Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 21
ar vegna öskufalls og flugi um alla Evrópu var frestað vegna þess. Hann benti á að í augum útlendings væri ekki endilega víst að menn átt- uðu sig á því að um staðbundnar myndir væri að ræða enda hefði eng- inn í Reykjavík upplifað aðstæðurn- ar sem fréttaljósmyndirnar sýndu. Í rannsókninni voru þrjú svæði skoðuð með byggingu gagnavers í huga. Svæðin voru fyrir sunnan, vestan og norðan. Jarðskjálftaváin var skoðuð og farið yfir alla jarðskjálfta síðan á 17. öld. Mesta álagið vegna jarð- skjálftanna var fyrir norðan og sunn- an. Samkvæmt módeli sem mennirn- ir sem stóðu að rannsókninni gerðu var álagið hvað minnst á svæðum í kringum Blönduós og Sauðárkrók. Einnig var álagið fremur lítið á svæð- um í kringum Reykjavík og Akureyri en þó nokkru meira í kringum Hafn- arfjörð og Keflavík. Samt var það tal- ið það lítið í kringum þá kaupstaði að hægt væri að mæla með byggingu gagnavers á þessum svæðum. Að sögn Ara mega menn ekki gleyma því að með byggingu gagnavers á Ís- landi komast menn undan annarri hættu einsog fellibyljum til dæmis sem fyrirfinnast ekki á Íslandi. Nægur mannauður? Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir kynnti einnig rannsókn um mannauð og menntun á Íslandi og hvernig þjóðin væri í stakk búin til að ráða við byggingu margra gagnavera á land- inu út frá því sjónarmiði. Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að hvað varðar byggingu gagna- vera væri þjóðin vel undirbúin en varðandi rekstur þeirra væri hætta á því að háskólarnir útskrifuðu ekki nóg af tölvunarfræðingum til að ráða við mikla aukningu á framboði af störfum sem krefðust slíkrar sér- þekkingar. Ekki var um það talað á ráðstefn- unni en þó nokkuð um það rætt í kaffihléinu að fulltrúar ríkisstjórnar- innar hefðu opnað ráðstefnuna og síðan horfið á brott. Menn hefðu haldið að gott væri fyrir þá að þeir sætu ráðstefnuna og hlustuðu á fyr- irlestrana. FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012 ÞÚ NÆRÐ LENGRA MEÐ BOBCAT Ný kynslóð skotbómulyftara frá Bobcat Afrakstur mörg þúsund klukkustunda þrotlausra álagsprófanna Endurhannað rýmra ökumannshús Stafrænn upplýsingskjár í mælaborði Stórbætt útsýni ökumanns Akstursstefnu rofi í stýripinna Endurhönnuð bóma með öllum leiðslum innanverðum Endurhönnuð burðargrind með lækkuðum bómubolta Fjöldi valmöguleika í boði • • • • • • H Jan Kristian Nielsen frá IBM hélt fyrirlestur á ráðstefnunni en fyrirtækið rekur yfir 500 gagnaver í heiminum. Hann undirstrikaði að framundan væri gríðarleg aukning í bygg- ingu gagnavera. Hann sagði að það kæmi kannski á óvart en landið væri almennt þekkt sem eldfjalla- landið og því væru menn kannski hikandi við að fjár- festa. Hann sýndi kort af gagnaverum IBM í heiminum og fannst sumum það sýna takmarkaðan áhuga á Íslandi sem fjárfestingarkosti, þar sem landið var ekki einu sinni á heimskortinu. GAGNAVER Að fjárfesta á landi eldfjalla Hörður Ægisson hordur@mbl.is „Þetta er gríðarlega mikill léttir fyrir mig,“ segir Björgólfur Thor Björg- ólfsson í samtali við Morgunblaðið vegna sölunnar á Actavis til banda- ríska lyfjafyrirtækisins Watson fyrir 4,25 milljarða evra, jafnvirði um 700 milljarða króna. Að sögn Björgólfs er salan mik- ilvægur þáttur í skuldauppgjöri hans við Deutsche Bank. „Þótt þeir taki vissulega á sig högg eins og aðrir kröfuhafar og hluthafar þá eru þeir í góðum málum og fara með fullar hendur fjár frá samkomulaginu.