Morgunblaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012
✝ Viktor Sig-urbjörnsson
fæddist að Kvistum
í Ölfusi 23. nóv-
ember 1956. Hann
varð bráðkvaddur á
Spáni 1. apríl 2012.
Foreldrar Vikt-
ors voru Guðrún
Lúðvíksdóttir, f. 7.
nóvember 1924 og
Sigurbjörn Ein-
arsson, f. 20. sept-
ember 1919, d. 20. júlí 1994.
Viktor var yngstur sex systkina.
Systkini hans eru: Júlíus, f. 4.
mars 1946, Stefán Halldór, f. 4.
ágúst 1948, Sigurður Jón, f. 11.
maí 1950, Jórunn, f. 26. ágúst
1952 og Guðbjörg, f. 4. desember
1954. Viktor kvæntist 12. júní
1976 eftirlifandi eiginkonu sinni,
Júlíönu Hilmisdóttur, f. 2. júlí
1958. Foreldrar hennar voru
Hulda Sveinsdóttir, f. 30. janúar
1932, d. 19. ágúst 1992 og Hilmir
Hinriksson, f. 31 mars 1932, d.
24. nóvember 2006. Börn Vikt-
ors og Júlíönu eru: 1) Sig-
urbjörn, f. 31. október 1976.
Sonur hans og Kömmu Jóns-
dóttur er Viktor. Sambýliskona
Sigurbjörns er Unnur Ögmunds-
dóttir, börn þeirra eru Hrafn-
hildur og Tryggvi. 2) Hjalti, f.
15. janúar 1979. Dóttir hans og
Agnesar Gests-
dóttur er Júlíana.
Sambýliskona
Hjalta er Anna Lind
Friðriksdóttir, dæt-
ur hennar eru Elsa
Malen og María
Gló. 3) Hulda, f. 17.
febrúar 1994, unn-
usti hennar er Jón
Óskar Karlsson.
Viktor ólst upp
að Kvistum í Ölfusi,
gekk í Grunnskólann í Hvera-
gerði og þaðan lá leiðin í Garð-
yrkjuskóla ríkisins að Reykjum í
Ölfusi þar sem hann útskrifaðist
af ylræktarbraut vorið 1976.
Lengst af starfaði hann við garð-
yrkju. Árið 1999 hóf Viktor störf
hjá Borgarverki í Borgarnesi
þar sem hann starfaði til ársins
2011. Viktor sinnti trún-
aðarstörfum fyrir Félag garð-
yrkjumanna um árabil. Hann
var virkur meðlimur í Sjálfstæð-
isfélaginu Ingólfi í Hveragerði á
yngri árum og gegndi meðal
annars stöðu formanns. Hann
var fulltrúi flokksins í hrepps-
nefnd Hveragerðis frá 1982-
1986. Viktor var einnig félagi í
Oddfellow.
Útför Viktors fer fram í
Hveragerðiskirkju í dag, 14.
apríl 2012, kl. 16.
Ég á ennþá bágt með að trúa
að ég sitji nú að skrifa þessa
grein, en hvernig kallið getur
komið fyrirvaralaust og alltof
snemma ráðum við víst engu um.
Sárast finnst mér frá því að segja
hvað við heyrðumst lítið þína síð-
ustu viku sem var með ráðum
gert af minni hálfu og klárlega
þinni líka því við Anna Lind vor-
um að koma að hitta þig á Spáni
aðeins nokkrum dögum áður en
þetta sviplega kall bar að. Við
höfðum lengi hlakkað til að eyða
páskunum með ykkur mömmu í
sólinni því þar efast ég aldrei um
að hafi verið þinn draumastaður.
Við höfðum átt góðar stundir í
sólinni saman og Júlíana mín á
einnig þaðan, ásamt mörgum
fleiri stöðum, frábærar minning-
ar um afa sinn.
Síðustu daga hefur þú eðlilega
átt hug minn allan og minning-
arnar hrannast upp og kannski
erfitt að fara í þær margar í smá-
atriðum í stuttum texta. Ég á
ekkert nema góðar minningar
um þig pabbi minn og hvernig
maður bar alltaf virðingu fyrir
þér og hlustaði þegar þú hafðir
eitthvað til málanna að leggja
eða svo slóst þeim upp í nett grín
með þínum húmor sem svo sló á
áhyggjurnar sem maður upphaf-
lega leitaði til þín með. Þú stóðst
svo sannarlega þína vakt sem
höfuð okkar fjölskyldu og hvern-
ig þú lifðir fyrir mömmu og
Huldu systur (sem alvöru herra-
maður) og okkur bræður, barna-
börn og tengdadætur er aðdáun-
arvert. Ég vona svo innilega að
ég komist einhverntíma með
tærnar þar sem þú hafðir hælana
í að vera foringi minnar fjöl-
skyldu, snyrtimenni og sannur
herramaður, Júlíönu, Önnu Lind,
Elsu Malen, Maríu Gló.
