Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012 Aðalfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands Aðalfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands verður haldinn föstudaginn 11. maí, kl. 16 í sal Tannlæknafélags Íslands, Síðumúla 35. Dagskrá fundarins eru almenn aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins. Atkvæðaréttur sjóðfélaga telst eftir eign þeirra og réttindum við síðastliðin áramót. Rétthafar eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og atkvæðarétt. Aðalfundargögn má nálgast á vefsíðu sjóðsins, www.li.is/ls/ltfi, og hjá Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Landsbankans, Austurstræti 11. Virðingarfyllst, Stjórn Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands Í Morgunblaðinu í gær var rifjaðupp að Jóhanna Sigurðardóttir sagði frá því haustið 2010 að samd- ar hefðu verið reglur um und- irbúning lagafrumvarpa sem lögð væru fram í ríkisstjórn til þess að tryggja bætt vinnu- brögð.    Þá sagði húneinnig að for- sætisráðuneytið hefði ákveðið að auka forystu- hlutverk sitt og samráð við önnur ráðuneyti fyrir framlagningu þing- málaskrár og myndi hafa til hliðsjónar tillögur þingmanna- nefndar um að stjórnarfrumvörp yrðu lögð fram með góðum fyr- irvara.    Þessi þingmannanefnd, sem AtliGíslason stýrði, hafði verið stofnuð til að fara yfir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og þar var lögð áhersla á að þing- mönnum gæfist gott ráðrúm til að taka stjórnarfrumvörp til fag- legrar skoðunar, upplýstrar mál- efnalegrar umræðu og afgreiðslu, eins og það var orðað.    Nú bendir Atli á að þrátt fyrirhin fögru fyrirheit sé ástand- ið verra en áður og allir sjá hvern- ig stórum málum er hrúgað inn í þingið á síðustu stundu. Og þó að þau séu illa unnin er þrýst á um að þau séu keyrð í gegn.    Og þegar þingmenn vilja fá tímatil að ræða þau hefjast ásak- anir um málþóf um leið og sá fyrsti opnar munninn.    Eru þetta bættu vinnubrögðinsem forsætisráðherra lofaði þingi og þjóð? Jóhanna Sigurðardóttir Bætt vinnubrögð? STAKSTEINAR Atli Gíslason Veður víða um heim 26.4., kl. 18.00 Reykjavík 6 skýjað Bolungarvík 3 skýjað Akureyri 5 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 5 skýjað Vestmannaeyjar 4 léttskýjað Nuuk 0 upplýsingar bárust ek Þórshöfn 4 skýjað Ósló 7 alskýjað Kaupmannahöfn 12 skýjað Stokkhólmur 7 skúrir Helsinki 11 skýjað Lúxemborg 8 skúrir Brussel 11 léttskýjað Dublin 8 skýjað Glasgow 11 skýjað London 13 léttskýjað París 13 skýjað Amsterdam 12 skýjað Hamborg 15 skýjað Berlín 17 heiðskírt Vín 22 skýjað Moskva 15 alskýjað Algarve 17 léttskýjað Madríd 16 léttskýjað Barcelona 18 léttskýjað Mallorca 21 heiðskírt Róm 21 heiðskírt Aþena 22 heiðskírt Winnipeg 0 léttskýjað Montreal 8 skýjað New York 13 alskýjað Chicago 11 alskýjað Orlando 26 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 27. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:12 21:40 ÍSAFJÖRÐUR 5:02 21:59 SIGLUFJÖRÐUR 4:45 21:43 DJÚPIVOGUR 4:38 21:13 Gengið hefur verið frá kaupum félagsins BMV Holding á öllu hlutafé í BM Vallá ehf. Seljandi er Eignabjarg, dótturfélag Arion banka. Að BMV Holding standa annars vegar Norcem AS og hins vegar hópur íslenskra fyrirtækja þar sem stærstu eigendur eru Björgun og Jarðefnaiðnaður. BM Vallá fór í þrot fyrir tæp- um tveimur árum en var end- urreist af Arion banka. Félagið var auglýst