Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012
✝ IngibjörgRagnarsdóttir
Nordeide fæddist í
Reykjavík 12. júní
1943. Hún lést á
hjartadeild Land-
spítalans 9. apríl
síðastliðinn.
Foreldrar henn-
ar voru Ragnar
Guðmundsson f.
6.12.1912, d. 8.1.
1983, og Sigríður
Einarsdóttir f. 23.9. 1916. Systk-
ini hennar eru öll á lífi og eru:
Kristín, Þórunn, maki Snorri
Egilson, Málfríður, Einar, maki
Claudia Gluck, og Guðmundur,
maki Þóra Friðriksdóttir.
Ingibjörg giftist hinn 16.
október 1971 norskum manni
Arne Nordeide fæddur 1941,
þau eignuðust 3 börn: Jórunn
fædd 1972, Sigrid
fædd 1977 og Ragn-
ar fæddur 1978.
Ragnar er kvæntur
Susanne Juell Gud-
brandsen og eiga
þau einn son, Magn-
ús Juell.
Ingibjörg bjó all-
an sinn búskap er-
lendis, lengst af í
Sætre, Hurum,
Noregi. Hún starf-
aði um árabil hjá alþjóðlegu
skipamiðlunarfyrirtæki í Ósló
eða þar til fyrir tveim árum að
hún fór á eftirlaun. Fram að því
var hún húsmóðir þar til að
börnin komust á legg.
Kveðjuathöfn hefur farið
fram í kyrrþey. Útför hennar fer
fram frá Hurumkirkju í Noregi
föstudaginn 27. apríl 2012 kl. 13.
Í dag fylgi ég Ingibjörgu
mágkonu minni til grafar en hún
verður jarðsungin frá Hurum-
kirkju í Noregi.
Ég kynntist Ingibjörgu fljót-
lega eftir að ég og litli bróðir
hennar fórum að draga okkur
saman fyrir tæpum þrjátíu ár-
um. Hún var systirin sem bjó í
útlöndum, ýmist í Noregi, Sví-
þjóð eða Ameríku. Ég áttaði mig
fljótlega á því að þegar Ingi-
björg kom í heimsókn til Íslands
þá voru jól, jól í þeim skilningi
að fjölskyldan hittist og það var
gleði og glaumur. Dillandi hlátur
Ingibjargar og skemmtilegar
sögur frá æskuheimilinu ein-
kenndu samverustundir fjöl-
skyldunnar.
Seinna þegar ég og Mummi
bróðir fluttumst til Svíþjóðar
urðu samverustundirnar fleiri.
Þrátt fyrir að langt væri á milli
okkar kom Ingibjörg í heimsókn
hvenær sem tækifæri gafst. Hún
ók mörg hundruð kílómetra til
að hjálpa mágkonu sinni með
gardínusaum og hún kom í
skírn, fermingar og afmæli til
Svíþjóðar og Íslands. Ingibjörg
var með eindæmum gestrisin og
það var alltaf gott að heimsækja
hana, Arne og börnin í Sætre í
fallega húsið á hæðinni með út-
sýni yfir Óslófjörðinn.
Ingibjörg elskaði Ísland og
fjölskylduna sína og hún var
alltaf hrókur alls fagnaðar.
Hennar er sárt saknað. Blessuð
sé minning Ingibjargar.
Þóra Friðriksdóttir.
Að lífið sé undarlegt ferðalag
kemur okkur í hug þegar við
kveðjum Ingibjörgu mágkonu og
frænku okkar eftir margra ára-
tuga vináttu. Ingibjörg var alltaf
glöð og hress, einstaklega hlát-
urmild. Hún hafði mjög sterkar
taugar til fósturjarðarinnar
þrátt fyrir langa búsetu erlendis
og hafði afgerandi skoðanir á
þjóðmálum og þeim er þar
stýrðu för og fór ekki leynt með
þær í góðra vina hópi.
Ingibjörg kemur úr stórri
fjölskyldu héðan úr Holtunum í
Reykjavík en foreldrar hennar
komu úr Vestur- og Austur-
Skaftafellssýslum. Hún giftist
Arne sínum inn í enn stærri fjöl-
skyldu í Noregi. Þau kynntust í
Bandaríkjunum fyrir fjörutíu ár-
um og bjuggu allan sinn búskap
víða erlendis vegna starfa hans
en heimili þeirra hefur lengst af
verið í Sætre/Huruum á einum
fallegasta staðnum við Óslóar-
fjörð. Börnin þeirra þrjú eru
uppkomin og má segja að þau
séu börn hins nýja tíma, hins
smækkaða heims þar sem vega-
lengdir skipta orðið litlu máli, en
eitt þeirra er búsett í Suður-Afr-
íku, í Sviss og í Noregi. Ingi-
björg unni heimahögunum á Ís-
landi mjög og kom reglulega
hingað að heimsækja fjölskyldu
sína og sérstaklega aldraða móð-
ur sem var henni einkar kær.