Hvert sem leiðin þín liggur
um lönd eða höf;
berðu sérhverjum sumar
og sólskin að gjöf.
(Stephan G. Stephansson.)
Og með trega ég skrifa þessi
orð.
Hvíl í friði, elsku pabbi.
Hjalti.
Ég er ennþá að reyna að átta
mig á því að elsku pabbi minn sé
dáinn. Það á ekki að vera leyfi-
legt að taka einhvern í burtu sem
er manni svona kær og það svo
skyndilega. Pabbi átti margt
ógert í þessu lífi og ég er ennþá
að reyna að finna ástæðuna, af
hverju hann var tekinn frá okkur
svona snemma. Ég var og verð
alltaf litla stelpan hans pabba.
Hann kallaði mig alltaf Trítl-trítl
og mér þótti svo vænt um það
gælunafn. Hann gerði alltaf allt
fyrir mig og tók alltaf upp hansk-
ann fyrir mig. Allir sem þekkja
mig vita að ég er ein mesta pab-
bastelpa sem fyrirfinnst. Pabbi
var og er besti maður í heimi.
Það sem einkenndi pabba
mest var hreinskilni, hann sagði
alltaf það sem honum fannst og
skammaðist sín ekkert fyrir það.
Það er alveg augljóst að ég fékk
hreinskilnina frá honum. Sam-
band okkar pabba var ólýsan-
legt. Við vorum góðir vinir og þó
svo pabbi segði ekki á hverjum
degi „ég elska þig“ við mig þá
sýndi hann það í verki með því að
standa alltaf þétt við bak mitt og
styðja mig í öllu sem ég gerði þó
svo það væri einhver „bölvuð vit-
leysa“ eins og hann kallaði það.
Það sem skipti hann einna mestu
máli í lífinu var að ég stæði mig
vel í skólanum og „að það myndi
verða eitthvað úr mér“ eins og
hann sagði alltaf.
Ég vildi alltaf að pabbi væri
stoltur af mér og gerði allt til
þess að gera hann glaðan og
stoltan, því það gladdi mig svo
mikið að sjá hann ánægðan með
mig. Ég mun leggja mig alla
fram við að gera pabba stoltan af
mér því ég veit að hann mun
fylgjast með mér um ókomna tíð.
Ég elska þig svo mikið, pabbi
minn, og það líður ekki sú stund
sem ég hugsa ekki til þín og ég
vona að þér líði vel þar sem þú
ert núna. Þú ert fallegasti og
besti engillinn á himnum. Ég trúi
því að við munum hittast aftur að
lokum.
Þín einkadóttir,
Hulda Viktorsdóttir.
Mig langar að minnast elsku-
legs tengdaföður míns með
nokkrum orðum. Ég hafði ein-
ungis þekkt Sigurbjörn son hans
í rúmlega viku þegar hann tók
mig með sér í matarboð til for-
eldra sinna. Strax frá fyrsta degi
var ég velkomin á heimili þeirra
Júllu og Viktors og þar leið mér
vel.
Viktor var hlýr og yfirvegaður
og það var alltaf gott að leita til
hans þegar á þurfti að halda. Ég
bar mikla virðingu fyrir honum.
Samband hans við Júllu og
Huldu var til fyrirmyndar og ég
dáðist að því hvað hann naut þess
að dekra við þær mæðgur og
jafnvel rápa með þeim í búðir.
Missir þeirra er mikill.
Síðustu árin höfum við Sigur-
björn búið við hliðina á Júllu og
Viktori og átt margar góðar
stundir saman. Börnin okkar
hafa sannarlega notið góðs af því.
Í ófá skipti hafa þau hlaupið yfir í
næsta hús til afa Viktors með
hluti sem þurfti að lagfæra. Afi
gat lagað allt.
Nú hefur afi Viktor kvatt, allt-
of fljótt. Söknuðurinn er sár en
við eigum ljúfar minningar til að
ylja okkur við um ókomin ár. Ég
mun ætíð minnast Viktors
tengdaföður míns með hlýju og
þakklæti.
Elsku Júlla og fjölskylda, ég
bið Guð að styrkja ykkur á þess-
um erfiðu tímum.
Unnur Ögmundsdóttir.
Afi fór að grafa á gröfunni
sinni,
svo fór hann að borða hjá
ömmu Júllu minni.
