Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012 ✝ Kristín Þor-steinsdóttir (Stína á Firði) fæddist í Miðhlíð á Barðaströnd 25. ágúst 1915. Hún lést í Víðihlíð um- vafin fjölskyldu og vinum 18. apríl 2012. Hún var dóttir hjónanna Guð- rúnar J.M. Finn- bogadóttur ljósmóður og Þor- steins Ólafssonar bónda, fyrst í Miðhlíð og síðan lengst af í Litluhlíð. Hún var næstelst í þessum stóra systkinahópi sem komst upp. Systkinin voru: Sig- urður Finnbogi, f. 1913, d. 1984, Ólafía Kristín, f. 1914, d. 1914, þá Stína sjálf, Gunnar Þorsteinn, f. 1918, d. 2008, Mikael, f. 1919, d. 1997, Krist- ján Ólafur, f. 1922, d. 1973, Þuríður, f. 1923, Unnur, f. 1924, d. 1924, Höskuldur, f. 1925, d. 2004, Jóhann, f. 1928, Vigfús, f. 1930, d. 2008, Bjarni, f. 1933, d. 2008, Ásta, f. 1936, d. 1996, og Halldóra, f. 1939, d. 1940. Kristín giftist 2. ágúst 1957 Óskari Þórðarsyni á Firði, f. 10.3. 1910, d. 19.4. 1979. Hann var sonur hjónanna Þórðar Bergljót Ósk, f. 9.5. 1953, gift Sveini Arasyni, f. 1951, þau eiga 4 börn og 14 barnabörn. 6) Óskar Kristinn, f. 25.7. 1957, d. 15.3. 1987. Kona hans var Sjöfn Ágústsdóttir, f. 1956, þau eiga 2 syni og 6 barnabörn. 7) Brynjólfur, f. 23.9. 1958, kvæntur Hildi Sveinbjörns- dóttur, f. 1964, þau skildu. Þau eiga 3 börn og 3 barnabörn. Unnusta Brynjólfs er Lydía Fannberg Gunnarsdóttir, f. 1967. Kristín ólst upp við hefð- bundin sveitastörf og tók snemma þátt í umönnun systk- ina sinna, þar sem móðir henn- ar var löngum stundum að sinna ljósmóðurstörfum auk þess að eiga börn með skömmu millibili og þar var Stína betri en engin. Þegar um hægðist heima fyrir fór Stína í vinnu- mennsku. Hún var m.a. á Suð- ureyri í Tálknafirði, í Reyk- hólahreppi, Flatey og Skáleyjum. Eftir annasaman tíma á Firði fluttu þau hjón til Grindavíkur eins og áður segir og sat Stína ekki auðum hönd- um þar. Hún hafði alltaf ein- hverjum störfum að sinna, m.a. í mötuneyti Fiskaness og víðar. Alls staðar var hún boðin og búin þar sem aðstoðar var þörf. Hún starfaði bæði með kvenfélaginu og var gerð heið- ursfélagi í slysavarnadeildinni 2007. Kristín verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju í dag, 27. apríl 2012, kl. 14. Jónssonar á Firði og konu hans Bergljótar Ólafíu Einarsdóttur. Að Firði kom hún 5.11. 1938. Þar bjó hún síðan allan sinn búskap. Þau fluttu til Grinda- víkur haustið 1975, en sinntu hlunn- indabúskapnum öll sumur og eftir að Óskar lést sinnti Stína þessu starfi af mikilli elju og dugnaði og stjórnaði eins og herforingi. Síðast fór hún út í eyjar 91 árs. Börn Óskars og Kristínar eru: 1) Jens, f. 20.1. 1941, kvæntur Báru Ágústsdóttur, f. 1940, þau eiga 5 börn, 13 barnabörn og 3 barnabarnabörn. 2) Einar, f. 8.1. 1944. Var kvæntur Svan- hvíti Hallgrímsdóttur, f. 1947, þau skildu. Þau eiga 3 börn og 7 barnabörn. Einar er í sambúð með Ásu Sigurlaugu Halldórs- dóttur, f. 1955, hún á 1 son. 3) Þorsteinn, f. 26.11. 1945, kvæntur Hrönn Ágústsdóttur, f. 1951. Þau eiga 3 börn, 3 barnabörn og 1 barna- barnabarn. 4) Þórður J., f. 2.10. 1947, kvæntur Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, f. 1946, þau eiga 4 börn og 3 barnabörn. 