En miðpunktur veraldarinnar í
hennar augum var við Selvogs-
grunn hér í Reykjavík þar sem
móðir hennar býr.
Kallið kom einmitt í slíkri ferð
öllum að óvörum. Hún lést á
hjartadeild Landspítalans hinn
9. apríl sl. þar sem hún naut frá-
bærrar umönnunar starfsmanna
gjörgæslu- og hjartadeildar, sem
þakkað er fyrir af heilum hug.
Ingibjörg átti von á sínu
fyrsta barnabarni en hún lést
aðeins fáeinum klukkustundum
fyrir fæðingu barnsins sem hún
hlakkaði svo til að taka á móti og
vefja ástúð og umhyggju.
Margs er að minnast á
löngum tíma, ótal ferðalaga hér
heima og víða erlendis. Ingi-
björg var gleðigjafi og söngelsk
en ógleymanleg eru gömlu ætt-
jarðarlögin í flutningi hennar og
systranna. Hún sótti leikhús og
tónleika í ferðum sínum til
landsins, naut þess að hitta ætt-
ingjana og sjá ungviðið vaxa í
sínum stóra frændgarði.
Við þökkum Ingibjörgu kær-
leiksríka samfylgd og vottum
Arne og börnum þeirra samúð
okkar.
Lífinu ég þakka
það sem mér er gefið,
hláturinn og grátinn,
svo að greint ég fái
gleðina og harminn,
þetta tvennt sem myndar
mína söngva og ykkar.
(Violeta Parra, þýð. Aðalsteinn Ás-
berg)
Minningarathöfn um Ingi-
björgu fór fram hér í Reykjavík
að viðstöddum nánustu ætt-
mennum en útförin fer fram í
dag frá Sætre-kirkju við Óslóar-
fjörð.
Kristín, Sigríður Ragna,
Snorri Egilson.
Ingibjörg Ragn-
arsdóttir Nordeide
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Blíðfinnur - enskur cocker
spaniel
Til sölu hreinræktaður enskur cocker
spaniel. Ættbók, bólusettur og
örmerktur. Undan Allert´s Custom-
made og Bjarkeyjar Take a chance
on me. Tilbúinn að flytja að heiman.
Upplýsingar í síma 690 6004.
Maltese-hvolpur til sölu
Rakkinn er búinn að fara í læknis-
skoðun og það gekk rosalega vel.
Hann verður með ættbók frá HRFÍ og
tryggingu í 1 ár. Hann er tilbúinn til
afhendingar. Ef koma upp fleiri
spurningar, hikið ekki við að hafa
samband. Kv. Klaudia og Teresa.
Sími: 846 4221,
email: laudia92@hotmail.com
Garðar
Garðklippingar og garðsláttur
Klippum hekk og annan gróður.
Sjáum einnig um garðsláttinn fyrir
þig í sumar. Bæði fyrir einstaklinga
og húsfélög. Fáðu verðtilboð. ENGI
ehf. Sími 615-1605.
Tökum garðinn í gegn!
Klippingar, trjáfellingar, beða-
hreinsanir, úðanir og allt annað sem
við kemur garðinum þínum.
Áratuga reynsla, skilvirk vinnubrögð
og umfram allt hamingjusamir
viðskiptavinir.
20% afsláttur eldri borgara.
Garðaþjónustan: 772-0864.
Gisting
Gisting Akureyri
Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm
einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að-
staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að
hafa hund í Skógarhlíð. Orlofshús við
Akureyri með heitum potti.
orlofshus.is Leó 897 5300
Hvataferðir, fyrirtækjahittingur,
óvissuferðir, ættarmót
Frábær aðstaða fyrir hópa og
fjölskyldur. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið. Sími 486-1500,
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Húsnæði íboði
Íbúð til leigu
Falleg 2 herb. íbúð til leigu í
Borgarhverfi, í Grafarvogi, frá og
með 1. maí nk. Uppl. í síma
899 7012.
Atvinnuhúsnæði
Lítil og stór skrifstofuherbergi
til leigu í Ármúla og við Suðurlands-
braut. Hagstæð kjör.
