og viðhald
Tökum að okkur nýbyggingar og
viðhald. Byggingastjórn. Húsasmíði
inni og úti, múrverk, flísalögn, gólf-
efni og raflagnir. Allt vanir meistarar.
Kostnaðarlaust tilboð eða tímavinna.
Skrauma ehf., sími: 434 7700.
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi, s. 551-6488
fannar@fannar.is -
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
Nú er rétti tíminn fyrir
trjáklippingar og fellingar
Látið fagmenn okkar nostra við
garðinn þinn. Öll almenn
garðþjónusta á einum stað.
577 4444
www.gardalfar.is
Málarar
Alhliða málningarþjónusta
Aðeins löggiltir málarar, hagstætt
verð í boði. Upplýsingar í síma:
696 2748, 692 2290.
Ýmislegt
Fáðu þér plastmódel fyrir
helgina
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is
Finnið okkur á facebook.
Öflugir fjarstýrðir bensín- og
rafmagnsbílar í úrvali.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is
Finnið okkur á facebook.
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýjar vörur
Nýkomið - kjóll.
St. S-XXL.
Sími 588 8050.
Facebook - vertu vinur
TILBOÐ TILBOÐ
Fallegir dömuskór úr leðri, skinn-
fóðraðir. Stakar stærðir.
Tilboðsverð: 3.500.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
2 FRÁBÆRIR
Teg. 42026 - Stækkar þig um númer,
fæst í B,C skálum á kr. 4.600,- buxur
í stíl á kr. 1.995.
Teg. 198880 - Léttfylltur og mjúkur í
B,C skálum á kr. 4.600,- buxur í stíl á
kr. 1.995.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugardaga 10-14.
Þú mætir - við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Úrval af vönduðum dömuskóm úr
leðri og með skinnfóðri.
Teg. 2902 Stærðir: 37-42. Verð:
14.685.
Teg. 1647 Stærðir: 37-41. Verð:
15.950.
Teg. 37718 Stærðir: 36-40. Verð:
15.800.
Teg. 37719 Stærðir: 36-40. Verð:
15.800.
Teg. 1830 Stærðir: 36-41 Verð:
15.885.
Teg. 1734 Stærðir: 36-41. Verð:
15.885.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Bílar óskast
Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is
bílasala
...í bílum erum við sterkir!
☎ 562 1717
Skráðu bílinn
þinn frítt hjá
bilalif.is
Byssur
Skotveiðivörur í úrvali
Hreinsisett, töskur, sjónaukar og m.fl.
Skotfæri í riffla á góðum verðum.
Netlagerinn slf.
Dugguvogur 17-19 2. hæð
Vefsíða tactical.is
Einfalt að versla. S. 517-8878
✝ GuðmundurKristjánsson
fæddist á Dunk-
árbakka, Hörðudal,
Dalasýslu, 26. sept-
ember 1927. Hann
lést á hjúkr-
unarheimilinu Mörk
2. mars síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru hjónin Krist-
ján Helgason, f. 26.
apríl 1892, d. 3.
ágúst 1975, og Magnhildur Ingi-
ríður Guðmundsdóttir, f. 31.
Guðmundur ólst upp við bú-
skap hjá foreldrum sínum á
Dunkárbakka. Hann sótti far-
skóla í Hörðudalshreppnum og
fór síðan í héraðsskólann í Reyk-
holti. Guðmundur vann blómann
úr starfsævi sinni á sjónum.
Hann byrjaði ungur á vertíð-
arbátum undir jökli. Hann fór
fljótlega að vinna við vélstjórn og
varð vélstjóri, þá ungur maður
eftir stríð. Í mörg ár var Guð-
mundur yfirvélstjóri hjá Pétri
Stefánssyni á Náttfara frá Húsa-
vík. Eftir að Guðmundur hætti
sjómennsku vann hann hjá
Áburðarverksmiðju ríkisins í
Gufunesi.
Útför Guðmundar fer fram frá
Fella- og Hólakirkju í dag, 9.
mars 2012, og hefst athöfnin kl.
13.
október 1894, d. 11.
desember 1962.
Systkini Guð-
mundar voru Helgi
Kristjánsson, f.
1916, d. 1983. Er-
lingur Kristjánsson,
f. 1919, d. 2002.
Svava Kristjáns-
dóttir, f. 1921. Ása
Kristjánsdóttir, f.
1923, d. 1975. Krist-
ján Kristjánsson, f.
1925, drukknaði ungur. Gunn-
hildur Kristjánsdóttir, f. 1930.
Ég vil minnast Munda móður-
bróður míns í nokkrum orðum.
Þegar ég var lítil skotta og hann
kom í land af sjónum kom hann
iðulega færandi hendi með sæl-
gæti og góss frá útlöndum til okk-
ar mæðgna og skellti pokunum á
eldhúsborðið blaðskellandi.
Einhverju sinni var hann á
humarbát frá Sandgerði og kom
með ókjör af humri og fyllti vask-
inn hjá móður minni. Hún bjó til
dýrindismáltíð úr hráefninu.
