Morgunblaðið - 27.04.2012, Síða 35

Morgunblaðið - 27.04.2012, Síða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012 ust. Það var ótrúlega mikill daga- munur á þér síðustu tvo mánuð- ina. Einn daginn beiðstu eftir því að fara en næsta dag varstu sann- færð um að þú yrðir 100 ára. Ég þekki það vel af eigin raun að það getur verið dagamunur á líðan manns. Síðustu mánuði lífs þíns sótti ég kjark og styrk til þín, elsku amma, þegar mér leið ekk- ert of vel. Heimsóknirnar gáfu mér mikið og fór ég daglega til þín, sama hversu slöpp þú varst, alltaf þakkaðir þú mér fyrir kom- una og sagðir að það væri gaman að sjá kunnugleg andlit. Þú varst svo sannarlega íslenska konan sem gerði allt fyrir alla. Það var þitt líf og yndi að stjana við fólk með mat og drykk. Þú hafðir orð á því að aldrei hafi neinn farið svangur frá þér frá Firði. Þú byrj- aðir að vinna sem ráðskona á Firði þar sem þú sást afa í fyrsta sinn og var hann svo sannarlega ástin þín alla tíð eftir það. Þegar við Maggi giftum okkur þá varst þú ánægð með daginn af því að það var sami dagur og þú komst fyrst að Firði, 5. nóvember. Amma, þú varst kjarnakona, svo mikil húsmóðir, dugleg að elda, baka, prjóna, sauma. Þú varst létt á fæti og labbaðir mikið í gegnum tíðina bæði í sveitinni og Grindavíkinni. Þegar Elísabet María dóttir mín var skírð þá bauðstu ömmu hans Magga að gista heima hjá þér í Víðihlíð, ykk- ur kom vel saman og síðar áttu samverustundirnar eftir að verða fleiri um jól og sjómannahelgi þar sem mikið var spjallað og hlegið. Marga jóladagana og áramótin höfum við átt saman heima hjá pabba og mömmu, þá var alltaf tekið í spil og varst þú alltaf var- kár í spilamennskunni og sagðir aldrei nema það væri öruggt enda varstu þú oftast hæst stiga. Þegar ég var 6 ára þá fórum við ásamt fleira fólki til Mallorca og þá varstu þú, amma, með mér og Stínu systur í herbergi og það var svo gaman. Það kom fyrir að þú passaðir okkur þegar foreldrar okkar fóru utan, þá fluttir þú heim til okkar á meðan. Elsku amma, þú varst einstök mannvera og gafst af þér kærleik, góðmennsku og velvild. Þú lýstir upp heiminn með brosinu þínu. Ég er afskaplega þakklát að hafa fengið að vera hjá þér þegar þú kvaddir, ég veit að þú ert komin á skemmtilegan stað þar sem allir eru hlæjandi, kátir og glaðir. Þú varst búin að sjá þennan stað og segja mér frá honum og ég veit að það verður vel tekið á móti þér. Takk fyrir allt, elsku amma. Starfsfólki Víðihlíðar vil ég þakka góða umönnun, eins og þú sagðir sjálf, amma: „Þær hugsa vel um mig hérna og mega sko alveg fá að heyra það“. Ég kveð með sálminum sem þú fórst oft með fyrsta erindið fyrir mig Þú, Guð, sem stýrir stjarna her og stjórnar veröldinni, í straumi lífsins stýr þú mér með sterkri hendi þinni. Stýr mínum hag til heilla mér og hjálpar öðrum mönnum, en helst og fremst til heiðurs þér, í heilagleika sönnum. (Vald. Briem) Kveðja. Salbjörg Júlía. Í dag kveðjum við elskulegu ömmu mína, Ólafíu Kristínu Þor- steinsdóttir, eða ömmu Stínu eins og ég kallaði hana. Ég vil byrja á því að þakka henni allar góðu stundirnar sem við áttum saman og fyrir allt það sem hún kenndi mér í lífinu. Hún var mikill dugnaðarforkur. Alltaf glöð og í góðu skapi