til sölu í lok mars í fyrra og undirritaði BMV Hold- ing kaupsamning í október sl. Salan var háð samþykki Sam- keppniseftirlitsins, sem nú liggur fyrir. Starfsemi BM Vallár á rætur að rekja allt aftur til ársins 1946 er fyrirtækið hóf sölu á steypu- efni frá Vallá á Kjalarnesi. Kaupin á BM Vallá hafa gengið í gegn „Það eru ekki til nein lög um kurteisi. Ekki heldur gegn siðleysi. Eina leiðin til að berjast gegn siðleysi, mann- vonsku og haturstali er að tala gegn því,“ sagði Ögmundur Jónasson inn- anríkisráðherra í ávarpi, sem hann flutti í upphafi fundar á vegum ráðu- neytisins um hatursáróður í gær- morgun. Ögmundur vísaði til þess að á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna og Evr- ópuráðsins hefði Ísland fengið tilmæli „um að við þurfum að gera betur í að sporna gegn hatursfullri umræðu“, og væri þar „einkum nefnd fordómafull orðræða gegn útlendingum“. Bætti hann við að fundurinn væri liður í að bregðast við þessum áskorunum. Fundurinn snerist að miklu leyti um mörk tjáningarfrelsis og varna gegn hatursáróðri. Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, dró í er- indi sínu á fundinum línuna við það að ekki ætti að nota mannréttindi til að traðka á mannréttindum annarra. Hún benti á að ekki væri mikið um mál vegna hatursáróðurs í íslensku réttarkerfi. Íslendingar hefðu tekið samning Sameinuðu þjóðanna um af- nám kynþáttamisréttis inn í íslensk lög 1973. Ekki væri þó nóg að lög væru til staðar, þeim þyrfti að fylgja eftir og full ástæða væri til að ætla að stjórn- völd þyrftu á tímum örra þjóðfélags- breytinga að vera á varðbergi. Margrét Steinarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Mannréttindaskrif- stofu Íslands, ræddi að víkka þyrfti heimildir í fjölmiðlalögum þannig að refsivert yrði að dreifa hatursáróðri og vakti einnig máls á vandanum, sem fylgdi hatursumræðu í samfélags- miðlum. Margrét sagði einnig dæmi um það að lögregla hefði vísað fólki frá, sem til hennar leitaði, í einu tilviki það verið gert þegar kvartað var und- an skilti í glugga fyrirtækis með áletr- uninni „Júðar óvelkomnir“ á þeirri forsendu að sá sem kvartaði hefði ekki lögvarða hagsmuni. Ef hatursá- róður væri látinn óátalinn, sagði Mar- grét, yrði allt leyfilegt og það gæti leitt til þjóðfélagsrofs. Logi Kjartansson, lögfræðingur hjá stjórnsýslusviði Ríkislögreglu- stjóra, ræddi þá óljósu jafnvægislínu, sem verðir laganna þyrftu að feta. Hann benti á vanda lögreglu varðandi hatursáróður á netinu. Möguleikar til að bregðast við brotum þar væru tak- markaðir og heimildir yrðu að vera skýrar. Á Íslandi væri bann við rit- skoðun og lögregla yrði að gæta þess að fara ekki óbeislað í þann farveg. Íris Ellenberger sagnfræðingur var síðust frummælenda og fjallaði um þann búning, sem umræða, sem elur á andúð, gæti tekið á sig. Að tala gegn haturstali  Málfrelsi og varnir gegn hatursáróðri Athugasemdir að utan » ECRI, nefnd Evrópuráðsins gegn kynþáttafordómum, og mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna segja að Ísland þurfi að standa sig betur í að sporna gegn hatursfullri umræðu. » Í mannréttindaráði SÞ sagði Kanada að innleiða þyrfti öll meginákvæði samnings SÞ um afnám kynþáttamisréttis í ís- lensk lög og tryggja allsherj- arvernd gegn því. Reuters Virðing Enginn staður fyrir kyn- þáttamisrétti, segir á þýsku skilti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.