Morgunblaðið - 09.03.2012, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012
AF HÁLFVITUM
Hjalti St. Kristjánsson
hjaltistef@mbl.is
Tjah, Það er nú ekki mikið ámanninn,“ heyrðist einn afmarkaðsmeisturum íslensks
tónlistarlífs, Einar Bárðarson, segja
þegar Ljótu hálfvitarnir stigu á svið
á degi íslenskrar tónlistar árið 2008.
Þessi þá hóflega þekkta hljómsveit
hafði fyrst vakið athygli með sigri í
sjómannalagakeppni Rásar 2 árinu
áður og var óðum að sækja í sig
veðrið. Fyrsta platan, samnefnd
hljómsveitinni, leit dagsins ljós
stuttu eftir sigurinn í sjómannalaga-
keppninni og var stóri smellurinn
„Sonur hafsins“, sigurlagið sjálft.
Hljómsveitin var sett samanhaustið 2006 eftir örfáar hró-
keringar úr hljómsveitunum Ripp,
Rapp og Garfunkel og Ljótu hálfvit-
unum. Í upphafi voru helstu yrkis-
efnin drykkja, bjór og stuð. Írsk-
ættaðir samsöngvar með trall-
köflum og öfgakendir pönkskotnir
ofsapolkar voru einkennandi en þó
mátti finna stöku ballöðu um ætt-
ingja og aðstandendur, vini og vel-
unnara. Strax í upphafi voru flestar
reglur bragfræðinnar teknar föst-
um tökum og ákveðið að það tæki
því ekki að yrkja á íslensku ef ekki
væri eftir kúnstarinnar reglum og
þá voru línurnar lagðar. Það liggur
í augum uppi að það er ekki til neins
að leggja af stað með níu manna
hljómsveit ef ekki eru allir tilbúnir
að leggja jafnmikið á sig og ef á að
fara af stað með hljómsveit sem ber
sig þurfa allir að leggja sig 140%
fram. Það er svo skemmst frá því að
segja að þetta þrælsmall saman og
vinsældir fyrstu plötunnar voru
stoðir undir farsælt samstarf. Önn-
ur platan, samnefnd hljómsveitinni,
var svo gefin út tæpu ári eftir þá
fyrstu. Og ekki minnkuðu vinsæld-
irnar. Lagið „Lukkutroll“ sló ræki-
lega í gegn enda frábær samsuða
hnyttins texta og líflegs og
skemmtilegs lags. Hálfvitarnir
eyddu meira og minna öllu sumrinu
í það að ferðast um landið og trylla
lýðinn og jukust vinsældirnar eftir
því. Þriðja platan, samnefnd hljóm-
sveitinni, var svo gefin út réttu ári
eftir plötu númer tvö. Þar mátti
greina mun vandaðri lagasmíðar og
stórbætta spilamennsku og þó svo
að stuðið og tryllingurinn væru ekki
í forgrunni var það kannski þörf
þróun.
Ljótu hálfvitarnir tóku sér pásu
fyrir rúmu einu og hálfu ári og
sneru sér að öðrum verkefnum,
Skálmöld og A band on stage sem
dæmi. Var það þarft enda auðvelt
fyrir litla þjóð að fá leiða á hljóm-
sveit sem er jafndugleg að spila.
Þeir eru hins vegar komnir saman
aftur og ef dæma má af fyrstu tón-
leikunum sem fram fóru á Rósen-
berg um liðna helgi hafa þeir engu
gleymt – ef eitthvað er orðnir miklu
betri en þeir voru. Þeir ætla að eyða
marsmánuði í að sýna sig og sjá
aðra og verða nú um helgina á
Græna hattinum og það ætti enginn
að láta þá framhjá sér fara. Hafirðu
ekki séð Ljótu hálfvitana á sviði
skaltu drífa þig af stað. Annað væri
tómur hálfvitaskapur.
Jæja, byrjar þessi ekkisens
hálfvitaskapur aftur …
Ljósmynd/Hjalti St. Kristjánsson
Ljótu hálfvitarnir Ekki bara sætir heldur líka góðir á litla gítara.
» Strax í upphafivoru flestar reglur
bragfræðinnar teknar
föstum tökum og ákveð-
ið að það tæki því ekki
að yrkja á íslensku ef
ekki væri eftir kúnstar-
innar reglum.
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS.
PLEASANT SURPRISE
- C.B, JOBLO.COM
EXPLOSIVE
– J.D.A, MOVIE FANATIC
“PURE MAGIC”
– H.K, AIN’T IT COOL NEWS
“VISUALLY STUNNING”
– K.S, FOX TV
MÖGNUÐ ÆVINTÝRAMYND Í 3D
SÝND Í 2D OG 3D
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
VANESSA HUDGENS, MICHAEL CAINE OG DWAYNE „THE
ROCK“ JOHNSON TRYGGJA ÓSTÖÐVANDI BÍÓSKEMMTUN
MÖGNUÐ ÞRÍVÍDD
SÝND MEÐ ÍSLENSKUM TEXTA
10
EGILSHÖLL
12
16
16
L
7
7
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS.
