Morgunblaðið - 09.03.2012, Side 44
FÖSTUDAGUR 9. MARS 69. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Kennari í klámiðnaði
2. Kanna fjölskyldur lögreglumanna
3. Ég er í dálitlu losti
4. Íhugaði að forða sér
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hin mikla Hjaltalín tilkynnti í gær á
heimasíðu sinni að fimm daga upp-
tökutörn í sumarbústað væri nú lok-
ið. Tónlistin var bæði samin og tekin
upp en myndir frá ferlinu má sjá á áð-
urnefndri síðu.
Hjaltalín lýkur
sumarbústaðatökum
Kongó er nýtt
fyrirtæki sem sér-
hæfir sig í dreif-
ingu á tónlist og
annarri afþrey-
ingu. Einnig verð-
ur rekin plötubúð
að Nýlendugötu
14. Til að fagna
þessu verður opið
hús á morgun. Fram koma Pollapönk,
Prinspóló og ADHD. Matthías Árni
Ingimarsson, Kimi og Jón Þór Þor-
leifsson standa á bak við Kongó.
Formleg opnun
Kongó á laugardag
Heimsfrægð Bjarkar kemur okkur
Frónverjum ennþá pínulítið á óvart.
Þótt frið fái hún hér er það ekki svo í
stórborgum heimsins og þannig slær
Daily Mail í Bretlandi því upp að
söngkonan hafi
verið í göngutúr
með dóttur
sinni í Soho í
New York, fyrir
stuttu. Ítarleg
grein fylgir,
m.a. úttekt á
kaffihúsaferð
Bjarkar!
Björk og Ísadóra
á vappi í Soho
Á laugardag Slydda eða snjókoma, en síðar rigning og hiti 0 til 7
stig en hægari, úrkomulítið NA-til og vægt frost.
Á sunnudag Suðvestan 10-15 en hægari síðdegis. Slydduél en
bjartviðri NA-til. Hiti 0 til 4 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan 8-15 í kvöld. Víða frostlaust
við sjóinn en frost 1 til 5 stig inn til landsins.
VEÐUR
Sveinn Aron Sveinsson
skoraði sigurmark Vals-
manna gegn FH á síðustu
sekúndu á Íslandsmótinu í
handbolta í gærkvöld.
Spurningin sem brann á öll-
um eftir leik var hvort leikn-
um hefði verið lokið þegar
hann skoraði. En markið
stóð og Valur vann FH.
Geysilega óvænt úrslit urðu
þegar botnlið Gróttu vann
Íslandsmeistara Hauka á
Seltjarnarnesi. »2-3
Var sigurmark
Vals ólöglegt?
Úrslitarimma SR og Bjarnarins um Ís-
landsmeistaratitil karla í íshokkí er
aftur á byrjunarreit eftir að SR lagði
Grafarvogsliðið á heimavelli þess í
Egilshöllinni í gærkvöld, 7:4. Staðan
er 1:1 og næsti leikur á heimavelli SR
í Laugardal. »1
Úrslitarimman aftur
komin á byrjunarreit
Njarðvíkingar unnu sætan sigur
á nágrönnum sínum frá Keflavík
í úrvalsdeildinni í körfubolta í
gærkvöld. Travis Holmes átti
stórleik og skoraði 41 stig fyrir
Njarðvík. KR-ingar gerðu bara
það sem þeir þurftu til að sigra
Tindastólsmenn, sem voru sorg-
lega lélegir að mati sérfræðings
Morgunblaðsins. »4
Sætur sigur hjá
Njarðvíkingum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Einleikurinn Djúpið eftir Jón Atla
Jónasson verður sýndur á alþjóð-
legu leiklistarhátíðinni í leikhúsinu
Schaubühne í Berlín annað kvöld
(Das Festival Internationale Neue
Dramatik, F.I.N.D. 2012). „Það er
mjög skemmtilegt að fá að taka þátt
í þessu því þarna er það helsta sem
er að gerast í alþjóðlegri leiklist,“
segir Jón Atli.
