Morgunblaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012
AF KVIKMYNDUM
Davíð Már Stefánsson
dms8@hi.is
Vart er hægt að líta yfir síð-astliðinn áratug í kvik-myndagerð án þess að
staldra aðeins við bandaríska leik-
stjórann Wes Anderson. Með BA-
gráðu í heimspeki frá University of
Texas at Austin í farteskinu leik-
stýrði hann sinni fyrstu kvikmynd,
Bottle Rocket, á sínu 27. aldursári
árið 1996. Anderson og herberg-
isfélagi hans, Owen Wilson, skrif-
uðu handritið að myndinni en Wil-
son lék einmitt aðalhlutverkið
ásamt eldri bróður sínum, Luke
Wilson.
Anderson hefur haldið tryggðvið þá bræður í vali sínu á
leikurum og hefur Owen Wilson til
að mynda leikið í öllum myndum
hans hingað til. Eins og svo margir
leikstjórar velur Anderson oft
sömu leikarana til að túlka persón-
ur sínar og hefur hann vísað til
þeirra og tækniliðs síns sem fjöl-
skyldu sinnar. Skemmtilegt er sam-
band hans við leikarann Kumar
Pallana, indverskan innflytjanda
sem rak kaffihús sem Anderson og
Owen Wilson sóttu gjarnan á há-
skóladögum sínum. Anderson fékk
Pallana til að leika lítið hlutverk í
fyrstu kvikmynd sinni og nú, 93 ára
að aldri, hefur hann leikið í fjórum
myndum hans. Meðal þeirra sem
tilheyra svokallaðri fjölskyldu er
stórleikarinn Bill Murray. Murray
er einstaklega vel til þess fallinn að
túlka þær margræðu og ráðvilltu
persónur sem Anderson skapar af
svo mikilli snilld og samvinna
þeirra tveggja er án nokkurs vafa
til eftirbreytni.
Sá bragur sem er yfir öllummyndum Wes Andersons er
einstakur. Sviðsmyndin og bún-
ingar persónanna eru að jafnaði
skemmtileg blanda sterkra frum-
lita og jarðlita. Þó svo það sé aldrei
tekið fram þá er sú tilfinning alltaf
viðloðandi að sögurnar eigi að ger-
ast á sjöunda og áttunda áratug
síðustu aldar. Sú tilfinning styrkist
við þá tónlist sem Anderson notar
við gerð mynda sinna, en hún leik-
ur stórt hlutverk í öllum þeirra. Í
The Life Aquatic with Steve Zissou
fékk hann brasilíska tónlistar-
manninn Seu Jorge til að vera hluti
af áhöfninni um borð í skipinu
Belafonte. Inn á milli atriða syngur
hann svo David Bowie-slagara á
portúgölsku; frábær útfærsla sem
Bowie sjálfum fannst mikið til
koma. Persónur mynda hans eru
ætíð skemmtilega brothættar og
ófullkomnar og gefur það mynd-
unum aukið raunsæislegt gildi.
Kynning þeirra er yfirleitt mjög
áhugaverð og þær beinu kynningar
sem Anderson beitir eru oft og tíð-
um frábærar. Það ríkir nær full-
komið jafnvægi á milli gamanleiks
og alvarleika í myndum hans sem
endurspeglast í kæruleysislegum
endurlausnum aðalpersónanna.
Oft er að því spurt hver sé íraun hinn raunverulegi höf-
undur kvikmynda; leikstjóri, hand-
ritshöfundur eða aðalleikarar. Wes
Anderson er handritshöfundur
allra sinna mynda, þó yfirleitt
ásamt einhverjum öðrum, auk þess
sem hann leikstýrir þeim. Það ligg-
ur því beinast við að segja að hann
sé höfundur þeirra. Það verður þó
að segjast að myndirnar væru ekki
þær sömu ef ekki væri fyrir túlkun
t.d. Bills Murrays og Wilson-
bræðra á hlutverkum sínum og að-
komu Roberts Yeomans sem hefur
séð um kvikmyndatöku í öllum
myndum Wes Andersons. Það má
því segja að þessi svokallaða fjöl-
skylda sé höfundur myndanna en
að Wes Anderson sé fjölskyldufað-
irinn.
Aðdáendur Andersons þurfaekki að bíða lengi eftir nýrri
afurð leikstjórans því kvikmyndin
Moonrise Kingdom er væntanleg í
kvikmydahús landsmanna í maí.