Þetta söng ég þegar þú grófst
holuna fyrir framan litla bústað-
inn, manstu? Ég legg stundum
við hlustir og reyni að heyra
svarið við spurningunni, er lífið
draumur? Nú vænti ég þess að
þú vitir það.
Ég vildi að þú værir ennþá hjá
okkur. Þú varst of ungur til að
leggjast til hinstu hvílu. Þú varst
alltaf boðinn og búinn til aðstoð-
ar og varst öllum stoð og stytta í
hverju sem var. Alltaf var hægt
að leita til afa Viktors, það var
gott að vita af því. Við sjáumst
hinum megin en á meðan verður
hægt að ylja sér við góðar minn-
ingar um þig en af þeim á ég nóg.
Þinn vinur og barnabarn,
Viktor Sigurbjörnsson.
Elskulegur yngsti bróðir minn
er látinn. Í stórum systkinahópi
er mikill munur á því að vera
elstur eða yngstur og fjögur
systkini á milli. Á milli okkar
Viktors voru tíu ár og man ég því
vel þegar hann kom í heiminn en
hann fæddist á heimili okkar í
sveitinni. Hann óx og dafnaði vel,
var fallegt barn og hvers manns
hugljúfi. Á þessum árum átti
hann fjóra pabba og þrjár
mömmur þar sem allir voru að
annast þennan ljúfa dreng sem
gerði öllum allt til þægðar. Þær
systur mínar höfðu hann gjarnan
með sér í stelpuleikjum, framan
af smáan og hlýðinn.
Smátt og smátt fór hann að
sækja í að fylgjast með grallara-
skap okkar eldri bræðra og von-
andi hefur hann einnig lært eitt-
hvað til verka sem hann
hugsanlega hefur getað nýtt sér
við störf þegar árin færðust yfir.
Ekki er ég viss um að grallara-
gangurinn hafi allur verið til eft-
irbreytni. Sökum aldursmunar
færðumst við Viktor nokkuð hvor
frá öðrum um árabil þar sem sá
elsti fór snemma að heiman eins
og þá var títt til náms og starfa.
Þrátt fyrir þetta var ávallt
sterk taug á milli okkar Viktors
eins og milli okkar systkinanna
allra.
Að loknu garðyrkjunámi, sem
Viktor lauk með ágætum, settist
hann að í Hveragerði og stofnaði
þar garðyrkjustöð. Þá var komin
inn í líf hans Júlíana Hilmisdótt-
ir, eða Júlla, þessi unga og fal-
lega kona sem hann dáði alla tíð
því í öllu hans lífsins vafstri var
hún honum ómetanleg stoð.
Við systkinin fylgdumst með
litla bróður okkar leggja gjörva
hönd á margt með áræði og
dugnaði. Þótt ekki gengi allt upp
sem hann tók sér fyrir hendur þá
byggðist upp með honum fjöl-
þætt reynsla sem nýttist honum
oft vel.
Sé ég fjöld af förnum dögum,
finn mér skylt að þakka að nýju
góðhug þinn og alúð alla,
endalausa tryggð og hlýju.
(Guðmundur Böðvarsson.)
Það er sárt að missa fjölhæf-
an, kraftmikinn bróður sinn í
blóma lífsins. Enn sárara er það
fyrir Júllu, börnin, barnabörnin
og ekki síður aldraða móður.
Ég votta þeim öllum mína
innilegustu samúð.
Stóri bróðir,
Júlíus Sigurbjörnsson.
Er sólin hnígur hægt í djúpan sæ
og höfuð sitt til næturhvíldar byrgir
á svalri grund, í golu þýðum blæ,
er gott að hvíla þeim er vini syrgir.
Í hinstu geislum hljótt þeir nálgast þá,
að huga þínum veifa mjúkum svala.
Hver sælustund sem þú þeim hafðir
hjá
í hjarta þínu byrjar ljúft að tala.
Og tárin sem þá væta vanga þinn
er vökvan, send frá lífsins æðsta
brunni.
Þau líða eins og elskuð hönd um kinn
og eins og koss þau brenna ljúft á
munni.
Þá líður nóttin ljúfum draumum í
svo ljúft að kuldagust þú finnur eigi,
og fyrr en veist þá röðull rís á ný
og roðinn lýsir fyrir nýjum degi.
(Hannes Hafstein.)
Viktor Sigurbjörnsson, fjöl-
skylduvinur minn til margra ára,
varð bráðkvaddur 1. apríl sl., að-
eins 55 ára gamall. Eftir stendur
fjölskylda hans harmi slegin.
Missirinn og söknuðurinn er
óbærilegur og erfitt að ímynda
sér að sárin grói nokkurn tíma.