þessi elska, ég gæti lengi talið upp alla hennar góðu kosti. Hún upplifði margt á langri ævi, bæði sorg og gleði. Yndislegar eru minningarnar sem ég á um ferðirnar okkar þeg- ar við fórum saman vestur að Firði. Sérstaklega man ég eftir ferðinni sem ég fór með henni og afa, þegar við komum að kvöldi til og það var svo kalt í húsinu að hún klæddi mig í föðurlandið hans afa sem náði mér upp að brjóstum (upp undir hendur). Svo hitaði hún vatn og setti í flöskur og setti það til fóta hjá mér. Það var alltaf svo gott að vera þar með ömmu, mér leið alltaf þar eins og ég væri á fimm stjörnu hóteli. Alltaf var gaman að heyra sög- urnar hennar því hún hafði frá svo mörgu að segja og var yndislegt að sjá hvað hún hélt sér alla tíð vel. Um leið og ég þakka ömmu fyr- ir samfylgdina og óska henni góðrar ferðar inn í sumarlandið vil ég láta fylgja með vísur sem Þrá- inn, afi Jóhanns mannsins míns, gerði eftir að hann og Hædí kona hans höfðu verið í heimsókn hjá ömmu á Firði. Ekki er lítil auðna mín, allt hér met og virði. Sólin glatt í heiði skín sífellt hér í Firði. Áðan fór ég út að gá upp til fjalla brúna. Ósköp er nú indælt hjá ömmu Stínu núna. Út ég rölti nú á ný nem þá raddir kunnar, fuglasöng og friðinn í faðmi náttúrunnar. (Þráinn Arinbjarnarson) Minningin um frábæra konu lif- ir hjá okkur sem eftir erum. Þín nafna, Ólafía Kristín Þorsteinsdóttir. Elsku Stína. Mig langar til að þakka þér fyrir allt. Þú varst sú amma sem ég þekkti í sveitinni og alltaf komstu fram við mig sem eitt af þínum barnabörnum og varst mér alltaf svo góð. Þú hafðir gaman af að segja frá og sagðir mér oft sögur af því hvernig allt var fyrir vestan í gamla daga, hvernig hlutirnir voru gerðir af fólkinu og þegar mamma var lítil. Ég hafði mjög gaman af og þú gast alltaf fundið eitthvað gleði- legt til að krydda frásögnina og oft fylgdi með hlátur. Þú varst alltaf svo geðgóð og hafðir lausnir á öllu. Öll mín uppvaxtarár hef ég verið á vorin og sumrin með mömmu og pabba fyrir vestan á Deildará. Aldrei fórum við svöng frá Firði og alltaf fylgdir þú okkur heim að bílnum þegar við fórum og þú stóðst á tröppunum að vinka okkur þó við værum bara að fara á næsta bæ og myndum hittast fljótt aftur. Þær voru margar ferðirnar sem við sátum saman aftur í hjá mömmu og pabba á leið vestur eða heim að vestan og þá var nú mikið spjallað. Takk fyrir allt, elsku Stína mín. Aðstandendum öllum votta ég innilega samúð. Minning um góða konu lifir. Hvíl í friði. Dóra María Garðarsdóttir. Við andlát heiðurskonunnar Ólafíu Kristínar Þorsteinsdóttur frá Litluhlíð á Barðaströnd leitar hugurinn um þrjá og hálfan ára- tug aftur í tímann. Ég hafði þá ný- lega tengst þessari stóru fjöl- skyldu sem oftast er kennd við Litluhlíð en af systkinunum þar komust ellefu til fullorðinsára. Fljótlega var ég kynntur fyrir elstu systur tengdaföður míns, henni Stínu á Firði eins og ég heyrði hana oftast nefnda, og kynnin og samskiptin við hana og hennar fólk hafa alla tíð síðan ver- ið einkar ánægjuleg og gefandi í alla staði. Þessi fíngerða kjarnakona var engri lík. Hlutskipti hennar í lífinu varð að búa lengst af á afskekktri kostajörð þar sem nútímaþægindi voru af skornum skammti og lífs- baráttan