SÝND Í 2D OG 3D
MÖGNUÐ
ÆVINTÝRAMYND Í 3D
ÁLFABAKKA
10
7
7
7
7
12
VIP
16
16
L
L
JOHN CARTER kl. 4 - 5:20 - 8 - 10:40 3D
JOHN CARTER kl. 10:10 2D
JOHN CARTER Luxus VIP kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D
THE WOMAN IN BLACK kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D
JOURNEY 2 : THE MYSTERIOUS ISLAND 3D kl. 3:20 3D
JOURNEY 2 : THE MYSTERIOUS ISLAND kl. 3:40 - 5:50 - 8 2D
A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:30 2D
HUGO Með texta kl. 5:30 - 8 2D
CONTRABAND kl. 10:10 2D
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN M/ ísl. Tali kl. 3:40 2D
FJÖRFISKARNIR M/ ísl. Tali kl. 3:30 2D
10
7
7
16
L
KRINGLUNNI
JOHN CARTER kl. 5:20 - 8 - 10:40 3D
THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:10 2D
JOURNEY 2 : THE MYSTERIOUS ISLAND 3D kl. 5:50 - 8 3D
HUGO Með texta kl. 10:10 2D
BEAUTY & THE BEAST - 3D (FRÍÐA OG DÝRIÐ) M/ ísl. Tali kl. 6 3D
7
12
12
SELFOSS
JOHN CARTER kl. 5:20 - 8 - 10:40
A FEW BEST MEN kl. 6
THIS MEANS WAR kl. 8 - 10:20
KEFLAVÍK
7
7
12
16
L
JOHN CATER kl. 8 3D
SVARTUR Á LEIK kl. 10:40 2D
JOURNEY 2 : THE MYSTERIOUS ISLAND kl. 5:50 3D
SKRÍMSLI Í PARÍS m/íslensku tali kl. 6 2D
A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:10 2D
AKUREYRI
7
7
12
16
L
JOHN CARTER kl. 8 3D
JOURNEY 2: THE MYSTERIOUS ISLAND kl. 6 3D
THE WOMAN IN BLACK kl. 10:40 2D
PRÚÐULEIKARARNIR enskt tal ísl texti kl. 6 2D
A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:20 2D
PLEASANT SURPRISE
- C.B, JOBLO.COM
EXPLOSIVE
– J.D.A, MOVIE FANATIC
“PURE MAGIC”
– H.K, AIN’T IT COOL NEWS
“VISUALLY STUNNING”
– K.S, FOX TV
JOHN CARTER kl. 5:10 - 8 - 10:10 - 10:50 3D
THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:50 2D
JOURNEY 2: THE MYSTERIOUS ISLANDkl. 5:50 - 8 3D
FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl tali kl. 6 3D
HAYWIRE kl. 10:10 2D
HUGO kl. 5:20 2D
A FEW BEST MEN kl. 8 2D
blurb.com
Frá höfundi Death at a Funeral.Frábær
gamanmynd
með
sótsvörtum
húmor
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
VANESSA HUDGENS, MICHAEL CAINE OG DWAYNE „THE
ROCK“ JOHNSON TRYGGJA ÓSTÖÐVANDI BÍÓSKEMMTUN
MÖGNUÐ ÞRÍVÍDD
Toppmyndin á Íslandi
og vinsælasta myndin
í heiminum í dag
Time
Movieline
Myndin sem hefur setið síðustu 3
vikur á toppnum í Bretlandi og notið
gríðarlega vinsælda í USA.
Ein besta draugamynd síðari ára
NÝTT Í BÍÓ
Frumraun söngkonunnarMyrru Rósar kom útseint á síðasta ári og máhún býsna vel við una.
Plata hennar, sem nefnist Kveld-
úlfur, er verk sem sjóaðir tónlist-
armenn teldust sæmdir af.
Tónlist Myrru einkennist af
þægilegum kassagítarleik þó
tempóið fari
misjafnlega
geyst. Upp-
hafslagið, Við
og við, er við-
kvæmnisleg
og falleg ball-
aða, vel sam-
in og sungin,
og gefur tón-
inn fyrir framhaldið. Nokkuð
hressast leikar í næsta lagi, Ani-
mal, en þar bregða Myrra og með-
spilarar hennar fyrir sig blágresi
með góðum árangri og Myrra má
eiga það að henni lætur jafnvel að
syngja á íslensku og ensku. Maður
„kaupir“ bara einhvern veginn
röddina; ef til vill af því hún syng-
ur af tilfinningu án þess að láta
nokkurn tíma eftir sér að bregða
slaufum á sönginn og gera hann
óþarflega tilfinningasaman eða
væminn. Það hefði verið auðvelda
leiðin að fanga eyru hlustenda
með slíkum trixum en þá hefði
tónlistin líka orðið þess leiði-
gjarnari. Þvert á móti heldur
Myrra sig á slóðum lágstemmdrar
angurværðar og platan er öll hin
áheyrilegasta. Einkum eru áður-
nefnt Við og við, Værð og vökul
þrá, titillagið Kveldúlfur og loka-
lagið Sail On sem sitja eftir í
hlustum áheyrandans.
Hljóðheimur plötunnar er allur
hinn fínasti og verður að taka
fram hversu vel heppnaðar útsetn-
ingarnar eru á plötunni. Þær spil-
ast saman við rödd Myrru eins og
best verður kosið og úr verður
plata sem mun vafalaust rata und-
ir geislann vítt og breitt á næstu
vikum og mánuðum. Framhaldið
hjá Myrru verður spennandi.
Flott Hljóðheimur plötunnar er
allur hinn fínasti og útsetningarnar
vel heppnaðar, segir m.a í dómnum.
Myrra Rós
kveður sér hljóðs
Myrra Rós - Kveldúlfur
bbbmn
Kveldúlfur, frumraun söngkonunnar
Myrru Rósar.
JÓN AGNAR
ÓLASON
TÓNLIST