Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012 Kauptúni og Kringlunni – www.tekk.is Opið laugardag kl. 10–17 og sunnudag kl. 13–17 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM HÚSGÖGNUM Bjóðum vaxtalausar afborganir til 12 mánaða Árni Matthíasson arnim@mbl.is Sinfóníuhljómsveit Íslandsflytur vorleg verk nú í sum-arbyrjun á tónleikum fyrirgrunnskólabörn í vikunni og síðan tónleika sem opnir eru öll- um á laugardag kl. 14. Á efnis- skránni eru verk eftir Antonio Vi- valdi, Nikolaj Rimsky-Korsakov, Johann Strauss, Ludwig van Beetho- ven og Bedrich Smetana. Verkin sem leikin verða fyrir grunnskólabörnin eru Vorið úr Árs- tíðum Vivaldis, Stormurinn úr Sveitasinfóníu Beethovens, polki eft- ir Johann Strauss, býfluga Rimskíj- Korsakovs og tónaljóðið Moldá eftir Bedrich Smetana. Á laugardag verð- ur sama efnisskrá, en heldur lengri þó, á tónleikum í röðinni Litli tón- sprotinn. Sögumaður á þeim tón- leikum er Halldóra Geirharðsdóttir og stjórnandi Bernharður Wilkinson en einleikari í köflum úr Árstíðum Vivaldis er Sif Tulinius, aðstoðar- konsertmeistari Sinfóníunnar. Sif segist hafa spilað Árstíðirnar ótal sinnum, en þetta verði í fyrsta sinn sem hún leiki einleikskaflann í Vorinu; „það er gaman að fá að vera í einleikshlutverki í Vorinu í fyrsta sinn, ekki síst nú þegar svo fallegir vordagar eru runnir upp,“ segir hún og bætir við að þótt Árstíðirnar séu eitt af mest fluttu verkum bók- menntanna verði góð vísa aldrei of oft kveðin. Þar að auki verði vorið nú flutt á tónsprotatónleikum þar sem börn eru í meirihluta og því þó nokkrar líkur á því einhverjir í þeim hópi séu að heyra það í fyrsta sinn. „Í því samhengi er gaman að segja frá því að Vivaldi samdi einmitt flest af sínum verkum, m.a. Árstíðirnar, fyr- ir strengjasveit ungra stúlkna sem Upp í sveit með Sinfóníunni Sinfóníuhljómsveitin flytur vorleg verk fyrir grunnskólabörn í vikunni og heldur síðan tónleika fyrir alla. Þar á bæ er líka í bígerð barnastund fyrir yngstu hlust- endurna. Vortónar Sinfóníuhljómsveitin heldur reglulega tónleika fyrir grunn- skólabörn og flutti að þessu sinni vorleg verk. Sögumaður Halldóra Geirharðsdóttir var sögumaður á tónleikunum, kynnti verkin og leiddi börnin inn í leyndarheim tónlistarinnar. Nú þegar styttist í sumarið er ekki úr vegi að huga að því að koma sér upp flottum sólgleraugum, svo ekki þurfi að píra augun framan í sólina gulu sem ætlar að skína svo skært í sum- ar. Í vaxandi umhverfisvitund og -vernd er full ástæða til að fá sér handgerð sólgleraugu úr viði frá fyr- irtækinu Proof, því hráefnið í þau kemur ekki úr regnskógunum sem ekki má eyða. Á vefsíðu fyrirtækisins iwantproof.com er hægt að skoða og panta ótal flottar útfærslur á gler- augum úr viði. Bræðurnir sem eiga og reka fyrirtækið vinna út frá slag- orðinu: LOOK GOOD. DO GOOD. Og þeir standa við það, því tíu pró- sent af hagnaði renna til góðra mál- efna. Meðal annars styrkja þeir stofnun á Indlandi sem gerir aðgerðir á augum hinna fátæku sem ekki hafa efni á því að fara á venjulega spítala. Nú er lag að fá sér flott gleraugu. Vefsíðan www.iwantproof.com Sólgleraugu gerð úr viði Sýning á verkum nemenda á mynd- listarbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ stendur nú yfir, en sýningin er haldin á 1. hæð og 5. hæð í aðal- safni Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Sýningin er afrakstur 16 nemenda í lokaáfanga í myndlist. Viðfangsefni þeirra eru ólík og hefur hver og einn þróað eigin aðferðir og efnistök. Sýningin verður opin til 2. maí, í dag klukkan 11-18 og laugardag og sunnudag 13-17 en mánudag 10-19. Nánari upplýsingar má nálgast á fg.is en allir eru velkomnir og að- gangur ókeypis. Endilega … … skoðið ólík viðfangsefni Hugur fatahönnuða virðist oft svífa víða og eru hugmyndirnar að manni sýnist endalausar. Það má með sanni segja að þessi hönnun sem sést hér að ofan svífi. Ja, í það minnsta fljúga flugur um og má segja að þær svífi. Hér getur að líta fyrirsætur sem sýna hönnun taív- anska fatahönnuðarins Chris Chang, en nýjasta lína hans, Poesia, var frumsýnd á tískusýningu á opnunar- kvöldi tískuvikunnar í Shanghai á dögunum. Chang hefur sótt innblástur sinn í skordýraríkið sem kemur dálítið skemmtilega út og er ekki annað hægt að segja en að hönnunin sé einnig litrík. Um leið er líklegast hægt að verja sig ágætlega í þessum fatnaði sem er alsettur göddum og minnir á broddflugu. Enginn vill nú sérlega mikið stinga sig á slíkum. Hönnun Chang byggist að miklu leyti á þeirri sýn sem við höfum á líf- ið og tilveruna sem börn. Sú mikla og litríka töfraveröld sem við sjáum fyrir okkur í huga okkar er það sem Chang vill endurvekja í hönnun sinni. Tíska Stingandi og litrík hönnun AFP Skordýr Líklegast væri ekki gott að stinga sig á þessum tveim sem hér sjást. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.