Árin liðu og þegar ég var í
menntaskóla gat ég ævinlega leit-
að til Munda og fengið lán ef mig
vantaði skotsilfur. Við fyrsta tæki-
færi var skuldin greidd og ég hélt
lánstraustinu. Hann reyndist mér
ómetanlega vel þegar móðir mín
lést árið 1975 og ég þá 18 ára. Það
ber að þakka.
Þegar Mundi hætti á sjónum og
kom í land ákvað hann að kaupa
sér frekar land en bát. Því bát-
urinn gæti jú sokkið. Hann sýndi
mér stoltur sumarbústaðalandið
sem þá var bara urð og grjót. Með
óhemju vinnu og natni breytti
hann landinu í gróið land með
mörgum plöntum og háum trjám.
Plönturnar og trén áttu hug hans
allan. Síðustu misserin var auðvelt
að gleðja hann með því að fara
með hann í bíltúr og skoða tré.
Þá var hann alsæll.
Blessuð sé minning hans.
Dagný Jónsdóttir.
Mundi frændi er allur. Margs
er að minnast. Hann birtist allt í
einu hlaðinn gjöfum handa mér og
litlu systur minni, angandi af „old
spice“ og annarri kaupstaðarlykt.
Hann hélt foreldrum mínum
uppi langt fram eftir kvöldi, miklu
lengur en venja var hjá okkur. Svo
var hann kominn upp fyrir allar
aldir og farinn að hjálpa pabba úti
á túni. Ég kom að þeim þar sem
þeir sátu og báru saman bækur
sínar í sólinni og sögðu sögur af
svaðilförum; þegar ég kom fyrir
hornið heyrði ég Munda segja:
„… og þá var ég orðinn ansi full-
ur!“ Þá fannst mér tækifæri að
koma honum á óvart og æpti upp:
„Hvað segirðu Mundi frændi,
drekkur þú brennivín?“ Þá leit
Mundi hugsandi á þennan litla
frænda sinn og sagði: „Nei nei,
elskan mín, fullur af mat elskan
mín, fullur af mat og það held ég
nú.“ Svona var hann snarráður og
fljótur að hugsa hann Mundi
frændi. Svo þegar ég eltist og fór
suður í skóla þá hittumst við oft.
Á þessum árum var ekki auð-
velt fyrir ungan mann að ná end-
um saman á útmánuðum. Oftar en
ekki var úrræðið að fá skamm-
tímalán hjá Munda frænda, gegn
veði í hýru næsta sumars. Aldrei
var hann með neinar eftirtölur, en
stundum spurði hann hvort ég
gæti borgað. Ég vandi mig á að
gefa þessum endurgreiðslum for-
gang. Kannski var það líka til-
gangurinn að venja mig á að
standa við skuldbindingar mínar.
Mundi vann blómann úr starfs-
ævi sinni á sjónum. Á þeim árum
var hart sótt og mikið fiskað.
Náttfari varð of lítill og þá var
smíðaður nýr bátur. Hann varð
fljótlega of lítill líka og þá var
pantaður bátur frá Austur-Þýska-
landi. Sá þurfti svo stóra vél að
prófið hans Munda varð of lítið.
Hann varð þá að fara aftur í Vél-
skólann, fertugur maðurinn, um
annað var ekki að ræða. Honum
fannst námið ekki auðvelt. En
hann kláraði sig af því. Hann fór
svo út, um borð í nýjan Náttfara
og hélt áfram á sjónum. Það var
ekki alltaf auðvelt að vera vélstjóri
á þessum árum, hávaði og álag
tóku sinn toll. Oft liðu nokkrar vik-
ur á vorin áður en vélarhljóðið
hvarf úr höfði hans eftir vertíðina.
Á langri sjómannsævi varð
stundum að tefla á tvær hættur.
Þetta átti líka við í vélarrúminu
þar sem stundum þurfti að halda
vélunum gangandi með brögðum.
Sagt var að honum líkaði illa að
menn væru að fara niður í vél til
hans að óþörfu, hann vildi halda
sínum vélabrögðum fyrir sjálfan
sig. Það reyndist líka fyrir bestu
og hann gat horft til baka á farsæl-
an feril sem vélstjóri.
Svo fannst honum komið nóg og
fór í land 1972. Hann keypti sum-
arbústaðarland á hörðum mel fyrir
ofan Reykjavík og fór að yrkja
garðinn sinn. Hann setti niður tré,
runna og alls konar plöntur sem
hann annaðist af alúð og kostgæfni.
Hann hafði lítinn áhuga á sjálfum
bústaðnum, það var honum bara
skýli sem gerði honum kleift að
leggja sig og laga morgunkaffi áður
en hann fór á morgunvaktina.
Það var gróðurinn sem átti hug
hans allan. Og hann náði undra-
verðum árangri. Það var dásam-
legt að koma þangað til hans og
heyra hann leggja á ráðin um
frekari ræktun. Þannig vil ég
muna Munda frænda minn. Bless-
uð sé minning hans.
Kristján Kári Jakobsson
frá Rifgirðingum.
Guðmundur
Kristjánsson