Morgunblaðið - 09.03.2012, Side 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ
Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is • dorma@dorma.is • OPIÐ Virka daga frá kl. 10-18, Lau frá kl. 11-17 og sun frá kl. 13-16
Shape
by Nature bedding
MJÚKUR
•
Alhliða heilsukoddi
ShapeComfort
kr. 4.900,-
ÞÉTTUR
•
Ótrúlega þægilegur
ShapeClassic
kr. 5.900,-
STUÐNINGS
LAG
•
Veitir réttan stuðning
ShapeOriginal
kr. 8.900,-
Shape heilsukoddarnir gefa þann stuðning og þægindi sem tryggja þér góða næturhvíld.
Shape heilsukoddarnir eru gerðir úr byltingarkenndu Visco-Elastic þrýstijöfnunarefni.
Shape heilsukoddarnir tryggja að höfuð þitt er í náttúrulegri svefnstöðu og létta því á öxlum.
Byltingarkennda Shape Visco-Elastic þrýstijöfnunarefnið tryggir góða öndun í heilsukoddanum.
AloeVera áklæði fyrir einstaka mýkt og öndun.
Komdu
núna !
Þ
egar ég fermdist í
Silfrastaðakirkju í
Skagafirði vorið 1989
var ég full efasemda.
Fannst ég varla hafa
öðlast þann skilning á trúarlífinu
að ég gæti tekið svo stóra ákvörð-
un sem fermingin alltaf er. En á
endanum ákvað ég að stíga þetta
skref og sé ekki eftir því. Þetta
var ákvörðun sem markaði skil og
þegar í framhaldsskóla ákvað ég
svo að leggja guðfræðina fyrir
mig,“ segir sr. Sigríður Gunn-
arsdóttir, sóknarprestur á Sauð-
árkróki.
Dýrmætir dagar
Alls 32 börn fermast á Krókn-
um þetta vorið. Fræðslan hefur
staðið yfir alveg frá því í ágúst-
lok, hefðinni samkvæmt hófst hún
á því að þorri fermingarbarna í
Skagafirði og Húnavatnssýslum –
nærri 100 krakkar – fór með
prestunum sínum í fimm daga
námskeið i Vatnaskógi. „Dagarnir
í Vatnaskógi eru afskaplega dýr-
mætur tími; nám og leikur í rétt-
um hlutföllum auk þess sem
þarna gefst gott tækifæri til að
kynnast krökkunum, viðhorfum
þeirra og væntingum,“ segir Sig-
ríður sem hefur þjónað sem
prestur á Króknum síðastliðin
fimm ár.
„Fermingarundirbúningurinn
er með talsvert öðrum hætti úti á
landi en fyrir sunnan gæti ég
ímyndað mér. Þegar ég var í guð-
fræðideildinni starfaði ég vetr-
arlangt sem fræðari ferming-
arbarna í stórri sókn í borginni,
enda komust prestarnir þar ekki
nema að litlu leyti yfir að sinna
fræðslunni jafnhliða öðrum anna-
sömum störfum. Úti á landi þykir
hins vegar sjálfsagt og eðlilegt að
prestarnir hafi þetta starf með
höndum enda ekki annað í boði,
og þar ræður einfaldlega stærð
safnaðanna,“ segir Sigríður sem
finnst það auðvelda ferming-
arfræðsluna á Króknum mjög hve
gott samstarf sé við stjórnendur
grunnskóla bæjarins, Árskóla.