5) Í dag, 27. apríl, er móðir mín jarðsett, en hún lést 18. þ.m. í Víðihlíð í Grindavík rúmlega 96 ára. Það eru mikil viðbrigði þegar hún hefur kvatt, því hún var frek- ar góð til heilsu alla ævi þar til síð- ustu daga, eftir að hún datt og lærbrotnaði. Stína á Firði eins og hún var oftast kölluð var húsmóð- ir í Firði í Múlasveit stóran hluta ævi sinnar, en þar var hætt bú- skap 1975 nema hlunnindabúskap yfir vor og sumar sem hún tók virkan þátt í. Hún ásamt föður mínum flutti til Grindavíkur haustið 1975 og átti lögheimili þar eftir það, en hann lést þar 19. apríl 1979. Þegar hún varð áttræð gerði ég fyrir hana nokkrar vísur sem hún óskaði eftir að yrði hennar minningargrein þegar þar að kæmi. Þú barnskónum eyddir á Barðaströnd og Breiðafirðinum unnir. Þar leiddust þið afi oft hönd í hönd, þar lærðir þú flest sem þú kunnir. Svo liðu árin og ævistarf hófst sem öllum er heilmikils virði og framtíðin ráðin, það lá alveg ljóst, er þú lentir við sjóinn á Firði. Eftir það hefur þú árunum eytt, í alls konar búskapar vési. Að finnast þar erfitt þér aldrei fannst neitt þú unnir því blessaða nesi. Þú þvoðir úr bleium og þurrkaðir dún og þerraðir távota drengi, rakaðir þúfur og rennislétt tún og regnblautar mýrar og engi. Það sagði hún amma og það vissi hún að þú myndir búa þar lengi. Þú varst um ævina alltaf svo kát og ungleg á gleðinnar degi. En brosið gat farið ef færirðu í bát fullum af ljáblautu heyi. En pabbi fór alltaf að öllu með gát þá eins bæði á láði og legi. Þú þurftir að kynda með klíning og mó í kabyssugarminum heima. Svo áttirðu til að trítla út í skóg að tína upp kalviðargreinar. En auðvitað komu þó kolin sér best og kannski var spiktutla líka. Og oftast það besta það alls ekki sést og ei mátti kolunum flíka. En þá kemur olían öllum til góðs og aladínlampinn að skína. En eyðsla og óhóf var ekki til móðs, allt þetta vissi hún Stína. Og enn líða árin og allt breytist fljótt og inn leiðast tækninnar undur og gamla húsið var loks orðið ljótt að lokum var rifið í sundur. Svo reis það nýja af rammgerðum grunn með rennandi vatnið úr krana. Þú þurftir ei lengur að þvo inn við brunn þó það hafi komist í vana. Þú mjólkaðir kýrnar um morgna og kvöld, og malaðir kaffi úr baunum Þú varst ekki að hugsa um vegtyllu og völd en vingjarnlegt bros fékkstu að launum. Það komu oft margir í kaffi til þín og koma þar enn ef þeir geta. Þú áttir það til að veita þeim vín þeir vitaskuld kunnu að meta. Svona er nú ágrip af ævinni þar, þó ekki sé allt látið fjúka Það kemur víst aldrei sem áður var því á þessum lestri að ljúka. Nú skal ég hætta að hæla þér meir og hefti því minningartárin. En Begga og bræðurnir, það eru þeir sem þakka þér uppvaxtarárin. (E.Ó.) Við þökkum aldraðri móður fyrir liðnu árin og óskum hinni látnu góðrar heimkomu í land feðra sinna. Guð geymi minningu Stínu á Firði. Einar og Ása Sigurlaug. Þá er lokið langri og farsælli lífsgöngu Stínu á Firði. Hún kvaddi södd lífdaga, búin að bíða nokkurn tíma eftir kallinu og sagði nokkrum sinnum síðustu dagana að sennilega hefði Guð gleymt að taka hana til sín, en hann kom. Það var friðsæl stund er hún kvaddi umkringd afkom- endum, tengdabörnum og vinum. Það eru rúm 40 árin síðan ég kom með einkadótturinni heim að Firði. Ég hafði hitt húsbóndann nokkru áður og fékk leyfi hjá hon- um til að fara með prinsessuna norður í land. Hann sagði ekki margt en leyfið fékk ég. Þegar vestur kom lét húsmóðirin fljótt í ljós að hún væri ekki tilbúin að sleppa einkadótturinni í hendur þessa unga húnvetnska galgopa sem átti ekkert annað en sjálfan sig. Ég skil það svo sem vel og alla tíð hef ég haft nokkuð góðan skiln- ing á því hvernig Stína hugsaði og dáðist alla tíð að henni fyrir það að fjölskyldan hennar stóð framar öllu. Það hefur verið alveg ein- stakt að fylgjast með dugnaði hennar og elju. Og eftir að hún missti manninn sinn hann Óskar var það svo greinilegt að hún skyldi ekki skila því frá sér sem henni var trúað fyrir í verra ástandi en hún tók við því. En svo ég tali nú aftur um móttökurnar hjá Stínu þá sá hún nú fljótt