Upplýsingar í síma 899 3760.
Sumarhús
Eignarlóðir
undir sumarhús til sölu
Í landi Kílhrauns á Skeiðum. 50 mín.
akstur frá Reykjavík. Landið er einkar
hentugt til skógræktar og útivistar.
Falleg fjallasýn. Upplýsingar í símum
824 3040 og 893 4609
Festu þér þinn sælureit í dag.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bæðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi. S. 551-6488
fannar@fannar.is
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi, s. 551-6488
fannar@fannar.is -
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bílar óskast
Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is
bílasala
...í bílum erum við sterkir!
☎ 562 1717
Skráðu bílinn
þinn frítt hjá
bilalif.is
Bílaþjónusta
Bílavarahlutir
VW og Skoda varahlutir 534-1045
Eigum til notaða varahluti í VW,
Skoda, Audi og Pajero frá '02.
Eigum einnig til nýja gorma í VW
og Skoda á lager. Kaupum bíla til
niðurrifs og uppgerðar.
Bílabúið, Kaplahrauni 11,
s. 534 1045.
Hjólbarðar
Rýmingasala á vörubíladekkjum
13 R 22.5 kr. 39.500 + vsk.
12 R 22.5 kr. 39.500 + vsk.
11 R 22.5 kr. 36.600 + vsk.
425/65 R 22.5 kr. 49.900 + vsk.
1100 R 20 kr. 39.500 + vsk.
1200 R 20 kr. 39.500 + vsk.
Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
s. 544 4333.
Traktorsdekk rýmingarsala
11.2-24 kr. 35.900.
14.9-24 kr. 59.900.
9.5-24 kr. 28.100.
14.9-28 kr. 42.500.
16.9-34 kr. 75.900.
12.4 R 24 kr. 49.800.
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
Kópavogi, s. 544 4333.
Kebek - Nama heilsársdekk
165 R 13 kr. 6.900
175/65 R 14 kr. 11.900
185/65 R 15 kr. 12.990
215/65 R 15 kr. 17.750
205/55 R 16 kr. 16.650
225/55 R 16 XL kr. 19.750
215/65 R 16 XL kr. 18.990
205/50 R 17 kr. 18.900
215/55 R 17 kr. 20.600
235/55 R 17 kr. 24.900
235/45 R 17 kr. 21.390
225/55 R 17 kr. 23.900
225/65 R 17 kr. 24.290
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 544 4333.
Hjólhýsi
Markísa - Frábært verð!
Til sölu 4ra metra Omnistor markísa á
hjólhýsi ásamt hlið. Kostar nýtt um
200 þús. Selst á 100 þús.
Upplýsingar í síma 896 6003.
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur, laga
ryðbletti, hreinsa garða og
tek að mér ýmis smærri
verkefni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
atvinna
Nú kveðjum við
yndislegan mann,
Kristin Jakobsson,
sem hefur skipað stóran og
mikilvægan sess í daglegu lífi
okkar undanfarin ár. Það segir
líklega meira um Kristin en
mörg orð að hann lét sig sjald-
an vanta á vikulega fundi þar
sem hamingjan er rædd út frá
ýmsum vinklum. Á þessum já-
kvæða vettvangi tók Kristinn
virkan þátt og kom með
Kristinn
Jakobsson
✝ Kristinn Jak-obsson, fæddur
16. janúar 1953,
varð bráðkvaddur
17. apríl 2012.
Kristinn var
jarðsunginn frá
Fossvogskirkju 26.
apríl 2012.
skemmtileg inn-
legg og pælingar
um lífið og til-
veruna. Hann hafði
sérstaklega unun
af því að njóta
náttúrunnar og
fuglasöngs og var
næmur á fegurðina
í umhverfinu
kringum sig.
Kristinn var ein-
staklega ljúfur og
hlýr og alltaf tilbúinn að hjálpa
og gefa af sér. Við sjáum mikið
eftir góðum dreng en minnumst
hans með hlýju og brosi á vör.
Við sendum öllum ástvinum
Kristins okkar dýpstu samúð-
arkveðjur.
Kristín Tómasdóttir
og Sólrún Ósk
Lárusdóttir.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is
má finna upplýsingar um inn-
sendingarmáta og skilafrest.
Einnig má smella á Morg-
unblaðslógóið efst í hægra horn-
inu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir
birtingu á útfarardegi þarf grein-
in að hafa borist á hádegi tveim-
ur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, jafnvel þótt
grein hafi borist innan skila-
frests.
Lengd | Hámarkslengd minn-
ingargreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Minningargreinar