Morgunblaðið - 09.03.2012, Side 43
Mæðgur Hér má sjá Bobbi Kristinu Brown ásamt móður sinni. Hún þarf
ekki að hafa áhyggjur af peningum næstu árin, orðin vellauðug.
Einkadóttir Whitney Houston,
Bobbi Kristina Brown, er ekki á
flæðiskeri stödd því hún erfir öll
auðæfi móður sinnar. Erfðaskrá
söngkonunnar hefur verið gerð op-
inber en samkvæmt henni renna
allar hennar eigur til 19 ára gam-
allar einkadótturinnar; fjármunir,
skartgripir, föt, fasteignir og bílar.
Stofnaður verður sjóður utan um
arfinn og verður féð varðveitt þar
til Bobbi Kristina nær 21 árs aldri,
samkvæmt heimildum Inside Edit-
ion. Fær hún þá hluta arfsins
greiddan út, viðbótargreiðslu þeg-
ar hún verður 25 ára og full yfirráð
yfir sjóðnum þegar hún verður þrí-
tug.
Whitney fól móður sinni Cissy
Houston yfirstjórn sjóðsins, með að-
stoð bróður hennar og mágkonu,
Michaels og Donnu Houston. Erfða-
skráin, sem er frá árinu 2000, felur
í sér ákvæði þar sem segir að ef
Bobbi Kristina hefði dáið á undan
móður sinni hefðu allar eigur söng-
konunnar skipst jafnt á milli stór-
fjölskyldu hennar og fyrrverandi
eiginmannsins, Bobbys Browns.
Houston og Brown voru gift í 14
ár en skildu árið 2007.
Eins og heimsbyggðin öll veit nú
lést Whitney Houston hinn 11. febr-
úar eftir áralanga baráttu við
Bakkus og hans djöfla. Hún var 48
ára. Söngkonan sló í gegn um miðj-
an níunda áratuginn og fram til
1990 átti hún hvert lagið á fætur
öðru á vinsældalistum en vinsæl-
asta lag hennar er án efa „I will
Always Love You“ sem hún söng í
kvikmyndinni Bodyguard árið
1992. Áhrif hennar á seinni tíma
söngdívur eins og Mariuh Carey og
Celine Dion þykja þá gríðarleg.
Dóttir Whitney Houston mun
erfa öll auðæfi móður sinnar
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Ótrúleg
sértilbo
ð fyrir
áskrifen
dur Mo
rgunbla
ðsins
Nú klárum við veturinn!
Takmarkaður fjöldi
sæta í boði!
Morgunblaðið, í samstarfi við Heimsferðir, býður áskrifendum sínum
frábær tilboð til Kanarí. Fjölbreytt gisting í boði á afar hagstæðum kjörum.
Um mjög takmarkaðan fjölda flugsæta er að ræða og gisting er einnig
takmörkuð.
Hér gildir fyrstur kemur, fyrstur fær!
20. mars – 8 nætur
Verð frá 79.900 kr.
Kanarí
Þú bókar tilboðið á www.heimsferdir.is eða hjá ferðaráðgjöfum okkar í síma
595 1000. Ath. verð getur hækkað án fyrirvara!
Allir fastir áskrifendur Moggans eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum
og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í
boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða í síma 569 1122
Verðdæmi Kanarí
Alm. verð Áskr. verð Þú sparar
8 nætur 8 nætur
Roque Nublo ***
3 í íbúð með einu svefnherbergi 127.600 79.900 47.700
2 í íbúð með einu svefnherbergi 138.700 89.400 49.300
Barbacan Sol ***
4 í íbúð með einu svefnherb. m/morgunverði 3. og 4. aðili barn 163.200 119.900 43.300
3 í íbúð með einu svefnherb. m/morgunverði 3. aðili barn 165.500 124.900 40.600
2 í íbúð með einu svefnherb. m/morgunverði 170.100 139.900 30.200
Liberty apartments ***
3 í íbúð með einu svefnherbergi 131.400 89.900 41.500
2 í íbúð með einu svefnherbergi 144.600 94.200 50.400
20. mars – verð frá 79.900 kr.
Ótrúlegt verð!Þú getur sparað allt að50.400 kr.á mann
Afþreyingarvefurinn IGN.com
keyrði á dögunum könnun þar sem
notendur voru beðnir að lýsa áliti
sínu á því hver eigi að syngja tit-
illag næstu James Bond-myndar.
Það þarf svosem ekki að koma á
óvart að Adele, vinsælasta söng-
kona heims nú um stundir, fékk
flest atkvæði. Á eftir henni komu
svo tvær rokksveitir, Muse og Foo
Fighters. Fleiri sem voru nefndir
voru U2, Florence And The Mach-
ine, Arctic Monkeys, Lana Del Rey,
Guns N’ Roses, Karen O úr Yeah
Yeah Yeahs og Rihanna.
Það er NME sem segir frá. Næsta
Bond-mynd kallast Skyfall og er
leikstýrt af Sam Mendes.
AP
Bondstúlka? Allir vilja fá Adele til
að syngja næsta Bondlag, nema hvað!
Adele
syngi næsta
Bond-lag
Woody Allen er orðinn sjaldséður á
tjaldinu þó hann dæli út myndum
sem leikstjóri. Það kemur því an-
kannalega fyrir sjónir að hann ætl-
ar að leika í mynd sem er ekki leik-
stýrt af honum sjálfum. Mun hann
koma fram í Fading Gigolo ásamt
John Turturro en hann er höfundur
hennar; leikstýrir henni og leikur í
henni (hljómar kunnuglega...).
Munu þeir leika félagana Virgil og
Bongo sem taka upp á því að fal-
bjóða sig. Athyglisvert!
Reuters
Leikari Woody Allen er að fara að
leika í mynd John Turturro.
Woody
Allen leikur