Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012 www.golfkortid.is Einstaklingskort 9.000 kr. Fjölskyldukort 14.000 kr. golfvöllur - eitt kort31 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Krakkar úr Holtaskóla í Reykjanesbæ fagna hér sigri í Skólahreysti 2012 en úrslitakeppnin fór fram í troð- fullri Laugardalshöll í gærkvöldi. Holtaskóli fékk 62 stig og í öðru sæti varð Heiðarskóli úr sama sveitarfé- lagi með 58 stig. Hagaskóli varð í þriðja sæti með 43 stig. Tólf skólar af öllu landinu tóku þátt í úrslitunum. Morgunblaðið/Kristinn Krakkarnir úr Reykjanesbæ öflugir í úrslitunum í Skólahreysti Gull til Holtaskóla – silfur til Heiðarskóla Skatttekjur Sveitarfélagsins Álfta- ness dugðu fyrir útgjöldum sveitar- félagsins í fyrra og var það í fyrsta skipti í mörg ár sem það hafði gerst. Ársreikningur sveitarfé- lagsins fyrir árið 2011 hefur verið lagður fram til fyrri umræðu í bæj- arstjórn, samkvæmt tilkynningu. Rekstrarniðurstaða fyrir fjár- magnsliði var jákvæð um 240 millj- ónir. Rekstur málaflokka aðalsjóðs án lífeyrisskuldbindingar, óvenju- legra liða og fjármagnsliða, tók í fyrra til sín 95% af skatttekjum en um 103% árið á undan. Hagur Sveitarfé- lagsins Álftaness fer batnandi Alþjóðlega matsfyrirtækið Stand- ard & Poor’s lækkaði í gær láns- hæfismat spænska ríkisins um tvö þrep, að sögn Wall Street Journal. Lánshæfismatið er nú BBB+ en var A fyrir lækkunina. Ástæðan var sögð tvísýnar horfur í fjármálum ríkisins og vaxandi áhyggjur af getu héraða landsins til að draga úr eyðslu. Þegar efnahagsvandinn skall á árið 2008 var Spánn með AAA- lánshæfismat en það hefur verið lækkað hvað eftir annað síðan. Lánshæfismat Spánar lækkað Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Öryggi lögreglumanna er stefnt í hættu. Þeir eru farnir að vera einir á bílum og þurfa oft á tíðum að eiga við mjög erfið útköll,“ sagði Snorri Magnússon, formaður Landssam- bands lögreglumanna (LL). Þing LL samþykkti í fyrradag ályktun um að lögreglan yrði lögð niður. Snorri kvaðst lengi hafa talað um ástandið í löggæslumálum. Hann sagði boðað- ar skipulagsbreytingar á lögreglunni eiga þátt í óánægju lögreglumanna. „Það er verið að hræra í sama pottinum og búið er að hræra í und- anfarin ár,“ sagði Snorri. Hann sagði lögreglumenn vera orðna þreytta á sífelldum skipulagsbreytingum sem alltaf ættu að leiða til sparnaðar og hagræðingar. Svo væru ekki gerðar neinar úttektir á því hvort markmið breytinganna hefðu náðst. „Lögreglumenn eru ekki sann- færðir um að þessar breytingar verði til góðs, alls ekki,“ sagði Snorri um nýjustu áformin. „Lögreglu- menn eru orðnir langþreyttir á ástandinu og því að það skuli ekki vera hlustað á það sem þeir kalla eft- ir.“ Kalla eftir óháðu mati Snorri nefndi þingsályktunartil- lögu sem Gunnar Bragi Sveinsson og fleiri þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks lögðu fram á liðnu hausti um grundvallarskil- greiningar löggæslu á Íslandi og gerð löggæsluáætlunar fyrir Ísland. Þar er m.a. lagt til að skipuð verði nefnd til að skilgreina öryggisstig á Íslandi, þjónustustig lögreglu og mannaflaþörf og að þörf lög- reglu fyrir fjármagn verði skil- greind. Tillagan er nú til um- fjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd. „Við höfum líka kallað eftir mati óháðra aðila á þeirri leið sem farin hef- ur verið alveg frá 1997 þegar Rannsóknarlögregla ríkisins var lögð niður og embætti Ríkislög- reglustjóra stofnað. En það þarf að byrja á að skoða sameiningar- og breytingaferlið sem hófst 2007 og hvort þeim markmiðum sem lagt var upp með þá hafi verið náð. Við leyf- um okkur að efast um að svo hafi verið,“ sagði Snorri. Hann sagði lögreglumenn vera að hætta í starfi vegna ástandsins, hverfa til náms og annað. Til dæmis hefði fækkað um