Morgunblaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012
✝ Inga Bjarna-dóttir fæddist í
Reykjavík 5. júní
1923. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Ljósheimum á
Selfossi 1. apríl
2012.
Fæðingarstaður
hennar var Tunga
við Laugaveg í
Reykjavík. For-
eldrar hennar giftu
sig 1922 og höfðu aðsetur þar á
meðan þau reistu sér nýbýli á
erfðafestulandi í Sogamýri sem
þau nefndu Hlíðarhvamm og
stóð við Grensásveg í Reykjavík.
Þau voru flutt í Hlíðarhvamm
1925. Foreldrar Ingu: Bjarni
Sigmundsson, f. 1898, d. 1978,
ættaður af Barðaströnd, og
Guðrún Snorradóttir, f. 1896, d.
1989, úr Skagafirði. Í Hlíðar-
hvammi fæddust síðan bræður
Ingu, sem allir eru látnir. Þeir
eru Snorri, f. 1925, Björgvin, f.
1928, og Bessi, f. 1930. Árið
1930 seldu Bjarni og Guðrún
eign sína og keyptu aðra við
Reykjavíkurveg 6 í Skerjafirði.
Þessir tveir staðir eru uppeldis-
staðir Ingu. Árið 1939 fer Inga
sem kaupakona að Miðengi í
Grímsnesi, Árn. Hún giftist Guð-
árhöfða í Grímsnesi og jafnan
kenndur við þann stað. Þeirra
sonur er Elís Kjartansson, f.
24.11. 1963, maki Ragnheiður
Kr. Björnsdóttir, f. 4. 8. 1964,
þeirra börn Kjartan Björn,
Kristín Inga og Dagur Snær.
Inga lauk barnaskólaprófi
1936. Hún hafði gaman af leik-
list og lék með áhugaleik-
félögum bæði í Grímsnesinu og
á Selfossi. Hún hafði á árum áð-
ur farið á námskeið kennara á
sviði leiklistar. Hún var oft fljót
að átta sig á veikindum fólks
þegar þau voru alvarlegs eðlis
og hvatti þá viðkomandi til að
draga ekki að leita til læknis.
Hún vann árum saman sjálf-
boðaliðastarf fyrir Rauða kross-
inn og tók þátt í starfi eldri
borgara þegar þau mál komust
ærlega á legg á síðustu öld.
Kjartan starfaði einnig fyrir
Rauða krossinn og þau voru
samstillt um flest annað er laut
að félagsmennsku og voru vin-
sæl og vinmörg. Þau áttu góða
ferðafélaga um hálendisferðir
og ferðuðust mikið um hálendið.
Inga var fædd og uppalin í
Reykjavík en bjó lengst ævi
sinnar á Selfossi, Grímsnesið er
ekki langt undan og vinirnir
voru margir þaðan sem heim-
sóttu heimili hennar í versl-
unarferðum á Selfoss.
Útför Ingu fer fram frá Sel-
fosskirkju 14. apríl 2012 kl. 14.
mundi Benedikts-
syni frá Miðengi, f.
24.7. 1918, d. 20.9.
2009. Þau eign-
uðust hálfa jörðina
og bjuggu á henni
til 1952 en þá seldu
þau sinn hlut og
fluttust á Selfoss.
Inga og Guð-
mundur skildu
1957. Börn þeirra
eru Guðmundur
Guðmundsson, f. 15.4. 1941, d.
2002. Maki Þórdís K. Skarphéð-
insdóttir, f. 20.11. 1942, þeirra
börn Sveinbjörn og Guðrún.
Bjarni Guðmundsson f. 15.5.
1942. Maki Inga Karólína Guð-
mundsdóttir, f. 17. 8. 1943,
þeirra börn Heimir, Dagný og
Hafdís. Anna Guðmundsdóttir,
f. 30.1. 1950, maki Erlendur
Ragnar Kristjánsson, f. 12.3.
1944, þeirra börn Benedikt (lát-
inn), Fjóla og Erla. Inga ól einn-
ig upp ásamt fyrri manni sínum
Báru Guðnadóttur, f. 8.9. 1947,
maki Erling Ragnarsson, f.
25.10. 1948 (þau skildu), þeirra
börn Ingvar, Steinar Örn og
Erla. Árið 1959 giftist Inga
Kjartani Ögmundssyni mjólk-
urbílstjóra á Selfossi. Kjartan, f.
