Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Styrmir Kári Fræðsla Tónleikarnir fyrir grunnskólabörn eru liður í fræðslustarfi Sinfóníuhljómsevitar Íslands og vilji til að ná til enn yngri barna. Í dag verður prufukeyrð barnastund Sinfóníunnar á ganginum á annarri hæð í Hörpu. dvöldu á heimili fyrir munaðarlaus börn á Ítalíu þar sem Vivaldi starfaði frá 25 ára aldri. Hann var sjálfur frá- bær fiðluleikari og varð þessi strengjasveit fljótt þekkt og virt um alla Evrópu.“ Liður í fræðslustarfi Sinfóníunnar Tónleikarnir fyrir grunnskóla- börn eru liður í fræðslustarfi Sinfóní- unnar að sögn Hjördísar Ástráðs- dóttur fræðslustjóra Sinfóníunnar og verkin valin í samræmi við það. „Við kölluðum tónleikana Upp í sveit með Sinfóníunni í bæklingnum okkar, en þeir eru kynntir sem Úti í náttúrunni fyrir grunnskólabörnunum, enda eru þeir byggðir upp af tónverkum sem lýsa náttúrunni á einn eða annan hátt: vorkoman, stormasamari kaflar og dýrin í náttúrunni eins og býflug- an, svo dæmi séu tekin. Það má segja að þetta sé allt hermitónlist, tónlist sem lýsir náttúrunni eða tilteknum dýrum. Á tónleikunum á laugardag verður sama dagskrá en líklega lengri, því við pössum vel upp á það að grunnskólatónleikar séu ekki lengri en 40 mínútur.“ Barnastund Sinfóníunnar Hjördís segir að það sé líka mik- ill vilji til þess hjá Sinfóníu- hljómsveitinni að ná til enn yngri barna en grunnskólabarna. „Á laug- ardaginn prufukeyrum við þannig það sem við höfum kallað barna- stund Sinfóníunnar, en það verður í opnu rými, á ganginum á annarri hæð í Hörpu og öllum opið. Við vilj- um ekki vera að aldursmarka það of þröngt, en það er aðallega ætlað börnum á aldrinum tveggja til fjög- urra ára, sem eru ekki nógu gömul til að halda kyrru fyrir á heilum tón- leikum.“ Hjördís segir að allir séu vel- komnir í barnastundina og aðgangs- eyrir að henni enginn. „Við erum að reyna fyrir okkur hvernig best sé að haga þessu og framhaldið ræðst svo af því hvernig tekst til,“ segir hún, en fyrirhugað er að halda slíkar stundir reglulega næsta vetur. „Það er ein- lægur vilji okkar að koma þessu á, enda er þetta aldurshópur sem okk- ur langar að sinna betur og eigum að hafa alla þekkingu til þess.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012 Fyrir nokkrum mánuðumkeypti ég mér Kyndil fráAmazon. Hann varð bráttuppáhaldsgræjan mín á heimilinu (og utan þess) og ég þreyt- ist seint á að mæra hans einföldu snilld við hvern sem heyra og lesa vill. Ég keypti mér einföldustu og ódýr- ustu gerðina af Kyndli (hann kostaði um 17 þúsund kr.) vegna þess að þótt ég eigi mjög auðvelt með að gleyma mér tímunum saman við lestur er ég líka með athyglisbrest ef svarthol netsins er innan seilingar. Ég ver nú þegar allt of löngum tíma á netinu, ýmist í tölvunni eða símanum og þess vegna vil ég að bókin mín sé bara bók, jafnvel þó að hún sé rafbók. Í Kyndlinum er þráðlaus netteng- ing svo ég get farið inn á Amazon, keypt bók með einum smelli og fengið hana senda á 10 sekúndum. Það er mjög freistandi og úrvalið í þessari stærstu bókabúð heims á gerir það að verkum að ég verð eins og krakki í nammibar Hagkaupa á laugardegi. Lestrarupplifunin sjálf er ekki síðri með rafrænu bleki en á prenti að mínu mati. Kyndillinn er auðvitað mun handhægari og meðfærilegri en þykkustu doðrantarnir. Það var að- allega lyktin sem ég hafði áhyggjur af, ég er nefnilega ein af þeim sem þefa af