Reynslan hefur þó kennt okkur
að þau gera það seint um síðir
þótt tilveran verði aldrei söm og
áður.
Viktor var umfram allt ástrík-
ur, blíður og traustur maður.
Einlægnina og vinarþelið bar
hann utan á sér, það duldist eng-
um, sem þekktu hann. Honum
var afar annt um velferð fjöl-
skyldu sinnar og vina. Það er í
manni eins og honum, sem vin-
áttan er svo sýnileg og áþreif-
anleg. Gott dæmi er að hann vissi
hvað Ingibjörg var heilluð af
hestum og hestamennsku, án
þess þó að iðka sportið að nokkru
ráði. Einn haustdag kom Viktor í
heimsókn til okkar og hafði þá
keypt hesthúspart. Hann hafði
einnig fengið lánaða tvo hesta út
veturinn, sem hann ætlaði henni.
„Ingibjörg, nú duga ekki lengur
afsakanir og orðin tóm, þú getur
ekki lengur vikist undan því að
verða hestamaður.“ Þetta var
upphafið að hestamennsku okkar
Ingibjargar.
Viktor tók virkan þátt í fé-
lagsstörfum og sat um tíma í
hreppsnefnd Hveragerðis fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Hann var
íhaldssamur, skoðanafastur,
áræðinn og tefldi djarft. Dugn-
aðurinn og vinnusemin var ein-
stök. Eftir að ákvarðanir voru
teknar var hvergi hvikað. Oftast
leiddu þær til farsældar fyrir
hann og fjölskylduna. Líf þeirra
var vissulega ekki alltaf dans á
rósum en hamingjan var alltaf til
staðar. Þegar erfiðleikar steðj-
uðu að, var ekki lagst í vörn held-
ur blásið til sóknar og fyrr en
varði voru þau aftur komin á
beinu brautina.
Á þessari stundu er mér efst í
huga hugljúf minning um góðan
vin og þakklæti fyrir að hafa á
liðnum árum notið einlægs vin-
skapar hans og hans fjölskyldu.
Elsku Júlla, Hulda, Hjalti,
Sigurbjörn, ættingjar Viktors og
vinir, ég og fjölskylda mín vott-
um ykkur öllum innilega samúð
okkar. Megi ykkur veitast styrk-
ur til að takast á við sorgina og
söknuðinn.
Guðmundur.
Kær vinur og félagi er fallinn
frá alltof snemma. Ótímabært
fráfall Viktors er mér og fjöl-
skyldu minni mikill harmur.
Kynni okkar Viktors hófust fyrir
37 árum á Garðyrkjuskóla rík-
isins í Ölfusi og áttum við góð og
ánægjuleg þrjú ár þar saman við
nám og leik. Kynntust einnig eig-
inkonur okkar Júlíana og Ósk og
höfum við haldið vinskap allar
götur síðan. Við Viktor unnum
saman við garðyrkju og almenn
jarðvinnuverkefni um tveggja
ára skeið.
Árið 2002 hvatti hann mig til
að ganga í Oddfellowregluna en
þar hafði hann gengið inn árið
2000 og varð hann leiðtogi minn
þar. Viktor var mikill áhugamað-
ur um þá reglu og mjög virkur
félagi.
Þegar hann lauk störfum hjá
Borgarverki í Borgarnesi fyrir
rúmu ári fór hann að athuga
hvað hann ætti að taka sér fyrir
hendur og varð úr að leita á suð-
rænar slóðir og varð Costa
Blanca-ströndin á Spáni fyrir
valinu. Þar fann hann veitinga-
stað sem heillaði hann og átti
þessi staður í Dona Pepa hug
hans allan síðustu fimm mánuði.
Hafði hann lagað hann að sinni
sýn og breytt honum úr hefð-
bundnum pítsastað í vinsælan al-
mennan veitingastað á undra-
verðum tíma. Á þessum fimm
mánuðum kynntist Viktor fjölda
fólks, bæði íslensks og erlends,
sem ætlar að hafa minningar-
vöku á staðnum á útfarartíma
hans.
Elsku Júlla, harmur þinn og
barna ykkar er mikill en minn-
ingarnar um góðan mann létta
undir með ykkur til framtíðar.
Hugur okkar er með ykkur á
þessari erfiðu stund.
Markús, Ósk og fjölskylda.
Fregnin um ótímabært andlát
Viktors Sigurbjörnssonar barst
til landsins eins og þruma úr
heiðskíru lofti. Enginn býst við
að maður á besta aldri kveðji
jafnskyndilega og hér hefur
gerst. Með Viktori er genginn
góður félagi okkar sjálfstæðis-
manna í Hveragerði. Þrátt fyrir
að hann og fjölskylda hans hafi
verið búsett annars staðar síð-
ustu árin sakna Hvergerðingar
nú vinar í raun.