að ekki þýddi nú að hrekja hann burt svo það væri nú best að sætta sig við orðinn hlut og taka slánanum, inn í fjölskylduna, úr því stelpu- kornið vildi endilega dröslast með hann þá væri henni ekki of gott að sætta sig við hann. Þetta jafnaði sig fljótlega og með árunum hefur samband okkar verið með mestu ágætum og við gátum með sanni sagt að betri tengdamóður hef ég aldrei átt og hún ekki betri tengdason enda hefur hún ekki átt annan. Eftir að við Begga fluttum til Grindavíkur fyrir 27 árum hef- ur vart liðið sá dagur að þær mæðgur hafi ekki hist og alltaf spurði hún um blessaðan tengda- soninn og síðustu mánuðina þegar hún átti orðið bágt með að þekkja fólk, þá þekkti hún alltaf okkur ef ekki hvort í sínu lagi þá saman því þó að upphafið væri orðið eins og það var þá var framhaldið þannig að alltaf voru Svenni og Begga saman. Ég vona að svo verði um þó nokkur ár enn. En hvað um það. Duglegri og iðjusamari manneskju en Stínu á Firði hef ég ekki þekkt. Hún var með fyrstu íbúum í Víðihlíð og bjó þar síðan. Lengst af mátti ætla að hún væri ein af starfsfólkinu því hún var alltaf boðin og búin til hjálpar. Hún sagði það sjálfsagt að hjálpa gamla fólkinu þó að lengst af þeg- ar leið á hafi hún verið með þeim elstu. Síðustu árin spurðum við hana hvort hún vildi ekki svona stuðningstrillu til öryggis en hún fussaði og sagði að þetta væri bara fyrir gamla fólkið. Þetta sýn- ir kraftinn í henni og eljuna. Stína eignaðist víða vini og vil ég nefna sérstaklega Ástu Jónsdóttur frá Deildará og mann hennar Garðar Kristjánsson. Slík vinátta er fá- séð. Einnig skal nefna hana Fríðu í þvottahúsinu, þær tóku einstöku ástfóstri hvor við aðra. Að lokum vil ég þakka Stínu frábæra sam- leið gegnum árin og veit að hún á góða heimkomu til sinna sem farnir eru, á staðnum sem hún sagði að sér hefði verið sýndur og sér líkað við. Góða ferð, tengdó. Sveinn. Elsku amma Stína, núna ertu sofnuð svefninum langa sem þú varst búin að þrá í einhvern tíma. Núna sameinist þið afi aftur eftir 33 ár næstum upp á dag. Þú varst alltaf svo sjálfstæð og dugleg alla þína ævi, ég vona að ég nái að setja tærnar þar sem þú hafðir hælana. Ég gleymi því aldrei þeg- ar þú varst búin að vera í ein- hverri ferð um Austurlandið og fékkst medalíu fyrir botsía. Þú sagðir mér að þú hefðir fengið pening svona eins ég ætti. Ég skildi þig ekki alveg og spurði þig: Hversu mikinn pening fékkstu? Þá fórst þú að tala um meistara- kastið og sýndir mér þenna flotta gullpening stolt. Þú varst sko búin að lifa tímana tvenna. Þú tókst breytingunum alltaf vel þó að þú værir kannski búin að fussa og sveia yfir þessari vitleysu og skaust inn sögu frá þinni barnæsku. Man þegar GSM- síminn kom og en ekki hvað; amma Stína fékk sér svoleiðis, þetta var nú meiri lúxusinn að geta farið út og haft símann með sér. En hún var greinilega vön að vera ekki á ferðinni þegar hún var í símanum. Þegar ég var eitt sinn á fótboltaæfingu sá ég hana standa upp við staur í símanum. Þú varst alltaf að spá í hvort all- ir hefðu það nú ekki gott. Alltaf varst þú boðin og búin til að að- stoða ef þurfti. Þegar ég var yngri og var að koma heim, hvort það var úr skólanum eða af æfingu, þá varst þú oft heima að hjálpa mömmu. Oft fékk ég að heyra að ég ætti að vera dugleg að hjálpa henni mömmu því ég væri jú eina stelpan hennar. Mér fannst þetta nú ekkert sérstaklega skemmti- legt þegar þú varst að tala um þetta, en þegar ég varð eldri og eignast mín börn þá fór ég að skilja þetta. Hún hefur verið eins og þú, alltaf boðin og búin til að aðstoða mig með mín börn, og fengu þau að kynnast þér rosa- lega