“ Hann telur samninginn hagstæðan fyrir alla aðila. „Annars vegar er Watson að taka yfir frábært fyrirtæki og hins vegar er Actavis að sameinast lyfjafyrirtæki með sterkan efnahags- reikninginn sem getur hjálpað því að vaxa í framtíðinni.“ Novator, fjárfestingafélag Björg- ólfs Thors Björgólfssonar, mun eign- ast hlut í hinu nýja sameinaða félagi, en stærð þess hlutar mun hins vegar taka mið af rekstrarafkomu Actavis á þessu ári. Í samningnum felst að þeir sem eiga hagsmuna að gæta í Actavis gætu fengið viðbótargreiðslu, sem næmi allt 5,5 milljónum hluta í Wat- son. Miðað við bestu hugsanlegu út- komu er viðbótargreiðslan metin á 250 milljónir evra. Á þessari stundu er því ekki hægt að segja til um hversu stór hans hlutur verð- ur í Watson, segir Björgólfur, sem verður aðeins óvirkur hluthafi í hinu nýja félagi. „Þetta er ólíkt því sem ég hef gert áður. Mér líst hins vegar gríðarlega vel á fyrirtækið og held að það verði eitt öflugasta félagið í þessum geira þegar fram líða stund- ir.“ Gengi bréfa í Watson hækkaði um 7% þegar markaðir voru opnaðir í Bandaríkjunum í gærmorgun. Á síðustu árum hafa flest stærstu samheitalyfjafyrirtæki heims leitað til Björgólfs varðandi mögulegan áhuga á því að kaupa Actavis. „Wat- son voru aftur á móti faglegastir í sinni nálgun,“ segir Björgólfur, og bætir því við að samningaviðræð- urnar hafi fyrst farið á alvarlegt flug í september á síðasta ári. „Samlegðaráhrifin af því að sam- eina fyrirtækin eru mikil,“ að sögn Björgólfs, sem segir að með sölunni á Actavis og uppgjöri við kröfuhafa sé hann búinn að stokka upp spilin. „Þetta er eins og það sé kominn ann- ar umgangur í leikinn og ég er nú með betri spil en síðast. Og ég mun halda áfram að spila úr þeim vel,“ segir Björgólfur, en Novator, fjár- festingafélag Björgólfs, yfirtók Actavis sumarið 2007 og var heild- arverðmæti viðskiptanna 5,3 millj- arðar evra. Tapið á þeim viðskiptum nemur því um milljarði evra. DB afskrifar 43 milljarða Björgólfur segir hins vegar að með sölunni á Actavis þurfi hann ekki lengur að eyða öllum sínum tíma í við- ræður við kröfuhafa. „Nú hef ég meiri tíma fyrir stafni og það opnar fullt af möguleikum fyrir frekari fjár- festingartæki.“ Aðspurður hvort hann hafi hug á fjárfestingum hér- lendis segir Björgólfur það alls ekki koma til greina, en í dag á Novator eignarhluti í fyrirtækjunum CCP, Verne Global og Nova. Þrátt fyrir að greinendur telji að salan á Actavis sé góðar fréttir fyrir Deutsche Bank þá þarf bankinn að afskrifa 257 milljónir evra, jafnvirði um 43 milljarða króna, vegna Actavis á fyrsta ársfjórðungi. Samkvæmt upplýsingum frá slit- astjórn gamla Landsbankans er salan á Actavis hagstæð fyrir þrotabúið þar sem meira muni fást úr uppgjöri við fyrirtækið en fyrri áætlanir hafi gert ráð fyrir. Endurheimtur í þrotabúið munu því aukast. Er kominn með betri spil í hendurnar  Björgólfur Thor segir söluna á Actavis vera mikinn létti Björgólfur Thor Björgólfsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.