Viktor var ungur valinn til
trúnaðarstarfa fyrir bæjarbúa
og meðal annars sat hann eitt
kjörtímabil í sveitarstjórn. Þeim
störfum sinnti hann af miklum
áhuga og dugnaði. Hans áhuga-
mál lágu víða en ekki síst hafði
hann metnað fyrir hönd Hvera-
gerðis sem garðyrkju- og blóma-
bæjar enda var hann menntaður
garðyrkjufræðingur og vann í
þeirri grein um árabil. Rak hann
meðal annars garðyrkjustöðina
Lindarbrekku við góðan orðstír.
Að leiðarlokum vilja sjálf-
stæðismenn í Hveragerði þakka
Viktori samfylgdina um leið og
við sendum Júlíönu, börnum
þeirra, móður hans og fjölskyld-
unni allri innilegar samúðar-
kveðjur.
Aldís
Hafsteinsdóttir.
Mig langar með nokkrum fá-
tæklegum orðum að minnast
Viktors, vinar míns, bekkjar-
bróður og æskufélaga, sem nú
hefur kvatt svo alltof fljótt. Það
má segja að við Viktor höfum al-
ist upp saman, hann á Kvistum
og ég í Akurgerði. Á milli okkar
skapaðist mikil vinátta sem aldr-
ei bar skugga á. Oft nutum við
góðs af því að hann var yngstur í
sínum systkinahóp og voru
bræður hans duglegir að hjálpa
okkur við allskyns bílasmíði o.fl.
því vönduð vinnubrögð og fáguð
framkoma hefur alltaf einkennt
öll þau systkini. En lífið hélt
áfram og það komu alvörubílar,
sveitaböll og annað sem ég tala
ekki um. Alltaf var Viktor sami
góði félaginn og trúnaðarvinur-
inn, sama á hverju gekk. Örlögin
höguðu því svo að við vorum svil-
ar í tíu ár svo samskiptin hafa
alltaf verið mikil. Viktor var
mjög laginn við öll mannleg sam-
skipti og fljótur að verða vinsæll,
hvort sem var í hópi vinnufélaga
eða vina enda fóru honum vel úr
hendi öll mannaforráð, það
reyndi ég sjálfur þegar ég vann
undir hans stjórn um skeið í
Borgarnesi þar sem hann var
verkstjóri hjá Borgarverki.
Viktor hafði breytt um starfs-
vettvang á síðasta ári er hann
gerðist veitingamaður á eigin
veitingastað á Spáni. Og vissi ég
að þar leið honum vel og hann
hafði mikinn áhuga á nýju við-
fangsefni. Hann hringdi gjarnan
í mig þegar vaktinni lauk á
kvöldin og töluðum við þá oft
saman í einn til tvo tíma og
heyrði ég það á honum að honum
leið vel og var sáttur. Við rædd-
um um börnin okkar því eins all-
ir foreldrar vita eru þau eilífð-
arverkefni og Viktor var mikill
fjölskyldumaður. En hann hafði
líka áhyggjur af móður sinni.
Sagði að hann yrði að vera dug-
legur að sinna henni þegar hann
væri heima því hún væri orðin
fullorðin og aldrei að vita hvað
gæti gerst meðan hann væri í
burtu. En við vorum búnir að
hugsa okkur að verða gamlir
saman, sitja í stásstofu og rifja
upp frægðarsögur af sjálfum
okkur og Júlla bæri í okkur
kaffið. En margt fer öðruvísi en
ætlað er og við tökum spjallið
seinna. En minningin um góðan
dreng lifir. Elsku Júlla mín, guð
gefi þér og þinni fjölskyldu styrk
á þessum erfiðu tímum og það
máttu vita, Júlla mín, að ég held
áfram að koma í kaffi þó karlinn
sé ekki heima.
Samúðarkveðjur til ykkar
allra frá okkur Sjöfn.
Sólmundur
Sigurðsson.
Viktor
Sigurbjörnsson
MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum
við fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu og
fría pökkun á legsteinum sem fara út á land
Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð
Sími 892 4650
Gísli Gunnar
Guðmundsson
Guðmundur
Þór Gíslason
Elfar Freyr
Sigurjónsson
Netfang: foldehf@simnet.is - Vefsíða: foldehf.is
Vistvænar íslenskar kistur
Þjónusta allan sólarhringinn.
Komum heim til aðstandenda ef óskað er.