Morgunblaðið - 09.03.2012, Síða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012
Hin viðamikla myndlistarkaupstefna
Armory Show hófst í fjórtánda
skipti í New York í gær en alls taka
228 gallerí og stofnanir þátt í henni,
með afar fjölbreytilegum sýningum
og uppákomum. Telja margir þetta
vera mikilvægustu uppákomu ársins
í myndlistarheiminum, til að meta
helstu hræringar á þeim vettvangi.
Að þessu sinni er kastljósinu beint
sérstaklega að myndlist Norður-
landa, þau eru í svokölluðum „Ar-
mory Focus“, og taka margir ís-
lenskir listamenn þátt í sýningum og
uppákomum.
Katrín Sigurðardóttir, sem verður
fulltrúi Íslands á Feneyjatvíær-
ingnum á næsta ári og nýtur sívax-
andi athygli, ekki síst vestanhafs,
hefur skapað sérstaka innsetningu í
Artbook, sem er opinber bókaversl-
un listkaupstefnunnar.
i8 gallerí er í hópi helstu alþjóð-
legu galleríanna og býður upp á sýn-
ingu með nýjum verkum eftir Ólaf
Elíasson og Ragnar Kjartansson,
auk þess að sýna úrval verka úr dán-
arbúi Birgis Andréssonar.
Hrafnhildur Arnardóttir, sem
kallar sig Shoplifter, er með dag-
legan gjörning á sýningarsvæði Ný-
listasafnsins og Metropolitan En-
samble flytur tónverk eftir Örn
Alexander Ámundason um efna-
hagsástandið á Íslandi.
Þá ræddu Björk Guðmundsdóttir
og Ragnar Kjartansson saman í pall-
borði í gær, um sköpunina.
Margir íslenskir listamenn
taka þátt í Armory Show
Kastljósi beint að myndlist Norðurlanda í ár
Ljósmynd/Ingibjörg Sigurjónsdóttir
Scandinavian Pain Eitt verka Ragnars Kjartanssonar yfir bar á sýningar-
svæði Armory Show. Ragnar ræddi við Björk í pallborði í gær.
Á sunnudag verður öllum íbú-
um á Rifi boðið á tónleika í
Frystiklefanum, nýju leikhúsi
þar í bæ, í tengslum við gerð
heimildarmyndarinnar 100%
mæting eftir leikarann, leik-
hússtjórann og kvikmynda-
gerðarmanninn Kára Viðars-
son. Kári vinnur að því að fá
alla íbúa Rifs, sem eru 165 alls,
til þess að mæta á tónleikana,
en þeir fá ekki að vita hverjir
spila á tónleikunum, enda á samstaða íbúanna að
vera hvatning til að mæta á tónleikana en ekki
listamennirnir. Tónleikarnir hefjast í Frystiklef-
anum kl. 17 á sunnudag.
Leiklist
100% mæting
í Frystiklefann
Kári
Viðarsson
Á laugardag milli kl. 14 og 16
leiðbeinir Guðrún Tryggva-
dóttir myndlistarmaður gest-
um að teikna á sýningunni
Ásjóna sem nú stendur í Lista-
safni Árnesinga, en áhersla
sýningarinnar er á portrett og
teikningu. Meðan á sýningunni
stendur geta gestir teiknað í
safninu að vild
Guðrún Tryggvadóttir nam
myndlist við listaskóla á Ís-
landi, í Frakklandi og Þýskalandi. Hún hefur
starfað sem myndlistarmaður og myndlistarkenn-
ari en hin síðari ár hefur hún einkum sinnt hönn-
un og umhverfismálum.
Myndlist
Viltu teikna
í Listasafni?
Guðrún
Tryggvadóttir
Forlagið hefur gefið út að
nýju barnabókina Bétveir
með nýjum myndum eftir
höfund bókarinnar, Sigrúnu
Eldjárn. Bétveir kom fyrst
út 1986 og segir frá því er
bleikur geimbátur lendir í
garðinum hjá Áka og systk-
inum hans. Út úr honum
stígur tvíhöfða furðuvera
sem segist heita Bétveir.
Veran er forvitin um lífið á
jörðinni, einkum þó um fyrirbæri sem hún hefur
séð utan úr geimnum og veit ekki til hvers er notað.
Bétveir dvelur heilan dag með systkinunum og
lendir í ýmsum ævintýrum.
Bækur
Bétveir snýr
aftur til jarðar
Kápa nýrrar útgáfu
bókarinnar Bétveir.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Upp úr 1840 fara allir landsmenn að
drekka kaffi. Þá hættir kaffi að vera
munaðarvara fyrirmanna og síast svo
að segja niður allt samfélagið,“ segir
Már Jónsson, prófessor í sagnfræði,
en hann fjallar um kaffineyslu Íslend-
inga á fyrri hluta 19. aldar í erindi
sínu á Hugvísindaþingi HÍ 2012 sem
hefst í dag.