10.5. 1919, d. 1999, var frá Kald-
Inga mín nú kveð ég þig bæði
með söknuði en einnig með létt-
leika. Þú ert loksins frjáls úr þín-
um veika líkama sem hélt þér
fanginni í svo mörg ár. Minning-
arnar sækja á hver af annarri og
vissum kafla í lífi okkar er lokið. Í
huganum er minning um glaðlega
konu sem vildi syni sínum,
tengdadóttur og börnunum okkar
allt það besta sem lífið bauð upp á.
Þú varst svo full af lífi og skeyttir
ekki um álit annarra.
Minnisstæð er sú sjón er blasti
svo oft við þeim sem leið áttu fram
hjá svölunum að íbúð ykkar Kjart-
ans í Háengi 4 en þar sat glaðleg,
sólbrún kona með barðastóran
sólhatt og spjallaði við alla sem
leið áttu hjá. Ég hafði stundum á
orði að hún tengdamamma mín
byggi í röngu landi það hefði hæft
henni vel að búa á sólríkum stað
sitjandi á svölum yfir markaðs-
torgi iðandi af lífi og fjöri þar sem
það hefði verið eðlilegasti hlutur
að skiptast á fréttum og kveðjum
ofan af svölum. Þú varst fé-
lagslynd kona og alltaf stutt í
brosið og hláturinn. Þið hjónin
höfðuð unun af ferðalögum og
ferðuðust mikið.
Þegar Kjartan tengdapabbi dó
kom fljótlega í ljós að þú varst
haldin heilabilunarsjúkdómi, þú
fórst inn á Ljósheima þar sem þú
bjóst í góðu yfirlæti í um það bil
tíu ár. Sjúkdómurinn hafði þau
áhrif að smátt og smátt hvarfstu
okkur og varðst fangi í eigin lík-
ama, þú sem hafðir haft svo gam-
an af því að tala gast það ekki
lengur en við sem heimsóttum þig
oft sáum að þú fylgdist með og oft-
ast brostir þú þínu ljúfa brosi þeg-
ar Elís kom til þín stundum komu
líka tár þegar talað var einlæglega
til þín eða þú heyrðir fallegan
söng. Ég þakka þér góð kynni og
samverustundirnar sem við áttum
Inga mín og kveð þig með orðum
úr Spámanninum:
Því að hvað er það að deyja annað en
standa nakinn í blænum og hverfa inn í
sólskinið.
Kveðja.
Þín tengdadóttir,
Ragnheiður Kristín
Björnsdóttir.
Í dag er tengdamóðir mín Inga
Bjarnadóttir borin til hinstu hvílu.
Þau eru orðin mörg árin síðan ég
kom inn í hennar líf og kynntist
henni og hennar fólki. Inga var
fædd og alin upp í Reykjavík, for-
eldrar hennar komu til borgarinn-
ar í atvinnuleit og kynntust þar.
Hún var elst barna þeirra og átti
þrjá yngri bræður sem eru látnir.
Það ríkti mikil gleði og glaðværð á
heimilinu og móðurafi hennar
Snorri bjó einnig hjá þeim síðustu
æviár sín. Inga var ung að árum
þegar hún giftist fyrri manni sín-
um Guðmundi og þau bjuggu
fyrstu árin í Miðengi í Grímsnesi
en fluttu síðan á Selfoss þar sem
hún bjó þar til hún lést. Inga gift-
ist seinni manni sínum Kjartani
1959, hann lést áttatíu ára að aldri.
Inga og Kjartan höfðu mjög gam-
an af að ferðast og fóru ýmsar æv-
intýralegar ferðir bæði innan-
lands og utan. Þau voru dugleg að
ferðast um hálendi Íslands og
Veiðivatnaferðirnar voru nánast
óteljandi. Ég minnist nokkurra
slíkra ferða sem við fórum í með
þeim og syni þeirra Elís, sem er
nálægt okkar börnum í aldri. Ein
ferð stendur upp úr, það var ferð
yfir Sprengisand og í Lónsöræfi
og ekki var komið að tómum kof-
unum þegar örnefnin bar á góma
því Kjartan var vel að sér um
landið okkar.
Inga var félagslynd og leið best
innan um fólk og helst þar sem
eitthvað var um að vera. Hún tók
virkan þátt í félagsstarfi aldraða á
Selfossi og átti þátt í að stofna fé-
lagið. Einnig var hún í Rauða-
krossdeild Selfoss og í stjórn þess
félags um tíma. Bæði þessi félög
heiðruðu hana fyrir störf sín í
þeirra þágu. Inga hafði áhuga á
leiklist og lék í leikritum sem ung-
mennafélagið Hvöt í Grímsnesi
setti upp árin sem hún bjó þar og
hún lék einnig með leikfélagi Sel-
foss.