bókum. Lykt af nýprentaðri bók er góð og fyllir mann af eftirvænt- ingu, en ég leysti þetta með því að kaupa mér fallegt leðurhulstur um Kyndilinn minn. Lyktin af leðri er nefnilega ekki síður góð. Svo býður Kyndillinn upp á öðru vísi lestur en áður. Bæði er hægt að ná í ýmsa klassík frítt á net- inu (í vikunni sótti ég mér t.d. ritgerðasafn Mark Twain ókeypis). Langar greinar á vefsíðum má senda í Kyndilinn ef maður nennir ekki að lesa þær af tölvuskjá. Núna sæki ég líka lesefni sem mér fannst ekki rétt- lætanlegt að kaupa áður og fá sent til landsins með tilheyrandi kostnaði. Ég freistast til að kaupa bækur fyrir forvitni sakir, vegna þess að þær eru ódýrar á rafrænu formi. Kyndil- inn er ekki hægt að dæma af kápunni, sem gefur manni frelsi til að lesa klámfengnar eða vandræðalega hall- ærislegar bækur á mannmörgum stöðum án þess að neinn viti af því. (Og lesturinn verður auðvitað mun skemmtilegri fyrir vikið). Vegna alls þessa er mín reynsla sú að eftir til- komu Kyndilsins kaupi ég fleiri bæk- ur en nokkru sinni fyrr. Ef það er nógu auðvelt og ódýrt að nálgast efni löglega á netinu sé ég nefnilega enga ástæðu til að stela því. Ég vil mjög gjarnan styðja höfunda verkanna sem ég nýt með því að borga fyrir þau. Enn hef ég þó enga íslenska rafbók keypt. Ég einfaldlega tími því ekki. »Það góða við Kyndil-inn er að maður getur lesið klámfengnar eða vandræðalega hallær- islegar bækur á mann- mörgum stöðum án þess að neinn viti af því. HeimurUnu Una Sighvatsdóttir una@mbl.is býður upp á seiðandi sumar með Lac Sensation Reykjavík og nágrenni • Snyrtistofan Helena Fagra Laugarvegi 163, 105 Rvk. • Snyrti og nuddstofan Paradís Laugarnesvegi 82, 105 Rvk. • Dekurhornið Snyrtistofa Faxafeni 14, 108 Rvk. • Snyrtistofa Grafarvogs Hverafold 1-3, 112 Rvk. • Snyrtistofan Ágústa Hafnarstræti 5, 101 Rvk. • Snyrtihús Bergdísar Ólafsgeisla 65, 113 Rvk. • Snyrtimiðstöðin Kringlunni 7, 103 Rvk. • Snyrtistofan Gyðjan Skipholti 50d, 105 Rvk. • Snyrtistofan Ársól Efstalandi 26, 108 Rvk. • Dagný Snyrtistúdíó Miðhúsum 50, 112 Rvk. • Victoria Salon & Spa Suðurlandsbraut 16, 108 Rvk. • Verði Þinn Vilji Borgartún 3, 105 Rvk. • Eygló Heilsulind Langholtsveg 17, 104 Rvk. • Heilsustofan Háaleitisbraut 58-60, 108 Rvk. • Snyrtistofan Xanadú Hamrabergi 4, 111 Rvk. • Snyrtistofan Rós Engihjalla 8, 200 Kóp. • Snyrtystofan Hrund Grænatún 1, 200 Kóp. • Snyrtistofan Cara Bæjarlind 1-3, 200 Kóp. • Snyrtistofan Garðatorgi Garðatorgi 7, 210 Garðabæ • Snyrtistofan Lipurtá Staðarbergi 2-4, 221 Hafnarfirði • Snyrtistofan Þema Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði • Snyrtistofan Líkami & sál Þverholt 11, 270 Mosfellsbæ Landsbyggðin • Abaco Heilsulind Hrísalund 1a, 600 Akureyri • Snyrtistofan Alda Tjarnarbraut 19, 700 Egilsstaðir • Riverside Spa Eyrarvegi 2, 800 Selfoss • Snyrtistofa Ólafar Austurveg 9, 800 Selfoss • Snyrtistofa Jennýjar Lind Borgarbraut 3, 310 Borgarnes • Snyrtistofan Dekur Dalsbraut 1, 300 Akranes • Snyrtistofan Fagra Hafnargötu 7b, 240 Grindavík • Snyrtistofan Spes Suðurgötu 10, 250 Sandgerði • Snyrtistofan Mánagull Aðalstræti 21-23, 415 Bolungarvík • Snyrtistofan Ágústu Hilmisgötu 2a, 900 Vestmannaeyjum UV naglalakk sem endist í allt að 3 vikur Styrkir náttúrulegu nöglina, hentar bæði fyrir náttúrulegar neglur og gerfineglur, frábært á tásur! Lac Sensation – útsölustaðir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.