hörð. Börnin þeirra Ósk- ars urðu alls sjö og það má nærri geta, að handtökin við uppeldi þeirra og umönnun auk bústarf- anna hafa verið ófá og oft seint gengið til náða eftir annasaman dag. Þegar börnin komust til full- orðinsára og flugu úr hreiðrinu, tóku þau Stína og Óskar sig upp og settust að í Grindavík þar sem stór hluti af þeirra fólki hefur fest rætur. Þegar vora tók var þó stefnan jafnan tekin vestur að Firði þar sem sumarið leið við nýtingu hinna miklu hlunninda jarðarinnar. Mér er kunnugt um að fram yfir nírætt dvaldi Stína á Firði um lengri eða skemmri tíma á hverju sumri og það er einkar eftirminnilegt að hafa átt þess kost að sækja hana og hennar fólk heim á þennan einstaka stað og kynnast aðeins lífinu þar. Stund- irnar í eldhúsinu á Firði þar sem Stína hafði orðið með sínar ein- örðu og sköruglegu skoðanir gleymast seint. Hún Stína á Firði er einhver já- kvæðasta manneskja sem ég hefi kynnst í lífinu. Það var ævinlega mannbætandi að hitta hana og spjalla um lífsins gang. Neikvæði var eitthvað, sem ég held að ekki hafi verið til í hennar orðaforða. Það er einmitt fólk með slíkan hugsunarhátt sem þjóðin okkar, ekki síst ráðamenn hennar, þarfn- ast svo mjög í dag. Að leiðarlokum vil ég þakka fyrir að hafa átt þess kost að eiga samleið með þessari sómakonu og fyrir allar góðar stundir á sameig- inlegri vegferð. Hópnum hennar stóra eru færðar einlægar samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Ólafíu Kristínar Þorsteinsdóttur. Guðmundur Jóelsson. Nú fyrir örfáum dögum kvaddi þennan heim ein af bestu dætrum þessarar þjóðar, hún Stína gamla frá Firði á Barðaströnd. Hún var að verða 97 ára. Stína mín, þú ert ein eftir- minnilegasta manneskja sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Það mátti enginn fara svangur frá þér og þú passsaðir sérstaklega vel upp á allt fólkið þitt og komst vel fram við alla og vildir allt fyrir alla gera. Mér fannst sérstaklega gaman af því hvað þér þótti vænt um allt fólkið úr sveitinni þinni og talaðir mikið og vel um það. Þú talaðir oft um Salbjörgu og Júlíus frá Litla- nesi við mig enda hún Salbjörg Júlía konan mín skírð eftir þeim vinum þínum. Oft þegar við Sal- björg mín komum í heimsókn til þín voru fleiri gestir fyrir og þá þótti þér gaman enda varst þú með eindæmum gestrisin. Mér þykir vænt um það í dag að hafa fengið að koma með þér að Firði, þar fannst þér gott að vera og landslagið fallegt enda hafðir þú þaðan góðar minningar, þarna ólst þú upp börnin þín og komst þeim til manns. Veistu, Stína mín, ég held að ég sé betri maður eftir að hafa fengið að kynnast þér, ekki var heimtu- frekjan í þér, nei þú gerðir bara það besta úr því sem þú hafðir. Stína mín, þakka þér fyrir að hafa tekið mér vel þegar ég kom inn í fjölskylduna þína og líka hvað þú hefur gefið minni fjöl- skyldu mikið af þér í gegnum tíð- ina. Hvíl í friði, kæra vinkona. Magnús Már Jakobsson. Að eignast vin getur tekið eitt andartak en að vera vinur tekur alla ævina. Þessi orð eru á korti sem við hjónin fengum frá Stínu vinkonu okkar og kerti fylgdu með. Þegar fólk tapar heilsunni eftir langa ævi er gott að halla þreyttu höfði á koddann og halda í dýrðarríki drottins og hitta þar kæran