Inga hafði þann eiginleika að
hún hafði ekki áhyggjur af al-
menningsálitinu og mér fannst
hún stundum vera á undan sinni
samtíð því hún gerði ýmislegt og
fékk ýmsar hugmyndir, sem
þættu ekkert skrítnar nú til dags.
Hún var mjög glaðlynd, jákvæð og
hláturmild og þegar vinir og ætt-
ingjar komu í heimsókn mátti
heyra hlátrasköllin út á götu.
Liðin eru tæplega tíu ár síðan
Inga fór á hjúkrunarheimilið
Ljósheima á Selfossi og þar hefur
heimili hennar verið síðustu ævi-
árin. Þar naut hún frábærrar um-
hyggju og hlýju. Með þakklæti og
söknuði kveð ég tengdamóður
mína en minningin um hana lifir.
Inga Karólína
Guðmundsdóttir.
Nú er amma okkar lögð af stað
í hina miklu Landroverferð að
kanna ókunnar slóðir handan
þessa heims. Við sjáum hana fyrir
okkur syngjandi „Ó, ó, óbyggða-
ferð“ á meðan hún útdeilir harð-
fiski og suðusúkkulaði til þeirra
sem sitja aftur í. Fjölskylduferð-
irnar með ömmu, afa og Elís í
ferðalögum um óbyggðir landsins
skoppandi aftur í Landrovernum
innan um allan útilegubúnaðinn
eru ógleymanlegar og hafa kveikt
ólæknandi óbyggðaáráttu.
Það var alltaf gleði og hlátur í
kringum ömmu og hún sá spaugi-
legar hliðar á flestum málum. Í
minningunni var hún alltaf hlæj-
andi, nema einstöku sinnum þegar
þurfti að laga óþekktina í manni,
þá kom klósettið á Kirkjuveginum
sér vel þar sem maður sat úr sér
fýluna og lét vita þegar maður
væri orðinn góður. Amma á Sel-
fossi var ekki mikið að grúfa sig
yfir eldamennsku og húsverk og
lengi vel hélt ég (Dagný) að
„habbinn“ (haframjöl með sykri
og mjólk) væri hennar uppfinning
af því hún nennti ekki að elda
hafragraut. Kjötsúpan sem varð
betri með degi hverjum var líka
lausn sem hentaði henni vel. En
hún var sannkallaður lífskúnstner
og naut hverrar stundar á eigin
forsendum. Leiklist og söngur,
sólböð og ferðalög , morgun-
göngutúrar fyrir allar aldir, og í
seinni tíð langt kaffistopp í Kaup-
félaginu því þar var pottþétt að
hitta skemmtilegt fólk, voru fastir
liðir í lífi hennar. Það er sniðugt til
þess að hugsa að ömmur okkar
báðar sem nú eru nýlátnar lifðu
báðar í augnablikinu, en á svo
gjörólíkan hátt.
Amma fór ekki hefðbundnar
slóðir, hvorki í ferðamennskunni
né lífinu sjálfu. Hún lét ekki skoð-
anir annara hefta för sína ef hún
var sannfærð um hvaða leið hún
ætlaði. Sumir hafa eflaust
hneykslast á hegðun hennar og
ýmsum uppátækjum hennar og
fundist þau sjálfmiðuð og oft gát-
um við hlegið að undarlegum jóla-
gjöfum sem áttu sér fyrri líf. Hins
vegar vita færri af öllu því sjálf-
boðaliðastarfi sem hún innti af
hendi og þeirri hjálp sem hún
veitti öðrum, án þessa mikla sig af.
Fermingarveisla Elísar frænda
okkar er mörgum minnisstæð þar
sem amma söng „Vefarasönginn“
og fjörgömul kona kenndi veislu-
gestum dansinn. Lagið var sungið
svo oft að eldri synir ömmu flúðu
út en fermingardrengurinn með
sitt einstaka geðslag lét ekki
skemmtiatriðið raska ró sinni.
Lagið greyptist inn í minnið fyrir
lífstíð og við systur gerðum okkur
ferð í þjóðdansafélagið og endur-
nýttum atriðið í 40 ára afmæli
Dagnýjar.