Þar víkja Wilson-bræður fyrir
Bruce Willis og Edward Norton og
þykir mér áhugavert að sjá hvernig
þeir, sérstaklega sá fyrrnefndi,
falla að fjölskyldunni. Það virðist
fátt ætla að koma í veg fyrir vel-
gengni þessa stórkostlega leik-
stjóra þó svo ýmis ljón hafi orðið á
vegi hans. Til að mynda stóðu tvær
fyrstu kvikmyndir hans, Bottle
Rocket og Rushmore, engan veginn
undir framleiðslukostnaði sínum.
Yfirveguð og jarðbundin fram-setning Andersons, oft á vo-
veiflegum atburðum, kristallast svo
fallega í skeytingarlausum per-
sónum sem eru hvorki holdgerv-
ingar illsku né góðmennsku heldur
sýna fram á margræðni manneskj-
unnar. Við bætast síðan afar aðlað-
andi sviðsmyndir, vel útfærð atriði
og skemmtileg klipping og úr
verða gullmolar sem í raun skína
skærar en öll þau verðlaun sem
myndirnar hafa því miður ekki
hlotið.
Wes Anderson og fjölskyldan hans
Opnunarmynd Úr nýjustu kvikmynd Andersons, Moonrise Kingdom. Bill
Murray, Tilda Swinton, Bruce Willis og Edward Norton leika m.a. í henni.
» Það virðist fáttætla að koma í veg
fyrir velgengni þessa
stórkostlega leikstjóra
þó svo ýmis ljón hafi
orðið á vegi hans.
Skrautlegir Leikararnir Adrien Brody, Owen Wilson og Jason Schwartz-
man í kvikmynd Andersons, The Darjeeling Limited, frá árinu 2007.
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
BATTLESHIP Sýnd kl. 4 - 7 - 10 (Power)
AMERICAN PIE: REUNION Sýnd kl. 5:45 - 8 - 10:20
HUNGER GAMES Sýnd kl. 7 - 10
LORAX 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 2 - 4
LORAX 2D ÍSL TAL Sýnd kl. 2 - 4
STERK BYRJUN, MANN
ÞYRSTIR Í MEIRA!
T.V. - Vikan/Séð og Heyrt
HHHH
HEIMURINN FYLGIST AGNDOFA MEÐ
„ÁKAFLEGA VEL HEPPNUÐ
ÆVINTÝRAMYND“
A.L.Þ - MBL
HHHH
Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN
HHHH
DREPFYNDIN MYND SEM GEFUR
FYRSTU MYNDUNUM EKKERT EFTIR!
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
EIN FLOTTASTA MYND ÁRSINS
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR
TRANSFORMERS MEÐ TAYLOR
KITSCH, LIAM NEESON OG
HINNI SJÓÐHEITU RIHANNA
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
SÉÐ OG HEYRT/KVIKMYNDIR.IS FRÉTTABLAÐIÐ
“FRUMLEG OG MEINFYNDIN SÝRA
SEM ÞARF AÐ SJÁ TIL AÐ TRÚA!”
- TÓMAS VALGEIRSSON, KVIKMYNDIR.IS
T.V. - VIKAN/SÉÐ OG HEYRT Þ.Þ. FRÉTTATÍMINNDREPFYNDIN MYND!
BESTA MYND ÁRSINS UM NASISTA Á
TUNGLINU Í FRAMTÍÐINNI!
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
NÁNAR Á MIÐI.IS
BATTLESHIP KL. 1 (TILBOÐ) - 3 - 5.15 - 8 - 10.45 12
BATTLESHIP LÚXUS KL. 2 - 5 - 8 - 10.45 12
AMERICAN PIE REUNION KL. 1 (TILBOÐ) - 5.30 - 8 - 10.30 12
LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 1 (TILBOÐ) - 3 L
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 3 - 6 L
HUNGER GAMES KL. 5 - 8 – 11* 12
SVARTUR Á LEIK KL. 8 - 10.30 16
*AÐEINS LAUGARDAG ** AÐEINS SUNNUDAG
BORGARBÍÓ
21 JUMP STREET FORSÝNING KL. 10.20* 14
IRON SKY KL. 3.30 (TILBOÐ) - 5.45 - 8 - 10.15** 12
BATTLESHIP KL. 3 (TILBOÐ) - 6 - 9 12
TITANIC 3D ÓTEXTUÐ KL. 5 10
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3 (TILBOÐ) L
LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3 (TILBOÐ) L
HUNGER GAMES KL. 9 12
SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
BATTLESHIP KL. 8 - 10.20 12
AMERICAN PIE: REUNION KL. 8 - 10.10 12
HUNGER GAMES KL. 5.30 12
SVARTUR Á LEIK KL. 5.50 16
LORAX 3D KL. 2 (TILBOÐ) - 3.50 LORAX 2D KL. 2 (TILBOÐ) - 3.50 L