Verkið var skrifað fyrir Borgar-
leikhúsið og frumsýnt þar fyrir tæp-
lega þremur árum. „Þetta er ein af
þeim sýningum sem ég er stoltastur
af í minni tíð hér,“ segir Magnús
Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borg-
arleikhússins, og bendir á að Schau-
bühne sé eitt virtasta leikhús heims.
Því sé mikill heiður að fá að sýna
þar. „Þetta er alveg magnað leikrit,
textinn ljóðrænn en samt svo til-
gerðarlaus og sannur,“ heldur hann
áfram. „Þetta er mjög íslenskt, það
stendur okkur nærri.“
Þrekraun
Fyrir um 28 árum komst Guð-
laugur Friðþórsson af eftir að skip
hans fórst með fjórum mönnum
skammt frá Vestmannaeyjum.
Hann var um sex tíma í köldum
sjónum áður en hann náði landi og
sú þrekraun er fyrirmynd Jóns Atla
að Djúpinu. „Mér fannst þetta
spennandi saga,“ segir hann um
tildrög verksins, sem hefur snert
áhorfendur jafnt innan lands sem
utan.
Jón Atli segir að það þyki
mjög fínt að komast með
verk inn á hátíðina í Berlín.
Hann er eini norræni höf-
undurinn þar að þessu
sinni en Egill Heiðar
Anton Pálsson leik-
stýrir Djúpinu í Schau-
bühne.
Verðlaunaverkið Djúpið
hefur verið sýnt víða um land og
Ingvar E. Sigurðsson þótt fara á
kostum. Það hefur líka verið sýnt í
Skotlandi og Danmörku og útvarps-
verk, sem var unnið upp úr því, fékk
þriðja sætið fyrir best leikna út-
varpsverkið í Evrópu 2011, en verð-
launin voru einmitt afhent í Berlín í
haust. Jón Atli segir að með þátt-
töku í F.I.N.D. hafi verkið náð
hæstu hæðum. „Það er rosalega
gaman að fá að sýna í þessu húsi,“
segir hann. Djúpið hafi meðal ann-
ars verið sýnt í sjávarplássum á Ís-
landi, til dæmis fyrir 50 manns á
Eskifirði, og dúkki svo allt í einu
upp á sviði í einu virtasta leikhúsi
Evrópu. „Þetta er mjög skemmti-
legt og frábært tækifæri fyrir ís-
lenska leiklist,“ segir Jón Atli.
Djúpið í hámarki í Berlín
„Frábært
tækifæri fyrir
íslenska leiklist“
Morgunblaðið/Ómar
Djúpið Ingvar E. Sigurðsson og Jón Atli Jónasson á frumsýningunni. Þjóðverji fer með hlutverk Ingvars í Berlín.
Jón Atli Jónasson hefur verið
fastráðinn leikskáld Borg-
arleikhússins næsta ár. Í því
felst meðal annars að hann á
að skrifa nýtt verk sem á
að fara á fjalirnar á leik-
árinu 2013-2014. Auk
þess er verið að vinna
við uppsetningu á öðru
verki eftir hann sem heitir
Nóttin nærist á deginum.
Magnús Geir Þórðarson,
leikhússtjóri Borgarleikhússins,
segir að ennfremur verði hann sex
ungum og frekar óreyndum leik-
skáldum Borgarleikhússins innan
handar.
Borgarleikhúsið hefur auglýst
eftir öðru leikskáldi, karli eða konu
sem hefur reynslu af ritstörfum en
hefur ekki unnið fyrir leikhús.
Magnús Geir segir að Jón Atli
muni einnig aðstoða þetta leik-
skáld.
Jón Atli fastráðinn leikskáld
BORGARLEIKHÚSIÐ Í REYKJAVÍK
Magnús Geir
Þórðarson