Í kjarki sínum við að standa
með sjálfri sér var hún frábær fyr-
irmynd, að láta ekki álit annarra
slá sig út af laginu og taka ekki
óritskoðað við hlutverkum sem
aðrir vilja úthluta. Þessi kjarkur
ömmu til að fara sínar eigin leiðir
með jákvæðnina að vopni hefur
orðið okkur systrum hvatning til
að gera það sama, á okkar for-
sendum.
Amma okkar er eflaust núna í
hæstu hæðum að syngja vefara-
sönginn „Vefa mjúka dýra dúka
skjóta skyttunni skil, … svo vef-
um við mjúka og dýrindis dúka,
vefa mjúka …“.
Takk fyrir ógleymanlegar sam-
verustundir, elsku amma.
Dagný og Hafdís
Bjarnadætur.
Inga Bjarnadóttir
erfidrykkjur
Sigtúni 38, sími: 514 8000
erfidrykkjur@grand.is / grand.is
Hlýlegt og gott viðmót
Fjölbreyttar veitingar
lagaðar á staðnum
Næg bílastæði og
gott aðgengi
✝
ÁSA S. BJÖRNSDÓTTIR
þýðandi
frá Sleðbrjótsseli,
Reynimel 88,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi
föstudaginn 6. apríl.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
16. apríl kl. 13.00.
Björn Gunnarsson,
Þórdís Linda Guðjónsdóttir,
Davíð Fannar Björnsson.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
SVAN FRIÐGEIRSSON
húsasmíðameistari
og fyrrum stöðvarstjóri,
lést á Droplaugarstöðum laugardaginn
31. mars.
Útförin fór fram föstudaginn 13. apríl í kyrrþey að ósk hins látna.
Erna Hreinsdóttir,
Guðrún Svansdóttir, Sigurður Svavarsson,
Geir Svansson, Irma Erlingsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum sem hafa
sýnt okkur dýrmæta hlýju og samúð við fráfall
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR E. GUÐMUNDSDÓTTUR,
Lækjargötu 32,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við yndislegu starfsfólki fjórðu hæðar
Sólvangs fyrir einstaka umönnun.
Sigríður Harðardóttir,
Margrét Magnúsdóttir,
Sigríður Magnúsdóttir, Einar Gylfason,
Guðmundur Magnússon, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir,
Magnús St., Magnús Björn, Jón Páll, Guðrún, Gylfi,
Sigurjón, Guðrún Edda, Ólafur Björn, Hjalti Geir,
Erlendur, Sigríður Theódóra
og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
BJARNI SVEINSSON
múrarameistari og fv. stórkaupmaður,
Glerárgötu 14,
íbúi á Asparhlíð,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri laugardaginn 7. apríl.
Jarðarför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn
16. apríl kl. 13.30.
Ásta Sigmarsdóttir,
Sveinn Bjarnason, Alda Benediktsdóttir,
Ingibjörg Bjarnadóttir,
Björg Bjarnadóttir,
Sigmar Bergvin Bjarnason, Þóra Berg Jónsdóttir,
Alma Bjarnadóttir, Antonio Perrone,
Bjarni Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur vináttu, samúð og hlýhug við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
GUÐFINNS ÞORGEIRSSONAR
skipstjóra,
Brimhólabraut 8,
Vestmannaeyjum,
sem lést fimmtudaginn 22. mars.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunar
Vestmannaeyja fyrir frábæra umönnun.
Valgerður Helga Eyjólfsdóttir,
Jakobína Guðfinnsdóttir, Kristmann Kristmannsson,
Hafsteinn G. Guðfinnsson, Hildur K. Oddgeirsdóttir,
Sigurleif Guðfinnsdóttir,
Guðfinna Guðfinnsdóttir, Óðinn Haraldsson,
Þorgeir Guðfinnsson, Guðrún Þórey Ingólfsdóttir,
Helga Guðmundsdóttir,
Lilja Guðný Guðmundsdóttir, Páll Emil Beck,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát ástkærs eigin-
manns og bróður,
ÓLAFS ÞORSTEINS JÓNSSONAR
óperusöngvara.
Jóhanna Sigursveinsdóttir,
Guðjón Heiðar Jónsson
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
SÆVARS GEIRS SVAVARSSONAR
í Norma,
til heimilis að Furuási 8,
Garðabæ.
Unnur I. Þórðardóttir,
Guðrún A. Sævarsdóttir, Þórður Magnússon,
Unnur L. Þórðardóttir,
Magnús S. Þórðarson,
Sævar J. Þórðarson.