eiginmann, son, systkini og alla góðu vinina sem farnir eru á undan. Það hefur Stína okkar nú gert og ég veit að þangað átti hún góða heimkomu, bróðir minn sem fór fyrir tæpu ári hefur fagnað henni mikið, hann sagði oft að hún hefði verið sú sem reyndist honum best. Þegar hann var móðurlaus fyrir fermingu átti hann góða vini á Firði og fann móður hjá Stínu. Þegar pabbi dó tókum við hjón- in að sinna æðarvarpinu á Deild- ará og fengum strax góð ráð hjá Óskari og Stínu. Óskar bauð okk- ur að hafa bátinn í vognum á Firði og kenndi Garðari leiðina út í eyj- ar, þannig byrjaði hin góða sam- vinna okkar. Óskar dó ári seinna og þá varð Stína ráðgjafinn okkar sem við höfðum daglegt samband við allt vorið. Það samband bar aldrei skugga á, við hjónin bætt- umst við barnahópinn hennar Stínu og áttum með henni margar góðar og skemmtilegar stundir. Alveg fram að þessu ári þegar hún veiktist af flensu og náði sér ekki aftur, aldurinn var líka orð- inn hár og megum við þakka fyrir að hafa notið samvista við Stínu svona lengi. Góðu vorin okkar með henni fyrir vestan voru að verða 30 þegar hún hætti að vera á Firði á vorin. Þær voru því margar stundirnar sem við höfð- um átt saman og allar jafn góðar og skemmtilegar, hún gat alltaf fengið okkur til að horfa á björtu hliðarnar og ráðin hennar voru góð, eins og það að ef maður er þreyttur þá skiptir maður bara um verk. Það hefur hún oft þurft að gera fyrstu búskaparárin sín meðan engin voru þægindin, börnin lítil og mikill gestagangur. Allir komu við á Firði og fengu góðar móttökur. Stína minntist þess oft þegar hún kom fyrst að Firði og rifjaði þann tíma oft upp. Stína okkar, við þökkum þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur, alla gleði og góðu ferðirnar sem við fórum saman, vináttuna og allt annað. Minning þín lifir með okkur, ég veit að við hittumst í Sumar- landinu. Guð geymi þig. Ásta og Garðar. Mig langar í nokkrum orðum að minnast Ólafíu Kristínar Þor- steinsdóttur, Stínu á Firði eins og hún var alltaf kölluð. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vera í sveit hjá Stínu og Óskari á Firði á Múlanesi í þrjú sumur frá 7 ára aldri árið 1973. Þó að ég hlakkaði til að fara í sveitina þá kom auðvitað upp smá kvíði að vera á ókunnugum stað hjá ókunnugu fólki. En um leið og ég kom og hitti Stínu hvarf sá kvíði og allan tímann sem ég dvaldi þar leið mér vel. Á Firði var mannmargt á sumr- in. Hluti barna þeirra hjóna bjó ennþá heima og barnabörn þeirra komu í sveitina á sumrin. Í minn- ingunni var þetta ævintýraheimur fyrir okkur krakkana með alla náttúruna og dýralífið við Breiða- fjörð. Þetta voru síðustu árin sem föst búseta var á Firði og í Múla- hreppnum. Ég hitti Stínu ekki oft eftir síðustu sumardvölina en í þau skipti þegar leiðir okkar lágu saman, rifjaði hún þær upp með mér með bros á vör. Ég sendi börnum og barna- börnum Kristínar og fjölskyldum þeirra samúðarkveðjur. Sigurjón Jóhannesson. hana að og fyrir það sem hún var mér og mínum. Sigurveig. Unnur föðursystir mín var sér- staklega aðlaðandi manneskja, velviljuð, brosmild og glaðleg. Allir mannfagnaðir urðu skemmtilegri þegar hún mætti. Hún hafði hlýlega en þó hressi- lega nærveru og það var einstak- lega