vel. Mamma heimsótti þig nánast daglega og oft voru börnin mín með henni. Núna síðustu daga var talað um gotteríið sem amma Stína átti alltaf þegar börn- in komu í heimsókn. Elsku amma, ég á eftir að sakna þín. Það verður skrítið að koma í vinnuna næst, þar sem ég hafði mína rútínu oft- ast að kíkja á þig og kyssa góðan daginn eða nótt. Þú varst ekki mikið fyrir það að tala um tilfinn- ingar en þú gafst mér alveg merki um þína væntumþykju. Ég veit að þér líður rosalega vel núna, þú munt alla tíð eiga þinn stað í hjarta mínu. Anita Björk Sveinsdóttir. Elsku amma Stína. Núna hefur almáttugurinn tekið þig. Þú hafðir nokkrum sinnum orð á því af hverju hann kæmi ekki og tæki þig, sérstaklega núna undir það síðasta þegar þú varst sem veik- Ólafía Kristín Þorsteinsdóttir ✝ Unnur Sólveigfæddist í Sel- koti undir Eyja- fjöllum 5. nóv- ember 1933. Hún lést á krabbameins- deild Landspítalans við Hringbraut 16. apríl 2012. Foreldrar henn- ar voru Guðmund- ína Sigurveig Stef- ánsdóttir, f. 15.9. 1906, d. 15.10. 1992, og Vilberg Sigurjón Hermannsson múr- arameistari, f. 6.4. 1904, d. 2.5. 1985. Unnur var einkabarn föð- ur síns og ólst upp frá barns- aldri hjá foreldrum hans þeim Júlíönu Jónsdóttur og Hermanni Ólafs- syni í Hafnarfirði. Frá móður sinni átti hún tvö systk- ini, Sigurð Sigurðs- son, f. 1926, d. 2003, og Hafdísi Steingrímsdóttur, f. 1945. Unnur giftist Gunnari Marinó Hansen múr- arameistara, f. 28.1. 1935, d. 13.6. 1993. Dóttir þeirra er Vil- borg Gunnarsdóttir Hansen. Útför Unnar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 27. apríl 2012, og hefst athöfnin kl. 15. Hönd í hönd leiðumst við Unna frænka út Fálkagötuna frá Hóla- brekku við Grímshaga og ferðinni er heitið í Árna-bakarí. Þetta er mín fyrsta minning um föðursyst- ur mína. Við höfum gengið veginn sam- an í hálfa öld og alltaf verið kært með okkur. Unna og pabbi ólust upp sitt í hvoru lagi en hægt hefði verið að ímynda sér að þau hefðu verið eineggja tvíburar svo lík og samrýmd voru þau og við börnin nutum þess meðal annars í ferða- lögum hérlendis og erlendis. Glaðværð og kátína var alltaf til staðar hjá þeim báðum, þó dimmt væri yfir og stundum erfitt þá virtust þau bæði hafa þennan frábæra eiginleika að sjá bjartar hliðar á öllu fólki og málefnum. Unna var gift Gunnari Marinó Hansen og var hjónaband þeirra sérlega farsælt, enda voru þau jafnan nefnd einu nafni í fjöl- skyldunni, Unna og Gunni, og gilti einu þó þau væru ein á ferð. Ég veit þó að þeirra góða líf fékk enn bjartari lit þegar þau eign- uðust Vilborgu, hún var án efa þeirra stærsta gleði. Unnur var alla tíð glæsileg kona og virtist einu skipta hvort hún væri í heimsborgum eða fjár- húsunum en Unna og Gunni stunduðu saman frístundabúskap ásamt foreldrum mínum í tæpan áratug. Raunar er það svo að mér finnst hugtakið „Reykjavíkur- mær“ eiga sérlega við um Unni enda alltaf glæsileg. Unna vann lengst af starfsæv- inni á róló og fór vel á því enda drógust öll börn að henni þannig að eftir var tekið. Þess naut Frið- rik elsti sonur minn sem bjó um árabil ásamt móður sinni í sama húsi og Unna og minnist hann Unnar með miklum hlýhug. Það er þannig með sumt fólk að maður finnur hvernig það lýsir manni veginn, hugurinn stillist og hjörtun fara að slá í takt, þannig manneskja var Unnur. Síðustu dagana var henni ljós- ara en okkur hinum í hvað stefndi og ræddi það, hún var á leiðinni heim og vissi að hún myndi hitta Gunna sinn og Sigga bróður hin- um megin. Hún gaf okkur tíma þegar ljóst var að ekki varð aftur snúið, tíma til að syrgja og gráta, en jafn- framt tíma til að átta okkur