ein 60 stöðugildi í lögregluliði sem væri rúmlega 700 lögreglumenn í kringum árið 2007. Það væri ekki lítil fækkun í ekki stærra liði. Snorri kvaðst óttast að þegar ástandið batnaði á vinnumark- aði hyrfu lögreglumenn unnvörpum úr starfi. Segir öryggi lögreglu vera stefnt í hættu  Lögreglumenn þreyttir á sífelldum skipulagsbreytingum Morgunblaðið/Júlíus Lögreglumenn Niðurskurður hefur komið hart niður á lögreglunni. Lög- reglumenn hafa mótmælt niðurskurðinum og krafist betri aðbúnaðar. Hæstiréttur hefur staðfest 16 ára fangelsi yfir Redouane Naoui, fer- tugum karlmanni, fyrir manndráp. Hann stakk mann með hnífi á veit- ingastað í miðborg Reykjavíkur. Na- oui var einnig dæmdur til að greiða dóttur hins myrta rúmar þrjár millj- ónir króna í bætur. Naoui bar við minnisleysi vegna áfengisneyslu en meðal gagna máls- ins voru upptökur úr örygg- ismyndavél veitingastaðarins Monte Carlo. Lögregla lagði hald á hníf sem fannst á vettvangi. Reyndist vera um að ræða búrhníf með bjúgblaði, sem mældist 25,8 cm á lengd. Sýni, sem tekin voru úr bletti á skyrtu ákærða og af hnífsblaði, gáfu já- kvæða svörun sem blóð og voru send til DNA-samanburðarrannsóknar við Statens Kriminalteknisk La- boratorium í Svíþjóð. Samkvæmt greinargerð rannsóknastofunnar reyndust tvö sýni sem tekin voru úr skyrtunni og af hnífsblaðinu hafa sama DNA-snið og sá myrti. Sextán ára dómur staðfestur Dæmdur fyrir manndráp „Öll opinber þjónusta hefur þurft að sæta niðurskurði vegna þess að tekjur ríkis og sveitarfélaga hrundu,“ segir Ögmundur Jón- asson innanríkisráðherra. „Það hefur bitnað á löggæslunni ekki síður en á annarri mikilvægri stofnþjónustu samfélagsins eins og heilbrigðisþjónustu og menntakerfi.“ Ögmundur telur að löggæslan sé einn af veigamestu grunn- þáttum velferðarþjónustunnar til að tryggja öryggi borgaranna. „Ég er samstiga lögreglumönnum í þeirri baráttu að færa þessi mál til hins besta vegar og er að sjálf- sögðu að vinna í því,“ segir Ög- mundur. Hann kveðst ekki vera sammála því að skipulagsbreytingar hjá lög- reglunni á undanförnum árum hafi ekki skilað árangri. Hann er viss um að skipulagsbreytingar sem nú eru boðaðar skili árangri. Er samstiga lögreglumönnum ÖGMUNDUR JÓNASSON INNANRÍKISRÁÐHERRA Ögmundur Jónasson Íslendingar eru sú þjóð í Evrópu sem telur síst líklegt að þeim muni fjölga í heimalandinu sem þjást af vinnutengdri streitu á næstu fimm árum, samkvæmt nýrri skoð- anakönnun um vinnuverndarmál sem unnin var fyrir Vinnuvernd- arstofnun Evrópu. Um 27% ís- lenskra svarenda töldu að þeim myndi fjölga mikið og um 20% að þeim myndi fjölga lítillega en svart- sýnastir voru þátttakendur í Grikk- landi, þar sem 83% töldu líklegt að þeim fjölgaði mikið. Lægst var þetta hlutfall meðal þátttakenda frá Nor- egi, eða 16%. Alls telja 80% einstaklinga á vinnumarkaði í Evrópu að þeim sem þjáist af vinnutengdri streitu í heimalandi þeirra fjölgi næstu árin og telja 49% að það verði mikið. Íslendingar komu ágætlega út úr könnuninni og reyndust t.d. sú þjóð sem taldi vinnuvernd hvað mik- ilvægasta til að hjálpa fólki til að vinna lengur áður en það fer á eft- irlaun en 77% íslenskra þátttakenda í könnuninni töldu hana afar mik- ilvæga í því sambandi. Íslendingar voru einnig meðal þeirra þjóða sem voru hvað sannfærðastar um að yf- irmaður myndi leysa úr vanda- málum varðandi öryggi og heilbrigði á vinnustað ef til hans væri leitað. holmfridur@mbl.is Íslendingar koma vel út úr samanburði  Evrópubúar búast við meiri streitu Að eldast í Evrópu » Aðeins 42% Evrópubúa telja að þeir muni geta sinnt núver- andi starfi til 65 ára aldurs. » 17% búast ekki við því að geta sinnt starfi sínu lengur en til 59 ára aldurs, samkvæmt könnun Eurobarometer um virka öldrun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.