notalegt að vera nálægt henni. Aldrei heyrði ég Unni leggja illt til nokkurs manns né tala illa um fólk. Henni tókst að sjá jákvæða hlið á flestum málum. Börn löðuðust að Unni enda varð það hennar starfi lengst af að vinna með börnum á róluvöllum Reykjavíkurborgar. Pabbi og Unnur voru mjög samrýmd og náin systkin þó að þau væru ekki alin upp saman. Það var svo fal- legt að sjá hversu vænt þeim þótti hvoru um annað og hve vel þau ræktuðu samband sitt. Unnur var því alltaf nálæg í lífi okkar. Þegar mikið stóð til í fjölskyldunni var Unnur gjarnan mætt í undirbún- ingsvinnuna, án þess að vera beð- in, og gerði alla slíka samvinnu mjög skemmtilega. Ég naut líka góðs af hjálpsemi Unnar, t.d. gætti hún dætra okkar hjónanna, Sæunnar og Iðunnar, er þær voru litlar og ég var að hefja nám í FB á sínum tíma. Unna og Gunni voru mjög sam- rýmd og samhent hjón og voru jafnan bæði nefnd í sama orðinu. Það var mikill fögnuður hjá þeim hjónum og fjölskyldunni allri þeg- ar Unnur og Gunnar eignuðust Vilborgu. Hún var alla tíð ljósið í lífi foreldra sinna. Þau hjónin áttu ýmis sameiginleg áhugamál og tóku einnig virkan þátt í áhuga- málum Vilborgar. Um margra ár skeið voru þau í samvinnu við for- eldra mína um fjárbúskap í fjár- borginni og þar voru þau einnig með hesta. Þau höfðu einnig ánægju af ferðalögum og nokkrar minnisstæðar ferðir koma upp í hugann. Skyndilegt fráfall Gunn- ars árið 1993 varð Unni mikið áfall, sem þær mæðgur unnu þó vel úr. Unnur var sæmilega heilsu- hraust þar til hún fékk krabba- mein í lunga fyrir rúmum tveim árum og var annað lungað fjar- lægt. Hún komst til þokkalegrar heilsu eftir það, þar til meinið tók sig upp að nýju í vetur. Þá tóku við miserfið tímabil, en aldrei kvartaði Unnur. Hún kom þá nokkrum sinnum til mömmu með- an hún var að safna kröftum og dvaldi í nokkra daga í senn og vissi ég að það var þeim báðum ánægjuefni að vera samvistum. Enda voru þær góðar vinkonur og töluðu jafnan saman í síma a.m.k. einu sinni á dag síðustu áratugi. Það er ómetanlegt að eiga gott samferðafólk í lífinu, Unnur mín var með þeim bestu. Við höfum öll misst mikið fjölskyldan, en þó fyrst og fremst Vilborg sem ég og Ólafur maður minn hugsum til og vottum okkar dýpstu samúð. Kristín Sæunnar- og Sigurðardóttir. Mér þykir leitt að hafa ekki fengið betra tækifæri til að kveðja kæra frænku mína, ég hafði von- að fyrir nokkru þegar ég keypti mér flug til Íslands síðastliðna helgi að ég fengi tækifæri til að hitta hana Unni mína. Unnur hafði einstaka útgeislun og af henni stafaði hlýju og gleði svo að fólki leið vel í návist hennar. Það er sennilega meginástæða þess að þegar til stóð að halda upp á merkisatburði í mínu lífi vildi ég alltaf hafa hana nálægt. Hún bjó yfir sérstökum eiginleika því að ég gat treyst því að hægt væri að horfa í augun á Unni á löngu færi og vera sannfærður þegar hún horfði til baka að henni þætti vænt um mann. Ég vona heitt og innilega að hún hafi fundið að til- finningin var fullkomlega gagn- kvæm. Ég man ekki eftir mér öðruvísi en að hafa þótt vænt um Unni og þegar við Ólöf dóttir mín ræddum hana nú í vikunni sem leið nefndi hún einmitt þennan sama kost Unnar, þó dóttir mín hafi verið feimin og óframfærin þegar hún var lítið barn hafi henni alltaf þótt hlýju stafa af Unni og alltaf fundist hún örugg í návist hennar. Mamma spurði mig hvort ég ætti góðar myndir af Unni og mér fannst það hljóta að vera því svo margar komu upp í hugann, myndirnar sem ég fann reyndust því miður ekki vera sér- lega vandaðar en í hjarta mér geymi ég fagra mynd af frábærri konu. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum þessa góðu frænku og sendum Vilborgu og öðrum syrgjendum innilegar samúðarkveðjur. Iðunn Ólafsdóttir og fjölskylda. Okkur langar í örfáum orðum að minnast kærrar vinkonu, Unn- ar Sólveigar Vilbergsdóttur, sem lést eftir erfið veikindi. Unnur hefur tengst fjölskyldu okkar órjúfanlegum böndum allt til síðasta dags. Við kynntumst henni í gegnum manninn hennar, Gunnar Marinó Hansen, sem var mikill vinur okkar en lést langt um aldur fram. Unnur var góður vinur og ljúf manneskja sem hafði góða nærveru. Það var alltaf gott að leita til hennar og hafði hún ríka réttlætiskennd. Hún hafði mikið dálæti á börnum og starfaði lengstan hluta starfsævi sinnar við Gæsluleikvelli Reykjvíkur- borgar. Unnur og Gunnar eign- uðust eina dóttur, Vilborgu, sem var mikill sólargeisli í lífi þeirra og hefur hún verið eins og ein af okkur alla tíð, missir hennar er mikill við fráfall móður sinnar þar sem þær voru mjög nánar. Þegar manneskja hefur verið svona stór hluti af lífi manns alla tíð er margs að minnast og margt sem kemur fram í hugann sem framkallar bæði bros og tár. Við stofnuðum klúbb sem hittist reglulega og fór í bústað og ferða- lög innanlands sem eru ógleym- anleg þar sem margt var skoðað, mikið hlegið og lífsins notið. Þegar samferðafólk kveður þennan heim verður hugurinn fullur eftirsjár þótt við séum þess fullviss að þetta er leiðin okkar allra. Unnur, þín verður sárt saknað af okkur öllum. Ljósið að handan logabjarta lýsir af ástvinahlýju. Minning þín lifir í þakklátu hjarta þar til öll við hittumst að nýju. (GJ) Vilborg og aðrir aðstandendur, okkar innilegustu samúðarkveðj- ur til ykkar allra. Ögmundur, Guðrún, Mar- grét, Sigríður og Valgerður. Elsku vinkona, það er ótrúlega sárt að kveðja þig. Það eru marg- ar minningar sem koma upp í hugann enda höfum við verið góð- ar vinkonur í rúm sextíu ár. Síð- astliðin ár höfum við notið þess að rifja upp gamlar stundir, oft hleg- ið mikið enda margs að minnast. Einnig höfum við verið duglegar að búa til nýjar minningar og þá er mér ofarlega í huga Spánar- ferðin okkar, föndurstundirnar og leikhúsferðirnar. Alltaf var glatt á hjalla þegar fjölskyldur okkar hittust en þar nutum við okkar best. Við kynntumst ungar að árum, fyrir tvítugt, leigðum saman á Frakkastígnum, unnum saman í frystihúsinu og skemmt- um okkur vel á gömlu dönsunum með vinkonum okkar, Eddu og Rögnu, sem einnig eru fallnar frá. Ég get haldið áfram endalaust að minnast þín, vináttu okkar og samverustunda en það verður að bíða betri tíma, þangað til við hitt- umst á ný. Ég vil enda þessa minningu á ljóði eftir Þórunni Sigurðardóttur. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku Unnur mín, hvíl í friði, þú átt alltaf sess í mínu hjarta. Þín vinkona, Erla Ólafs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.