á þakklætinu fyrir tímann sem við áttum saman í gegnum árin. Mér er það ógleymanleg stund þegar við Vilborg gengum út frá Landspítalanum í næturhúminu eftir fallega húskveðju séra Braga að sjá kertaljós loga í glugganum þar sem hún lá. Ég veit að Unnur var vinur vina sinna bæði innan fjölskyldu og utan og votta ég þeim og móð- ur minni sem kveður sína bestu vinkonu til áratuga alla samúð mína. En sérstaklega þér, elsku Vil- borg, sem ég heiti trú, trausti og vináttu. Sumir hverfa fljótt úr heimi hér, skrítið stundum hvernig lífið er, eftir sitja margar minningar. Þakklæti og trú. Þegar eitthvað virðist þjaka mig þarf ég bara að sitja og hugsa um þig, þá er eins og losni úr læðingi lausnir öllu við. Þó ég fái ekki að snerta þig veit ég samt að þú ert hér, og ég veit að þú munt elska mig geyma mig og gæta hjá þér. (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Hönd í hönd kvöddumst við að sinni. Andrés Sigurðsson og fjölskylda. Það skein vorsól síðasta daginn sem Unnur lifði. Hún bað um að gluggatjöldin yrðu dregin frá svo birtan næði inn. Það var alltaf bjart í kringum Unni frænku sem hét reyndar Unnur Sólveig. Hún var fremur lágvaxin og fíngerð, ljós yfirlitum, vel tilhöfð, alltaf með varalit og henni fylgdi mild ilmvatnsangan. En það var ekki bara bjart í kringum hana heldur fylgdi henni líka ylur eins og sá sem fylgir sól- inni. Sjálf krafðist hún ekki mikillar athygli en fólk laðaðist að henni. Unnur var lífsglöð, áhugasöm um fólk og ljúf. Hún var ævinlega já- kvæð en samt engin já-mann- eskja, hún hafði ákveðnar skoð- anir á málum og mannanna verkum. Unnur var ófeimin að minna á að við hefðum skyldur gagnvart okkar fólki og þær ætti að rækja. Þær skyldur rækti hún sjálf gagnvart fólki og dró ekki af sér. Hún fylgdist með lífi og líðan ótölulegs fjölda fólks, ættmenna, vina, afkomenda þeirra og sam- starfsfólks. Börnin löðuðust ekki síður að henni, jafnvel feimnustu börn sem að jafnaði litu ekki upp og földu sig í fangi foreldra, voru á augabragði komin á spjall við hana og farin að ræða við hana af miklu trúnaðartrausti. Þessi eig- inleiki nýttist henni vel í því starfi sem hún sinnti meginhluta starfs- ævi sinnar á róló í Vesturbergi. Unnur var góð og náin systir föður míns og trúnaðarvinkona móður minnar. Hvernig kveður maður frænku sem hefur alltaf verið hluti af fjölskyldunni, lífi mínu og seinna líka minnar fjöl- skyldu? Á svona stund rennur það upp fyrir manni hvað þessi fín- gerða kona hafði mikinn styrk og hvern þátt hún átti í að skapa þennan ósýnilega en styrka ramma sem gerir lífið öruggt og gefur vissu um að heimurinn sé í lagi. Það hefur verið sagt að þeir einir lifi sem eru ósparir á sjálfa sig. Hún var alltaf til staðar. Upp í huga minn koma minn- ingar úr bernsku. Fjölskyldurnar í sunnudagsmat hjá ömmu Mundu. Þau voru skemmtileg systkini Unnur og pabbi og glens og grín var þeim báðum tamt. Eftirminnilegt er til dæmis hvernig þau skemmtu sér við að deila um arfinn eftir ömmu, hvort ætti að skipta kommóðunni langs- um eða þversum. Afmæli og fermingar okkar systkinanna, jólaboð, alltaf voru Unnur og Gunnar þar og seinna líka auga- steinninn þeirra hún Vilborg. Síð- ar sömu viðburðir hjá okkar börn- um og svo barnabörnum. Alltaf hlý, alltaf notaleg, alltaf gefandi. Þó sól sé sest yljar minningin um hana áfram. Unnur veitti birtu inn í líf mitt sem og annarra samferðamanna sinna. Þegar leiðir skilur ríkir djúpur söknuður og heimurinn er fátæk- legri við fráfall hennar. Ég er óendanlega þakklát að hafa átt Unnur Sólveig Vilbergsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.