Í samtali við Morgunblaðið bendir
Már á að á árabilinu 1819-1840 hafi
innflutningur á kaffi nífaldast úr tæp-
um 5 tonnum í 44 tonn. „Næstu árin
jókst innflutningurinn enn og á sjö-
unda áratug aldarinnar voru að jafn-
aði flutt inn nærri 200 tonn á ári eða
þrjú kíló á hvert mannsbarn í land-
inu,“ segir Már og bendir til sam-
anburðar á að árin 2007-2011 voru
flutt inn 2230 tonn af kaffi eða sjö kíló
á mann.
Að sögn Más tengist rannsókn
hans á kaffineyslu landans mun
stærra verkefni sem lýtur að því að
skoða í þaula heimildir um dánarbú
fólks á 19. öld. „Til eru skráðar heim-
ildir um dánarbú um 25 þúsund Ís-
lendinga á 19. öld,“ segir Már og
bendir á að það
kalli á mikla vinnu
að fara í gegnum
þetta mikla magn
gagna.
„Fyrir erindið
mitt á morgun hef
ég sérstaklega
skoðað eign fólks
á kaffikötlum,
kaffikvörnum og
bollapörum í dánarbúum til að leggja
mat á hvernig kaffidrykkja dreifðist
um íslenskt samfélag, með það að
markmiði að greina hversu lítið fólk
þurfti að eiga til að vilja geta notið
hins nýja ávanabindandi munaðar.“
Hugvísindaþing 2012 hefst í dag kl.
13 og lýkur á morgun kl. 16:30, en öll
erindin verða flutt í Aðalbyggingu
HÍ. Í ár verður boðið upp á 27 mál-
stofur um allt milli himins og jarðar,
m.a. Dickens, gröf og dauða, mál-
hreinsun á 19. öld, matarmenningu,
loftslagsumræðuna, gagnrýna hugs-
un, fjölmiðla og þöglar kvikmyndir.
Erindi Más verður flutt í stofu 207 í
Aðalbyggingu HÍ kl. 16 á morgun.
Tæmandi dagskrá þingsins má sjá á
vefnum: http://www.hugvis.hi.is/
hugvisindathing.
Nautnadrykk-
ur á 19. öld
Hugvísindaþing Háskóla Íslands
2012 fer fram í dag og á morgun
Már Jónsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Munaðarvara Kaffi var dýrt á 19. öld og því höfðu menn áhyggjur af því að
aukin kaffidrykkja almennings hefði neikvæð áhrif á skuldastöðu heimilanna.
Norski trommuleikarinn Erik
Smith og Gunnlaugur Briem koma
fram á trommuhelgi Tónastöðvar-
innar sem haldin verður nú um
helgina og hefst í kvöld kl. 18.30.
Þá setjast þeir við trommusettin
Erik Smith og Gunnlaugur og ræða
um hljóðfæri sín og leika nokkur
verk.
Á laugardag kl. 14 koma þeir svo
fram á tónleikum í sal Nýherja,
Borgartúni, þar sem þeir leika
þekkt lög þar sem aðaláherslan er
lögð á trommusettið og fara yfir
ýmis atriði sem tengjast trommu-
leik, trommusóló, tækni, groove
o.fl. Gestum gefst kostur á að hlýða
á þá félaga spila, skoða þá mögu-
leika sem eru í boði og beina
spurningum til þeirra Smiths og
Gunnlaugs.
Erik Smith er einn af þekktustu
trommuleikurum Noregs og hefur
leikið með mörgum norskum og al-
þjóðlegum tónlistarmönnum á borð
við Art Garfunkel, Sissel Kirkebo,
Oslo Groove company, Michael
Bolton, Frank Gambale og Randy
Crawford.
Forsala miða er á skrifstofu
FÍH, Rauðagerði 27.
Slagverk Gunnlaugur Briem og Er-
ik Smith koma fram á trommuhelgi.
Trommu-
tónleikar og
fyrirlestur
Erik Smith og
Gunnlaugur Briem
sýna og spjalla
Morgunblaðið/Golli
Meðal efnis :
Hönnuðir,arkitektar og aðrir
þátttakendur.
Ný íslensk hönnunn.
Húsgögn og innanhúshönnun.
Skipuleggjendur og saga
hönnunarMars.
Dagskráin í ár.
Erlendir gestir á hátíðinni.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni
um hönnun.
Morgunblaðið gefur þann
22. mars út glæsilegt
sérblað um HönnunarMars
Á HönnunarMars gefst tækifæri til
að skoða úrval af þeim fjölbreytilegu
verkefnum sem íslenskir hönnuðir og
arkitektar starfa við. Hátíðin verður
haldin víðsvegar um Reykjavík
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, FÖSTUDAGINN
16. MARS
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
SÉRBLAÐ