„Ég finn fyrir miklum velvilja í
skólanum. Þarna eru alls ekki
þessar girðingar milli skóla og
kirkju sem hefur víða verið komið
upp, til dæmis í Reykjavík. Þess
hafa líka verið dæmi að eigi ferm-
ingarbörn einhverra aðstæðna
vegna ekki möguleika á að kom-
ast í safnaðarheimilið, þar sem
fermingarfræðslan alla jafna fer
fram, þá hef ég fengið að vera í
grunnskólanum. Þetta samstarf
finnst mér alveg frábært enda er
það allra hagur.“ Alls 35 ár eru
síðan kennslubókin Líf með Jesú
var fyrst notuð í ferming-
arfræðslu hér á landi. Höfundur
bókarinnar, Jan Carlquist, er
sænskur en það voru svo bræð-
urnir Einar og Karl Sigurbjörns-
synir sem þýddu bókina og stað-
færðu. Þúsundir íslenskra
fermingarbarna í meira en heila
kynslóð hafa því kynnst þessari
bók sem hefur reynst vel.
„Að vísu hefur þessi bók verið
heldur á undanhaldi síðustu árin
og margir prestar eru komnir
með annað efni. Ég hef hins veg-
ar haldið mig við þessa bók, enda
finnst mér þurfa að vera kjöt á
beinunum í svona bókum. Eitt-
hvað sem stendur eftir og er dýr-
mætt að krakkarnir læri. Líf með
Jesú er bók sem stendur undir
væntingum að því leyti,“ segir
Siguríður sem finnst að börnin
komi inn í fermingarfræðsluna
með afar ólíkan bakgrunn. Sum
þeirra hafi kynnst bænalífi og
kirkjusókn, séu handgengin helgi-
haldi og fyrir vikið hafi þau for-
skot þegar að fermingar-
fræðslunni kemur. Þess séu svo
líka dæmi að börnin hafi lítil sem
engin kynni af þeim menningar-
arfi og lífi sem kristinni trú fylgi.
Fræðist en fermist ekki
„Auðvitað vil ég að sem flest
börn fermist, þó ég hafi líka alveg
skilning á því ef krakkarnir með
foreldrum sínum taka aðra af-
stöðu. Til dæmis er ein stúlka í
hópnum sem ætlar ekki að ferm-
ast en hefur eigi að síður mætt í
alla tímana í fermingarfræðslunni,
einfaldlega til þess að kynna sér
hina kristnu trú. Mér finnst sú af-
staða mjög virðingarverð,“ segir
Sigríður Gunnarsdóttir.
„Og þá komum við að ferming-
unni sjálfri og inntaki hennar,
sem er eðlilega að Jesús verði að
merkingarbærri persónu í lífi
hvers og eins og boðskapur hans
eitthvað sem skiptir máli. Einmitt
þá hlýtur kærleikurinn að vera
virkur í verki og svo efinn hin
hliðin á peningnum þegar kemur
að trúmálum. Spyrja spurninga
um allt og taka ekki afstöðu nema
spyrja spurninga. Mér finnst
sömuleiðis mikilvægt að trúin
verði eðlilegur hluti af lífi ung-
mennanna og þau verði hand-
gengin kristindómnum með því að
biðja bænir og iðka trú sína. Það
skipir svo sannarlega máli.“
sbs@mbl.is
Jesús verði merkingarbær persóna
Ljósmynd/Óli Arnar Brynjarsson
Króksklerkur „Fannst ég varla hafa öðlast þann skilning á trúarlífinu að ég gæti tekið svo stóra ákvörðun sem
fermingin alltaf er. En á endanum ákvað ég að stíga þetta skref,“ segir sr. Sigríður Gunnarsdóttir.
’Þess hafa líka veriðdæmi að eigi ferm-ingarbörn einhverra að-stæðna vegna ekkimöguleika á að komast í
safnaðarheimilið, þar
sem fermingarfræðslan
alla jafna fer fram, þá
hef ég fengið að vera í
grunnskólanum. Þetta
samstarf finnst mér al-
veg frábært
Börnin verði handgengin kristindómnum, segir sr. Sigríð-
ur Gunnarsdóttir á Sauðárkróki. 32 börn þar í vor. Gott
samstarf kirkju og skóla. Börn með ólíkan bakgrunn.
Bókin Líf með Jesú stendur alltaf undir væntingum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Guðshús Sauðárkrókskirkja er falleg og setur sterkan svip á bæinn.